Morgunblaðið - 22.06.1984, Side 21

Morgunblaðið - 22.06.1984, Side 21
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 22. JÚNÍ 1984 M Ég spurði kunningja minn, hvort þaö væri ekki dýrt spaug aö eiga dóttur og þurfa aö gifta hana brott. — Nei, sjáöu til — sagöi hann. — í V-Evrópu hefja menn hjúskap meö tvær hendur tómar og eyða svo ævinni í aö eignast þak yfir höfuöiö og allt sem því tilheyrir. Viö fáum þaö allt í byrjun og frá brúökaupsdegi okkar vinnum viö bara og söfnum fé til þess aö geta byggt dætrum okkar hús og þar meö tryggt þeim góö mannsefni. Niöurstaöan er sú sama. BRÚDKAUPS- DAGURINN En víkjum nú aftur aö þorps- brúðkaupinu. Þaö er eins og fyrr segir, viöburöur er snertir alla íbúa þorpsins. Aö morgni brúökaupsdagsins, sem ávallt er sunnudagur, færa vinir brúögumans hann í brúökaupsklæöin og á meöan syngja þeir söng um hverja ein- staka spjör, sem þeir færa hann í. Söngvarnir hafa iíka aö geyma aö- varanir og ráöleggingar til brúð- gumans, t.d. aövörun um aö kon- an hans kunni aö lumbra á hon- um, ef hann drekki um of. Dæmigert Kýpurbrauö bakaö úti í garöi. Á sama hátt klæöa vinstúlkur brúöarinnar hana í brúöarskartið og færa henni ráöleggingar í söngvaformi. Þar er henni uppá- lagt aö gæta manns síns vel, gefa honum góöan mat, hiröa vel um fötin hans o.sv.frv. Hjónavígslan fer fram í kirkju, en samkvæmt lögum er þaö eini löglegi vígslumátinn. Eftir athöfnina marsera þorpsbúar til veislunnar meö prestinn og brúöhjónin í farar- broddi. Nú rennur upp stund sælkera þorpsins og eftirvænting ungra sem aldinna skín úr hverju andliti. Er fyrsta lota boröhaldsins er afstaöin, hefur skyndiiega einn karlmannanna upp raust sína og syngur eitt erindi eöa vísu. Um leiö og því líkur, tekur annar viö og svarar. Hefst nú einvígi milli þeirra og reynir hvor um sig aö kveöa hinn í kútinn. Veislugestir taka jafnan undir 2. og 4. Ijóölínu vís- unnar og minnir þetta oft á sam- kvæmissöng heima á Fróni eöa í Færeyjum. Kvæöin fjalla yfirleitt um ást, heitmeyjar, ástarsorg og tryggöa- rof og eins er oft um skopvísur aö ræöa. Er eftirminnilegt að hlýöa á, þegar tónlistin og hin kjarnmikla mállýska Kýpurbúanna sameinast í slíkri hljómkviöu. Síöan hefst dansinn. Brúöhjón- in dansa alein og viöstaddir hengja á þau peninga, sem eiga aö auövelda þeim aö hefja bú- skapinn. Eftir þaö er stiginn al- mennur dans og stendur gleö- skapurinn fram eftir nóttu. Áöur fyrr stóðu brúðkaups- veislur oft í viku, en nú láta menn yfirleitt sólarhringinn nægja. í stórbæjum Kýpur eru nú óöum aö komast á aörlr brúökaupssiöir, sem meira eru í ætt viö þaö, sem viö þekkjum. Þaö er því eins og aö kynnast löngu liönum dögum, aö upplifa þorpsbrúökaup á þann hátt, sem ég gerði. SJÁ N.ÆSTU SÍÐU íslenzk Frímerki Jón Aöalsteinn Jónsson Enginn efi leikur á því, aö ís- lenzkir gestir, sem heim- sækja NORDIU 84, muni al- mennt hafa mestan áhuga á aö sjá þaö íslenzka frímerkjaefni, sem boöið veröur upp á. Þess vegna vil ég i þessum þætti fara nokkrum orðum um þau ísienzku söfn eöa hluta úr þeim, sem sýnd verða. islenzk frímerki, stimplar og bréf veröa í 69 römmum. Eölilegast er aö minnast fyrst á þá safnara hér- lendis, sem taka þátt í sýningunni og sýna íslenzkt efni. Þeir hafa allir áöur tekið þátt í frímerkjasýning- um og eru þess vegna velþekktir f hópi íslenzkra safnara. Eins hef ég sagt frá þeim og söfnum þeirra áð- ur, bæöi hór í þættinum og annars staöar. Er því síöur ástæöa til aö fjölyröa um söfn þeirra nú. Menn veröa einungis aö koma og sjá. Hjalti Jóhannesson sýnir elztu tegundir stimpla, sem notaöir voru viö ógildingu frímerkja. Hefur hann einskorðað söfnun sína viö svonefnda upprunastimpla (ööru nafni antikva- og lapidar-stimpla) og svo kórónu- og tölu- eöa núm- erastimpla. Hefur hann náö saman mjög skemmtilegu safni af þessum stimplum. Er safn hans í stööugri framför, enda leggur hann mikla alúð viö þaö. Siguröur Þormar veröur viö hliö Hjalta meö enn aðra gerö íslenzkra stimpla, sem ýmist hafa veriö kall- aöir brúarstimplar eöa svissneskir stimplar. Af þeim eru margar gerö- ir allt frá fyrstu tíö 1948 og fram á þennan dag, enda skiptir Siguröur safni sínu i tvennt og sýnir þaö í 15 römmum. Hefur hann eins og Hjalti dregiö þetta stimplasafn saman á stökum merkjum og bréfum eöa bréfsnyfsum. Jón Halldórsson er þekktur fyrir stimplasafn sitt á 20 aura Safna- húsinu frá 1925 og hefur náö veru- lega langt meö þaö efni. Veröur safn hans í sjö römmum. Aö auki sýnir Jón i fimm römmum safn ís- lenzkra spjaldbréfa. Guðmundur Ingimundarson sýnir okkur enn átthagasafn sitt frá Vestmannaeyjum, en hann hefur stööugt veriö aö bæta við þaö og laga. Hér leggur hann áherzlu á aö ná saman á frímerkjum og bréfum eða snyfsum öllum þeim stlmplum, sem notaðir hafa veriö í Eyjunum. Hefur Guömundur náö saman verulegu efni, enda tekur hann fram, aö hann sýni hluta úr stærra safni. Þá er upptalinn hlutur ísl. safn- ara í Islands-deildinnl, ef svo má nefna hana. Því miður eru margir frímerki á NORDIU 84 Mesta frímerkjasýning á íslandi! í LAUGARDALSHÖLL 3.-8.JÚLÍ Andersson í Gautaborg er kunnur islandssafnari og hefur tekiö þátt í sýningum hérlendis. Hann sýnir nú forfrímerkjabréf og póststimpla fyrir 1893 í fimm römmum. Loks sýnir bandarískur maöur, George Sickels, sem er aö góöu kunnur í rööum isl. safnara, sér- stætt safn, sem nefnist Island, stríösbréf. Safniö sýnir póstsögu erlendra herja, sem voru á Islandi í síöari heimsstyrjöldinni. Hér er um mjög takmarkaö söfnunarsviö aö ræöa, enda mun margt af þessu efni mjög fágætt. Af framangreindu geta menn séö, aö ýmislegt verður á boöstól- um á NORDIU 84 og hefur þó fátt Auk 'ién'ugáfu á frfmerkfum og mnnispenmgi verða á boðsrófvm fhtri tftuvóttar sérvlgafur. PÓSTHÚS OG SÖLUBÁSAR Á SÝNINGARSVÆÐINU 149 sýnq Auk þess Blómasýning Landakortasafri Barmmerkjasafi1 Listmunir — ijós\ Veitingasaia §/ a’Si/' mm \ v^O Sérsiimpiar sýningaritmar NORDIA 84 —SÝNINGARNEFND ísl. safnarar allt of tregir til aö sýna isiandssöfn sín, en vitaö er, aö þau eru mörg góö til hérlendis. Margir erlendir safnarar eiga fágætlega góö Islandssöfn og þaö svo, aö viö hljótum aö öfunda þá af. Einhvern tímann hef ég minnzt á hóp danskra safnara, sem hafa sérhæft sig í íslenzkum frímerkjum og raunar ísl. frímerkja- og póst- sögu. Hafa þeir unniö margt ágætt á því sviöi. Þrír úr þessum hópi sýna nú hér í fyrsta skipti, og er verulegur ávinningur í þátttöku þeirra. Sjálfur þekki ég svolítiö til safna þeirra og vil þess vegna benda væntanlegum sýningargest- um á aö skoöa söfnin vandlega. Hliö viö hliö veröa tvö mjög áhugaverð söfn í 20 römmum. Ebbe Eldrup sýnir í 10 römmum island 1827—1919. Er þetta frá- bært sérsafn, sem hefst fyrir daga ísl. frímerkja og lýkur, þegar fri- merki Kristján X. koma út 1920. Eldrup leggur áherzlu á póstsög- una og mun auk frímerkja sýna fjölda sjaldséöra umslaga, þar sem lesa má úr fjölmargt um buröar- gjöld o.fl. Orla Nielsen sýnir svo í' 10 römmum fsland 1847—1933. Ég sá þetta safn á sýningu í Dan- mörku á liðnu hausti. I því eru margir mjög góöir hlutir. Nielsen hefur m.a. safnaö prentunum aura- merkja, svo aö eitthvaö sé nefnt, og jafnvel giímt viö aö setja saman arkarhluta úr notuöum merkjum. Ekki kæmi mér á óvart, aö margur stanzaöi viö söfn þessara tveggja Dana. Þriöji Daninn í þessum hópi er Torben Jensen, sem ýmsir kannast viö hér á landi, enda bjó hann hér um tíma og á íslenzka konu, Bínu Kristjánsdóttur frá Akureyri. Tor- ben og þau bæöi eru áhugasamir safnarar. Torben hefur einkum hallað sér aö útgáfu frímerkja meö mynd Kristjáns X. Hér sýnir hann í fjórum römmum yfirprentanir þessara merkja og alis kyns af- brigöi þeirra og piötugalla. Eins veröa hér umslög meö alls konar burðargjöldum. Enda þótt margir ágætir Svíar eigi gott ísl. frímerkjaefni, fer ekki mikiö fyrir því á NORDIU 84. Ingvar - »0 xn -*n eitt veriö nefnt. Rétt er svo aö taka það fram í lokin, svo aö ekki valdi misskilningi, aö örfáir ísl. safnarar taka þátt í öörum deildum sýn- ingarinnar og vonandi með áhuga- vert efni í augum gesta, en ég sleppi umræöum um þau söfn aö sinni. Nú er ekki nema hálfönnur vika, þar til NORDIA 84 veröur opnuö almenningi. Vil ég eindregiö hvetja alla áhugamenn um frímerki og frí- merkjasöfnun til þess aö sækja þessa samnorrænu frímerkjasýn- ingu, enda óvíst, hvenær næsta tækifæri býöst til aö skoöa jafn- fjölbreytta sýningu hérlendis. Munið NORDIU 84 sýningardagana 3.- júlí nk. og Eigum nokkur hjól til afgreiöslu strax á þessu frábæra verði. Einnig hægt aö fá meö stuttum fyrirvara GPZ 750 turbo og GPZ 900 Ninja. SVERRIR ÞÓRODDSSON K-KAWASAKI sími 91-82377

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.