Morgunblaðið - 27.06.1984, Qupperneq 15
Míp rM0RGlíN8LAÐId&, (MiaVilírUÖA&UB 27, áCNÍ4984
15
i r
Hótel Saga hlýtur tvær viðurkenningar og
gerir samstarfssamning við British Airways
Frá blaðamannafundinum. Talið frá vinstri: Jónas Hvannberg, Francois Fons, Lúðvík Hjálmtýsson, Konráð
Guðmundsson, Wilhelm Wessman, Birgir Þorgilsson og Ármann Guðmundsson.
framkvæmdastjóri fyrir komi til
með að verða eftir tíu ár?
„Ég get ómögulega sagt þér
hvernig fyrirtæki verða að tíu árum
liðnum; ég tala reyndar með sem-
ingi um næstu tólf mánuði. Auðvit-
að vonar maður það besta. Fyrir-
tæki í iðnaði i þessu landi eru nefni-
lega afskaplega háð ytri aðstæðum,
sem er óeðlilegt. Fyrirtæki í sjávar-
útvegi eiga hluta afkomu sinnar
undir gæftum og guði almáttugum.
Það hjálpar okkur náttúrulega að
hafa guð almáttugan i okkar liði, en
þó er annað meginatriði að fyrir-
tækin hafi starfsfrið. Starfsfrið
fyrir opinberum afskiptum. Mér
hefur fundist alveg frá því að ég
byrjaði að fylgjast með orðum og
athöfnum ráðamanna í þessu landi,
að iðnaður hafi alltaf verið i þriðja
sæti hvað mikilvægi varðar i is-
lenskum þjóðarbúskap. Það er ekki
fyrr en nú, þegar syrtir í álinn í
sjávarútvegi og þjóðin stendur á
blístri á óseldum niðurgreiddum
landbúnaðarafurðum, að mænt er
vonaraugum til iðnaðarins og gert
ráð fyrir að sá atvinnuvegur sjái
um að skapa næstu kynslóð íslend-
inga ný störf.
Þetta er gott og blessað og von-
andi gengur sú hugsun eftir. Ég
þykist reyndar fullviss að svo verði,
þaö er að segja ef afskipti ríkisins
verða ekki þeim mun meiri. Það er
mín skoðun, að iðnrekstri, sem og
öllum atvinnurekstri, sé best borgið
i höndum einstaklinga. Það hlýtur
að segja sig sjálft, að þegar ein-
staklingar fjárfesta í fyrirtæki,
jafnvel leggja aleigu sína í fyrir-
tæki, þá eru það hagsmunir hans og
fjölskyldu hans, að fyrirtækið skili
arði. Gildir þá einu hvort hanr
vinnur þar sjálfur eða ekki. Eðli-
lega hlýtur hann að fylgjast grannt
með rekstrinum, því allt hans fé er
í húfi. Með öðrum orðum, þá fjár-
festa einstaklingar í rekstrinum
með þá von í huga, að reksturinn
skili arði — að það verði gróði á
fyrirtækinu. Ef menn hugsa ekki
þannig er næsta vist að reksturinn
gengur ekki. Auðvitað verður þessi
hugsjón að vera innan skaplegra
marka, en það versta sem stjórn-
málamönnum hefur tekist að kenna
þjóðinni er, að það sé ljótt að
græða. Hvernig á að vera hægt að
reka fyrirtæki ef ekki má græða?"
RÍKIÐ OG
EINKAFRAMTAKIÐ
— Eru ríkisrekin fyrirtæki af
hinu illa?
„Sú hugsun læðist að manni, að
mönnum, sem vinna hjá fyrirtæki I
eigu ríkisins, sé ekki eins umhugað
um að fyrirtækið gangi vel og hin-
um sem starfa á einkagrundvelli.
Um daginn hitti ég mann sem kom
til mín á skrifstofuna. Hann var þá
nýráðinn framkvæmdastjóri hjá
fyrirtæki i eigu ríkisins, sem sett
hafði verið á stofn úti á landi og á
að framleiða vörur samskonar og
við framleiðum nú I Hreini hf. Við
tókum tal saman og tjáði hann mér
að hann vildi gjarnan eiga við
okkur gott samstarf og jafnvel ein-
hverja samvinnu. Spurði hann síð-
an hvort við ættum ekki að samein-
ast um að auka sölu fyrirtækjanna
á kostnað innflutts varnings. Ég
tók þessu vel, en spurði hvernig
hann hygðist verðleggja vöru sína.
Sagðist hann ekki vera búinn að
gera það upp við sig, enda væri
hann ekkert bundinn við að rekst-
urinn bæri sig. Þess vegna hefði
hann nú komið til okkar þar eð
hann vildi miklu frekar ná markaði
frá innflutningnum en okkur. En ef
við vildum samkeppni við hann, þá
gæti hann hæglega leikið sér að því
að undirbjóða okkur og þannig
komið okkur út af markaðinum. Ég
varð afskaplega hvumsa við, en við-
mælandi minn ftrekaði að vegna
eðli vinnustaðarins, sem er vernd-
aður vinnustaður, þá væri ekkert
sem segði til um að nauðsynlegt
væri að reksturinn skilaði arði.
Ég er nú svo undarlega gerður, að
mér finnst þetta furðuleg afstaða.
En ég vil segja að lokum, að mér
finnst vera töluverð bjartsýni ríkj-
andi meðal manna I iðnaði. Hún er
þó kvíðablandin, þvi ef sá árangur
sem náðst hefur í efnahagsmálum á
undanförnum mánuðum glatast,
held ég að ömurleg lifsreynsla bíði
okkar — og skiptir þá ekki máli við
hvað menn vinna eða hjá hverjum."
Á blaðamannafundi sem Hótel
Saga efndi til 25. júní sl. kom
fram að hótelið hefur nýlega hlot-
ið alþjóðlega viðurkenningu,
„The International Award to
Tourist and Hotel Industry“.
Þessi viðurkenning er veitt fyrir-
tækjum um allan heim, sem á ein-
hvern hátt eru talin skara fram úr
í ferðamannaþjónustu. Spönsk út-
gáfusamtök, OFICE, sem sérhæfa
sig í ferðamálaritum, veittu Hótel
Sögu viðurkenninguna f Madrid
fyrir skömmu.
Árið 1984 er niunda árið sem
verðlaun þessi eru veitt og hafa
ýmis heimsþekkt fyrirtæki áður
hlotið þau. Áður hefur eitt ís-
lenskt fyrirtæki, Ferðaskrif-
stofa ríkisins, hlotið verðlaunin,
en það var árið 1983.
Einnig hefur Grillið hlotið
verðlaun nýlega frá frönskum
samtökum, sem helga sig mat-
argerðarlist. Samtökin heita
Chaine des rotisseurs og voru
stofnuð árið 1284. Þau voru
starfandi allt til ársins 1789.
Um 1950 voru þau svo endur-
vakin til þess að sameina
áhuga- og atvinnumenn í mat-
argerðarlist um allan heim í
samtökum sem helga sig há-
gæðum við alla matargerð.
Þegar samtökin útnefna nýja
meðlimi verða viðkomandi, að
viðlögðum heiðri sínum, að
gangast undir formlegan eið,
sem m.a. krefst stöðugrar, skil-
yrðislausrar athygli og alúðar
við matreiðslu.
Tveir af aðstandendum Gildis
hf., sem rekur Grillið á Hótel
Sögu, hafa fyrir hönd Grillsins
hlotið inngöngu í þessi samtök,
en það eru framkvæmdastjór-
inn, Wilhelm Wessman, og
Francois Fons, framkvæmda-
stjóri matreiðslusviðs. Sam-
kvæmt reglum samtakanna eru
veitingastöðum veittar mis-
munandi gráður og hlaut Grill-
ið við þetta tækifæri tvær af
þeim æðstu. Formleg aðild
verður staðfest við hátíðlega at-
höfn í Frakklandi á næstunni.
En fleira hefur verið á döf-
inni að undanförnu, því Hótel
Saga hefur gert samning við
breska flugfélagið British
Airways um samstarf á næstu
árum. Samstarf þetta felur í sér
að Hótel Saga verður í hópi hót-
ela sem nefnd eru „British
Airways Associate Hotels", en
þau eru um 150 fyrsta flokks
hótel um allan heim. British
Airways mun sjá um að auglýsa
þessi hótel m.a. í sérstakri hót-
elskrá sem dreift er víða og er
prentuð í yfir 100.000 eintökum.
British Airways er stærsta
flugfélag á vesturlöndum og
með þessu samstarfi öðlast
Hótel Saga ákveðinn gæða-
stimpil sem er viðurkenndur
um allan heim. Einnig má búast
við auknum viðskiptum þeirra
erlendu ferðamanna sem
hingað koma í gegnum bókun-
arkerfi British Airways.
Að lokum má geta þess að
verið er að ljúka við breyt-
ingarnar á Grillinu. Að sögn
Konráðs Guðmundssonar, hót-
elstjóra, er kominn nýr heildar-
svipur á salinn. Borðaskipan
hefur verið breytt lítilsháttar
og komið er skilrúm eftir miðj-
um salnum. Einnig hefur verið
skipt um stóla og skartar salur-
inn nýjum litum.
Grillið eftir breytingarnar.
bjóðum aðeins
gæðagrípi
Mesta úrval landsins af þekktum viöurkenndum merkjum.
10 ára ábyrgð á stelli og framgaffli.
Varahluta- og viðgerðaþjónusta.
Þekking — öryggi — reynsla.
Sveigjanleg greiðslukjör.
Sérverslun i meira en hálfa öld
.. Reióhjólaverslunín
ORNINN
Spitalastíg 8 simar 14661 - 26888
£ fCYCLES \PEUCEOT @ KALKHOFF s c