Morgunblaðið - 27.06.1984, Blaðsíða 40

Morgunblaðið - 27.06.1984, Blaðsíða 40
AUSTURSTRÆV 22 AUSTURSTRÆTI22 INNSTRÆTI, SÍMI 11633_____ INNSTRÆTI, SlMI 11340 MIÐVIKUDAGUR 27. JÚNÍ 1984 VERÐ í LAUSASÖLU 25 KR. „Þetta kemur allt, engin hætta á öðru“ Rætt við skipstjórana á Guð- björgu ÍS og Akureyrinni EA ÞOKKALEGUR aHi er um þessar mundir hjá togurum á Vestfjarðamiðum og norður af Horni. Morgunblaðið ræddi við tvo skipstjóra, sem voru þar með skip sín í gær. Þeir voru báðir bjartsýnir á fram- haidið, þó tregt væri hjá þeim í bili og töldu ekki verða vand- kvæði á því að ná kvóta skip- anna. Guðbjartur Ásgeirsson, skipstjóri á Guðbjörgu ÍS, sagði þá vera á Stranda- grunni og afli væri sæmi- legur, 2 til 4 tonn eftir um þriggja tíma tog. Þeir væru í góðum þorski, en misstórum. Nokkuð góð veiði hefði verið Gott hal af fiski, en slíkt befur verið heldur sjaldgæft upp i síðkastið. á miðunum í lok síðustu viku og um helgina, en nú væri rólegra yfir því. Á sjómanna- daginn hefðu þeir verið komnir með 200 tonnum meira en á sama tíma í fyrra svo það mætti verða lélegt, næðist kvótinn ekki. „Það er engin ástæða til að örvænta, bara halda sinn kós. Þetta kemur allt, engin hætta á öðru,“ sagði Guðbjartur. Jón Magnússon, skipstjóri á frystitogaranum Akureyr- inni, sagði þá vera um 50 mílur norður af Horni á grá- lúðu og væri afli fremur tregur. Að öðru leyti hefði þetta gengið þolanlega, en þætti þó aldrei nóg. Þeir væru bjartsýnir á að ná kvótanum, enda komnir með um 2.000 tonn, þar af 700 af þorski upp úr sjó. Fiskiríið virtist vera í lágmarki nú og færi ekki neðar. Því hlyti þetta að fara vaxandi að nýju og hann væri bjartsýnn á framhaldið. Þyrlusveit varn- arliðsins heiðruð Þyrlubjörgunarsveit varnarlidsins var í gær veitt á Keflavíkurflugvelli við hátíðlega athöfn viðurkenning fyrir að hafa bjargað 200 manns hér á landi og umhverfis það síðan sveitin tók til starfa hér árið 1971. Geir Hallgrímsson, utanríkisráðherra færði yfirmanni þyrlusveitarinnar, Joseph M. Nall, viður- kenningarskjalið, sem tók við því fyrir hönd þeirra 55 liðsmanna sem eru í þyrlusveitinni. Sjá nánar frásögn á miðopnu. Dansað til Spánar Snemma í morgun lögðu átta krakkar á aldrinum 16—19 ára af stað til Torremolinos á CosU del Sol. ÞetU er hópur á vegum dansskólans Uansnýjungar, sem dansar næstu tvær vikurnar fyrir gesti stærsU tívolís- ins á staðnum. Þjálfari þeirra og aðaldanshöfundur er Kolbrún Aðal- steinsdóttir. Eins og sjá má á myndinni var kraftur í dönsunum á síðustu æfingunni í gærkvöldi. Útgerðarfélag Akureyrar: 20 milljóna tap á útgerðinni á árinu Sólbakur, eini togarinn sem skilaði hagnaði síðasta ár, lá bundinn við bryggju ÁÆTLAÐ Up á útgerð Útgerðarfé- lags Akureyringa fyrstu fimm mán- uði þessa árs er um 20 milljónir króna og auk þess er umUlsvert Up á fiskvinnslu fyrirtækisins. Á öllu síðasU ári nam Up af útgerð- inni samUls 20,5 milljónum króna. Aðeins Sólbakur, sem lá við bryggju allt árið, skilaði bókfærð- um hagnaði. Gísli Konráðsson, annar fram- kvæmdastjóra ÚA, sagði í sam- tali við Morgunblaðið, að þorsk- leysið væri aðalvandinn. Skip fé- lagsins fyndu þorskinn varla og hefðu því aðallega snúið sér að karfa og grálúðu. Miðað við já- kvæðan rekstur væri karfaveiðin alveg dauðadæmd því með henni væri bæði tap á veiðum og vinnslu. Því mætti fyllilega segja það, að minna tap væri á togur- um, sem lægju við bryggju en togurum, sem gerðir væru út á karfa. Fjármagnskostnaður vegna skipakaupa væri sá sami, hvort sem skipið væri á veiðum eða lægi við bryggju. Á karfa- fiskiríi hefðu skipin alls ekki upp í fjármagnskostnaðinn og því væri meira tap af þeim veiðum en legu við bryggju, en aldrei yrði af því gróði að leggja skip- um. Rekstrartap af skipum Útgerð- arfélagsins á síðasta ári var sem hér segir: Kaldbakur 2.139.158 krónur, Svalbakur 2.576.300 krónur, Harðbakur 9.252.625 krónur og Sléttbakur 7.012.423 krónur. í bókhaldi kom Sólbakur, sem lagt hefur verið og lá við bryggju allt síðasta ár, út með hagnað upp á 458.000 krónur. Út- reiknuð verðuppfærsla vegna verðbreytinga nam samtals 1.340.000 krónum en ýmis kostn- aður við skipið, sem er skuld- laust, nam 964.000 krónum. Hins vegar nam hagnaður Útgerðarfé- lagsins um 2,5 milljónum króna á síðasta ári, aðallega vegna verð- mætaaukningar birgða frá árinu áður. Ríkið borgaði tann- viðgerðir fyrir Baly „BALY fékk sömu meðferð og ís- lenskur bónbjargarmaður, sá sem segir sig til sveitar, myndi fá,“ sagði Karl Jóhannsson, hjá Út- lendingaeftirlitinu er blm. Mbl. spurði hann í gær hvort Baly hefði notið þjónustu tannlæknis á meðan hann var hér á landi, á kostnað ríkisins, og staðfesti Karl að svo hefði verið, en ein- ungis hefði þó verið gert við það sem bráðnauðsynlegt hefði talist að gera við, til þess að firra manninn kvölum. Karl sagði að Baly hefði óskað eftir því að fá tannlækn- isþjónustu oftar en ástæða hefði þótt til að veita hana, og hann bætti við „Við létum hann fá sömu meðferð og íslenskir bónbjargarmenn fá og þetta var ákveðið í samráði við dómsmálaráðuneytið. Bón- bjargarmenn geta fengið tann- læknisþjónustu sem bráðnauð- synlegt er að veita þeim til þess að firra þá kvölum." Stefán Hirst, gjaldkeri Út- lendingaeftirlitsins upplýsti blm. Mbl. í gær að Útlendinga- eftirlitið hefði greitt tannlækni þeim sem þjónustaði Baly 4100 krónur, samkvæmt reikningi.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.