Morgunblaðið - 22.06.1984, Síða 14

Morgunblaðið - 22.06.1984, Síða 14
46 MORGUNBLADIP, FÖSTUDAGUR 22. JÚNÍ 1984 HVAB ER AÐ GERAST URIHELGINA? Stúdentaleikhúsid: Frumsýnir nýtt íslenskt leikrit Stúdentaleikhúsiö frumsýnir á sunnudag nýtt íslenskt leikrit eftir Eddu Björgvinsdóttur og Hlín Agnarsdóttur, sem heitir „Láttu ekki deigan síga, Guó- mundur“. Leikritiö fjallar á gamansaman hátt um tímabiliö 1968—1984 séö meö augum Guömundar Þórs, sem er 37 ára gamall. Hann rifjar upp fyrir syni sínum vissa þætti og atvik út frá minningum sem myndir úr hans eigin mynda- safni vekja hjá honum. Þessar myndir lifna viö á sviöinu og sýna fjölbreytni þá sem Guömundur hefur reynt í lífinu. Leikstjóri er Þórhildur Þorleifsdóttir, en aðal- leikarar eru Kjartan Bjarg- mundsson og Hilmar Jónsson. Söngtextar eru eftir Þórarin Eld- járn og Anton Helga Jónsson en tónlist eftir Jóhann G. Jóhanns- son. LEIKLIST ÞJÓDLEIKHÚSID: Gæjar og píur Söngleikurinn Gæjar og píur, eftir Frank Loesser, Jo Swerling og Abe Burrows sýndur í Þjóðleikhús- inu í kvöld og á laugardagskvöld og sunnudagskvöld. Síöustu sýn- ingar veröa á þriðjudags- miöviku- dags- og fimmtudagskvöld. TÓNLIST EGILSBÚÐ OG VALASKJÁLF: Dansbandiö og Stjúpsystur Dansbandiö skemmtir í Egils- búö í kvöld og í Valaskjálf á morg- un, ásamt söngkonunni Önnu Vil- hjálms og söngtríóinu Stúpsystr- um, sem eru Saga Jónsdóttir, Guörún Alfreðsdóttir og Guörún Þóröardóttir. Á dansleiknum koma auk ofangreindra fram, fegurðarauka- drottning íslands, rokkkóngurinn Hallrefur og Dúddúasystur. MYNDLIST AKUREYRI: Listkynning Listkynning á verkum málarans Kristins G. Jóhannssonar stendur nú yfir í Alþýöubankanum á Akur- eyri. Þar eru sýnd olíumálverk , sem Kristinn hefur unniö með gömlum munstrum. Listkynningin er haldin á vegum Menningarsam- bands Norölendinga og Alþýðu- bankans. GALLERÍ PORTIO: Myndir Stefáns frá Möðrudal Stefán Jónsson, myndlistar- maöur frá Möörudal, heldur um þessar mundir sýningu á verkum sínum í Galleri Portinu, aö Lauga- vegi 1. Á sýningunni eru um 500 verk, olíumálverk og vatnslita- myndir, sem Stefán hefur málaö á undanförnum þremur árum. Sýn- ingin er opin alla daga vikunnar frá kl. 15—20. LISTASAFN ÍSLANDS: Verk Karel Appel í Listasafni íslands stendur nú yfir sýning á verkum hollenska listmálarans Karel Appel, en sýn- ingin er framlag safnsins til Lista- hátíöar. Verkin á sýningunni spanna tímabiliö 1959—83. Eru þau 48 talsins, olíumálverk, akrýl- myndir, grafík og myndir unnar meö blandaöri tækni Sýningin veröur opin daglega frá kl. 13.30—22, en henni lýkur á sunnudag. JL-HÚSID: Verk Ellen Birgis Ellen Birgis, myndlistarmaöur hefur nú opnað sýningu í kaffiteríu JL-hússins viö Hringbraut. Sýning- in er önnur einkasýning Ellen, en hún hefur áöur sýnt verk sín í Eden í Hveragerði. ÁSGRÍMSSAFN: Sumarsýning Árleg sumarsýning Ásgríms- safns viö Bergstaöastræti stendur nú yfir. Á sýningunni eru olíu- og vatnslitamyndir, m.a. nokkur stór málverk frá Húsafelli og olíumál- verk frá Vestmannaeyjum frá árinu 1903, en þaö er eitt af elstu verk- um safnsins. Sýningin er opin alla daga, nema laugardaga, frá kl. 13.30—16, fram í lok ágústmán- aöar. MOSFELLSSVEIT: Litir og form „Litir og form“ er yfirskrift myndlistarsýningar sem nú stend- ur yfir í Héraösbókasafninu í Mos- fellssveit. Þar sýnir Rut Rebekka Sigurjónsdóttir verk sem hún hefur unniö meö akrýl-litum og í silki- þrykk. Sýningin stendur út júní- mánuö, opin um helgar frá kl. 14—19 og aöra daga frá kl. 13—20. Sýningunni lýkur 29. júní. LISTASAFN EINARS JÓNSSONAR: Sýning í Safnahúsi og höggmyndagaröi Listasafn Einars Jónssonar hef- ur nú veriö opnaö eftir endurbæt- ur. Safnahúsið er opiö daglega, nema á mánudögum, frá kl. 13.30—16 og höggmyndagarður- inn, sem í eru 24 eirafsteypur af verkum listamannsins, er opin frá kl. 10—18. K J AR VALSST AÐIR: Verk íslendinga erlendis frá Á Kjarvalsstöðum stendur nú yfir sýning á verkum tíu íslenskra listamanna, sem búsettir eru er- lendis, en sýningin er liöur í Lista- hátíö. Þeir sem eiga verk þar eru Erró, sem sendi 5 stór olíumálverk frá París, Louisa Matthíasdóttir, sem kom frá New York meö um 50 olíumálverk, Kristín og Jóhann Eyfells, sem komu frá Florida meö skúlptúra og málverk, Tryggvi Ólafsson, sem kom meö málverk frá Kaupmannahöfn, Steinunn Bjarnadóttir, sem kom meö myndbönd frá Mexíkó og fjór- menningarnir Hreinn Friöfinnsson, Amsterdam, Þóröur Ben Sveins- son, Dusseldorf, Siguröur Guö- mundsson, Amsterdam, og Krist- ján Guömundsson, Amsterdam, en verk þeirra fylla vestursal húss- ins. Sýningin er opin daglega frá kl. 14—22. EDEN: Verk Ófeigs Ólafssonar Málverkasýningu Ófeigs Ólafs- sonar í Eden í Hverageröi lýkur á sunnudag. Á sýningunni eru 28 olíumálverk og 11 vatnslitamyndir. LISTMUNAHÚSID: Gler og steinsteypa Sýning á verkum Steinunnar Þórarinsdóttur stendur nú yfir í Listmunahúsinu viö Lækjartorg. Á sýningunni, sem er 4. einkasýning Steinunnar, eru I7 skúlptúrverk, unnin í gler og steinsteypu. Sýn- ingin er opin virka daga frá kl. 10—18 og um helgar frá kl. 14—18, en lokaö er á mánudög- um. LISTASAFN ASÍ: Líf í leir ’84 Leirlistarfélagiö heldur nú sýn- ingu sem nefnist „Líf í leir ’84“. Sýningunni, sem er í Listasafni ASÍ viö Grensásveg, lýkur á sunnudag. Á sýningunni eiga 13 listamenn verk, en heiöursgestur hennar er Ragnar Kjartansson. SELFOSS: Verk átta vefara I Byggöa- og listasafni Árnes- sýslu stendur nú yfir sýning á verk- um 8 vefara, sem allir hafa unniö undir handleiöslu Hildar Hákon- ardóttur. Verkin á sýningunni eru 50 og stendur hún fram á sunnu- dag. LISTAMIDSTÖDIN: Grafíkverk Nú stendur yfir í sýningarsal Listamiöstöövarinnar í nýja húsinu viö Lækjartorg sýning á verkum 5 grafíklistamanna, þeirra Einars Hákonarsonar, Ingibergs Magn- ússonar, Ingunnar Eydal, Jóns Reykdals og Ríkharös Valtingoj- ers. Sýningin er opin daglega frá kl. 14—18 og stendur til 1-júlí. NORRÆNA HLJSIO: Búningateikningar og íslenskt prjón Sænski búningahönnuöurinn Ulla-Britt Söderlund opnar sýningu í anddyri Norræna hússins á mánudag. Á sýningunni eru bún- ingateikningar úr tveimur kvik- myndum, sem teknar hafa veriö hérlendis en þær eru „Rauöa skikkjan" frá árinu 1966 og „Para- dísarheimt". Sýningin er opin á venjulegum opnunartíma hússins. i bókasafni Norræna hússins er nú sýning á heföbundnu íslensku prjóni, aö mestu leyti byggö upp af munum úr Þjóöminjasafni íslands. Sýningin er opin kl. 9—19 virka daga og 14—17 á sunnudögum. GEROUBERG: Lýöveldiö 40 ára í menningarmiöstööinni Geröu- bergi stendur nú yfir sýning unnin af nemendum í Fossvogsskóla. Verkin eru unnin í tilefni af 40 ára afmæli lýöveldisins. Sýningin er opin mánudaga til fimmtudaga frá kl. 16—22 og föstudaga til sunnu- daga frá kl. 14—18. Hún stendur til mánaöamóta. KEFLAVÍK: Samsýning í Fjöl- brautaskólanum Nemendur myndlistardeildar Baöstofunnar í Keflavík halda nú sýningu í Fjölbrautaskóla Suöur- nesja. Sýningunni, sem er opin frá kl. 20—23 virka daga og kl. 14—23 um helgar, lýkur á sunnu- dag. r ÞEIM aðilum sem hafa hug á að senda fréttatilkynningarr í þáttinn „Hvað er aö gerast um helgina?“ er bent á að skila þeim eigi síöar en kl. 18.30 á miövikudögum. Efni í þáttinn er ekki tekið í gegn- um síma, nema utan af landi. Iryirnjr ó J Norræna húsiö: Landiö mitt, ísland „LANDID mitt, ísland" er yfir- úr dreifbýli og þéttbýli. Verkin skrift sumarsýningar Norræna fjalla um Island, land og þjóó. hússins í ár. Sýningin stendur frá og meö Á sýningunni, sem er haldin í morgundeginum til 22. júlí og samvinnu vió Félag íslenskra veröur opin daglega frá ki. myndmenntakennara, eru 140 14—19. verk, unnin af 4-14 ára börnum

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.