Morgunblaðið - 15.06.1984, Blaðsíða 30
30
MORGUNBLAÐID, FÖSTUDAGUR 15. JÚNÍ 1984
Reykjavíkurmeistarar á skíöum
NU þegar snjóa fer sem óðast
að leysa, kveðja skíðamenn í
Reykjavík rísjóttan vetur meö
veitingu veglegra verðlauna-
gripa til hlutskörpustu kepp-
enda í göngu og alpagreinum,
sem verslunin Hagkaup hefur
gefiö Skíöaráöi Reykjavíkur í
þessu skyni.
I alpagreinum er árangur
keppenda mældur í stigum sem
menn ávinna sér í héraösmótum
vetarins og telur besti árangur í
þremur af fjórum mótum. En í
göngugreinum ráöast úrslit í ein-
stökum mótum. Hart var barist í
sumum flokkum og réöust úrslit
oft ekki fyrr en í síöasta mótinu
og uröu úrslit þessi:
Reykjavíkurmeistarar í alpa-
greinum: sttg
Stúlkur 8 ára og yngri
Stefania Williamsdóttir, Á 83
Drengir 8 ára og yngri
Kristján Kristjánsson, KR 90
Stúlkur 9—10 ára
Helga Pótursdóttir, ÍR 83
Drengir 9—10 ára
Pálmar Pétursson, Á 90
Stúlkur 11 — 12 ára
Selma Káradóttir, ÍR 90
Drengir 11 — 12 ára
Pótur Haraldsson, Fram 64
Stúlkur 13—14 ára
Þórdis Hjörleifsdóttir, Vík 90
Drengir 13—14 ára
Egill Ingi Jónsson, ÍR 90
Stúlkur 15—16 ára
Kristín Ólafsdóttir, KR 77
Drengir 15—16 ára
Þór Ómar Jónsson, ÍR 83
Konur:
Helga Stefánsdóttir, ÍR 83
Dýrleif Arna Guömundsdóttir, Á 83
Karlar:
Helgi Geirharösson, Á 77
Reykjavíkurmeistarar í göngu-
greinum:
Piltar 5 km
Þórir Ó. Ólafsson, SR
Konur 5 km
Sigurbjörg Helgadóttir, SR
Karlar 15 km
Ingólfur Jónsson, SR
Karlar 30 km
Ingólfur Jónsson, SR
Ðoöganga 3 x 10 km
Karlar, A-Sveit SR
Ingólfur Jónsson, Halldór Matthíasson,
Matthias Sveinsson.
Boöganga 3 x 3,5 km
Konur, Sveit SR
Sigurbjörg Helgadóttir, Lilja Þorleifsdóttir,
Ásdís Sveinsdóttir.
Verðlaunaveitingin fór fram í
hófi sem Skíöaráð Reykjavíkur
héit keppendum miövikudaginn
6. júní í Þróttheimum.
Þangaö var einnig boöiö
keppendum og fulltrúum fyrir-
tækja sem unniö höfðu til verö-
launa í árlegri Firmakeppni
SKRR sem er ein höfuötekuöflun
þess.
• Sigurvegarar í hinum ýmsu aldursflokkum mað verölaunagripi sina.
Hlaupabrautin í Laugardal:
Nýtt efni á leiðinni
EINS OG þeir hafa eflaust séð
sem lagt hafa leið sína ( Laugar-
dalinn er hlaupabrautin á Val-
bjarnarvöllum ekki í nothæfu
ástandi. Ástæða þessa er aö
tartan-lagið sem er á brautinni er
ónýtt og því var gripiö til þess
ráðs að rífa lagið af henni og nú á
að fara að setja nýtt lag þannig
að frjálsíþróttafólk getur tekiö
gleði sína á ný.
Ekki er þó allt eins og best verö-
ur á kosiö í þessu sambandi. Efniö
sem kom frá Svíþjóö og nota átti
passar ekki saman viö þaö sem til
var fyrir því búiö er aö breyta
blöndunni í gúmmíkvoöunni. Af
þessum ástæöum þurfti að endur-
senda það og nú er beöiö eftir aö
fá rétta blöndu og vonast er til aö
þaö veröi byrjaö aö leggja þaö eft-
ir rúma viku.
Aö sögn Baldurs Jónssonar,
vallarstjóra, væri búiö aö koma
brautinni í nothæft ástand ef ekki
heföi komið til þessi vitleysa meö
efniö. Hann kvaö fyrirtækið ytra
ekki hafa látiö þá vita aö búiö væri
aö breyta blöndunni og því heföu
þeir veriö grandalausir. „Öll viö-
skipti okkar viö þetta fyrirtæki
hafa veriö mjög leiöinleg," sagði
Baldur.
Hann sagöi einnig aö malbikiö
sem er undir tartan-laginu væri á
sumum stööum ekki eins og best
veröur á kosið. Efsta lagiö á efninu
heföi hleypt vatni í gegn og mal-
bikið því bólgnaö. Ekki væri þó
hægt aö gera viö þetta því þaö
kostaöi formúu og þá væri alveg
eins hægt aö taka brautina og
henda henni. Baldur sagöi aö
þetta væri allt verktökunum aö
kenna, þeir heföu ekki nokkurn
áhuga á aö vanda til verka hjá
smáþjóö eins og islendingum.
sus
Fyrirliggjandi í birgðastöð
Heildregnar
pípur
Sverleikar: 1“ - 10“
Din 2448/1629/3 ST35
oOO O o Oooo QOo
SINDRA
STALHF
Borgartúni 31 sími 27222
48 leikmenn
hafa skorað
í fyrstudeildarkeppninni í
knattspyrnu hafa verið skoruö 69
mörk í þeim sex umferðum sem
búnar eru. Flest mörk hafa Ak-
urnesingar gert, eöa tíu talsins,
en Víkingur og KA fylgja fast á
eftir með niu mörk hvort félag.
Markaskorunin var ekki mikil í
fyrstu umferöinni, aðeins sex mörk
skoruö þá. Síöan fór þetta stigvax-
andi. Tólf mörk í 2. umferö, 13 í
þeirri þriöju og 14 í fjóröu umferö.
I 5. umferö kom dálítiö bakslag því
bá voru aöeins skoruö 6 mörk en í
síöustu umferð tóku menn aftur
fram markaskóna og skoruöu
hvorki fleiri né færri en 18 mörk.
Þeir leikmenn sem skoraö hafa
mörk í sumar eru nú orðnir 48 tals-
ins og skiptast þeir þannig á milli
félaga: KR, Þór, ÍA og Víkingar
hafa sex markaskorara innan
sinna raöa, Keflavík, Fram og KA
hafa fimm markaskorara hvert fé-
lag, Breiöablik fjóra, Þróttur þrjá,
og Valsmenn hafa aöeins tvo.
— sus.
160 leikmenn
í ÞEIM leikjum sem lokið er á ís-
landsmótinu í 1. deild hafa alls
160 leikmenn tekið þátt fyrir sín
félög, aö vísu mislengi en allir
eitthvað.
Keflvíkingar hafa notaö fæsta
leikenn til þessa, aöeins 14. Síöan
koma Valur, Þróttur og KA, sem öll
hafa notaö 15 leikmenn, Breiöa-
blik, Víkingur og Þór hafa öll notaö
16 leikmenn, Frammarar og
Skagamenn hafa notast viö 17
leikmenn hvort félag og KR-ingar
hafa notaö 19 leikmenn, enda hafa
margir þeirra átt viö meiösl aö
stríöa. — SUS.
Morgunblaðið/ Krittján.
• Hinir nýju eigendur Líkamsrækterstöðvarinnar í Engihjalla. Frá
hægri: Ólafur Sigurgeirsson, Óskar Sigurpálsson, framkvæmdastjóri,
Birgir Borgþórsson, Viðar Sigurðsson, Þorsteinn Thorsteinsson, og
Sveinn Jónsson, formaöur KR.
Lyftingadeild KR
flytur í Engihjallann
EIGENDASKIPTI hafa oröið að
Æfingastööinni að Engihjalla í
Kópavogi. Hefur veriö stofnað
hlutafélag um rekstur stöövarinn-
ar og er lyftingadeild KR eigandi
1/7 hlutafjár.
Lyftingadeild KR rak áöur Jaka-
ból í Laugardal og hefur þaö veriö
lagt niöur og öll tæki flutt í Engi-
hjallann. Viö þá viöbót hefur skap-
ast mjög fullkomin aöstaöa til allra
æfinga frá þungaþjálfun til al-
mennrar líkamsræktar. Sérstakt
herbergi hefur veriö tekiö í notkun
undir lyftingar svo ekki skapist
ónæöi fyrir hinn almenna viö-
skiptavin æfingastöövarinnar. Sér-
stakur salur meö parketgólfi er í
æfingastöðinni og veröur hann
notaöur undir kvennaleikfimi á
morgnana frá 9.00—11.00 og síö-
an á kvöldin undir músikleikfimi,
aerobic o.fl. Eftir hádegi og til
kvölds veröur síöan kennsla í
breakdansi. Til kl. 16.00 er hægt
aö fá Ijósatíma í stööinni án þess
aö vera jafnframt meö æfingakort.
Þjálfarar og leiðbeinendur eru all-
margir og opnunartími frá kl. 7.00
á morgnana til kl. 22.00. Fram-
kvæmdastjóri er Óskar Sigur-
pálsson.
Einkunnagjöfin
Keflavíkurvöllur:
ÍBK — Fram 2:1 (0:0)
Mörkin:
Helgi Bentsson á 75. mínútu og
Ragnar Margeirsson á 87. mínútu
fyrir ÍBK, Kristinn Jónsson á 88.
mínútu (víti) fyrir Fram.
Dómari: Guömundur Haraldsson.
Áhorfendur: 950.
Einkunnagjöf:
ÍBK
Þorsteinn Bjarnason 8
Gísli Eyjólfsson 7
Valþór Sigþórsson 7
Óskar Færseth 6
Guðjón Guðjónsson 6
Siguröur Björgvinsson 6
Ingvar Guðmundsson 5
Einar Ásbjörn Ólafsson 7
Helgi Bentsson 7
Ragnar Margeirsson 7
Kristinn Jóhannsson 6
Rúnar Georgsson (vm.) 5
Fram:
Guðmundur Baldursson 6
Þorsteinn Vilhjálmsson 6
Trausti Haraldsson 7
Sverrir Eínarsson 7
Bragi Björnsson 6
Kristinn Jónsson 7
Steinn Guöjónsson 6
Ómar Jóhannsson 6
Guömundur Steinsson 6
Guðmundur Torfason 6
Viðar Þorkelssor. 6