Morgunblaðið - 27.06.1984, Page 18
18
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 27. JÚNl 1984
Kuwait vill fá
sovésk hergögn
Kuwait, 26. júní. AP.
KUWAIT-STJÓRN hefur snúið sér
til Sovétríkjanna og falast eftir
kaupum á nýtísku vopnabúnaði, eftir
því sem fram kom í fréttum bér í
dag. Þetta gerist skommu eftir að
Bandaríkin hafa hafnað beiðni
stjórnarinnar um svokallaðar
Stinger-flaugar.
Verkfóllin í Bretlandi:
Verkfalls-
menn í ham
London, 26. júní. AP.
BRESKA lögreglan handtók í dag 50
námuverkamenn þegar allt að 1.000
verkamenn héldu uppi verkstöðvun-
um í tveimur helstu kolanámum í
Skotlandi og norðurhluta Englands.
Einnig röðuðu þeir sér fyrir framan
aðalstöðvar stjórnar ríkisreknu kola-
námanna í Yorkshire og vildu meina
skrifstofufólki inngöngu.
Verkfallsverðirnir höfðu varnað
öllum inngöngu inn í aðalstöðv-
arnar í nær klukkustund, áður en
lögreglan kom á staðinn. Köstuðu
þeir múrsteinum, eggjum og flösk-
um í starfsfólk sem vildi halda til
vinnu. Engan sakaði þó i þessum
aðgerðum verkamannanna.
Einn farmur af járngrýti komst
framhjá verkfallsvörðum inn í
stálsmiðju í Suður-Wales, en verk-
fallsmenn hafa reynt ýmsar að-
gerðir til að stöðva rekstur smiðj-
unnar i mótmælaskyni við lokun
kolanámanna. * Járnbrautar-
starfsmenn neituðu að flytja tvo
aðra farma. Forystumenn náma-
manna segja að ekki sé nema tim-
aspursmál hvenær járnbrauta-
starfsmenn stöðvi allan flutning
járngrýtis til verksmiðjunnar.
Tæplega 1.000 verkfallsverðir
grýttu rútu, sem í voru verkamenn
á leið til vinnu i Dérbyshire í
Norður-Englandi, og slösuðust
tveir lögreglumenn og sjö verk-
fallsmenn voru handteknir. Rútan
komst leiðar sinnar þrátt fyrir
árásina. Mikill hiti hefur verið í
verkfallsvörðum í Derbyshire, þar
sem um 80 verkamenn hófu aftur
vinnu þar í siðustu viku.
Tvö stærstu verkalýðsfélög
járnbrautarstarfsmanna hafa
ákveðið að fara í 24 klukkustunda
samúðarverkfall með kolanámu-
mönnum og munu farþegalestir til
höfuðborgarinnar stöðvast á mið-
vikudag.
Varnarmálaráðherrann, Salem
Al-Sabah, sagði í gær, að hann
héldi til Mosvku 9. júlí nk. til þess
að ganga frá samningi um vopna-
kaup. „Þessi ferð er þáttur i þeirri
stefnu stjórnarinnar að eiga sem
jöfnust skipti við risaveldin,"
sagði ráðherrann við fréttamenn.
Bandaríkin hafa tregðast við að
verða við beiðni Kuwait-stjórnar
um Stinger-flaugarnar af ótta við,
að þær lentu í höndum Palestínu-
skæruliða, sem Kuwait hefur stutt
dyggilegast allra arabaríkja.
Nýlega fengu Saudi-Arabar 400
Stinger-flaugar. Byggðist það á
þeim forsendum, að þeir þyrftu á
flaugunum að halda til að verja
olíumannvirki og olfuskip.
Ekki hefur verið tíundað, hvers
konar vopnabúnað Kuwait-stjórn
liyggst kaupa í Sovétríkjunum, en
áreiðanlegar heimildir telja, að
þar sé m.a. um að ræða flugskeyti
og skriðdreka og nemi viðskiptin
hundruðum milljóna dollara.
AP/ Símamynd.
Walter Mondale á fundi í Minnesota. Að bal.i honum stendur Edward
Kennedy öldungadeildarþingmaður, sem lýst hefur stuðningi við útnefningu
Mondales við forsetakosningarnar í haust.
Mondale og Hart
ákveða að sættast
Amnesty:
1.699 líflátnir
á síðastliðnu ári
LoBdon, 26. júní. AP.
EKKI færri en 1.699 manns voru
tekin af lífí í 39 löndum á síðastliðnu
ári, segir í frétt frá mannréttinda-
samtökunum Amnesty International
í dag. Ennfremur segir, að raunveru-
legar tölur yfír líflátna kunni þó að
vera miklu hærri, vegna þess hve
algengt sé, að leynd hvfli yfír aftök-
Fram kemur í fréttinni, að þrjú
lönd skera sig úr, Kína, íran og
írak. Þar voru 1.399 manns líflátin
á síðastliðnu ári, eða 82 af hundr-
aði þeirra sem þá voru teknir af
lífi miðað við fyrrnefnda tölu.
ltrekuð eru tilmæli Amnesty
International um, að dauðarefsing
verði hvarvetna afnumin. Sérstak-
ur uggur er sagður rfkja innan
samtakanna vegna þess hve aftök-
um hafi fjölgað í Bandaríkjunum
á síðustu árum. Talsmaður AI,
Mark Grantham, sagði í fréttavið-
tali, að á árinu 1983 hefðu um
1.160 dauðadómar verið kveðnir
upp í 63 löndum. í Bandaríkjun-
um, þar sem dauðadómum frá
fyrri árum hefði ekki verið full-
nægt um skeið, hefði fjöldi dauða-
dæmdra á síðasta ári verið 1.300
New York, 26. jóní. AP.
WALTER Mondale og Gary Hart
sættust á fundi í dag og lýstu yfír
því í fundarlok að saman myndu
þeir vinna að því að sigrast á Ron-
ald Reagan í forsetakosningunum
í haust.
„Það sem okkur greinir á um
eru smámunir í samanburði við
það sem skilur okkur og Reagan
forseta að,“ sagði Mondale eftir
fundinn. Hart sagðist myndi
halda áfram tilraunum til að
hljóta útnefningu demókrata-
flokksins við kosningarnar i
haust, en yfirlýsingar beggja á
blaðamannafundi bentu til sátta
og vinskapar þeirra í millum.
Báðir neituðu því að til um-
ræðu hafi verið sá möguleiki að
Hart yrði varaforsetaefni
Mondales. Sagði Mondale að við-
ræður þeirra hefðu fyrst og
fremst snúist um með hvaða
hætti þeir gætu lagt Reagan að
velli og hvernig tryggja mætti
sem mesta kosningaþátttöku til
þess að ná því takmarki.
Samstarfsmenn forsetaefn-
anna sögðu þá hafa náð sam-
komulagi um málamiðlun, sem
felur í sér að Hart dregur ekki í
efa kjörgengi fulltrúa á flokks-
þinginu, sem bundnir eru af
stuðningi við Mondale, gegn
samþykki Mondales við tillögur
um breyttar reglur um val for-
setaefnis 1988.
Málamiðlun þessi tókst fyrir
tilstilli Edward M. Kennedys
öldungadeildarþingmanns, og
hefur hún fært Mondale og Hart
mun nær hvor öðrum, enda þótt
Hart segist áfram sækjast eftir
útnefningu. Kennedy hefur
sagst styðja útnefningu Mondal-
es við forsetakosningarnar.
D’Aubuisson
ber af sér sakir
Flöskuskeyti
frá Wallenberg
FLÖSKUSKEYTI frá Raoul Wall-
enberg fannst á Borgundarhólmi á
laugardag, en samkvæmt staðsetn-
ingu í skeytinu er Wallenberg í
haldi á eyju á þeim slóðum sem
Frans Josef-eyja er.
Það var sláturhússstarfsmað-
ur á Borgundarhólmi, sem fann
flöskuskeytið er hann fór í
gönguferð síðdegis á laugardag
meðfram strönd eyjunnar. Tók
hann eftir grænni vínflösku í
sandinum og að miði var innan í.
í flöskunni var stutt bréf á
ensku, sem undirritað var af Ra-
oul Wallenberg. Wallenberg var
sendifulltrúi Svía í Ungverja-
landi þegar hann hvarf í Búda-
pest 1945. Aðstoðaði hann gyð-
inga í Ungverjalandi til að kom-
ast hjá ofsóknum nasista.
Bréfið frá Wallenberg hljóðar
svo: „Hjálp, ég er í haldi á eyju á
60. gráðu austlægrar breiddar og
80. gráðu norðlægrar lengdar. Ef
einhver finnur þetta bréf, þá
legðu mér lið.“ Var bréfið skrif-
að með blýanti á hvítan pappír.
Rússar halda því fram að
Wallenberg hafi látist úr hjarta-
slagi í fangelsi í Moskvu 1947, en
lítill trúnaður hefur verið lagður
á þá fullyrðingu, og burtflúnir
Sovétmenn segjast hafa séð
Wallenberg
Wallenberg á lífi löngu seinna.
Sænsk yfirvöld hvöttu sovéska
ráðamenn fyrir skömmu til að
skýra frá sannleikanum um
Wallenberg og afdrif hans.
Miami, 26. júnt'. AP.
ROBERTO D’Aubuisson, leiðtogi
hægrimanna í El Salvador, vísaði á
bug ásökunum um að hann væri við-
riðinn áform um að ráða Thomas
Pickering sendiherra af dögum.
D’Aubuisson kom til Flórída í
dag þar sem hann hyggst hvíla sig
meðal venzlafólks þar til hann fer
á fund utanríkisnefndar öldunga-
deildar Bandaríkjaþings á mið-
vikudag.
Kvað D’Aubuisson ásakanirnar
óviðurkvæmilegar og siðlausar.
Jesse Helms öldungadeildarmaður
gagnrýndi einnig fréttaflutning
þar sem D’Aubuisson var bendlað-
ur við áætlanir um að ráða Picker-
ing af dögum. Kvaðst Helms
meira að segja hafa orðið við
beiðni stjórnar Ronald Reagans og
beðið D’Aubuisson að tryggja ör-
yggi Pickerings f E1 Salvador.
D’Aubuisson hefur einnig legið
undir grun um að hafa verið við-
riðinn morðið á Oscar Romero
erkibiskupi í San Salvador fyrir
fjórum árum, auk þess sem hann
er sagður stjórna dauðasveitum
hægrimanna í E1 Salvador.
George Schultz, utanríkisráð-
herra Bandaríkjanna, hefur hins
vegar látið þau ummæli falla að
engar áreiðanlegar vfsbendingar
væru fyrir hendi um aðild leiðtoga
hægrimanna að hryðjuverkum.
Jackson og
Castro hittast
Kúbu, 26. júnf. AP.
JESSE JACKSON, forsetaframbjóð-
andi demókrata, kom í dag til Kúbu
til að eiga viðræður við Fidel Castro,
forseta. Castro sagði að heimsókn
Jacksons myndi hugsanlega verða til
að bæta samskipti Kúbu og Banda-
ríkjanna.
Hundruð Kúbana fylgdust með,
þegar Jackson og Castro tókust í
hendur á Havana-flugvelli. Jack-
son sagði að kominn væri tími til
að þjóðirnar tvær sættust og sam-
an gætu þær staðið að friði f þess-
ari heimsálfu.
Castro sagðist hafa boðið Jack-
son til Kúbu vegna vináttu við
Bandaríkin, og hefði hann heiðrað
kúbönsku þjóðina með komu sinni.
Jackson hefur verið á ferð um
Mið-Ameríku, og mun dvelja á
Kúbu i tvo daga.