Morgunblaðið - 27.06.1984, Qupperneq 21

Morgunblaðið - 27.06.1984, Qupperneq 21
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 27. JÚNt 1984 21 sveitin hefði átt mjög gott sam- starf við íslenskar björgunar- og leitarsveitir um allt land þann tíma sem hún hefði dvalist hér- lendis og margoft veitt aðstoð þegar lífsháski hefði steðjað að. Sagði hann að hinn góði árangur af starfi sveitarinnar væri fyrst og fremst að þakka ósérhlífni all- ra er hlut ættu að máli. Liðsmenn sveitarinnar hefðu hvað eftir ann- að sýnt í verki ótrúlegt þol og hæfni, sem endurspeglaði hina ströngu þjálfun þeirra. Að ræðunni lokinni afhenti Geir Hallgrímsson Joseph M. Nall, yf- tnynd af einni Sirkorsky-þyrhi sveitar- björgunarstarfinu. Geir Hallgrímsson, utanríkisráðherra, flytur ræðu við athöfnina í gær. Honum á hægri hönd situr yfirmaður varnarliðsins, Ronald Narmi, og honum á vinstri hönd er Joseph M. Nall, yflrmaður þyrlusveitarinnar, Detachment 14. í baksýn er ein af þyrhim sveitarinnar. MorgunbiaSií: kee. irmanni þyrlusveitarinnar, inn- rammað heiðursskjal. Þvi næst flutti Joseph M. Nall stutt þakk- arávarp þar sem hann þakkaði þann mikla heiður sem sveitinni væri sýndur með þssari viður- kenningu. Sagði hann að til þess að hægt væri að inna af hendi björgunar- og leitarstörf yrði samstarf á milli íslensku björgun- arsveitanna og varnarliðsins að vera gott og að á undanförnum árum hefði skapast góð samvinna í milli þessara aðila. Sagði hann að samstarfið hefði verið mjög ánægjulegt og mjög sérstök tengsl hefðu komist á milli þeirra. Hann sagði að lokum að til þess að ná góðum árangri væri allt undir því komið að vera vel á verði og í góðri þjálfun. Að lokinni athöfninni var við- stöddum boðið til kaffidrykkju i félagsheimilinu Stapa í Keflavík, þar sem Geir Hallgrímsson af- henti liðsmönnum sveitarinnar minningargjöf í þakklætisskyni fyrir vel unnin störf á liðnum ár- um og viðurkenningarskjal fyrir björgun 200 mannslífa og hug- rekki á hættustundu. Þá færði Joseph M. Nall Geir Hallgríms- syni mynd að gjöf af einni þyrlu sveitarinnar sem þakklætisvott frá þyrlusveitinni. Það var þröng á þingi við num borðin á útiskákmótinu, því margir stöldruðu við í góða veðrinu til að fylgjast með skákunum. lands (Björn V. Þórðarson), og Landsbankinn B (Arnaldur Loftsson) 2 v. 34. Trygging hf., (Þröstur Árnason) 1 lÆ v. 35. Almennar tryggingar (Þrá- inn Vigfússon ) 1 v. 36. Línuhönnun (Ólöf Þráins- dóttir) 0 v. Skákstjórar voru Árni Jakobs- son, Guðbjartur Guðmundsson, ólafur Ásgrímsson, Þorsteinn Þorsteinsson og Þráinn Guð- mundsson. Nefnd Islands og Efnahagsbandalagsins: „Áherzla lögð á að tollfrjáls innflutningur á saltfiski verði áfram heimilaður“ Gianluigi Giola, aðstoðarframkvæmdastjóri í utanríkisdeild Efnahagsbandalags- ins (t.v.) og Þórhallur Ásgeirsson, ráðuneytisstjóri Viðskiptaráðuneytisins. (Ljósm. Mbl. Emilía). — sagði Þórhallur Ásgeirs- son ráðuneytisstjóri „VIÐ lýstum meðal annars yflr áhyggjum okkar af hækkun tolla á vörutegundum, sem við flytjum út eins og saltsíld og söltuðum ufsaflökum, enda þótt það mál heyri ekki undir fríverslunarsamning fslands og Efna- hagsbandalags Evrópu,“ sagði Þór- hallur Ásgeirsson ráðuneytisstjóri í viðskiptaráðuneytinu í samtali við Mbl. í gær, en hann stjórnaði viðræð- um embættismannanefndar íslands og Efnahagsbandalags Evrópu, sem fóru fram í Reykjavík í gær. Þórhallur sagði ennfremur að gerð hefði verið grein fyrir efna- hagsástandinu á íslandi og löndum Efnahagsbandalagsins og viðskipt- um þeirra á milli á fundinum, og hefði komið fram að fslendingar hefðu ekkert við viðskiptasamning íslands og Efnahagsbandalagsins að athuga. „En við vildum vekja at- hygli á ýmsum hagsmunamálum okkar svo að þau féllu ekki í gleymsku, enda eru mannaskipti tið innan nefndarinnar," sagði Þórhall- ur. Hann sagði að fulltrúar fslands i nefndinni hefðu lagt áherslu á sér- stöðu samnings íslands og Efna- hagsbandalagsins þar sem hann lúti meðal annars að fiskveiðum og fisk- afurðum, svo að unnt væri að ná jöfnuði i viðskiptum milli fslands og landa Efnahagsbandalagsins, en þeim væri ekki nema að litlu til að dreifa í samningum bandalagsins við áðrar þjóðir innan þess. „Við höfum orðið varir við að sumar þjóðir vilja koma á verndartollum fiskinnflutnings innan bandalags- ins sem getur komið okkur illa,“ sagði Þórhallur. Þá kvað hann aðild Portúgals og Spánar að Efnahags- bandalaginu hafa verið rædda á fundinum og hefðu íslensku emb- ættismennirnir skýrt frá því að ís- lendingar hefðu þar mikilla hags- muna að gæta því að saltfiskinn- flutningur til þessara landa hefði numið 8,5% af heildarútflutningi okkar í fyrra. Því lögðum við áherslu á að tollfrjáls innflutningur á saltfiski yrði heimilaður áfram innan bandalagsins eftir að Portúg- alir gerast aðilar að því,“ sagði Þórhallur. Aðspurður kvað Þórhallur engar ákvarðanir hafa verið teknar á fundinum í gær, enda um venju- legan nefndarfund að ræða, sem haldinn sé tvisvar á ári.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.