Morgunblaðið - 16.03.1984, Qupperneq 23

Morgunblaðið - 16.03.1984, Qupperneq 23
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 16. MARZ 1984 63 VÉLVAKANDI ^ SVARAR í SÍMA 10100 KL. 11—12 FRÁ MÁNUDEGI . TIL FÖSTUDAGS ckMUJMriZ’Uhj'u ir Hvers vegna eru Minalka og Scanalka bönnuð hér á landi? Steingrímur Thorsteinsson skrif- ar: „Til Velvakanda. Hver er ástæöan til þess að steinefnatöflurnar „Minalka" og „Scanalka" eru bannaðar hér á landi? Ég vil eindregið fá svör frá heilbrigðisyfirvöldum við þessari spurningu. Þessar töflur voru mörg ár frjálsar á markaðinum, en voru svo bannaðar. Ég minnis.t þess ekki að ég hafi nokkru sinni séð þær auglýstar. En þær urðu brátt mjög vinsælar vegna þeirrar reynslu, sem fólk fékk af þeim. Einhvern tíma sá ég þess getið í blaðagrein, að þær væru bannaðar vegna þess að meðal efnisinni- halds þeirra væri efni sem kallað er kobalt, og að það væri resept- skylt. Ég er einn þeirra sem notaði þessar töflur, þar eð þær höfðu frískandi áhrif á mig, og langvar- andi notkun hafði engar auka- verkanir. Mér því forvitni á að vita, hvers vegna þær eru bannað- ar, þar sem þær munu vera frjáls- ar í öðrum löndum. Af hverju eru þær frjálsar þar en bannaðar hér? Og þar sem sagt er að þær séu bannaðar vegna þess að í þeim sé kobalt, langar mig að spyrja hvort kobalt sé reseptskylt erlendis og hvenær það var res- eptskyldað hér? Kobalt telst til næringarefna, en þeir sem fara með lyfjamál, geta að sjálfsögðu reseptskyldað það þegar því er blandað í lyf. En ég skil ekki að það geti verið leyfi- legt að reseptskylda það sem nær- ingu, blandað ýmsum örðum nær- ingarefnum. Það ætti því eins að banna lifur og egg, þar sem kobalt er í þeim með ýmsum öðrum nær- ingarefnum, eins og í Minalka og Scanalka. Ég vil því spyrja skv. hvaða lög- um kobalt er reseptskyldað sem næring? Er hér ekki um einhvern misskilning að ræða? Og er það ekki líka á misskilningi byggt, að þeir sem fara með lyfjamál skipti sér af innflutningi næringarefna? Nú er svo margt leyft sem er verulega skaðlegt heilsu manna, svo sem neysla áfengis og tóbaks, notkun lyfja sem hafa ýmiss kon- ar óæskilegar aukaverkanir, sem stundum leiða til að viðkomandi verður sér úti um ýmis efni, sem ganga kaupum og sölum manna á milli, og ekki þarf að nefna hver eru. Vitað er að þegar fólk eldist verður likaminn vanhæfari til að vinna hin ýmsu efni úr fæðunni, sem í mörgum tilfellum er búið að rýra að næringargildi með rangri meðferð. Nefna mætti hinn til- búna áburð og alls konar eiturefni sem nú eru notuð í landbúnaði í tíma og ótíma. Miðað við þá reynslu sem ég hef haft af alls konar efnum, þ. á m. Minalka og Scanalka ásamt fjölda náttúrulegra bætiefna, sem hafa gefið góða raun, þá vil ég halda því fram, að með þeim sé tryggð veru- leg viðbót hollustuefna, sem ekki eru fyrir hendi í daglegri fæðu. Með trefjaefnaríkri fæðu, víta- J.G. skrifar: „Kona í Austurbænum hvetur menn til að segja álit sitt á Fjala- kettinum og fyrirætlunum manna um að gera húsið upp. Ég er þeirr- ar skoðunar að þetta hús sé og verði til óprýði þar sem það er og ávinningur væri að losna við það. Ekki skil ég í að nokkrum detti í hug að verja 100 milljónum króna til að endurbyggja þennan kumb- á mínum og hæfilegri líkamsþjálfun næst veruleg heilsubót, en vegna slæmrar reynslu hef ég orðið af- huga t.d. hvítu hveiti, sykri, saltkjöti og reyktu kjöti, svo ég nefni eitthvað. Að endingu þetta: Með fyrir- byggjandi aðgerðum og réttu mat- aræði tel ég að margt geti áunnist hvað varðar bætt heilsufar og leitt til sparnaðar í heilbrigðiskerfinu, til hagsbóta fyrir alla. Hér er ekki um neitt smámál að ræða. Sem fastur lesandi Mbl. bið ég Velvakanda, sem leyst hefur margra vanda, að kanna þetta mál vandlega. Því munu fleiri verða þakklátir en ég.“ alda sem yrði þarna til óprýði eft- ir sem áður. Ef einhverjir hafa samt áhuga á að halda í húsið, hljóta þeir að gera það upp á eigin kostnað, því ég er sannfærður um að menn vilji ekki almennt kasta peningum í þetta. Verst er hversu mikil óprýði verður alltaf af þessu húsi á þessum stað, verði það endurbyggt." Fjalakötturinn: Er og verður til óprýði Þessir hringdu .. . Afram með Dallas — hundana burt 7201-0361 hringdi: — Ég er mjög svo ósammála þessum Árna sem hringdi í Velvakanda á þriðjudag og heimtaði að hætt yrði að sýna Dallas í sjónvarp- inu. Ég er algerlega á öndverð- um meiði við hann, — það er fjöldi fólks sem hefur gaman af Dallas og ef honum líkar ekki myndin getur hann bara fengið sér myndband og horft á annað út af fyrir sig. Árni verður að skilja að hann er ekki sá eini sem horfir á sjónvarp hér á landi. Þá langar mig til að segja mína skoðun á hundahaldi hér í Reykjavík. Ég vona að sá dagur renni upp að tekið verði fyrir hundahald hér í borginni — Reykjavík er nógu skitug, þó ekki bætist við að hér sé hunda- skítur út um allt. Að lokum: Ég er afar ánægð með að forsetinn okkar ætli að vera í framboði til endurkjörs í forsetaembættið. Þá er ég af- skaplega ánægð með hana Krist- ínu Ólafsdóttur sem útvarpsþul, því hún er alveg frábær lesari. KISS ekki á Listahátíð 5137-4886 hringdi: „Mig langar til að koma því á framfæri að hljómsveitin Kiss verði ekki valin á Listahátíð ’84. Þrátt fyrir mikil skrif um að fá Kiss á Listahátíð get ég fullyrt að aðdáendahópur Kiss á Islandi er alger minnihlutahópur sem tilheyrir að mestu leyti aldurs- hópnum 12 til 15 ára. Nær væri að fá einhverja vandaða hljómsveit sem flytur vandaða músík, því Kiss er langt frá því að vera vönduð hvað þá músíkin sem þeir flytja. Einnig get ég upplýst fáfróða Kiss-aðdáendur um það að fyrir nokkrum árum lýstu þeir félagar því yfir opin- berlega að þeir væru djöfladýrk- endur, eins og skammstöfunin Kiss ber með sér, þ.e. Kings in Service of Satan (konungar í þjónustu Satans). A tónleikum sínum boðuðu þeir trú sína, djöflatrú, og buðu fólki að ganga í djöfladýrkendasöfnuð þann er þeir tilheyrðu. Það skal tekið fram að þrátt fyrir mannaskipti í hljómsveitinni og nokkur ár hefur stefna þeirra á þessu sviði ekki breyst. Þess vegna finnst mér, þó ekki væri nema vegna þess að yfir níutiu prósent þjóðarinnar eru kristið fólk, að Kiss eigi ekkert erindi til Isiands á Listahátið. Að iokum langar mig til að stinga upp á hljómsveitinni frábæru, Police, á Listahátíð 1984.“ GEí§iP Velkomin í Naust Matseðill kvoldsins: Hvítlauksristaöur smokkfiskur m/ristuöu brauöi. Camembert súpa bætt meö rjóma. Nautabuffsteik m/fylltum tómat, spergilkáli og bakaöri kartöflu eöa heilsteiktar grísalundir og „Choron"-sósa eða léttreykt lambalæri m/rósakáli, gulrótum og rjómalagaöri sveppasósu. Bananaís m/rjómakarmellusósu. Opið til kl. 03. Boröapantanir í síma 17759. mJL Frá verksmióju- dyrum til viötakenda Skipadeild Sambandsins hefur um þrjú hundr- uð staifsmenn á sjó og landi, sem sjá um að Jlytja vörur heim og heiman. Þá eru ótaldir um- boðsmenn okkar og samstarfsaðilar erlendis. Sérþekking og hagræðing gerir okkur kleift að bjóða hagstæð jlutningsgjöld. Þú getur verið áhyggjulaus — við komum vör- unni Jrá verksmiðjudyrum til viðtakenda. ViðJlytjum allt, smátt og stórt.fyrir hvern sem er, hvert sem er. Þú tekur bara símann og hringir. SKIPADEILD SAMBANDSINS SAMBANDSHÚSINU REYKJAVIK SIMI 28200 r

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.