Morgunblaðið - 15.06.1984, Blaðsíða 1
64 SÍÐUR
STOFNAÐ 1913
134. tbl. 71. árg.____________________________________FÖSTUDAGUR 15. JÚNÍ 1984_________________________________Prentsmiðja Morgunblaðsins
Comecon-
fundi lokið
í Moskvu
Mo.skvu, 14. júní. AP.
FUNDI markaðsbandalags
kommúnistaríkja, COMEC-
ON, lauk í dag, en hann var
hinn fyrsti sinnar tegundar í
15 ár. Fulltrúar á fundinum
komust að samkomulagi um
að leggja niður kerfi, sem
hefur verið notað í átta ár til
að ákveða verð á sovéskri
olíu, en um það hafa verið
skiptar skoðanir.
Yfirmaðurinn sem tilkynnti
um niðurstöður þessar á fundi
með fréttamönnum sagði hins
vegar að Sovétríkin gætu ekki
orðið við kröfum bandamanna
sinna um auknar olíusendingar.
Konstantin Chernenko, forseti
Sovétríkjanna, hélt ræðu við lok
fundarins og hvatti bandamenn
sína til að berjast gegn aftur-
haldsöflum heimsvaldasinna í
Bandaríkjunum, að því er segir í
fregnum sovésku fréttastofunnar
Tass í dag.
Leiðtogarnir tíu sem sátu fund-
inn komust að samkomulagi um
samvinnu í efnahagsmálum.
Einnig undirrituðu þeir yfirlýs-
ingu þar sem fjallað er um mik-
ilvægi friðar og alþjóðlegrar
samvinnu í efnahagsmálum, segir
í fregnum Tass-fréttastofunnar.
Reagan Chernenko
Reagan til
fundar við
Chernenko?
Washington, 14. júní. AP.
RONALD REAGAN Banda-
ríkjaforseti boöaði til blaða-
mannafundar seint í kvöld
(aö ísl. tíma) þar sem hann
hugðist tilkynna að hann
væri reiðubúinn til viðræðna
við Konstantin Chernenko,
forseta Sovétrfkjanna með
ákveðnum skilyrðum.
Talsmaður sovéskra stjórn-
valda tilkynnti í kvöld að þau
væru reiðubúin til viðræðna
við Bandaríkjastjórn, en tók
undir fyrri yfirlýsingar Reag-
ans þess eðlis að slíkur fundur
yrði að vera vel undirbúinn.
Hann lagði áherslu á að eng-
inn slíkur fundur hefði komið
til tals.
Persaflóaríki
biðja um aðstoð
Öryggisráðsins
Manama. Bahrain, 14. júní. AP.
lltanríkisráðherrar sex Arabaríkja
við Persaflóa tilkynntu í dag, að þeir
vildu forðast að lenda í átökum við
írani og fóru þess á leit við Öryggis-
ráð Sameinuðu þjóðanna að það
reyndi að binda endi á árasir írana á
olíuskip Persaflóaríkjanna.
Viðræður utanríkisráðherranna
hafa staðið undanfarna þrjá daga
í Taif í Saudi Arabiu og verið
leynilegar.
f yfirlýsingum sem fram komu
að fundinum loknum var lýst
ánægju með ályktun Öryggisráðs-
ins 1. júní síðastliðinn þar sem
fordæmdar voru árásir írana á
olíuskip á siglingaleiðum um
Persaflóa að undanförnu.
f yfirlýsingu Arababandalags-
ins segir að nauðsynlegt sé að
tryggja öryggi þeirra þjóða sem
ekki taka þátt í stríðinu. Einnig er
fordæmd harðlega árás á olíuskip-
ið Kazima frá Kuwait.
Aðalritari Arabandalagsins,
Abdullah Bishara, lagði áherslu á
það í yfirlýsingu sinni að þau ríki
sem aðild eigi að Arababandalag-
inu hefðu trú á diplómatískum
lausnum mála og öllum samninga-
viðleitunum, með því skilyrði að
þær kæmu ekki niður á þjóðar-
hagsmunum.
Sfmamynd AP.
Mikil mótmæli stöðvuðu umferð um Bombay í dag, en það voru um 4.000
síkhar sem að þeim stóðu. Fjöldi kvenna var meðal mótmælendanna, sem
fordæmdu árásir hersins á Gullna musterið í Amritsar.
5.000 síkhar strjúka
úr indverska hernum
Nýju Delhf, U. júní. AP.
INDIRA GANDHI, forsætisráðherra Indlands, sagði á fundi
með leiðtogum sjö stjórnarandstöðuflokka í dag, að tekist
hefði sigrast á uppreisnarmönnum í hernum úr trúflokki
síkha. Meira en 5.000 hermenn síkha hafa hlaupist undan
merkjum í níu fylkjum, samkvæmt heimildum í hernum.
Áður hafði verið tilkynnt að
a.m.k. 102 liðhlaupar síkha
hefðu verið felldir og fjöldi
handtekinn á undanförnum
tveimur dögum. Síkhar hafa
efnt til mótmæla undanfarna
daga til að lýsa andúð sinni á
árásinni á mesta helgistað
þeirra, Gullna musterið í
Amritsar í Punjab-fylki í síð-
astliðinni viku.
Indverska stjórnin hefur
gefið út nákvæma skýrslu um
bardagana við Gullna muster-
ið og dreift til allra fjölmiðla.
Þar segir að hinir herskáu
síkhar hafi verið vel birgir
vopnum, sem smygglað hafi
verið frá Pakistan. Einnig
kemur fram sú ásökun á hend-
ur síkhum að þeir starfi undir
merkjum ónefndra erlendra
afla og hafi það að markmiði
að gera Punjab-fylkið sjálf-
stætt.
Stjórnvöld segja að 300-400
herskáir síkhar og um 90 her-
menn hafi fallið í átökunum
við musterið og um 320 her-
menn hafi særst. Aðrar heim-
ildir benda til að ekki hafi
færri en 1.000 manns látið lífið
í átökunum.
Tveir síkhar voru skotnir til
bana í dag af hermönnum í
bænum Tarn Taran, sem er
um 25 kílómetra suður af
Amritsar, að því haft er eftir
heimildamönnum innan hers-
ins.
Bæði franir og írakar virðast
hafa haldið í heiðri samkomulag
um að láta af loftárásum á íbúða-
hverfi, en í dag var hart barist á
vígstöðvunum meðfram Shatt Al-
Arab-fljótinu.
Lech Walesa
Lætur Walesa
af störfum?
Varsjá, 14. júní. AP.
„ÞAÐ ER hugsanlegt að ég láti af
störfum um stundarsakir eftir bæj-
ar- og sveitarstjórna kosningarnar
17. júní,“ sagði Lech Walesa, leið-
togi Samstöðu, í yfirlýsingu í dag.
Hann tilkynnti að hann hygðist
ekki kjósa í sveitarstjórnakosn-
ingunum næstkomandi sunnudag.
Hann sagðist hins vegar ekki vilja
gera frekari tilraunir til að hafa
áhrif á skoðanir kjósenda, þar sem
hann vildi vita hvernig málin
stæðu raunverulega.
Leiðtogar Samstöðu hafa hvatt
stuðningsmenn sína til að kjósa
ekki í kosningunum á sunnudag til
að mótmæla banni við frjálsum
verkalýðsfélögum sem sett var í
desember 1981 þegar herlög tóku
gildi. Kosningar þessar eru hinar
fyrstu sem haldnar eru frá stofn-
un Samstöðu í ágúst 1980.
Walesa vildi ekki tjá sig frekar
um yfirlýsingu sína í dag, en sagði
að allar fréttir um að hann ætlaði
að segja af sér sem leiðtogi Sam-
stöðu væru „heimskulegar".
Sýrlendingar stilla til
friðar í Líbanonher
Beirút, 14. júní. AP.
ÞESS er vænst að sýrlensk stjórn-
völd sendi innan þriggja daga aðal-
samningamann sinn í líbönskum
málefnum til Líbanon til að reyna að
leysa deilur múhameðstrúarmanna
og kristinna um endurskipulagningu
hersins, sem valdið hafa nýrri stjórn
erflðleikum, að því er haft var eftir
embættismönnum og áreiðanlegum
hcimildum í dag.
Líbanska stjórnin, sem hlaut
traustsyfirlýsingu þingsins síð-
astliðinn þriðjudag, stendur ráð-
þrota frammi fyrir því að sameina
líbanska herinn og byggja hann
upp á ný þannig að jafnvægi sé
milli múhameðstrúarmanna og
kristinna.
Kona lést og hermaður særðist í
átökum múhameðstrúarmanna og
kristinna í nótt í suðurhluta Beir-
út, og í allan dag var hart barist
við „grænu línuna" svokölluðu,
sem skilur að hverfi kristinna
manna og múhameðstrúar, með
þeim afleiðingum að tveir menn
létust og sex særðust alvarlega.