Morgunblaðið - 27.06.1984, Qupperneq 3
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 27. JÚNÍ1984
3
„Fálkamafían hótaði
á sikileyska vísu“
— segir Miroslav Peter Baly í viðtali viö Bild og
Hamburger Abendblatt eftir komuna til Hamborgar
MIROSLAV Peter Baly er nú
kominn til heimaborgar sinnar
í Þýskalandi, Köln. Hann og
hans athæfi hafa vakið athygli
víðar en hér á landi, því þýska
pressan gerir honum og hans
sögu nokkur skil í gær. Til
dæmis eru dagblöðin Bild Zeit-
ung og Hamburger Abendblatt
með allítarlegar frásagnir af
Baly og viðtöl við hann.
Bild greinir frá því að El-
iza Heeren hafi komið til
Hamborgar á miðnætti 24.
júní, og þar hafi hafnarlög-
reglan í Hamborg tekið á
móti Baly, 23 ára Kölnarbúa.
Bild birtir örstutt viðtal við
Baly, þar sem hann segir
m.a.:„Ich war im Auftrag der
Falken-Mafia Unterwegs,"
sem þýðir á íslensku að hann
hafi verið sendur hingað af
fálkamafíu. Þá segir Baly að
Englendingar og arabar
greiði 10 þúsund mörk fyrir
einn fálkaunga, sem er jafn-
virði liðlega 100 þús. ísl.
króna. Eitt fálkaegg sé metið
á 1500 þýsk mörk, sem er
jafnvirði liðlega 15 þús. ísl
króna. Baly greinir frá því að
sá sem hafi fengið hann til
íslandsfararinnar, hafi
greitt honum 7400 mörk sem
áhættuþóknun og fyrir út-
lögðum kostnaði, en það
jafngildir um 75 þús. ísl.
krónum.
Baly greinir jafnframt frá
því að hann hafi ekki átt
annars úrkosta en að reyna
að stinga af, þar sem hann
hafi átt yfir höfði sér 30 þús-
und marka sekt, en ekki átt
nema um 200 mörk í fórum
sínum.
Hamburger Abendblatt er
með talsvert ítarlegri frá-
sögn af Baly og forsögu
málsins en Bild Zeitung. Þar
er jafnframt birt viðtali við
Baly, þar sem hann segir að
fálkamafían hafi hótað hon-
um, ef þessi leiðangur hans
til íslands mistækist.
„Fálkamafían hótaði mér á
sikileyska vísu, ef leiðangur-
inn mistækist," segir Baly í
viðtalinu við Hamburger Ab-
endblatt og svipaða sögu seg-
ir hann í Bild. Hamburger
Abendblatt birtir auk frá-
sagnar fjórar myndir, sem
eru af Eliza Heeren í Ham-
borgarhöfn, af lögregluþjóni
sem heldur í öxlina á Baly
við komuna til Hamborg, ein
mynd er af íslandsfálka og
loks birtir blaðið mynd af
þeim Baly-hjónum, sem ekki
er alveg ný af nálinni.
Hamburger Abendblatt
greinir frá því í frásögn
sinni, að eftir að dómur féll
og þau Baly-hjón voru dæmd
til þess að greiða samtals 50
þúsund marka sekt, hafi
þeim báðum verið sleppt úr
fangelsi, vegna þrýstings frá
þýska sendiráðinu í Reykja-
vík. Frúin hafi fengið að fara
úr landi, en Baly hafi orðið
að bíða í landinu, vegna
biðstöðu í dómsmáli. Hann
hafi því hafst við á Hjálp-
ræðishernum, og daglega
hafi hann orðið að tilkynna
sig hjá útlendingaeftirlitinu.
Hann hafi hitt skipverja af
Eliza Heeren á götu og beðið
skipstjórann um að hjálpa
sér af landi brott, en hann
hafi neitað. Þá hafi hann
gripið til þess ráðs að fela sig
um borð, og þar hafi hann
hírst á þriðja dag, hungraður
og kaldur.
Viðræðunefnd Alcan
til Akureyrar í dag
FULLTRÚAR kanadíska ál-
hringsins Alcan komu til landsins
síðdegis í gær með einkaþotu
fyrirtækis síns til viðræðna við
stóriðjunefnd, Landsvirkjun og
iðnaðarráðherra. Fulltrúar Lands-
virkjunar og stóriðjunefndar tóku
á móti kanadísku samninganefnd-
armönnunum á Keflavíkurflug-
velli. Árdegis í dag halda viðræðu-
nefndirnar til Akureyrar og ræða
við frammámenn þar í bæ og víðar
við Eyjafjörð. Kanadamennirnir
halda utan aftur á föstudaginn.
Myndina tók ljósm. Mbl., Július, á
Keflavíkurflugvelli í gær við komu
gestanna.
Norrænn flugmála-
stjórnafundur hér
ÁRLEGUR fundur flugmálastjóra
Nordurlanda verður haldinn á Húsa-
vík 4. og 5. næsta mínaðar. Þetta er
í fyrsta skipti, sem flugmálastjórarn-
ir halda fund í íslandi. Auk þeirra
situr fundinn fulltrúi Norðurlanda
hjá Alþjóða flugmálastofnuninni,
ICAO. Pétur Einarsson flug-
málastjóri stjórnar fundinum.
Norðurlöndin hafa með sér
margvíslegt samstarf á sviði
flugmála, t.d. á sviði leiguflugs,
tæknimáía og slysarannsókna auk
víðtæks samstarfs innan ICAO.
Góð veiði í Stóru-Laxá
Að sögn Friðriks G. Stefánsson-
ar, framkvæmdastjóra, Stanga-
veiðifélags Reykjavíkur, er mjög
góð veiði í Stóru-Laxá 4, efsta
svæði. Alls hafa komið 47 laxar á
land, þar af 35 á sunnudag og
mánudag, en veiði hófst 21. júnf.
Laxinn er vænn, meðalþyngd 12
pund og flestir á bilinu 10—17
pund.
Nær eingöngu hefur verið veitt
á maðk enda mikið vatn í ánni og
hefur mest veiðst á svæðinu frá
Bláhyl að Hólmahyl. Alls eru 5
stangir í efsta hluta árinnar. Lax-
inn er grálúsugur.
Friðrik sagði veiðina mun betri
en á sama tíma í fyrra og kvað
það lofa góðu.
Á svæði 1—2, neðsta svæðinu,
gengur veiði einnig vel, en þar er
veitt á þrjár stangir. Alls eru
komnir um 40 laxar á land, þar af
tveir 17 punda.
Á annað hundrað laxar
veiðst í Blöndu
Veiði í Blöndu hófst 5. júní sl.
og er hún ólfkt betri en á síðasta
ári, en þá var veiði dræm. Að sögn
Friðriks hafa vel á annað hundrað
laxar veiðst og er sá þyngsti 25
pund, eins og greint var frá í
Morgunblaðinu f gær. Laxinn er
genginn vel upp i ána.
Að sögn Friðriks er fiskur einn-
ig genginn upp f Svartá, en hún
rennur i Blöndu, og er það mun
fyrr en venjulega. Menn eru því
bjartsýnir á góða veiði þar, en
hún hefst 1. júlf næstkomandi.
Úlfarsá dræm
Á hádegi í gær veiddust 7 laxar
úr Úlfarsá á bilinu 3—9 pund og
voru þeir allir veiddir á maðk.
Undanfarna daga hefur veiði ver-
ið dræm og veiddist ekkert á
mánudag og sunnudag. Veiði
byrjaði 20. júní síðastliðinn.
Agæt veiði í Víðidalsá
Samkvæmt upplýsingum
starfsstúlku f veiðiskálanum
Tjarnarbrekku veiddust 11 laxar
fyrir hádegi í gær f Víðidalsánni
og eru þvf 101 kominn á land.
Meðalþyngd er 12—13 pund en
þyngsti laxinn fram að þessu var
16 punda hængur sem veiddist á
svartan tópí, 28 gramma. Veiði
hófst 15. júnf sfðastliðinn.
Aðalveiðisvæðin eru á Brúnni
og í Kerinu. Að sögn starfsstúlk-
unnar er mest veitt á maðk.
Sænski Klippan barnastóllinn hef- Klippan er fáanlegur í allar
ur staðist próf umferðaryfirvalda tegundir bifreiða.
og slysavarnarmanna með á- Klippan erfestur eða losaður á
gætiseinkunn. En við hönnun örskammri stundu.
stólsins var ekki einungis hugsað
um öryggi og þægindi, heldur einn-
ig um útlit og tvöfalt notagildi.
Komdu og kynntu þér Klippan og annan öryggisbúnað
í barnahorninu hjáokkur.
SUÐURLANDSBRAUT 16 - SÍMI 35200
Tryggjum öryggi barnanna í bílnum,
-með Klippan barnabílstólum.