Morgunblaðið - 27.06.1984, Page 29
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAOUR 27. JÚNÍ 1984
29
15. Hxa6 — c4, 16. Hc61 — Rc5,
17. De2 — Rfd7, 18. Rxc4 — Rb8
Svörtum hefur nú tekist að
„vinna" skiptamun, því hrókur-
inn á c6 fellur fyrir riddara. En
til þess að fá þetta fram hefur
svartur orðið að fórna tveimur
peðum og nú fellur eitt til við-
bótar:
19. Hxc5! — dxc5, 20. Rxe5 — Bf6,
21. Rd3 — Bd4+, 22. Khl - Hb7,
23. Rdl! — Rd7, 24. c3 — Bf6, 25.
Re3
Skiptamunurinn hefur greini-
lega verið allt of dýru verði
keyptur fyrir svartan því það er
eingöngu tímaspursmál hvenær
hann verður undir peðaskriðu á
miðborðinu.
25. — I)a5, 26. Rg4 — He8, 27.
Df3 — Bg5?
Nú tapar svartur strax. Meiri
mótstöðu veitti 27. — Da6.
28. Bxg5 — hxg5, 29. e5! — c4, 30.
Rb4 - Hxb4
Ef 30. - Rxe5 þá 31. Rxe5 -
Hxe5, 32. Rc6 - Dc7, 33. d6!
o.s.frv.
31.cxb4 — Dxb4, 32. e6 — Rc5, 33.
f6 — Rxe6, 34. dxe6 — Hxe6, 35.
fxg7 — De7, 36. Dc3 — f5, 37. h3
— Kh7
Ef 37. - fxe4 þá 38. Hf8+.
38. Dc2 — He4, 39. Rf6+! — Dxf6,
40. Dxe4 og svartur gafst upp.
Fri 17. júní-fagnaöi i Ibiza.
Lýðveldisfagnaður á Ibiza
— eftir Jón Karl
Helgason
Ibiza, 20. júní.
Samhliða útrás kúnna á vorin,
sigla hópar íslenskra nýstúdenta
utan, að loknu prófafrekum, í því
skyni að láta líða úr sér streitu
liðinna átaka. Þetta misserið lá
höfuðstraumurinn til spænsku
eyjunnar Ibiza, en í byrjun mán-
aðarins dvöldu hér útskrifuð
menningarverðmæti sex æðri
menntastofnana og nutu lífsins af
kappi.
Fyrstu dagana kom kunnugleg-
ur rigningarsuddi í veg fyrir
heimþrá meðal Frónbúanna en
síðastliðnar tvær vikur hafa hin
æskuteitu ungmenni búið við ský-
lausan fagnað eins og hann þekk-
ist bjartastur í ferðaskrifstofu-
auglýsingum. Eftir nokkra byrj-
unarörðugleika ganga samskiptin
við eyjaskeggja orðið ágætlega;
engilsaxnesk einkvæðisorð með
spænskum framburði fleyta
manni í gegnum heilu máltíðirnar
þó vissrar taugaspennu kunni að
gæta undir lok þeirra. Það er
nefnilega ætíð fræðilegur mögu-
leiki á því að kokkurinn heiti Bill,
svo þegar beðið er um reikninginn
af ýtrustu kurteisi og sagt: „bill
please”, komi noöufellandi vöðva-
fjall askvaðandi frá eldhúsinu,
með sveðju í annari hendinni og
grjúpán í hinni, albúinn að svara
hugsanlegum kvörtunum varðandi
matinn. Einstaka íslendingi hefur
þó á undraverðan hátt tekist að
víkja sér undan öllum tungumála-
erfiðleikum með þvi að samræma
mál innfæddra okkar eldfornu
norrænu tungu. Þannig hefur ís-
HELGINA 7. og 8. júlí munu niðjar
síra Páls Ólafssonar og Arndísar
Pétursdóttur Eggers halda ættarmót
ad Reykjum í Hrútafirði.
Síra Páll var fæddur 20. júlí
1850, hann var sonur ólafs Páls-
sonar dómkirkjuprests í Reykja-
vík síðar að Melstað i Miðfirði og
Guðrúnar Ólafsdóttur Stephensen
úr Viðey.
Frú Arndis var fædd 7. mars
1858, hún var dóttir Péturs Eggers
í Akureyjum og Jakobínu Páls-
dóttur Melsted amtmanns.
Síra Páll og frú Arndís bjuggu
að Prestsbakka í Hrútafirði frá
1880—1900 og þar fæddust öll
lenska skammaryrðið „grasasni"
skyndilega fengið þá auðmjúku
merkingu „þakka þér fyrir“,
(gracias) á spænsku.
Hinn 17. júní var 40 ára lýðveld-
is á íslandi minnst hér með veg-
legri hátíðardagskrá. Nýstúdenta-
hóparnir tóku sig saman um
skrúðgöngu og teiti; í kjölfar fána-
bera héldu hvítir kollar í átt til
strandar þar sem borðhald fór
börn þeirra, 13 að tölu. Tvö þeirra
dóu í bernsku, tvær dætur þeirra
létust á miðjum aldri, en hin níu
náðu öll mjög háum aldri.
Aldamótaárið var síra Páli veitt
Vatnsfjarðarprestakall í Norður-
ísafjarðarsýslu og var hann þar
þjónandi prestur til dauðadags en
hann lést 1928.
Síra Páll var prófastur bæði í
Strandaprófastsdæmi og Norður-
í safj arðarsýslu-próf astsdæmi.
Einnig var hann þingmaður
Strandamanna frá 1886—1891.
Prófastshjónin sátu þetta forna
höfuðból Vatnsfjörð með mikilli
fram á veitingastað einum, kyrj-
aðir voru ættjarðarsöngvar, hátíð-
arbragir og eitt jólalag uns radd-
bönd brustu og dansmennt tók við.
Héðan í frá fer hinum björtu
áhyggjulausu dögum ört fækk-
andi: Hóparnir hverfa einn af öðr-
um heim á leið, þar sem framtíðin
bíður með sín óleystu verkefni,
fallna víxla og blotnandi bleyjur.
rausn og myndarskap og voru oft
með um 30 manns í heimili.
Auk barna sinna ólu þau upp
fjögur sonarbðrn sín og mörg fóst-
urbörn, sem öll voru þeim kær
eins og eigin börn. Þau voru mjög
hjúasæl.
Kristrún Magnúsdóttir var hjá
þeim í hálfa öld, fóstraði hún öll
börn þeirra og fósturbörn og
nefndu þau hana ætíð fóstru. Við
andlát síra Páls fluttu frú Arndís
og Kristrún til Páls sonar þeirra
hjóna að Þúfum í ísafjarðardjúpi.
Af þeim hjónum er kominn mik-
ill ættbogi, sem mun fjölmenna að
Reykjum í Hrútafirði 7. og 8. júlí.
KrétUtilkynning
Ættarmót á Reykjum
um og afar nákvæmum upplýs-
ingum.
Þær upplýsingar, sem eru
fyrirliggjandi í Sovétríkjunum
um efnahagsmál, mannfjölda og
þjóðfélagsmál, eru hins vegar af-
ar ófullkomnar en gætu þrátt
fyrir það komið stjórnvöldum í
leiðinlega klípu ef þær væru
birtar. Þess vegna eru þær
leyndarmál eins og t.d. tölur yfir
barnadauða, sem hafa ekki verið
birtar síðan 1975, og kornfram-
leiðslan, sem hefur verið ríkis-
leyndarmál frá árinu 1981.
Tölvan — banabiti
kommúnismans?
Af þessu er ljóst, að tölvubylt-
ingin mun valda Sovétmönnum
gífurlegum erfiðleikum. Venju-
legir sovétborgarar munu ekki
fá að kynnast fullkomnum tölvu-
kerfum eða hafa aðgang að al-
þjóðlegum fjarskiptanetum og
þess vegna munu Sovétmenn
ekki geta fylgst með hinni hröðu
þróun tölvutækninnar eða nýtt
sér þær upplýsinganámur, sem
nú eru að ljúkast upp fyrir al
menningi á Vesturlöndum.
Tölvutæknin, sem nú er farin
að ná til minnstu einingar sam-
félagsins, einstaklingsins, mun
verða þeim þjóðfélögum til veru-
legs framdráttar, sem ekki
reyna að hindra upplýsingaflóð-
ið. Þess vegna er það ólíklegt, að
Sovétmenn, sem búa við hrörn-
andi efnahagslíf og ætla að láta
tölvubyltinguna fram hjá sér
fara að mestu, geti til lengdar
haldið núverandi sessi sínum
meðal þjóðanna. Þetta mál hlýt-
ur að vera gömlu mönnunum í
Kreml nokkurt áhyggjuefni.
Loren (Iraham er próíessor rið
Tækniháskólann í Massachusetts í
Handaríkjunum og hefur um langan
aldur fylgst með vísinda- og tækni-
málum i Sorétríkjunum.
Þórir S. Gröndal skrifar frá Flórída:
íslenzkt fjallaloft á
Bandaríkjamarkaði ?
Það er ekki óeðlilegt, að ís-
lendingar leggi hausa sína í
bleyti og reyni að láta sér detta í
hug, hvað hægt sé að framleiða
og flytja út á erlenda markaði,
til að vinna upp minnkandi fisk-
afla. Blöðin grípa fegins hendi
fréttir af svona bollaleggingum,
margar næsta furðulegar, og svo
birtast fyrirsagnir með spurn-
ingarmerki eins og hér að ofan.
Ég vil ekki verða eftirbátur ann-
arra og hér er því mitt framlag:
Blaðið hefir fregnað, að áform
séu uppi um stórfelldan útflutn-
ing á íslenzku fjallalofti. Stofnað
hefir verið fyrirtæki, íslenzka
Loftfélagið hf., til þess að annast
pökkun og útflutning á íslenzku
lofti, sem við hér heima teljum
svo sjálfsagðan hlut, en orðið
getur eftirsótt vara í útlöndum
og uppspretta dýrmæts gjald-
eyris fyrir þjóðina.
Loftfélagið hefir nú þegar var-
ið allmiklu fé til markaðsrann-
sókna í Bandaríkjunum og i
Vestur-Evrópu. Á þessum há-
þróuðu iðnaðarsvæðum er mikil
loftmengun og þar býr fólk, sem
hefir efni á því að kaupa sér inn-
flutt fjallaloft til neyzlu. Mark-
aðskönnunin hefir m.a. leitt i
ljós, að hægt ætti að vera að
selja á Bandaríkjamarkað einan
um 16 milljarða rúmmetra af
lofti á ári fyrstu þrjú árin, en
svo má búast við auknu magni
eftir það.
Verið er að hanna verksmiðju
til pökkunar loftsins, en ekki
hefir verið endanlega ákveðið,
hvar hún verður reist. Ekki
færri en 18 staðir koma til
greina og er málið nú í höndum
landsfeðranna, og verður
mannvirkið byggt þar, sem bezt
verður boðið. Gnótt er af hráefn-
inu, en samt verður að vanda
mjög um með tökuna, því koma
verður í veg fyrir, að hérlend
mengun komist í framleiðsluna.
Til dæmis má nefna slæma lykt,
sem ekki á erindi á erlendan
markað, eins og brennisteinsfýlu
frá hverasvæðum, þef frá fisk-
vinnslustöðvum, ryk o.s.frv.
Verða ráðnir fimm gæðamats-
menn af þefvísara tagi, og verða
reykingamenn ekki teknir og
neftóbaksmenn koma náttúru-
lega heldur alls ekki til greina.
Frá verksmiðjunni verða lagð-
ar þar til gerðar plastleiðslur
upp til fjalla, og verður loftinu
dælt um þær í geymslutanka eða
blöðrur. Mestu af því verður
þjappað saman í þar til gerðum
loftþjöppum til að minnka rúm-
málið. Mismunandi tegundum
fjallalofts verður pakkað til út-
flutnings og skulu hér nefndar
nokkrar: Fjallaloft með kjarr-
ilmi verður ábyggilega vinsælt.
Einnig er reiknað með að loft
með sveitailmi muni hazla sér
völl, en það verður tekið í nánd
við bóndabýli og reynt að finna
staði þar sem húsdýraáburður er
enn borinn á tún. Svalt fjallaloft
verður tekið á vetrum og geymt í
einangruðum tönkum og aðal-
lega sent á markað, þegar út-
lenzkir eru að stikna f hitabylgj-
um.
Stærstum hluta framleiðsl-
unnar verður pakkað í svokallað-
an heimilispakka. í honum verð-
ur samþjappað fjallaloft, sem
ætlazt er til að notað verði til að
bæta loftið f meðalstóru her-
bergi í tvær klukkustundir. Aðr-
ar enn stærri pakkningar, hálf-
gerðar tankblöðrur, verða seldar
fyrir stofnanir og veitingahús.
Verður þannig gengið frá, að
fjallaloftinu verði hægt að
hleypa beint inn í loftræstinga-
kerfi bygginganna.
Boðið verður upp á neytenda-
pakkningu af mjög nýstárlegri
gerð. Hún verður ekki fyrir-
ferðameiri en vindlingapakki og
getur passað í vasa eða tösku.
Eins konar rör eða snúður fylgir
pakkanum og stingur neytand-
inn honum f þar til gerða skoru,
sem rýfur innsiglið. Aðeins þarf
að bera snúðinn upp að nösinni
og þá er hægt að anda að sér
tæru og hressandi íslenzku
fjallalofti f miðri mengaðri
stórborginni.
Blaðamaður náði tali af Lofti
Loftssyni, framkvæmdastjóra
Loftfélagsins, sem í gær var
staddur á Hótel Loftleiðum. Að-
spurður kvaðst hann vera mjög
bjartsýnn á það, að innan árs
yrði hafinn útflutningur á ís-
lenzku fjallalofti. Sagði hann, að
margir erlendir aðilar hefðu
sýnt málinu mikinn áhuga, og
væru nokkrir beinlínis farnir að
slást um að fá að dreifa loftinu á
erlendum mörkuðum. Málið
hefði einnig komist f erlenda
fjölmiðla og hefði verið farið
mjög lofsamlegum orðum um
þetta nýstárlega íslenzka fram-
tak.
Þegar Loftur var spurður um,
hvaða verð myndi fást fyrir loft-
ið, kvað hann það vera óljost á
þessu stigi og vildi hann ekki
grípa tölur úr lausu lofti. Aðal-
atriðið væri að hrinda verkinu f
framkvæmd, því hér væri um að
ræða atvinnurekstur, sem marg-
ir myndu njóta góðs af og verða
myndi þjóðinni mikil búbót á
þessum erfiðu tímum. Einnig
mætti ekki gleyma, að þessi út-
flutningur myndi auka hróður
landsins úti í hinum stóra heimi.
Sagði hann að lokum, að Is-
lendingar gætu hér miðlað millj-
ónum útlendinga af þeim gæð-
um, sem þeir nytu í sínu heima-
landi. „Það er vel mögulegt, að
útlendingar geti f náinni framtíð
sezt að snæðingi í íslenzkan stól,
í íslenzkum ullarflikum, snætt
íslenzkt lambakjöt, drukkið fs-
lenzkt vatn með og andað að sér
íslenzku fjallalofti með kjarr-
ilmi. Þetta geta þeir gert inni f
sinni eigin stofu f sínu mengaða
útlandi," sagði Loftur Loftsson.