Morgunblaðið - 25.05.1984, Page 31
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 25. MAÍ 1984
63
Einar Kristinsson við sumarhúsin. Morgunbia«<«/ köe.
Þrátt fyrir láa fermetra, er öllu einkar haganlega fyrir-
komið í sumarhúsunum á Hellu.
Trésmiöjunni Rangá á Hellu
og tekin út í heilu lagi.
Einar sagöi aö lítiö væri
fariö aö bóka í húsin fyrir
sumariö, enda heföu þeir
staðið í framkvæmdunum í
vetur, og því ekki getaö
kynnt ferðamálafrömuöum
þessa aöstööu sem skyldi
sl. haust, þegar feröa-
skrifstofurnar voru aö
kynna sér hvaö væri á
boöstólum. Hann sagöist
því ekki vera mjög þjart-
sýnn á góöa nýtingu hús-
anna nú í sumar, en þetta
ætti allt aö horfa til betri
vegar næsta sumar. Hann
sagöist þó gera sér vonir
um aö tjaldstæöiö og þjón-
ustuaðstaöan sem því fylgdi
yröi vel nýtt í sumar.
Einar sagði aö bókaö
yröi í húsin hvort sem fólk
vildi eina og eina nótt í senn
eöa í heila viku. Hann sagöi
aö heldur yröi dýrara aö
vera í húsunum stakar næt-
ur en heila viku og þaö jafn-
aöi sig þannig út aö fimm
dagar í lausasölu kostuöu
þaö sama og heil vika, en
verölagningin er í Banda-
ríkjadollurum. Vikan kostar
227 dollara áriö um kring,
aö undanskildum háanna-
timanum, en þá hækkar vik-
an í 265 dollara.
Stundvísi og öryggi eru
þeir þættir sem við-
skiptavinir flugfélag-
anna, sem fljúga hvað
mest, meta mest.
STUNDVÍSI og öryggi
voru þeir þættir sem
hvaö flestir þátttakendur
í skoðanakönnun
Svensk Export, mánað-
arrits sænska viöskipta-
ráösins, töldu þýð-
ingarmesta í þjónustu
flugfélaga, en 97%
ferðalanga sem feröast í
viöskiptaerindum svör-
uðu því til aö stundvísi
og öryggi væru þeir
þættir sem þeir mætu
mest.
Stundvísi og öryggi
Þýdingarmestu þættirnir í þjónustu flugfélaga,
ad mati þeirra sem ferdast í vidskiptaerindum
Fast á eftir fylgdi svo
þýðing þess aö vera með
vingjarnlegt og lipurt
starfsfólk, en 86%
spuröra töldu þann þátt
mjög svo þýöingarmikinn.
Þá voru þættir eins og
þægileg sæti og tíöar
flugferöir án millilendinga
einnig taldir vera ofarlega
á lista yfir þýöingarmikla
þjónustu flugfélaganna.
Er þátttakendur voru
spuröir hvern þeir teldu
bestan af flugvöllum Evr-
ópu var Schiphol í Amst-
erdam í fyrsta sæti, en
þaö varö hann einnig í
fyrra. Frankfurtarflugvöll-
ur varð í öðru sæti, sem
er einnig óbreytt röð frá
því í fyrra, en Kastrup í
Kaupmannahöfn skaust
hins vegar úr fjóröa sæti í
þriöja, og skipti þannig
um sæti viö flugvöllinn í
Zúrich.
ESAB
Rafsuóutæki
vír og
fylgihlutir.
Nánast allt til
rafsuðu.
Forysta ESAB
ertrygging
fyrirgæðum
og góðri þjónustu.
Allartækni-
upplýsingar
eru fyrirliggjandi
ísöludeild.
= HÉÐINN =
VÉLAVERSLUN. SELJAVEGI 2.
SIMI 24260
ESAB
reglulega af
öllum
fjöldanum!
KARTÖFLURNAR
KOMNAR OG BÚNAR
NEYTENDUR KAUPMENN
INNKAUPASTJÓRAR
Næsta sending væntanleg
Gerið pantanir sem fyrst
Eggert Kristjánsson hf.
Sundagöröum 4, sími 85300