Morgunblaðið - 15.06.1984, Blaðsíða 12

Morgunblaðið - 15.06.1984, Blaðsíða 12
12 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 15. JÚNÍ 1984 AF ERLENDUM VETTVANGI eftir GUÐM. HALLDÓRSSON Verður Júgóslavía annað Pólland? YFIRVÖLD í Júgóslavíu hafa hert á baráttu gegn menntamönnum. Einn maður hefur látizt síðan lögregla leysti upp fund í einkaíbúð í Belgrad, þar sem einn fundargesta var Milovan Djilas, áður einn helzti aðstoðar- maður Titos marskálks og höfundur bókarinnar „Hin nýja stétt“. Skjöl andófsmanna hafa verið gerð upptæk og fimm þeirra, sem sóttu fundinn, hafa sætt barsmíðum. Menntamenn búa sig undir áframhaldandi kúgun og eru viðbúnir pólitískum sýnd- arréttarhöldum. Kúgunaraðgerðirnar hafa ver- ið harðastar í Bosníu, sem menntamenn í Belgrad kalla „hérað svartnættisins". Leiðtogi flokksins þar, Branko Mikulic, hefur nýlega tekið sæti í forsæt- isnefndinni. Júgóslavnesk yfirvöld virtust vilja að handtaka Djilasar vekti sem mesta athygli á Vesturlönd- um. Hann hafði ekki verið hand- tekinn síðan 1966 og með hand- tökunni nú sýndu yfirvöld hve langt þau eru reiðubúin að ganga. Fjórir eða fimm menn, sem voru í íbúðinni, hafa verið hand- J,eknir vegna gruns um „gagn- oyltingarstarfsemi" og eru í hungurverkfalli, m.a. félags- fræðingurinn dr. Vojislav Sess- elj, fv. starfsmaður stjórnvís- indadeildar háskólans í Saraj- evo. Hann tók á sínum tíma mik- inn þátt í æskulýðsstarfsemi kommúnista í Bosníu og gegndi starfi flokksritara. Hann á yfir höfði sér 15 ára fangelsi. Sesselj lenti fyrst í útistöðum við yfirvöld 1981, þegar hann sakaði háttsettan flokksstarfs- mann í Sarajevo um ritstuld. Vandræði hans nú virðast stafa af því að hann er serbneskur þjóðernissinni og vill að Júgó- slavíu verði skipt í fjögur lýð- veldi í stað sex (auk tveggja sjálfstjórnarhéraða). Sesselj, sem er þrítugur, er talinn einn skorinorðasti, afkastamesti og hugrakkasti menntamaður Júgó- slava af yngri kynslóðinni. Tæpri viku áður en Sesselj var handtekinn sagði fv. yfirmaður lögreglunnar, Stane Dolanc, sem nýlega tók sæti í forsætisnefnd- inni, að lögreglan hefði lagt hald á „gagnbyltingar-stefnuskrá“ „félagsfræðings". Flestir töldu að hann ætti við Sesselj. Degi síðar sagði blaðið „Oslo- bodjene" í Sarajevo að Sesselj væri höfundur textans, sem það kvað hugarfóstur „bilaðs manns“. Um hugmyndir hans sagði blaðið: „Þær eru nánast eins og vilsa og gröftur, sem menga umhverfi manna og megnan óþef leggur frá.“ Sesselj var einnig handtekinn í febrúar þegar hann ætlaði að kynna bókaforlögum í Belgrad skjöl, sem hann hafði ekki fengið birt í Bosníu, og það var eitt þeirra, sem Dolanc minntist á. Honum var boðið að fá að starfa við háskóla og fá aftur inngöngu í flokkinn, ef hann veitti upplýs- ingar um vini sína og reyndi ekki að fá skjöl sín birt. Hann hafn- aði. Við húsleit á heimilum þeirra, sem hafa verið handteknir, hef- ur lögreglan sýnt mikinn áhuga á skjölum um dauða Radomir Radovic, sem hefur beitt sér fyrir stofnun frjálsra verkalýðs- félaga í líkingu við Samstöðu í Póllandi. Radovic var einn 28 manna, sem var boðið til fundarins í Belgrad að hlýða á Djilas flytja fyrirlestur um vandamál í sam- búð þjóða Júgóslavíu. Radovic var sleppt eins og hinum, en hann var aftur handtekinn tveimur dögum síðar. Síðan hvarf Radovic og fjöl- skylda hans leitaði að honum dyrum og dyngjum. Yfirmaður i lögreglunni hafði eftir Radovic að hann vildi vera í ró og næði og aðstandendur hans ættu að vita hvert hann færi til þess. Nokkr- um dögum síðar fann fjölskyld- an lík Radovic í sumarbústað sínum 40 km frá Belgrad. Lögreglan sagði að Radovic hefði framið sjálfsmorð með því að taka of stóran skammt af ró- andi töflum. Samkvæmt opin- berri krufningarskýrslu lézt hann af völdum skordýraeiturs. Vinir hans telja að hann hafi verið myrtur. Aðgerðirnar leiddu m.a. til banns á tímaritinu „Theorija", sem hefur birt grein, þar sem gefið var í skyn að Tito og stjórnmálaráð hans hefðu borið ábyrgð á afdrifum trotzkyista, sem voru fluttir í rússneskar fangabúðir. Skjöl frá Amnesty International, áskoranir um að mannréttindabrotum verði hætt og fleiri gögn hafa verið gerð upptæk. Frelsi blaða í Júgóslavíu hefur verið skert með nýjum lögum. Nokkrir ritstjórar hafa verið reknir, m.a. aðalritstjóri „Poli- tika“, Dragoljub Trailovic. Aðrir hafa sagt upp. Nokkur blöð hafa verið bönnuð og útgáfa annarra stöðvuð um stundarsakir, greini- lega til að sýna að prentfrelsi séu takmörk sett. Blöð í Júgóslavíu hafa gert sér far um að auka og bæta frétta- þjónustu sína og rannsóknar- blaðamennska hefur aukizt. Þetta hefur leitt til ásakana flokksleiðtoga um að sum blöð reyni að segja ríki og flokki til syndanna og birti greinar eftir „hrokafulla stjórnarandstæð- inga“. Mikill efnahagsvandi Júgó- slava hefur leitt til aukinna póli- tískra og félagslegra vandamála. Lífskjör hafa versnað og Júgó- slavar sjá fram á að verða að herða ennþá meir á sultarólinni. Verðbólgan er 60% og skuldir við útlönd nema rúmlega 20 milljörðum dollara. Ein milljón manna er atvinnulaus. Margir júgóslavneskir verkamenn starfa erlendis og neyðast e.t.v. til að snúa heim. í þeim blaðagreinum, sem yf- irvöld hafa verið óánægð með, hefur þess verið krafizt að þeir, sem beri ábyrgð á mistökum og vanköntum, svari til saka. Jafn- vel hefur verið talað um spill- ingu og forréttindi flokksbrodda. Einn helzti hugsjónafræðing- ur flokksins í Króatíu svaraði ásökunum á prenti um að vissir leiðtogar væru „ekki starfi sínu vaxnir“ og hefðu „leitt þjóðina út í ógöngur" með því að saka blöð- in um „smáborgaralega móður- sýki“. Yfirvöld í Júgóslavíu hafa tek- ið sömu afstöðu gagnvart menntamönnum og pólsk yfir- völd tóku gegn samtökum menntamanna fyrir stofnun Samstöðu. Eins og pólsk yfirvöld glíma yfirvöld í Júgóslavíu við nær óleysanlegan efnahags- vanda og leita að blórabögglum meðal blaðamanna og mennta- manna. Svo alvarlegt er ástandið, svo líkt er það ástandinu í Póllandi á sínum tíma, að svo getur farið að herinn verði að skerast í leikinn eins og í Póllandi. Kúgun hefur aldrei verið meiri síðan Tito lézt 1980. Með aðgerð- unum að undanförnu virðast harðlínumennn í flokksforyst- unni vilja sýna mátt sinn til að beita andófsmenn hörðu. Eina vísbendingin um tilslakanir er að tímaritið „Min“ hefur birt bréf frá fjölskyldu Radovics, þar sem lögreglan er sökuð um að ljúga um dánarorsök hans. Aðgerðirnar í vor hófust þegar Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn hafði samþykkt nýjar lánveit- ingar til að bjarga Júgóslövum. Þeir hafa aldrei átt í eins erfið- um viðræðum við sjóðinn og neyddust til að samþykkja skil- yrði, sem eiga að tryggja frjáls- lyndara hagkerfi. En Djilas seg- ir: „Kerfið virkar ekki og tryggir ekki einingu ríkisins." Hinir nývígðu prestar ásamt vígsluvottum og biskupi. Taldir frí vinstri: Séra Emil Björnsson, Kristján Búason lektor, séra Baldur Kristjánsson, biskupinn yfir íslandi, herra Pétur Sigurgeirsson, séra Baldur Rafn Sigurðsson, séra Hjalti Guðmundsson og séra Pétur Ingjaldsson. Ljðsmynd E.G. Tveir prestar vígðir TVEIR nýir prestar voru vígðir í Dómkirkjunni á annan í hvítasunnu, þeir séra Baldur Kristjánsson og séra Baldur Rafn Sigurðsson. Bisk- upinn yfir íslandi, herra Pétur Sigur- geirsson, vígði, en vígsluvottar voru Kristján Búason, lektor við guð- fræðideild Háskóla íslands, séra Pétur Ingjaldsson, fyrrverandi pró- fastur í Húnavatnsprófastsdæmi, séra Hjalti Guðmundsson, dóm- kirkjuprestur, og séra Emil Björns- son, fyrrverandi prestur í Oháða söfnuðinum, sem jafnframt lýsti vígslu. Séra Baldur Kristjánsson hefur tekið við starfi forstöðumanns og prests Óháða fríkirkjusafnaðarins af séra Emil Björnssyni, sem hef- ur látið þar af störfum eftir 34 ára þjónustu. Baldur er Reykvíkingur, sonur Kristjáns Benediktssonar og Svanlaugar Emenreksdóttur. Hann lauk guðfræðiprófi í vor en hafði áður lokið félagsfræðiprófi og starfað meðal annars sem fræðslufulltrúi BSRB og blaða- maður hjá Tímanum og NT. Bald- ur er 34 ára að aldri. Baldur Rafn Kristjánsson hefur verið settur prestur í Bólstaðar- hliðarprestakalli í Húnavatnspró- fastsdæmi. Baldur Rafn er Reyk- víkingur, sonur Mögnu M. Bald- ursdóttur og Sigurðar Guðlaugs- sonar. Hann lauk guðfræðiprófi frá Háskóla íslands nú í vor. Bald- ur Rafn er 24 ára að aldri. Þess má geta að séra Emil skírði Baldur Rafn Sigurðsson og fermdi Baldur Kristjánsson, sem auk þess er eftirmaður hans sem prestur óháða safnaðarins. Starfsfólk útibús Útvegsbankans f Hólahverfi, frá vinstri: Birna Jónsdóttir, gjaldkeri, Sigurjón Finnsson, deildarstjóri, Agnes Garðarsdóttir, bankaritari og Guðrún Svafarsdóttir, útibússtjóri. Útvegsbankinn: Nýtt útibú í Hólahverfi ÚTVEGSBANKI íslands hefur opnað nýtt útibú í Hólahverfi í Reykjavík. Útibúið er f þjónustu- og verslunarmiðstöðinni Hóla- garði, Lóuhólum 2—6, og er 190m2 á jarðhæð, auk kaffistofu, snyrt- ingu og geymsla á annari hæð hússins. Bankinn er skipulagður með þarfir fatlaðra í huga og er afgreiðslusalur hannaður með til- liti til fyrirhugaðrar tölvuvæð- ingar. Afgreiðslutími bankans verður mánudaga til föstudaga frá kl. 12.00 til 18.00, sem er nýbreytni og viðleitni í þá átt að veita banka- þjónustu eftir kl. 16.00 á daginn. (Úr fréttatilkynningu) Yfirnefnd Verðlagsráðs sjávarútvegsins: Obreytt verð á hörpudiski - rækja hækkar um 8,2 % YFIRNEFND Verðlagsráðs sjávar- útvegsins hefur ákveðið nýtt lág- marksverð á hörpudiski og rækju. Verð hörpudisks verður óbreytt en verð á rækju hækkar um 8,2%. Verð- ið var ákveðið af oddamanni nefnd- arinnar og fulltrúum seljenda gegn atkvæðum fulltrúa kaupenda. Fulltrúar kaupenda mótmælu harðlega atbeina oddamanns að Þessi verðlagning gildir frá 1. júní til 30. september. Hörpudiskur í vinnsluhæfu ástandi: a) 7 cm á æð og yfir, hvert kg ........................................ kr. 8,80 b) 6 cm að 7 cm á hæð, hvert kg7,15 Rækja, óskelflett f vinnslæuhæfu ástandi a) 160 stk. og færri f kg, hvert kg ................................ kr. 20,00 b) 161 til 220 stk. í kg, hvert kg ................................... kr. 17,00 c) 221 til 240 stk. i kg, hvert kg ................................... kr. 15,10 d) 241 til 260 stk. í kg, hvert kg ................................... kr. 14,00 e) 261 til 290 stk. í kg, hvert kg ................................... kr. 13,50 f) 291 til 320 stk. í kg, hvert kg ..................•................ kr. 11,40 g) 321 til 350 stk. í kg, hvert kg ................................... kr. 9,40 h) 351 stk. o.fl. í kg, hvert kg ..................................... kr. 5,70

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.