Morgunblaðið - 27.06.1984, Síða 22
22
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 27. JÚNÍ 1984
Visa-ísland:
Takmörkuð sjálfs-
ábyrgð korthafa
í frétUtilkynningu, sem Morgun-
blaðinu hefur borist frá greiðslu-
kortafyrirtækinu Visa-ísland segir,
að stjórn fyrirtækisins hafi ákveðið
að taka upp takmarkaða sjálfs-
ábyrgð korthafa. Mun áhætta kort-
hafa minnka, ef kort þeirra glatast
og eru misnotuð áður en hvarf þeirra
uppgötvast og næst að tilkynna kort-
missinn. Hinar nýju reglur tóku gildi
hinn 21. sl. og verða þcr sérprentað-
ar og sendar öllum korthöfum.
Um þessar mundir er rétt um ár
liðið frá því að starfsemi Visa-
íslands hófst. Þá voru korthafar
um 2.300 talsins, en eru nú um
16.500. Söluaðilar, er veita Visa-
þjónustu, eru nú tæplega 1.100.
Frá ársfundi Sambands norrænna málmiðnaðarmanna á Hótel Esju.
Morgunbladið/Júlíus.
Fallbyssan stóð fyrir sínu, þótt næstum 100 ára sé. Myndin er tekin þegar
skotið reið af.
Fallbyssuskot
á Seyðisfírði
SeyAisrirði, 23. júni.
Á þjóðhátíðardaginn 17. júní
var skotið úr gamalli fallbyssu,
sem er frá árinu 1885 og hefur
verið komið fyrir við bæjarskrif-
stofurnar. Hleðslumaður var Ein-
ar Sigurgeirsson, skotmaður Jó-
hann B. Sveinbjörnsson og stjórn-
andi Þorvaldur Jóhannsson, bæj-
arstjóri.
Kjartan.
Norrænir málmiðnaðar-
menn þinga á íslandi
SAMBAND norrænna málmiðnað-
armanna heldur ársfund sinn hér-
lendis um þessar mundir. Aðilar að
sambandinu eru 5 málmiðnaðar-
mannasambönd á Norðurlöndum og
er Málm- og skipasmiðasamband ís-
lands aðili að norræna sambandinu.
Þetta er fyrsta sinni, sem ársfundur
norræna sambandsins er haldinn
hér, en hann er annars haldinn til
skiptis I aðildarlöndum sambands-
ins.
Samkvæmt upplýsingum Guð-
jóns Jónssonar, formanns Málm-
og skipasmiðasambands íslands,
sitja fundinn rúmlega 30 fulltrúar
og er fundurinn haldinn að Hótel
Esju. Hann hófst í gærmorgun.
Samböndin á hinum Norðurlönd-
unum eru mjög mikil og voldug
samtök og er t.d. sænska sam-
bandið stærst verkalýðssambanda
þar i landi. Á fundinum kynna að-
ildarsambönd Sambands nor-
rænna málmiðnaðarmanna verk-
efni sín fyrir hinum, fulltrúarnir
bera saman bækur sínar og fjallað
er um starf og verkefni norræna
sambandsins. Þá er rekinn á veg-
um norræna sambandsins sam-
hjálparsjóður, sem aðildarfélögin
eiga aðgang að, bjáti eitthvað á í
verkefnum landssambandanna.
Tveir íslenskir fulltrúar sitja
fundinn, en frá hinum löndunum
eru fulltrúar um 7 frá hverju
landi.
Ársfundur SÍH
á Akureyri
FJÓRÐI ársfundur Sambands ís- mismunandi sjónarmiði. Stærsta
lenskra hitaveitna verður haldinn á
Akureyri dagana 28. og 29. júní.
Meginviðfangsefni fundarins verð-
ur, auk venjulegra aðalfundarstarfa
og umræðna um málefni hitaveitna,
að ræða um varmadælur, en þær eru
um þessar mundir að festa rætur I
íslenskum orkubúskap.
Á fundinum munu þrír fyrirles-
arar flytja erindi um varmadælur
og fjalla um viðfangsefnið frá
varmadæla landsins er að hefja
rekstur sinn á Akureyri og verður
hún formlega tekin í notkun i
tengslum við fundinn. Ennfremur
mun iðnaðarráðuneytið leggja
fram skýrslu með nýju mati á
orkuverði og samanburði hinna
ýmsu hitaveitna, að þvf er segir í
fréttatilkynningu Sambands fs-
lenskra hitaveitna.
Skákkeppnin Sovétrfldn-heimsliöið:
Heimsliðið stendur höll-
um fæti í biðskákum
Skák
Margeir Pétursson
AÐ SEX biðskákum ótefldum I
fyrstu og annarri umferð keppni
landsliðs Sovétríkjanna við úrval
skákmanna frá öllum öðrum lönd-
um heims, hefur heimsliðið hlotið
7V4 vinning en Sovétmenn 6'h. Allir
bestu skákmenn heims, að Bobby
Fischer undanskildum, eru nú
samankomnir í London til að taka
þátt í keppninni, þ.á m. Sovét-
mennirnir Karpov og Kasparov
sem í haust munu tefla einvígi um
beimsmeistaratitilinn. Að sögn sér-
fræðinga í London eru þó miklar
líkur á að forysta heimsliðsins
standi ekki lengi, því að í tveimur
biðskákum úr annarri umferð eru
Sovétmenn taldir eiga miklar vinn-
ingslíkur, Tukmakov stendur bet-
ur gegn Ljubojevic og Sokolov á
betra tafl gegn Torre.
Alls verða tefldar 40 skákir f
keppninni, fyrstaborðsmennirn-
ir Karpov og Andersson tefla
fjórar skákir, sömuleiðis Kasp-
arov og Timman á öðru borði og
þannig koll af kolli. Teflt er á tfu
borðum þannig að um tíu fjög-
urra skáka einvigi er að ræða, en
skipta má inn tveimur vara-
mönnum.
1970 sigruðu Sovét-
menn naumlega
Keppnin Sovétríkin-heimur-
inn fer nú fram í annað sinn. í
fyrra skiptið sem liðin mættust
sigruðu Sovétmenn með minnsta
hugsanlegum mun, 20V4— 19Vfe.
Nú fjórtán árum síðar hafa orðið
geysilegar breytingar á liðunum,
m.a. af pólitískum ástæðum. Þá
tefldi Korchnoi á þriðja borði
fyrir Rússa, og er enn á þriðja
borði, en hefur skipt um lið. 1970
urðu miklar deilur milli þeirra
Larsens og Fischers um það hvor
þeirra ætti að tefla á fyrsta
borði. öllum á óvart gaf Fischer
eftir og sigraði Petrosjan 3—1 á
öðru borði. Nú er Larsen vara-
maður og að sjálfsögðu þýddi
ekkert að bjóða Fischer að vera
með. Þá leiddi Spassky, þáver-
andi heimsmeistari, sovézku
sveitina, en nú kom hann til
greina í hvorugt liðið vegna þess
hversu stutt er síðan hann varð
opinber útlagi frá Sovétríkjun-
um. Friðrik ólafsson var vara-
maður í heimsliðinu og tefldi
eina skák við Smyslov, en nú
kom enginn íslendingur til
greina í heimsliðið, hvað sem
síðar verður.
Liðsuppstillingin hefur
komið á óvart
Hefðbundin sjónarmið virðast
ráða ríkjum við uppstillingu sov-
ézku sveitarinnar, sem er þannig
skipuð: 1. Karpov, 2. Kasparov, 3.
Polugajevsky, 4. Smyslov, 5.
Vaganjan, 6. Beljavsky, 7. Tal, 8.
Razuvajev, 9. Jusupov, 10. Sok-
olov, varamenn: Tukamkov og
Romanishin.
Flestum þótti sjálfgefið fyrir-
fram að Korchnoi yrði á fyrsta
borði heimsliðsins, en svo virðist
sem liðinu hafi verið stillt upp
með það fyrir augum að stíll
þeirra Andersons og Timmans
hentaði betur gegn Karpov og
Kasparov. A.m.k. er vægast sagt
hæpið að fullyrða að Anderson
sé sterkasti skákmaður heims
utan Sovétríkjanna. Þá eiga
Englendingar fleiri menn í lið-
inu en búast mátti við: 1. And-
erson, 2. Timman, 3. Korchnoi, 4.
Ljubojevic, 5. Ribli, 6. Seirawan,
7. Nunn, 8 Húbner, 9. Miles, 10.
Torre, varamenn: Chandler og
Larsen.
Úrslit 1. umferðar
1. Karpov — Anderson biðskák
2. Kasparov 'h Timman 'h
3. Polugajevsky 'h Korchnoi 'h
4. Smyslov — Ljubojevic bið-
skák
5. Vaganjan 'h Ribli 'h
6. Beljavsky — Seirawan
biðskák
7. Tal Vi Nunn 'h
8. Razuvajev — Hubner bið-
skák
9. Jusupov 'h Miles 'h
10. Sokolov 0 Torre 1
Biðskákirnar verða tefldar
áfram í fyrramálið. Líklegt þyk-
ir að Ljubojevic vinni Smyslov
og Beljavsky vinni Seirawan, en
skák Razuvajevs og Húbners var
að flestra mati jafnteflisleg. Úr-
slit umferðarinnar velta því
væntanlega á skákinni á fyrsta
borði, en þar stendur Karpov
heldur betur. Bent Larsen hafði
ekki mikla trú á varnarmögu-
leikum Andersons í fyrrakvöld:
„Karpov mun sigra auðveldlega.
Anderson hefur ekkert mótspil,"
sagði Daninn í samtali við AP-
fréttastofuna.
Nýbakaði Sovétmeistarinn,
hinn 21 árs gamli Andrei Sok-
olov, átti slæman dag gegn Torre
og féll á tíma i erfiðu endatafli.
2. umferð
1. Karpov 'h Anderson 'h
2. Kasparov ‘h Timman ‘h
3. Polugajevsky 0 Korchnoi 1
4. Tukmakov — Ljubojevic
biðskák
5. Vaganjan ‘h Ribli 'h
6. Beljavsky 1 Seirawan 0
7. Romanishin 'h Nunn 'h
8. Rasuvajev 'h Húbner 'h
9. Jusupov 'h Miles 'h
10. Sokolov — Torre biðskák
Ef biðskákirnar sex fara eins
og sérfræðingar eiga von á verð-
ur staðan væntanlega I0'h—9'h
Sovétmönnum í vil þegar keppn-
in er hálfnuð. í gærkvöldi átti að
tefla biðskákir, en þriðja um-
ferðin verður tefld í dag, mið-
vikudag.
Æsispennandi skák
úr fyrstu umferðinni
Hvítt: Lev Polugajevsky
Svart: Viktor Korchnoi
Drottningarindversk vörn
1. d4 — Rf6, 2. c4 — e6, 3. Rf3 —
b6, 4. Rc3 — Bb7, 5. a3 — d5, 6.
cxd5 — Rxd5, 7. e3 — g6
Korchnoi sigraði Kasparov
með þessu afbrigði í fyrstu ein-
vígisskák þeirra í London í vet-
ur. Polugajevsky svarar með
nýrri og mjög hvassri leið.
8. h4 — Bg7, 9. h5 — c5I?
Hér kemur ekki síður til
greina að hróka stutt.
10. Bb5+ — Bc6, 11. Bd3 — Rd7,
12. e4 — Rxc3, 13. bxc3 — Dc7,
14. Bg5!? — h6, 15. Bh4 — cxd4,
16. cxd4 - g5, 17. Bg3 — Db7,18.
De2 — Rc5!
Eina tækifæri svarts til að ná
mótspili. Hvítur verður nú að
fórna skiptamun því eftir 19.
Re5 — Rxd3+, 20. Dxd3 — Bxe4,
21. Db5+ — Ke7 rennur sókn
hans út í sandinn.
19. dxc5 — Bc3+!, 20. Rd2 —
Bxal, 21. 0-0 — Bd4, 22. Ba6 —
Dd7, 23. cxb6 — axb6, 24. Rf3 —
Hxa6!
Hvítur hótaði 25. Hdl mjög
óþyrmilega. Nú er 25. Dxa6 svar-
að með 25. — Bb6!, 26. Da8+ —
Ke7 og hvfta drottningin á eng-
an reit.
25. Rxd4 - Dxd4
Ekki 25. - Hxa3?, 26. Db2 og
25. - Ha8, 26. Db2! - 0-0, 27.
Rxc6 — Dxc6, 28. Df6 gefur hvít-
um mjðg góð sóknarfæri.
26. Dxd4 — 0-0, 27. Hel — Ha8.
Jafntefli þó svartur sé peði yfir
eftir 28. De2 — Hxa3. Mislitu
biskuparnir ættu þó að tryggja
hvítum jafntefli eftir 29. Dc2!, en
það kemur þó nokkuð á óvart að
baráttumaðurinn Korchnoi skuli
slíðra vopnin að svo stöddu.