Morgunblaðið - 25.05.1984, Qupperneq 12
44
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 25. MAÍ 1984
AftfcAHAM
OftTf Ul S
tVSÍW.
KGMttfcUðm
*JH>
Vfi»>
KRMMWí
Kjörgripur meðal
íslenzkra frímerkja
Frímerki
Jón Aöalsteinn Jónsson
WAGNER-
sjálfstýríngar
Wagner-sjálfstýringar,
komplett meö dælusettum
12 og 24 volt, kompás og
fjarstýringum fram á dekk,
ef óskaö er, fyrir allar
stæröir fiskiskipa og allt
niður í smá trillur. Sjálf-
stýringarnar eru traustar
og öruggar og auðveldar í
uppsetningu. Höfum einn-
ig á lager flestar stæröir
vökvastýrisvéla.
Hagstætt verö og
greiðsluskilmálar.
Atlas hf
Ármúli 7 — Sími 26755.
Pósthólf 493, Reykjavík
VZterkurog
L/ hagkvæmur
auglýsingamiöill!
Jflpraunftlafrifr
Póst- og símamálastofnunin
gefur þriðju og síöustu smáörk-
ina eða blokkina í sambandi viö
samnorrænu frímerkjasýning-
una NORDIA 84 út 6. júní nk. Er
nú ekki nema rúmur mánuöur,
þar til sýningin veröur opnuö í
Laugardalshöll hér í Reykjavík.
Hefst hún 3. júlí og lýkur 8. júlí.
Myndefni arkarinnar er Norö-
urlandakort Abrahams Orteliusar
frá 1570. Er eitt frímerki í örkinnl
meö hluta úr þessu landakorti,
þar sem island sést eins og
menn ímynduöu sér lögun þess á
16. öld. island kemur fyrir á miö-
aldakortum, en margt er þar
óljóst. Hollerizkur landfræðingur,
Abraham Ortelius, gaf út korta-
safn áriö 1570. Þrjú af kortum
safnsins varöa Island, og er hiö
þriöja þeirra birt á smáörkinni.
Þetta kort er til í mörgum eftir-
prentunum og hefur oft veriö gef-
iö út á dagatölum. Landakortið
er prentaö í eölilegum litum.
Smáörkin er hin fallegasta,
enda hefur veriö vandaö til henn-
ar aö allri gerö, og sjálfur Czesl-
aw Slania, einn kunnasti mynd-
grafari heims, fenginn til aö grafa
hana í stálstungu. Þaó eitt er
næg trygging fyrir því, aö hér sé
um mjög fallegt handbragö aö
ræöa.
Eins og fyrri smáarkirnar tvær
er þessi örk prentuö í sömu
prentsmiöju í Hollandi. Er stærö
hennar 114x76 mm. Söluveröiö
er 60 krónur, en verðgildi frí-
merkisins 40 krónur. Mismunur-
inn eöa yfirveröiö, 20 krónur,
rennur í sjóð til styrktar sýning-
unni. Mun ekki af veita, því aö
kostnaöur viö sýninguna veröur
óhjákvæmilega mikill. Þeim
krónum veröur samt ekki illa var-
iö, þvf aö fullyröa má, aö íslenzkir
frímerkjasafnarar og aörir
áhugamenn um frímerki fá hér
einstætt tækifæri til aö skoöa
mörg hin beztu frímerkjasöfn,
sem til eru á Noröurlöndum, eöa
þá hluta af þeim.
Þá má benda alveg sérstak-
lega á þaö, aö aliar póststjórnir
Norðurlanda veröa meö sölu-
deildir á NORDIU 84. Er þaö í
fyrsta skipti, sem þaö gerist hér á
landi. Gefst gestum sýningarinn-
ar þannig gott tækifæri til aö
kaupa frímerki annarra Noröur-
landa beint frá pósthúsum
þeirra.
Rétt er aö benda mönnum al-
veg sérstaklega á þaö, aö smá-
örkin, sem kemur út 6. júní,
verður einungis til sölu til loka
frímerkjasýningarinnar, þ.e. tíl
8. júlí. Þaö sem þá veröur óselt
af upplagi hennar, veröur eyði-
lagt. Hins vegar heldur frímerki
hennar áfram gildi sínu til burö-
argjalds. Hiö sama er einnlg um
frímerkin í smáörk I og II, þó aö
þær séu ekki lengur fáanlegar í
pósthúsum landsins.
Hér er um mjög stuttan sölu-
tíma aö ræða — eöa rúman
mánuö. Er sjálfsagt, aö menn
gefi jjessu gaum, svo aö þeir geti
tryggt sér eintök af henni í tæka
tíö. Benda má á, aö upplag fyrri
blokkanna var í kringum 200
þúsund af hvorri, og þaö telst
ekki stórt. Gera verður því ráö
fyrir, aö þær veröi allar þrjár eft-
irsóttar meö tímanum og þá ekki
sízt sú meö landabréfinu.
Eins og flestir vita, má nota
frímerki arkarinnar (og eins úr
fyrri örkum) eltt sér, þ.e. rífa það
úr örkinni, en þá gildir auóvitaö
nafnverö þess til buröargjalds.
Enginn efi er á, aö merkiö sjálft á
umslagi veröur seinna meir eftir-
sóttur safngripur og e.t.v. ekkert
síöur en smáörkln sjálf á um-
slagi.
Sérstakur stimpill hefur veriö
geröur til nota á útgáfudegi, svo
sem hér má sjá.
Ætlunin er sú, aö frímerkja-
þáttur þessi komi helzt vikulega í
blaðinu fram aö NORDIU 84,
enda eru mörg frásagnarefnin í
sambandi viö hana. Ég vona líka,
aö lesendur hafi svo mikinn
áhuga á þessari fyrstu samnor-
rænu frímerkjasýningu hér á
landi, aö frásögn af undirbúningi
hennar og hinu helzta, sem hún
mun hafa upp á aö bjóöa, vekl
veröskuldaöa athygli langt út
fyrir raöir frímerkjasafnara.
SOLHF
Þverholti 19
Búið er að draga í sumarsamkeppni Svala
Réttu svörin voru:
1) 82.371.000 alþjóðaeiningar af Cvítamíni.
2) 27.560 lítrar af hreinum appelsínusafa.
3) 4.490 lítrar af hreinum sítrónusafa.
4) Svali kom á markaðinn í mars 1983.
SÁ HEPPNI REYNDIST VERA: i Garðar Ólafsson Hamrahlíð 33 Reykjavik
OG HLÝTUR HANN ÞVÍ ÓKEYPIS FERÐ
FYRIR TVO í HÁLFAN MÁNUÐ TIL FLÓRÍDA
Jafnframt var dregið um 25 aukavinninga sem hver um sig
er einn kassi af Svala. Þá hlutu:
Anna Sigríður Indriðadóttir, Hjarðarhaga 24, Reykjavík. Anna Viðarsdóttir, Hjallalandi 16, Reykjavík.
Ástríður Hjörleifsdóttir, Suðurgötu 27, Keflavik. Birgir Jósafatsson, Vitastig 6, Hafnarfirði.
Einar Loftsson, Njálsgötu 71, Reykjavík. Guðjón Gunnarsson, Skagfirðingabraut 25, Sauðárkróki
Guðlaugur Pálsson, Rauðalæk 27, Reykjavík. Guðrún Arnalds, Barmahlíð 13, Reykjavík.
Guðsteinn Hreiðarsson, Túngötu 21, Seyðisfirði. Gunnar Gestsson, Hraunbæ 64, Reykjavík.
Haraldur Aðalbjörnsson, Suðurgötu 27, Keflavík. Helga Skúladóttir, Birkigrund 8, Kópavogi.
Hindrík Daníel Bjamason, Giljaseli 13, Reykjavík. Hjörleifur Sveinsson, Vesturgötu 17, Reykjavík.
Hrefna Halldórsdóttir, Núpabakka 15, Reykjavik. Ingólfur Hafsteinsson, Skólastíg 16, Bolungarvík.
Kristín Hróbjartsdóttir, Vesturgötu 17, Reykjavík. Kristín Viggósdóttir, Laugaveg 50 B. Reykjavík.
Krístrún Amardóttir, Bröttugötu 30, Vestmannaeyjum. Margrét Gunnarsdóttir, Ásabraut 11, Keflavík.
Sigurður Einarsson, Háholti 16, Keflavík. Sólveig Ámadóttir, Þórólfsgötu 6, Borgarnesi.
Stefán G. Stefánsson, Látraseli 8, Reykjavík. Þórður Þórðarson, Skagfirðingabraut 25, Sauðárkróki.
Þorsteinn Amalds, Barmahlíð 13, Reykjavík.
Vitja má vinninga gegn framvísun persónuskilríkja.