Morgunblaðið - 22.06.1984, Qupperneq 20

Morgunblaðið - 22.06.1984, Qupperneq 20
 í fyrri grein minni um Kýp- ur sagði ég nokkuð frá eyj- unni og sögu hennar, en hér veröur leitast við að bregða upp svipmyndum úr þjóðlífinu á þeim hluta landsins, sem grískumæl- andi menn ráða. Eins og ég gat um í fyrri grein minni eru íbúar Kýpur nú um 650 þús. talsins og þar af eru hinir grískumælandi íbúar um 500 þús. Þeir grísku- mælandi búa á aðeins um 5500 ferkílómetra lands- svæði, sem gerir það aö verkum, að byggðin er nær samfelld og í heild minnir hún mest á víðáttumikiö sveitaþorp. Menn virðast líka þekkja mikið til náungans og fylgjast náiö með athöfnum hans. Stutt er síðan þjóðlíf Kýpur bar með sér mikil áhrif frá menningu Miðausturlanda, enda landið um aldir hluti Dans í brúdkaupi. af stórveldi hinna tyrk- nesku Ottómana. Á síðustu áratugum hafa lífshættir æ meir fengið svip frá Vest- ur-Evrópu, en breytingin er hægfara eins og flest ann- að á Kýpur. Taktur lífsins er hér ekki sá, sem viö eig- um aö venjast á Norður- löndum. Aö fara í banka tekur óratíma, strætis- vagnaferðir eru fremur fáar og óreglulegar og bílstjór- inn á þaö til aö breyta um leiö, ef hann telur það henta sér eða kunningjum sínum betur. Allt er þetta þó auöveldlega umboríð af brosmildum og alúölegum Kýpurbúum, sem ennþá hafa nægan tíma til þess að láta sér annt um gesti og tala viö þá, — já, eink- um og sérílagi — tala viö þá. Slíkt þykir þumbara- legum Frónbúanum fram- andlegt í fyrstu. SEINNI GREIN UM KÝPUR ÆVISÖGUR OG ■ M. M ANNAD SPJALL Oftsinnis hefur leigubílstjóri sagt mér meginatriöin í ævisögu sinni á leiö milii borgarhluta í Nic- osiu. Kona, sem ég hitti í fyrsta og eina sinn í verslun, er á leið minni varö, sagöi mér frá börnum sín- um, eiginmanni og öörum ná- skyldum jafnt sem fjarskyldum fjölskyldumeölimum og lífi þeirra. Aö skilnaöi gaf hún mér súkku- laöibita í þakklætisskyni fyrir aö hafa hlustaö á sig. Þegar á ferð minni til Kýpur meö áætlunarflugvélinni frá Búlg- aríu kynntist ég þessum eiginleika Kýpurbúans. Við hliö mér sat roskinn maöur, er tók mig tali og var einkar liöugt um málbeiniö. Hann spuröi um hagi mína og þegar ég tjáöi honum aö feröin væri farin til þess aö stunda grískunám á Kýpur var eins og viö heföum þekkst frá fæöingu minni. Hann taldi þaö öldungis fullvíst, aö ég myndi brátt elska Kýpur meira en fööurland mitt og án efa myndi ég hitta ungan, lagiegan Kýpurpilt og um framhaldiö þyrfti ekki aö spyrja. Hér má reyndar bæta því viö, aö ég hef síöan kynnst þeirri út- breiddu skoöun eyjarskeggja, aö stúlkur séu fyrst og fremst ungar til þess aö giftast. Megi þær eng- ann tíma missa meöan æsku- blóminn varir. En samferöamaöur minn í flug- vélinni sagöi mér lika, aö ef ég ætti leiö um heimabæ sinn, þá væri ég velkomin í heimsókn, hvenær sem væri. Hann bætti þvi síöan viö, aö eftir tvær vikur myndi hann halda hátíölegt brúö- kaup yngstu dóttur sinnar og væri upplagt, ef ég vildi heimsækja fjöl- skylduna viö þaö tækifæri. Þetta væri einstakt tækifæri til þess aö vera viöstödd þorpsbrúökaup eins og þau ættu aö vera. BRUDKAUPID Og þaö reyndist sannarlega rétt, aö enginn skyldi láta slíkt tækifæri ónotað. Vinir brúögumans __ ________________1 raka hann á 1 A /XI irúökaupsdaginn bruðkaup öll fjölskyldan að starfi viö körfugerö. aeyju ástar- gyðjunnar Lefkara-dúkar og -útsaumur eru heimsfrægir. Allt er handunniö og konurnar sitja daglangt úti fyrir húsum sínum í Lefkara og sauma út. Leirker þessi hafa um aldaraöir veriö notuö til aö geyma kalt vatn. Um aldir hefur lífsbaráttan hér veriö hörö. Landiö hefur nú um stutta stund veriö sjálfstætt, en annars hefur þjóöin stuniö undan stjórn mismunandi slæmra drottn- ara af erlendum uppruna. Tylli-. dagar og tækifæri til skemmtana voru fá. Stórviöburöur á viö brúökaup voru undantekning, sem allt þorp- iö hlaut aö taka þátt í, jafnt í und- irbúningi brúökaupsveislunnar sem í veislunni sjálfri. Brúökaups- dagar voru heföbundnir og opin- berir hátíöisdagar í hverri byggö. HÚSNÆDI í HEIMANMUND Aö stofna til hjónabands var áöur fyrr mál foreldra og fjöl- skyldu, en þátttaka hjónaefna í málinu kom fyrst til á síöari stigum þess. Á seinni árum er þetta þó aö breytast og unga fólkið krefst nú aukins ákvöröunarréttar um hjú- skap sinn. Enn er þaö þó svo, aö stúlka getur helst ekki gengið í hjóna- band án heimanmundar, sem venju samkvæmt skal vera hús eöa annað íbúöarhúsnæöi. Þessi siður, — hús í heiman- mund — mun víðar tíökast í þess- um heimshluta, en ég hef fengiö þá skýringu á uppruna hans, aö hann sé trygging konunnar og hennar séreign, ef maöurinn skilur viö hana. Einnig hef ég heyrt þá skýringu, aö heimanmundurinn sé höfuöprýöi hverrar konu og auki mjög líkurnar á góöum ráöahag hennar.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.