Morgunblaðið - 17.02.1985, Blaðsíða 5

Morgunblaðið - 17.02.1985, Blaðsíða 5
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 17. FEBRÚAR 1985 5 Sigfús Sigfússon Bókaútgáfan Þjóðsaga: 5. bindi Sig- fúsar Sigfús- sonar komið BÓKAÍJTGÁFAN l>jóúsaga hefur gefið út fimmta bindið af Islenskum þjóðsögum og sögnum, sem Sigfús Sigfússon þjóðsagnaritari safnaði og skráði. Fyrstu fjögur bindin komu út fyrir jólin 1982, en alls verða þau níu og það tíunda mun geyma skrár og ritgerð um Sigfús Sigfússon og söfn- un hans. Útgáfu fimmta bindis hefur annazt Grímur M. Helgason, en Óskar Halldórsson dósent annað- ist útgáfuna unz hann lézt. Fimmta bindið fjallar um kynngisögur og er það 436 blaðsíð- ur að stærð. Hönnun er eftir Haf- stein Guðmundsson og er bokin prentuð hjá Guðjóni Ó hf. og bundin hjá Arnarfelli hf. Sigfús Sigfússon fæddist árið 1855. Hann ólst upp á Fljótsdals- héraði, stundaði nám við Möðru- vallaskóla en hafði síðan lengst af ofan af fyrir sér með farkennslu. Hann stundaði einnig sjó, var víða í kaupamennsku og má heita, að hann hafi hvergi átt fast heimili lengst af ævi sinnar. Sigfús fékk snemma mikinn áhuga á þjóðleg- um fróðleik og þjóðsögum og var sjálfur mjög trúaður á dulræn fyrirbæri. Mikilvirkastur var hann við söfnunina á árunum 1890—1920 og hafði alltaf þann hátt á, að hann skrifaði allt upp sjálfur eftir heimildamönnum sín- um, sem mestan part voru gamalt fólk. Sigfús lést árið 1935. 22 kennarar viö MA virða ekki fram- lenginguna Akureyri, 15. febrúar. Frá Vilborgu FinarsdóUur blaóamanni Mbl. TU'ITUGU og tveir kennarar við Menntaskólann á Akureyri sendu menntamálaráðherra bréf í g»r, þar sem þeir tilkynntu að þeir myndu ekki virða framlengingu hennar á uppsagnarfresti framhaldsskóla- kennara í HÍK. Kváðust kennararnir 22 hins vegar reiðubúnir að draga upp- sagnir sínar til baka, yrði verulega bætt úr kjörum framhaldsskóla- kennara. Magnús Jónsson talsmaður kennaranna sagðist í samtali við Mbl. telja að ákvörðun ráðherra stangaðist á við sáttmála Evrópu- ráðsins um mannréttindi og mannfrelsi. ^NNLENT Kennaradeilan: „Engar tillögur komu frá samninganefnd ríkisins“ — segir formaður Hins Lslenska kennarafélags „FUNDURINN var gagnlegur og við ákváðum að hittast aftur á þriðju- dag,“ sagði Kristján Thorlacius, formaður Hins íslenska kennarafé- lags, þegar hann var inntur fregna af samningafundi félagsins með samn- inganefnd ríkisins í gær. „Á þriðjudag ætlum við að koma með frekari hugmyndir um hugs- anlegar breytingar á núgildandi sérkjarasamningi okkar," sagði Kristján. „Við teljum yfirvinnu- stuðul vera rangan og viljum fá honum breytt. Samninganefnd rikisins hafði engar tillögur fram að færa, eins og við höfðum þó reiknað með, en þeir ætla að at- huga nánar einstök dæmi um að kennarar hafi dregist aftur úr öðrum ríkisstarfsmönnum í laun- um.“ Kristján kvaðst sjálfur ekki hafa nein dæmi um slíkan mun, en ljóst væri að kennarar, líkt og aðr- ir háskólamenntaðir ríkisstarfs- menn, hefðu dregist verulega aft- ur úr mönnum með sömu mennt- un, sem starfa á almehnum mark- aði. Indriði H. Þorláksson, formaður samninganefndar ríkisins, sagði í gærkvöldi að fátt markvert hefði gerst á fundinum. Farið hefði ver- ið yfir ýms atriði og undirbúnar frekari viðræður. Hann sagðist draga í efa að samningar tækjust fyrir 1. mars næstkomandi þegar kennarar hyggjast leggja niður störf verði ekki komnar til um- talsverðar kjarabætur þeim til handa. „Dómur Kjaradóms um að- alkjarasamninginn er væntanleg- ur á næstu dögum og þá er ósamið við 25 félög, þar á meðal Hið ís- lenska kennarafélag," sagði hann. „Ég er ekki viss um að eitt félag geti samið á undan heildinni, það hlýtur að taka nokkurn tíma að ganga frá þessu. Takist ekki samningar er Kjaradómi skylt að kveða upp dóm innan mánaðar frá því að aðalkjarasamningur tekur gildi, sem verður 1. mars. Að öðru leyti held ég að við verðum að treysta því að menn fari að lög- um.“ ÖRUCC ENDURSALA Árum saman hefur FIAT veriö topp-bíll í endursölu UNO er auövitaö efstur á blaöi, sést sjaldan á bílasölum og stoppar þar stutt. Þessvegna eru peningarnir þínir vel gevmdir í FIAT-UNO, þú ekur á afburða bíl sem þú getur breytt snarlega í peninga ef á þarf aö halda. Sum bílaumboö segja þér aö spyrja eigendur um endursöluna. Viö segjum: spuröu bílasalana, þeir vita allt um endursölu. CAMLI BÍLLINN UPPÍ Augljóst er aö betri bílakaup bjóöast ekki, uno 45 super '85 á 280.000,-. Aö auki tökum viö gamla bílinn uppí þannig aö þú losnar viö fyrirhöfn og áhættu sem alltaf eru samfara sölu á notuöum bílum. MEST SELDI BÍLL Á ÍSLANDI Smiöjuvegi 4, Kópavogi. Símar 77200 - 77202.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.