Morgunblaðið - 27.06.1984, Side 36

Morgunblaðið - 27.06.1984, Side 36
,T2 HIT0A3U2IVQIM .GQQAáSHOiMOtf 36 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 27. JÚNÍ 1984 Máni 949 frá Ketilsstöðum var sýndur á síðasta landsmóti og hlaut þá fyrstu verðiaun. Á föstudaginn faer hann dóm fyrir afkviemi sín. Frá Kaldármelum 1980. Stóðhesturinn Ófeigur með afkvæmum. Tvö fjórðungsmót haldin á næstu dögum Það verður mikið um að vera hjá hestamönnum næstu tvær vikurnar en þá verða haldin tvö fjórðungsmót, annað á austurlandi og hitt á vestur- landi. Fyrra mótið verður haldið að Fornustekkum skammt frá Horna- firði. Hefst það á fimmtudaginn en seinna mótið sem haldið verður á Kaldármelum í Kolbeinsstaðahreppi befst viku seinna. Dagskrá mótanna verður með befðbundnu sniði, kynbótasýning, gæðingakeppni, unglingakeppni og kappreiðar. Hornfírðingar annast fram- kvæmd á Fornustekkum Oftast er það svo þegar haldin eru fjórðungsmót að félög í við- komandi fjórðungi sjá um fram- kvæmd mótanna í sameiningu. En að þessu sinni sjá Hornfirðingar einir um framkvæmd mótsins. Hafa þeir unnið mikið undirbún- ingsstarf á mótssvæðinu og er bú- ið að byggja tvílyft steinhús sem er jafnframt félagsheimili þeirra í Hornfirðingi. Tveir stóðhestar verða sýndir með afkvæmum en það eru þeir Máni 949 frá Ketilsstöðum sem hlaut fyrstu verðlaun sem ein- staklingur á síðasta landsmóti og Sproti frá Stórulág. Þrír stóðhest- ar verða sýnir í flokki sex vetra og eldri og tveir fjögurra vetra hest- ar. Sjö hryssur verða sýndar með afkvæmum, 24 i flokki sex vetra og eldri, sjö í fimm vetra flokki og fjórar í fjögurra vetra. í gæðinga- keppni taka þátt 44 hestar, 21 í A-flokki og 23 í B-flokki. Ungl- ingar verða fjörutíu, 20 í hvorum aldursflokki. Ekki fengust ná- kvæmar upplýsingar um þátttöku í kappreiðum en að sögn forráða- manna mótsins er hún sæmilega góð. Auk þessa verður sýning ræktunarhópa og sölusýning. Kvöldvaka verður á laugardags- kvöldið og verður skemmtiefni allt heimafengið. Reiknað er með að einhverjir komi ríðandi til Horna- fjarðar og þá helst frá Héraði og þá er vitað um nokkra sem fóru ríðandi frá Reykjavík og austur. Gróska í afkvæmasýn- ingum á Vesturlandi Það mun óhætt að segja að mik- il gróska sé í sýningum á af- kvæmahrossum hjá Vestlending- um því það verða hvorki meira né minna en fimm hestar sýndir með afkvæmum, en þeir eru Hlynur 910 frá Bárustöðum, Dreyri 834 frá Álfsnesi, Þráður 912 frá Nýja- Bæ, Leiknir 875 frá Svignaskarði og Glanni 917 frá Skáney. Hryssur með afkvæmum eru tólf talsins og eru þar á meðal nokkrar þekktar hryssur. Að sögn manna sem fylgst hafa með forskoðun er talið að allir stóðhestarnir séu við eða í fyrstu verðlaunum eftir forskoðun en þessir hlutir skýrast væntan- lega sunnudaginn 8. júlí næstkom- andi. Sýning á einstökum stóð- hestum verður heldur fátækleg að þessu sinni, aðeins einn hestur í flokki sex vetra og eldri og þrír fjögurra vetra folar verða sýndir. Álls verða fimmtíu hryssur sýnd- ar sem einstaklingar, 33 sex vetra og eldri, 13 fimm vetra og 4 fjög- urra vetra. Sextíu gæðingar munu vera skráðir, um þrjátíu í hvorum flokki. Einnig verður boðið upp á töltkeppni og taka 25 keppendur þátt í henni. Á sýningu ræktun- arhópa sýna átta ræktunarbú eða félög afrakstur sinn, þ.á m. Skuggafélagið sem sýnir hross út af Skugga 201 frá Bjarnanesi. Þá verða sýnd hross út af Borgfjörð 909, Hvanneyri, Áshildi 3477 frá Nýja-Bæ, Brönu 772 frá Tungu- felli, Ljónslöpp 2958 frá Krossi, Skeifu 2799 frá Kirkjubæ og einn- ig verða sýnd hross frá Hallkels- staðahlíð út af Val frá Vatnsleysu. í kappreiðar eru skráð um átta- tíu hross og verður keppt í 150 og 250 metra skeiði, 250, 350 og 800 metra stökki og 800 metra brokki. En þess má geta að keppt verður í sömu greinum á Fornustekkum. Búist er við miklum fjölda ríðandi manna á mótið og verður sér girð- ing fyrir ferðahrossin þar sem rekið verður inn tvisvar á dag fyrir þá sem vilja nota hrossin meðan á mótinu stendur. Einnig býður hestamannafélagið Faxi upp á aðstöðu fyrir ferðahross í girðingu sem félagið hefur skammt frá Ferstiklu. Síðast var haldið fjórðungsmót að Kaldár- melum 1980 og vakti staðurinn þá athygli sem gott mótssvæði. Nú hafa átt sér stað nokkrar fram- kvæmdir og má þar nefna bætta hreinlætisaðstöðu og aðstöðu fyrir veitingasölu. Byggður hefur verið nýr hringvöllur og hús fyrir dóm- ara voru byggð þannig að ekki ætti að væsa um þá meðan á mót- inu stendur. Eru þetta svipuð hús og notuð voru á Melgerðismelum í fyrra, Fimm talsins, eitt fyrir hvern dómara og ritara. Fyrir þá sem hyggjast fara ríðandi má geta þtjs að í ráði er að koma upp án- ingarhólfi þar sem hægt verður að geyma hross yfir nótt. Þegar þetta er skrifað hefur ekki verið ákveðin endanleg staðsetning á þessu hólfi, þó mun líklegt að það verði undir svokölluðum Grímsstaða- múla. Og svona i lokin má geta þess að fjórir dansleikir verða á Horna- firði dagana sem mótið stendur yfir. Á föstudags- og laugardags- kvöld verða dansleikir í Mána- garði og félagsheimili hesta- manna, Stekkhóli, sem er eins og áður sagði á mótsstaðnum. Afmæliskveðja: Guðrún Gunnars- dóttir Akranesi Flúðir: Ferðamönnum hefur farið fjölgandi - Golf- völlur tekinn í notkun Saga íslenskrar alþýðu verður sjálfsagt seint færð í letur að ein- hverju gagni. Saga alþýðufólks á íslandi er víða vörðuð margskonar þrengingum af öllu tagi og lífsbar- áttan mikil. Þar skiptast á skin og skúrir, gleði og sorg, hungur og vosbúð, oft er stutt milli lífs og dauða í þeirri sögu. Á öndverðum dögum Kristjáns kóngs þess 9da með því nafni var mikið um að vera norður í Þing- eyjarsýslu. Mikil umskipti verða á högum fólks í kjölfar geysimikils öskugoss í Öskju, fjölmargir flytj- ast búferlum burt, margir jafnvel í aðrar álfur. Bjarni Guðlaugsson er maður nefndur. Hann er fædd- ur og uppalinn f einni afskekkt- ustu sveit landsins, norður við strendur Ishafsins, Þönglabakka- sókn í Fjörðum. Er það nær nyrst á skaga þeim er liggur milli Eyja- fjarðar og Skjálfanda. Bjarni fluttist ungur burt úr fæðingar- sveit sinni og sest að suður í Borgarfjarðarsýslu, sunnan Skarðsheiðar. Gunnar hét sonur Bjarna. Lengst af var Gunnar bóndi í Fellsaxlarkoti í Skil- mannahreppi eða á árunum 1910—1939. Hann var annálaður sem gestrisinn greiðamaður enda var bær hans í þjóðbraut langt fram á bílaöld. Gunnar kvæntist Þórdísi Halldórsdóttur bónda á Vestri-Reyni, ólafssonar og Gróu Sigurðardóttur konu hans. Systir Þórdísar, Kristín, er látin fyrir nokkrum árum háöldruð, 103 ára gömul. Þeim Gunnari og Þórdísi varð 6 dætra auðið: Guðrún, Halldóra, Sigríður, Fanney, Gróa og Lára. Er Guðrún þeirra elst, f. 27. júní 1904 og því 80 ára um þessar mundir. I dag leyfi ég mér að senda ömmu minni, Guðrúnu Gunnars- dóttur, dálitla afmæliskveðju. Eitt af þvf dásamlegasta, sem til er, eru góðar minningar um liðnar stundir sem koma aldrei aftur en lifa um aldur og ævi f hugskoti mannshugans. Þessar minningar verða aldrei á brott numdar né af teknar á neinn hátt. Llklega eru þær dýrmætar fyrst og fremst vegna þess hversu óforgengilegar þær eru og varan- legar um alla ókomna tfð. Þessar góðu minningar eru tengdar þeirri alþýðumenntun sem blómstrar einna mest á óbreyttum heimilum íslensks alþýðufólks. Ég minnist alls þess fróðleiks um horfna tíma sem okkur nútímafólki á tímum firringar, tækni og hraða er okkur smám saman að hverfa sjónum. Allar sögurnar og öll ljóðin sem ég heyrði í þínum húsum var lífs- þyrstum drenghnokka fyrir all- mörgum árum einhver sú tilkomu- mesta sæla sem til var. Og þegar ég sá þig ungur að árum einhverju sinni með bókarkorn í hendi varst þú mér sönn fyrirmynd, hvar gott væri að bera niður í leit að góðum og traustum vinum. Stundum hefir hvarflað að mér að spyrja áleitinna spurninga: hvernig fórst þú að komast í gegn- um allt þetta endalausa basl, þetta endalausa mótlæti og þindarlausu baráttu gegn þjáningum og hörm- um? Ekki er ósennilegt að óbifan- leg trúarsannfæring þfn hafi hafið þig yfir alla þá erfiðleika sem svo oft virðast vera óyfirstíganlegir. Einstæð móðir með 5 ung börn á timum kreppu og atvinnuleysis, það er ótrúlegt en samt satt. Á vorin settir þú niður kartöflur í garðholuna, yfir vertíðina vannst þú baki brotnu f fiski, föst vinna fékkst síðar er Sementsverk- smiðja ríkisins tók til starfa: þá tókst þú til hendinni við ræstingar þegar vinnutíma var lokið á kont- órunum. Af og til fékkst þú við þvotta á vinnugöllum fslenskra al- þýðumanna á Akranesi, stundum voru gallarnir það óhreinir að klukkutímum saman stóðst þú yfir þessum starfa. Jafnframt að vera fyrirvinna þíns heimilis með fullt hús af börnum tókst þér samt að hafa dágóðan tfma aflögu og láta ótal margt gott af þér leiða. Þegar dæturnar voru á brott giftar, fylltust von bráðar þfn húsakynni börnum á nýjan leik. Þar voru barnabörnin sem hafa sótt ákaft til þín í leit að þeim eina sanna auð: æðruleysi, þekkingu og viti til að greina milli góðs og ills. Og nú er enn ein kynslóð að stíga sfn fyrstu spor. Með mfnum allra bestu afmæl- iskveðjum til minnar góðu ömmu, Guðrúnar Gunnarsdóttur. Guðjón Jensson Hfén-Lu^Mltí, 26. jéií. FERÐAMÖNNUM hefur farið fjölg andi hér undanfarnar vikur. Sumar- hótelið i Flúðurn starfar með svipuðu sniði «g fyrri ir. Áningarfarþegar Flugleiða koma hér og snæða hideg- isverð i leið sinni um „Gullhringinn'* svonefnda, nokkrir tugir i dag og jafnvel nokkur hundruð þegar flest er. Gistirými i hótelinu er fyrir 50—60 manns og eru „mótelhúsin" Skjólborg þar með talin, en þau eru opin allt irið. Sumir hótelgestir fara i skoðuna- ferðir til ýmissa staða hér í ná- grenninu, svo sem að Gullfossi og Geysi, í Þjórsárdal eða inn á öræf- in. En fyrir þá sem halda vilja kyrru fyrir má nefna að golfvöllur var tekinn i notkun f nágrenni Flúða fyrir nokkru. Það er Halldór Guðnason á Efra-Seli sem kom honum ukpp í landareign sinni, en þetta er sex holu völlur. En það er hér einnig sundlaug, bókasafn, verslun, banki, flugbraut og íþróttavöllur, sem reyndar stendur til að betrumbæta í haust. Á sumarhótelinu vinna 10 starfsstúlkur auk matreiðslu- meistarans Karls Davíðssonar. Hótelstjóri er Rut Guðmundsdóttir og segir hún að bókanir á hótelið séu með mesta móti f sumar. Sig. Sigm.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.