Morgunblaðið - 27.06.1984, Síða 31
mt íHCn .vs HUOAaujiivaiM .oioajuhuohom
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 27. JÚNÍ 1984
smíði. Þá sótti ég til hans ýmsar
faglegar upplýsingar, einkum þeg-
ar ég var að smíða eitthvað í kam-
esið. Upp frá því vorum við allatíð
góðir kunningjar, en samvinna og
samstarf okkar hófst ekki fyrr en
við stofnun Meistarafélags iðnað-
armanna í Hafnarfirði fyrir 16 ár-
um. Frá þeim tíma hefur samstarf
okkar verið náið og með afbrigð-
um gott.
Af þessum 16 árum þá hefur
Stefán Rafn verið formaður í 13
ár. Hann leiddi félagið fyrstu
skrefin, en þar var um vandasamt
verk að ræða. Stofnun Meistarafé-
lags iðnaðarmanna var brautryðj-
andastarf I félagsmálum iðnað-
armanna, unnið við óvenjulegar
aðstæður, einkum vegna marg-
háttaðra samskifta við utanað-
komandi verktaka, bæði innlendra
og erlendra, og óvenju mikillar
spennu í byggingaframkvæmdum
á fyrstu árum félagsins.
Forystuhlutverkið innti Stefán
vel af hendi. Félagið uppfyllti þær
vonir, sem við það voru bundnar
og hefur rekið sína þjónustustarf-
semi allar götur sfðan það var
stofnað, þrátt fyrir það, að í Hafn-
arfirði hafa samtök atvinnurek-
enda átt erfitt uppdráttar vegna
nálægðarinnar við stórabróðir I
Reykjavík. Meistarafélag iðnað-
armanna, sem við Stefán Rafn
ásamt mörgum góðum mönnum
höfum starfað við í 16 ár, eru einu
samtök atvinnurekenda í Hafnar-
firði, sem lifsmark er með og reka
einhverja starfsemi í bænum.
Fyrir þetta nána og mikla sam-
starf og okkar góðu kynni færi ég
Stefáni innilegustu þakkir og óska
honum allra heilla á þessum
merkis degi. Einnig færi ég hans
ágætu eiginkonu Dúnu, eins og
hún er kölluð af vinum og kunn-
ingjum og fjölskyldu þeirra hjóna
allri, innilegar þakkir fyrir góð
kynni og árna þeim heilla á þess-
um merku tímamótum.
Vinir Stefáns og kunningjar
hitta hann í dag þar sem hann
tekur á móti gestum í húseign
sinni að Strandgötu 1—3, Skip-
hóli, frá kl. 17 til 19.
Lifðu heill Stefán Rafn.
Ólafur Pálsson.
þess að heimta laun mörkuð eftir
hverri stund. Hann vann sér jafnt
traust viðskiptavinanna og fyrir-
manna fyrirtækisins. Starf hans
var hollt og heilladrjúgt.
Eftir að Helgi hóf sjálfstæðan
rekstur varð hann fljótlega virtur
af viðskiptavinunum. Þeir báru til
hans fullt traust, og meira en það.
Þeir leituðu til hans í vanda og
nutu ráða hans og vináttu á marg-
an hátt. Hann varð þeim hollur
ráðgjafi og tryggur vinur. Starf
fasteignasala er oft vandasamt og
til þess að verða vinsæll í þvi
starfi, þarf vissa kosti, drengskap
og heiðarleik. Þá kosti hefur Helgi
í ríkum mæli.
Oft eru það glögg einkenni
manna, hvernig þeir verja tóm-
stundum sínum og hvaða áhuga-
mál þeim eru kærust. Helgi hefur
sýnt það í verki í áhuga sínum á
félagsmálum, að hann ann því
góða og fagra. í Lions-hreyfing-
unni finnur hann sjálfan sig, hug-
sjónir til að vinna öðrum gott,
þeim máttarvana í þjóðfélaginu.
Hann styrkir þá sem hallir eru
undir ok fátæktar, vöntunar eða
sjúkdóma með þvi efla félagsskap
eins og Lions-hreyfinguna, auka á
samheldni Lions-manna og taka
þátt í söfnunum hennar til styrkt-
ar fyrrnefndum. Hann er I hópi
bestu og sönnustu hugsjónamanna
hreyfingarinnar í Lions-klúbbnum
Þór og hefur gegnt þar formanns-
störfum af miklum sóma og dugn-
aði.
Helgi hefur einnig tekið virkan
þátt í sameiginlegum störfum
hreyfingarinnar f Reykjavík og í
umdæminu, verið þar í trúnað-
arstöðum og lagt þar margt gott
til mála.
Helgi er hamingjumaður í
einkalífi sínu. Eg vil óska konu
hans, Kristínu Einarsdóttur, til
hamingju um leið og ég flyt hon-
um mínar bestu hamingjuóskir á
merkum tímamótum á ævi hans.
Lifðu heill. Jón Gíslason
Brotist inn í hús Qsta- og smjörsölunnar:
tækjum stolið
tveimur skyggnusýningarvélum. Allmörg innbrot voru framin í
Lögreglan leitar nú innbrots- höfuðborginni um helgina og
þjófanna. skemmdir unnar.
Vatnstjón á rakarastofu
Dýrum
TALSVERÐAR skemmdir
voru unnar i húsi Osta- og
smjörsölunnar við Snorrabr-
aut aðfaranótt sunnudagsins
þegar brotist var þar inn.
Hurðir ýmissa fyrirtækja,
sem þar eru til húsa, voru
brotnar upp og rótað í hirsl-
um og skápum.
Mest varð tjónið hjá fyrirtæk-
inu Skyggnu h.f. Þaðan var stolið
dýrri ljósmyndavél af gerðinni
Mamiya RB67 ásamt með tveim-
ur linsum, Sharp myndsegulb-
andstæki, sjónvarpstæki og
NOKKURT tjón varð af völdum
vatns á rakarastofunni í Hafnar-
stræti 8 í fyrrakvöld er heita-
vatnsrör sprakk í húsinu. Versl-
unin Parísartískan er á sömu
hæð, en vatnið náði ekki þangað
inn.
Það var um kl. 21, að lögregl-
unni var tilkynnt um að sjóðandi
vatn rynni út um dyr rakarastof-
unnar. Mikil gufa var í stofunni er
inn var komið og ljóst að skemmd-
ir af völdum sjóðandi vatnsins
voru nokkrar.
esiö
reglulega af
ölmm
fjöldanum!
Á tröppumar, veröndina og svalirnar
LOKSINS
Útihandrið
Árfells eru nýjung á íslandi.
Þau eru úr tré.
Loksins er hægt að Ijá fallegum húsum
umgjörð við hæfi.
Valið stendur ekki lengur milli
kaldra járnhandriða og
þunglamalegrar steinsteypu.
Hér opnast nýjar leiðir.
EININGAR
Árfells útihandriðin eru byggð upp af einingum
sem mjög auðvelt er að laga að mismunandi
aðstæðum. -
- Á veggi eða slétta fleti,
á undirstöðu úr tré eða steinsteypu.
Hentar jafnt á litla tröppu sem stóra verönd -
- og stíllinn leynir sér ekki.
STÍLL
Við hönnunina gengum við út frá því
að handriðin væru sterk og hlýleg.
Heildarsvipurinn er þannig heimilislegur og
traustur en fegurð og léttleiki
trésins leynir sér ekki.
Þessi handrið hafa stíl.
Stólpar, blómakassar og Ijósker gefa þér möguleika á
að skapa sérstakan persónulegan blæ
og litinn velur þú.
ÞJÓNUSTA
Við gerum teikningar og verðtilboð,
þér að kostnaðarlausu,
og bjóðum að sjálfsögðu góð greiðslukjör.
Hringdu eða líttu inn.
Þeir sem panta strax geta fengið handriðin
sett upp með skömmum fyrirvara.
PATENT PEND. 2831
11 Vestur í Bandaríkjunum,
milli Klettafjallanna og Kyrra-
hafsins, m.a. í Kalifomfu og
Oregon, vex Douglas tréð, sem
getur náð allt að 90 m hæð og
3—4 m í þvermál. Úr Douglas
trénu er unninn viðurinn Oreg-
on-pine, sem við notum í Ár-
fells-utihandriðin. Reynslan
sýnir að Oregon-pine hentar
mjög vel sem útiviður við ís-
lenskar aðstæður. Hér á landi
hefur ending Oregon-pine ver-
ið mjóg góð þar sem mikið
hefur reynt á viðinn, svo sem
i útihurðum.
ÁRMÚLA 20 SÍMAR 84630 OG 84635