Morgunblaðið - 15.06.1984, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 15.06.1984, Blaðsíða 2
2 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 15. JÚNÍ 1984 Tillaga vísindanefndar Alþjóða hvalveiðiráðsins: íslendingar veiöi 129—162 langreyðar EKKERT útlit er fyrir að breyting verði á þeirri ákvörðun að banna hvalveiðar frá og með árinu 1986, en fundur Alþjóðahvalveiðiráðsins í ár hefst á mánudaginn kemur í Bu- enos Aires í Argentínu og stendur næstu viku. Eitt af verkefnum fundarins er að ákveða hvalveiði- kvóta fyrir íslendinga fyrir næsta ár, sem væntanlega verður síðasta hvalvertíðin. Fundir undirbúningsnefnda Alþjóðahvalveiðiráðsins standa nú yfir og eru þrír íslendingar komnir til Argentínu í tilefni fundarins, þeir Kristján Lofts- Grafarvogur: Lóðaúthlutun í 3. áfanga að hefjast ÚTHLUTUN lóða í 1. og 2. bygg- ingaráfanga í Grafarvogi er nú að mestu lokið, en að sögn Hjörleifs Kvaran, skrifstofustjóra borgarverk- fræðings, eru nú eftir fimm lóðir af 363. Hjörleifur sagði að úthlutun 81 lóðar í 3. byggingaráfanga myndi væntanlega hefjast í næstu viku, bú- ið væri að skipuleggja svæðið og bjóða út framkvæmdir, en skila- frestur verktaka til að gera lóðirnar byggingarhæfar rennur út í október á komandi hausti. „Við vorum aldrei svartsýnir á eftirspurn eftir lóðum í Grafar- o vogi,“ sagði Hjörleifur, „en hún hefur verið mun meiri en við átt- um von á. Við gerð fjárhagsáætl- unar á þessu ári var ekki gert ráð fyrir að lóðirnar seldust allar og þar var heldur ekki gert ráð fyrir því að þessum áttatíu lóðum yrði bætt við.“ 1 Grafarvogi er töluvert um að menn byggi svokölluð einingahús, eða um 20% a.m.k. Byggingaraðil- um voru úthlutaðar 75 lóðir undir einingahús, auk þess sem ýmsir aðilar sem fengu úthlutað lóð beint frá borginni hafa keypt slík hús. son, forstjóri Hvals hf., Kjartan Júlíusson, frá sjávarútvegsráðu- neytinu og Jóhann Sigurjónsson, líffræðingur, frá Hafrannsókn- arstofnun. Þá er gert ráð fyrir að Hans G. Andersen, sendiherra Is- lands í Bandaríkjunum, sæki fundinn einnig. í Alþjóðahval- veiðráðinu eiga sæti nálega 40 þjóðir. Á hvalvertíðinni í ár, sem hófst á sunnudaginn var, er leyfilegt að veiða 100 sandreyðar og 167 lang- reyðar, eða það sama og leyft var að veiða í fyrra, auk þess sem við íslendingar stundum einnig veið- ar á hrefnu og veiddum um 300 dýr á síðasta ári. Á fundi vísinda- nefndar Alþjóðahvalveiðiráðsins sem haldinn var í Brighton á Englandi fyrr í ár, varð sú breyt- ing á afstöðu nefndarinnar að í stað þess að leggja fram tillögu um ákveðin fjölda langreyða sem mætti veiða vertíðina 1985, lagði hún til kvóta, sem er á bilinu 129-162 langreyðar og eftirlætur það Alþjóðahvalveiðiráðinu að ákveða nánar fjölda dýrana. Það gæti þvi farið svo að kvóti íslend- inga á hvalvertíðinni 1985 yrði tölvert minni, en hann er í ár og var á síðasta ári. Þá hefur einnig verið gerð til- laga um það að hrefnukvótinn verði minnkaður um helming. Berglind heldur utan í dag í Miss Universe-keppnina ÞAÐ VAR nóg að gera hjá Berg- lindi Johansen, fegurðardrottn- ingu íslands, þegar Ijósm. Mbl. leit inn hjá henni í gær, en hún var þá að leggja síðustu hönd á undir- búning fyrir ferð sína utan árdegis í dag. Berglind heldur nú til Florida í Bandaríkjunum, þar sem hún verður fulltrúi íslands í Miss Universe keppninni, sem haldin er í Miami. Þar dvelur hún í tæpar fjórar vikur, en keppnin sjálf verður haldin þann 9. júli. Hver þáttakandi í keppn- inni fær sinn umsjónarmann, eða „mömmu", eins og oft er katlað og verður Erla Ross, ís- lensk kona sem búsett er í Florida „mamma“ Berglindar næstu fjórar vikur. Þá mun Þór- ir Gröndal, ræðismaður vera fulltrúi íslands á staðnum með- an á keppninni stendur. INNLENT Bensín á heildsöluverði 5 fyrirtæki sýna í París FIMM ÍSLENSK fyrirtæki taka þátt í alþjóðlegri matvælasýn- ingu sem verður haldin í París dagana 18.—22. júní nk. Islensku fyrirtækin sem taka þátt í sýningunni með fram- leiðslu sína eru: Sölumiðstöð hraðfrystihúsanna, sem sýnir frosnar fiskafurðir; Sambandið, sjávarafurðadeild, sem sýnir frosnar fiskafurðir; Sölustofnun lagmetis, sem sýnir niðurlagðar sjávarafurðir; Samband ís- lenskra fiskframleiðenda, sem sýnir saltfisk; og Lýsi hf., sem sýnir lýsi í neytendaumbúðum og lýsisperlur. „Þessi tilraun fékk góðar undir- tektir, en ég hef ekkert ákveðið um framhald þar á,“ sagði Jón Péturs- son, eigandi Botnsskála í Hvalfirði í samtali við blm. Mbl. Jón seldi þar bensín, sem hann hefur í um- boðssölu frá olíufélaginu Skeljungi hf., á heildsölverði frá fostudegi til mánudags sl. Heildsöluverðið reiknaði hann með því að draga frá verði hvers lítra af bensíni því sem nemur umboðslaunum, þannig að verð lítrans var kr. 21,65 í stað 22,30 króna. „Ég get ekki séð neitt ólöglegt við þetta,“ sagði Jón aðspurður. „í mínum samningi við Skeljung er ekki kveðið á um að ég þurfi að taka mín umboðslaun og ég get því ekki séð að olíufélaginu skipti það máli hvort ég tek þau eða ekki. Annars skyldi ég ætla að slíkt tilboð kæmi bæði Skeljungi Ekki gert á vegum Skeljungs, segir Indriði Pálsson, framkv.stj. um sölu bensíns á heild- söluverði í Botnsskála um hvítasunnuhelgina og þeim sem selja bensín fyrir fyrirtækið í umboðssölu til góða, bæði í auglýsinga- og söluaukn- ingarskyni.“ — Vilt þú breyta einhverju varðandi bensínsölu? ^Ég er hlynntur því að um- boðsmenn olíufélaganna fái hærri álagningarprósentu innan bundins hámarksverðs á bensíni, þannig að við getum ráðið meiru um verðlagningu á því og haft sveigjanleika á verðinu innan þess ramma." „Það er rétt að einn af umboðs- aðilum Skeljungs hefur selt bensín á tilboðsverði, en ég vil Dönsk stjórnvöld: Lofa að athuga með skaðabótagreiðslur NÚ HORFIR betur á um skaðabóta- greiðslur til Einars Hákonarsonar, sem missti bát sinn, þegar danskur skipverji á herskipinu Beskytteren sigldi honum í strand síðastliðið mánudagskvöld. Beskytteren lagði úr höfn á há- degi í gær með skipverjann inn- anborðs, en farbanni hans hafði verið aflétt. Ingvi Ingvason, ráðu- neytisstjóri í utanríkisráðuneyt- inu, átti í gærmorgun fund með Janus Paludan, sendiherra Dana, og sagði Ingvi að sá fundur hefði verið afar gagnlegur og góður andi ríkt. „Við skýrðum út fyrir sendi- herranum stöðu málsins og óskir íslenskra aðila. Síðdegis í gær fengum við síðan boð frá dönskum stjórnvöldum þar sem þau lýstu sig reiðubúin til að athuga skaða- bótagreiðslur á grundvelli grein- argerðar, sem íslenska stjórnin mun senda þeirri dönsku. Sú greinargerð mun líklega koma í næstu viku. Hvert framhaldið verður er alveg óvíst. Hvað sem því líður eru þetta afar jákvæð viðbrögð af hálfu Dana og ég er vongóður um að málin leysist á farsælan hátt,“ sagði Ingvi. Aðspurður svaraði Einar Há- konarson að greinargerð kæmi frá sér og lögmanni sínum í dag. „Greinargerðin er unnin af Könn- un sf. sem er umboðsaðili Lloyds’s á fslandi. Þaðan fer hún til ís- lenskra stjórnvalda, sem munu byggja sína skýrslu á henni. Héð- an í frá er málið ekki lengur í okkar höndum og við bíðum bara átekta. Ég vona þó svo sannarlega að úr þessu rætist því annars er um milljón króna tap að ræða fyrir mig,“ svaraði Einar að lok- taka það skýrt fram að Skeljung- ur hefur ekkert með það að gera,“ sagði Indriði Pálsson, framkvæmdastjóri hjá Skeljungi hf. „Viðkomandi seldi bensínið á heildsöluverði sem hann kallaði svo, dró eigin smásölulaun frá settu verði á hverjum bensín- lítra. Hvort þetta er ólöglegt vil ég ekki segja, en hitt verður að hafa í huga, að verðjöfnun er á bensíni um allt land, sem verð- lagsráð ákveður á hverjum tíma, í þeim tilgangi að bensín sé selt á sama verði til allra landsmanna. í samningi sem Skeljungur gerir við sína umboðssala er skýrt kveðið á um að bensín skuli selt á því útsöluverði sem verðlagsráð ákveður. í verðuppbyggingunni eru margir þættir teknir inn í og smásöluiaunin eru einn þeirra. Smásölulaunin eru nú ekki há upphæð og ég hefði haldið að við- komandi aðilar væru ekki of sæl- Ríkisútvarpið: 8 sóttu um 8 MANNS sóttu um stöðu varadag- skrárstjóra útvarps, en Ingibjörg Þorbergs lætur af því starfi nú i ágúst. Að sögn Guðbjargar Jónsdóttur, starfsmannastjóra ríkisútvarpsins, hefur ekki verið tekin ákvörðun um hver hlýtur stöðuna. Eftirtaldir sóttu um stöðuna: Ásta Ragnheiður Jóhannesdóttir, Björn Árnason, Gunnar Stefánsson, Haukur Ágústsson, Jóhanna Katrín Eyjólfsdóttir, Þórdís Bachmann og Ævar Kjartansson. Einn umsækj- andi óskaði nafnleyndar. ir af þeim. Að minnsta kosti hef- ur sá aðili sem um ræðir ekki tab'ð svo vera og verið framar- lega í flokki þeirra sem á undan- förnum árum hafa krafist hærri smásölulauna. Til að mynda neit- aði hann að selja bensín frá Skeljungi við Hreðavatnsskála, sem hann rekur einnig, nema að umboðslaunin yrðu hækkuð. Því máli lyktaði svo að Skeljungur fjarlægði þaðan söludælur sínar á síðástliðnu hausti." — Mun Skeljungur grípa til aðgerða vegna þessa? „Á meðan menn standa við gerða samninga gerum við auð- vitað ekki neitt, en áskiljum okkur rétt til að láta athuga mál- ið ef ekki er farið eftir settum reglum. Svona nokkuð hefur ekki komið fyrir áður og ég vil ítreka það að þetta var ekki gert á veg- um fyrirtækisins," sagði Indriði Pálsson. Bókauppboðí Klausturhólum Verslunin Klausturhólar, Skólavörðustíg 6b í Reykjavík, heldur bókauppboð á morgun, laugardaginn 16. júní kl. 14. AIls munu verða boðnar upp 240 bækur, fleiri en nokkru sinni fyrr, að sögn Guðmundar Axels- sonar í Klausturhólum. Guðmundur sagði, að meðal bókanna á uppboðinu væru t.d. Spaks manns spjarir og Hálfir skósólar eftir Þórberg Þórð- arson, Mannamunur eftir Jón Mýrdal og frumútgáfa I—II bindis íslenskra þjóðsagna í safni Jóns Árnasonar. Bækurnar verða til sýnis að Klausturhólum í dag kl. 13-18.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.