Morgunblaðið - 27.06.1984, Qupperneq 33
33
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 27. JÚNÍ 1984
Afhjúpun skrúfunnar af gufubátnum Ásgeiri frá ísafirði
Stofnandi Ásgeirsverslunar var
Ásgeir Ásgeirsson frá Rauðamýri
í Nauteyrarhreppi fæddur árið
1817. Hann stundaði sjómennsku á
opnum bátum fyrst en tók við
stjórn á þilskipi 24 ára gamall.
Ásgeir sigldi síðan til Danmerkur
til náms í siglingafræðum og tók
skipstjórapróf 1848 þá 30 ára
gamall. Eftir það var hann ávallt
kallaður Ásgeir skipherra.
Með Ásgeiri og Jóni Sigurðssyni
forseta tókst mikil vinátta og áttu
þeir bréfaskipti um margt er til
framfara horfði á Islandi á þeim
tíma.
Ásgeir skipherra andaðist í
Kaupmannahöfn 1874 60 ára að
aldri. Þá var sonur hans, Ásgeir
Guðmundur Ásgeirsson, 24 ára
gamall og tók hann við stjórn
Ásgeirsverslunar og jók umsvif
fyrirtækisins mjög mikið.
Á seinni hluta 19. aldar var
mikill framfarahugur i mönnum
er stjórnuðu atvinnufyrirtækjum
hér á Isafirði og var Ásgeir G.
Ásgeirsson þar í fararbroddi. Á
þeim tíma mun ísafjörður hafa
verið einn stærsti útgerðarstaður
á íslandi og atvinnulíf með mikl-
um blóma.
Mönnum varð snemma ljóst að
nauðsynlegt var að koma hér upp
aðstöðu til þess að mennta menn
til skipstjórnar, í stað þess að
þurfa að fara til Danmerkur og
afla sér skipstjórnarréttinda.
Árið 1852 var stofnaður hér vís-
ir að sjómannaskóla fyrir for-
göngu Ásgeirs skipherra o.fl.
Skólastjóri og kennari varð Torfi
Halldórsson frá Alviðru í Dýra-
firði og hafði hann numið skip-
stjórnarfræði í Danmörku.
Þessari kennslu mun hafa verið
haldið uppi í allmörg ár og var þar
kominn fyrsti sjómannaskólinn á
Islandi. Síðar fluttist Torfi til
Flateyrar og hélt þar áfram
kennslu.
Fyrstu ár þilskipaútgerðar á ís-
landi munu skipin ýmist hafa ver-
ið ótryggð eða trygging keypt hjá
tryggingarfélögum í Danmörku.
Utgerðarmenn á Isafirði stofn-
uðu á árinu 1854 með sér samtök
er þeir nefndu „Ábyrgðarsjóð
þilskipa", voru stofnendur fimm-
tán.
Skip voru einungis í ábyrgð frá
15. mars til 15. sept. og voru þó
sett þau takmörk að fyrir fimm-
tánda dag aprílmánaðar og eftir
31. ágúst máttu skipin ekki fara
lengra suður með landi en svo að
Látrabjarg sé í suður og ekki
lengra norður en að Hornbjarg sé
í suðaustur.
Þetta var fyrsta tryggingarfélag
skipa er stofnað var á fslandi.
Eins og ég gat um í upphafi
verður nú afhjúpaður minnisvarði
um Ásgeir litla. Þegar skipið
hætti siglingum um Isafjarðar-
djúp árið 1915 var það sett á land
hér í Neðstakaupstað, á því svæði
sem hús Vestra stendur nú. Um
allmörg ár var skipið notað til
íbúðar en síðan skorið niður í
brotajárn, en skrúfu skipsins var
haldið til haga með það í huga að
koma henni fyrir á viðeigandi
stað. Þessu hefir nú loksins verið
hrundið i framkvæmd. Minnis-
merkið var fjármagnað af Olíu-
samlagi útvegsmanna.
Hönnuður minnisvarðans er
Pétur Guðmundsson en smíðina
framkvæmdi Vélsmiðja Sigurleifs
Jóhannssonar. Málningu annaðist
málingarverkst. Georgs Bærings-
sonar. Ég vil nú biðja Jón Egilsson
vélstjóra að gera svo vel að af-
hjúpa þennan minnisvarða.
Guðmundur Guðmundsson
fyrir margt löngu orðin slík að
eina leiðin til að komast af í henni
er í krafti þekkingar á því sem
menn kjósa helst að hafa sér til
dundurs. Virðist því ekki úr vegi
að gera nú undantekningu þegar
litið er til framtíðarinnar þótt
ekki sé nema í tilraunaskyni.
Þessi sannindi eru auðvitað öll-
um ljós og því ástæðulaust að fjöl-
yrða um þau, enda hafa þjónar
fólksins haft í mörgu öðru að snú-
ast en að velta fyrir sér forsendum
þekkingarinnar. Samt hlýtur það
lengi að hafa staðið til. Reyndar
furðu lengi. En vitað er að þekk-
ingar verður aflað með námi og
námið verður ekki stundað nema
einhver hafi þegar tök á þekking-
unni sem nema skal. Þekking sem
slík er aftur á móti reist á rann-
sóknum og viðleitni manna gegn-
um tíðina til að öðlast skilning og
tök á þeim veruleika sem við
búum. Og líkt og er með aðra
starfsemi mannsins þá þarf ein-
hverja aðstöðu til að sinna þekk-
ingaröfluninni; til rannsókna.
kennslu og náms. Ella verður
aldrei neitt. Sú starfsemi sem
kallast rannsóknir, kennsla og
nám verður trauðla stunduð nema
innanhúss — og með því hús eru
afmörkuð stærð taka þau ekki
endalaust við eins og ómælið.
Einnig getur hver kennari einung-
is sinnt takmörkuðum fjölda nem-
enda svo vel sé, þ.e. svo þekkingar-
öflun nemandans sé sem árang-
ursríkust og hæfileikar hans fái
notið sín til hins ýtrasta. Enn er-
um við að tala um augljós efni, en
máske svo augljós að þau sjást
ekki?
Háskóli íslands sem svo er
nefndur virðist einmitt daemi um
hið augljósa en óséða: Á hans
snærum eru fáein hús og í hinu
elsta bæði hátt til lofts og vítt til
veggja í einu herberginu. Þar eru
líka rúmlega fjögur þúsund nem-
endur, en voru rúmlega þrjú þús-
und fyrir þremur árum og verða
rúmlega fimm þúsund eftir þrjú
ár. Þar er líka slangur af kennur-
um og reynt að stunda rannsóknir.
En af einhverjum undarlegum
ástæðum hefur húsakosturinn
ekki aukist í neinu hlutfalli við
fjölda þeirra sem ber að hýsa.
I þessum skóla eru giska 500
skólaborð og nokkru fleiri stólar,
en hvorttveggja eru fylgifiskar
þekkingaröflunar. Þetta er staður-
inn sem í reynd er meginforsend-
an fyrir hugtakinu um „nýsköpun
atvinnulífs“ — og reyndar megin-
forsenda þess að við verðum ekki
undirmálsfiskar í hafdjúpum ver-
aldarinnar.
Auðvitað nennir enginn að
jarma um þessar aðstæður — þær
eru svo augljósar að hverjum og
einum ætti að vera í lófa lagið að
sjá þær. Eða kannske eru þær svo
augljósar að þær sjást ekki, ólíkt
hinum fjölmörgu óljósu en sjáan-
legu minnismerkjum sem verða á
vegi okkar hér og þar um land og
sjó.
l'órður Kristinsson er prófstjóri í
Háskóla íslands.
munni var 25 „microamper". Eftir
að AMALGAM-tannfyllingar voru
fjarlægðar, hurfu sjúkdómsein-
kenni að fullu.
Karlmaður, 44 ára, hafði þjáðst
af svima í 8 mánuði og stöðugri
vanlíðan og uppköstum. Fram-
kvæmdar voru ýmsar rannsóknir,
er leiddu til ágiskana um orsakir.
Sem betur fór reyndust þær rang-
ar. Að lokum var mældur straum-
styrkur í munni. Hann reyndist 20
„microamper" milli gulls og
amalgam-fyllinga. Þegar þær voru
teknar hurfu öll sjúkdóms-
einkenni.
Þessi seinni dæmi eru tekin upp
úr grein eftir dr. med. Hans Raue,
Wiesbaden, sem birt var í tímarit-
inu: „Matur og heilsa".
Hann getur þess einnig, áð frá
júlí 1977 til miðs febrúar 1980 hafi
99 sjúklinga hans reynst vera með
yfir 6 „microamper" í munni, og
með ýmsum sjúkdómseinkennum,
sem hann getur um.
Mats Hansen, dósent við háskól-
ann í Lundi, lítur ekki á þetta sem
sjúkdóm heldur eitrun með ófyrir-
sjáanlegum afleiðingum. Hann
kvað raunar svo fast að orði, að
það væri hneisa að nota AMALG-
AM. Kvikasilfur sé hættulegt eit-
ur í tannviðgerðarefnum, sem sé
smám saman að brjóta niður
heilsu sænsku þjóðarinnar. Hann
vill láta banna allt AMALGAM. I
þess stað eigi tannlæknar að nota
vel prófaðar, sterkar gullblöndur
eða blöndu úr kísil og gleri. En
AMALGAM sé forkastanlegt að
nota.
Hann bendir á og rökstyður, hve
gífurlegt eitur kvikasilfur sé. Það
tengist blóði og vefjum, án þess
nokkuð verði við gert, setjist í
heila, lifur og nýru, hafi áhrif á
miðtaugakerfið með langri röð
sjúkdómseinkenna. Jafnframt geti
kvikasilfrið haft áhrif á erfðaeig-
inleika. Hann fordæmir því notk-
un tannviðgerðarefna með kvika-
silfri, en segir, að flestir fullorðnir
Svíar beri kvikasilfur í munnin-
um.
I greininni er bent á, að kvika-
silfurseitrun gegnum AMALGAM
hafi verið uppgötvað í Þýskalandi
um 1920, en vísindalegar og vel
staðfestar staðreyndir hafi verið
hundsaðar.
I tímaritinu Miljö och framtid
er á þetta bent, og að ef til vill séu
tannfyllingar ein höfuðorðsök
slæmrar heilsu fjölda fólks.
Ofangreind dæmi, og þá sér-
staklega Gunnars Wikströms, sem
lýsir 13 ára sjúkdómsvíti, eru
óhugnanleg.
Tannlæknar hafa notað AM-
ALGAM í góðri trú og ekki vitað
um yfir 60 ára gamlar sannanir
gegn AMALGAM.
Hér er hvorki rúm né ástæða til
að vitna í fleiri heimildir. En
augljóst er, að í þessu met-
tannskemmdalandi, er hér um mál
að ræða, sem skiptir tannlækna og
almenning svo miklu, að ekki
verður fram hjá því gengið. Til
þess eru ofangreind dæmi og upp-
lýsingar Mats Hansons dósents
um afleiðingar kvikasilfurseitrun-
ar of alvarlegar. Þess vegna ber að
vekja athygli almennings á mál-
inu.
Marteinn Skaftfells er fyrrverandi
formaður Heilsuhringsins.
ALLTAFÁ FIMMTUDÖGUM
BRC6TU!
MYNDASÖGURNAR
✓
Vikuskammtur afskellihlátri
SRtnPIHMM
^SÖLUBOÐ
4* Borðsalt 750 gr.
Qulrætur og baunir
Vi dós
Qrænar baunir
Vi dós
Blandað grænmeti
Vi dós
kOv
Bourbonkex
/A^APUD
Kartöflu
skrúfur
...vöruverð í lágmarki
m Ii0rj0nw! b!
« Metsölubladá hverjum degi!
AUGLÝSINGASTOFA KRiSTtNAR MF