Morgunblaðið - 25.05.1984, Page 24

Morgunblaðið - 25.05.1984, Page 24
56 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 25. MAl 1984 Heimilishorn Bergljót Ingólfsdóttir Bönd um háríö Hattar, húfur og bönd um háriö þykir nú nær ómissandi ef fylgjast á meö tískunni. Margar ungar stúlkur sýna mikla hugkvæmni í höfuö- búnaöi, aörar kjósa að vera nákvæmlega eins og sú næsta. En hvaö um þaö, þaö getur komið sér vel í vinda- sömu landi að geta bundið niöur háriö, svo ekki fari allt úr skoröum. Bönd og klútar V um hiríö, í stíl viö fötin, geta veríó bæöi þægileg og falleg. eins og þeir, sem hér sjást á myndum, geta líka veriö til prýöis. Rúllukragi og húfa út í eitt. Rúllukragi og húfa út í eitt Þó tekið sé aö hlýna í veðri og voriö á næstu grösum, er samt ekki liöinn sá tími að grípa þarf til húfu, sérstaklega ef til stendur ferðalag út í náttúruna, upp til fjalla eöa út með sjó. Nú, og svo kemur aö öllum líkindum annar vetur á eftir þessum. Úr ullargarni er hægt aö prjóna strokk, slétt og brugðið, lengd ca. 35—40 cm. Strokkurinn er góður til aö halda hita á hálsi og þá liggur hann tvöfaldur, en þaö er einnig hægt aö teygja hann upp svo úr verði höfuðfat. Þetta virðist hin besta lausn, t.d. þegar veöurútlit er ótryggt og vafamál hvað taka á meö af fatnaöi. Með strokknum eru slegnar tvær flugur í einu höggi, ef komast má svo aö oröi. Breidur upprúllaöur \ \ klútur eða léttur tref- \ ill, getur verið klæði- ' legur hötuðbúnaöur. . Þar að auki er af hon-» um akjói. Matur Bergljót Ingólfsdóttir Púrru- og eplasalat Avaxta- og grænmet- issalöt Púrru- og eplasalat 2 púrrur 1 epli 10—15 hnetur 1 tómatur 2 matsk. olía 2 tsk. sítrónusafi Allt skoriö smátt og olíu með sítrónusafa hellt yfir, brytjaöar hnetur settar yfir. Salat úr appelsínum, hnetum og grænmeti Appelsínur, grænt salat, sell- erí, valhnetukjarnar, majones og rjómi. Appelsínurnar eru afhýddar og skornar í næfurþunnar sneiö- ar, sellerístilkarnir skornir mjög smátt, hneturnar saxaöar fremur smátt. Salatiö sett á skammtadiska, neöst eru sett salatblöö, yfir er svo sett blanda af því sem búiö er aö brytja, nema hneturnar. Rétt áöur en bera á salatiö fram er sett ein til tvær matskeiðar af majones, hrært upp meö rjóma, á hvern disk, hnetum stráö yfir. Marineradar appeiaínur 3—4 appelsínur, börkurinn tekinn af og ávöxturinn skorinn í mjög þunnar sneiöar. Lögur: 2 matsk. edik, 1 dl vatn, 3 matsk. sykur, 8 negul- naglar, brot úr kanilstöng. Þaö sem fara á í löginn sett í pott og suðan látin koma upp, kælt, negull og kanill tekinn úr og leginum hellt yfir appelsínu- sneiöarnar, geymt á köldum staö um tíma áöur en boriö er fram. Haft meö kjöti eöa öörum mat. Amerískt salat Salathöfuö góö epli hnetur 1 lítil dós ananaskurl majones þeyttur rjómi paprikuduft sítrónusafi Salatiö skorið í strimla, eplin skorin í teninga, lögurinn látinn drjúpa af kurlinu, hneturnar brytjaöar. Majonesiö er blandað með rjóma í hlutföllunum tveir á móti einum, hrært vel og bragöbætt meö paprikudufti og sítrónusafa, (salti ef vill) og salat og ávextir settir út í.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.