Morgunblaðið - 17.02.1985, Blaðsíða 42

Morgunblaðið - 17.02.1985, Blaðsíða 42
42 MORG UNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 17. FEBRCAR 1985 Fjármálaráðuneytið: Kynferði hefur ekki áhrif á laun MORGUNBLAÐINU hefur borizt eftirfarandi fréttatilkynning frá fjár- málaráéuneytinu: í samþykkt Jafnréttisráös frá 11, febrúar sl. er því haldið fram, að í málflutningi fjármálaráð- herra fyrir kjaradómi hafi mis- ræmi í launum eftir kynjum verið notað til að réttlæta það að há- skólamenntaðir rikisstarfsmenn eigi að hafa lægri laun en starfs- menn á almennum vinnumarkaði. Sama fullyrðing hefur verið sett Leiðrétting f viðtali sem birtist við Þórð Vigfússon sl. föstudag misritaðist nafn hans í myndatexta sem Vig- fús Þórðarson. Mbl. biðst velvirð- ingar á þessum mistökum. fram á Alþingi og í sjónvarps- þætti nýlega. Fullyrðing þessi er röng. Af þessu tilefni viil fjár- málaráðuneytið taka eftirfarandi fram: f málflutningi fyrir dómnum tók talsmaður fjármálaráðuneyt- isins það sérstaklega fram í þessu sambandi að fjármálaráðuneytið hefði þá eindregnu afstöðu að kyn- ferði starfsmanna eigi ekki að hafa áhrif á laun sem honum eru ákveðin með samningum. Fjármálaráðuneytið harmar það að Jafnréttisráð, sem lögum samkvæmt á að kanna og kynna sér málsástæður, og aðrir aðilar sem stöðu sinnar vegna ættu að kappkosta að afla sér réttra upp- lýsinga um þau mál, sem þeir fjalla um, skuli í þessu tilviki hafa látið blekkjast af ómerkilegum áróðri. Stórkostlegt tækifæri Don Cano úlpur og buxur á stór- lækkuöu veröi. Stæröir 14 — XS — S — M — L — XL Litir: Tvílitt, grátt/orange, grátt/flöskugrænt. Einlitt, dökkblátt, Ijósgrátt, blátt, flösku- grænt, hvítt, orange. Verö: jakkar einlit. 2.900.- jakkar tvílit. 2.500.- Vattbuxur 1.500.- Póstsendum. jÁ & ■± £ Ú77L/F Glæsibæ, sími 82922. Svipmynd úr kennslustund í Félagsmálaskóla alþýðu. Félagsmálskóli alþýðu 10 ara FÉLAGSMÁLASKÓLI alþýðu er 10 ára um þessar mundir. Skólinn tók til starfa 16. febrúar 1975. Skólinn er verkalýðsmálaskóli, ætlaður félagsmönnum stéttarfé- laganna innan Alþýðusambands íslands. Menningar- og fræðslu- samband alþýðu rekur skólann og stjórn MFA er jafnframt stjórn skólans. Félagsmálaskóli alþýðu starf- ar í önnum, sem hver er I tvær vikur. Undanfarin ár hafa verið haldnar fjórar til fimm annir á vetri. Hámarksfjöldi nemenda á önn er 25 og frá upphafi eru nemendur orðnir 640 talsins, en frá 1975 hafa verið haldnar 35 annir i Félagsmálaskólanum. Flestar annirnar eru svokallaðar 1. annir, en þess á milli er 2. önn og 3. önn, sem eru framhalds- annir. Starfsemi skólans hefur verið í Ölfusborgum, en þó var fyrir fáum árum haldin ein önn I Flókalundi í Vatnsfirði. Leiðbeinendur skólans eru margir á hverri önn, flestir úr rööum verkalýðssamtakanna eða þeim tengdir. Viðfangsefni skólans eru eink- um félagsstörf, svo sem fundar- reglur, félagsstjórnun, ræðu- mennska og framsögn. Þá er fjallað um sögu, starf og skipu- lag ASÍ, hagfræðiefni, félags- fræði, fjölmiðla, samningamál, launakerfi og vinnurétt. Jafnan eru menningar- og skemmtidag- skrár á hverri önn og heimsækja skólann af því tilefni listamenn og aðrir góðir gestir. Málefni skólans voru til um- ræðu á þingi Alþýðusambands- ins sl. haust. Þar var rætt um nauðsyn þess að reist yrði skóla- hús í ölfusborgum. Það mál er nú til umfjöllunar í stjórn MFA og miðstjórn ASf. Nú stendur yfir 2. önn Félags- málaskóla alþýðu, sem hófst 10. febrúar. Næsta 1. önn hefst 10. mars og önnur 1. önn verður í apríl næstkomandi. Mikill launamunur háskólamanna hjá ríki og á almennum markaði: Heildarlaun 72 % hærri á almennum markaði „ÞEGAR dagvinnuiaun háskólamenntaðra launþega á al- mennum markaði samkvæmt könnun Hagstofunnar eru bor- in saman við laun háskólamenntaðra rikisstarfsmanna ... fyrir mars-maí 1984 kemur í Ijós að háskólamenn á aimenn- um markaði höfðu 72% hærri dagvinnulaun,“ segir m.a. í Kjarafréttum, fréttabréfi Bandalags háskólamanna hjá rík- inu, en þar er m.a. gerð grein fyrir kröfugerð þeirra vegna nýs aðalkjarasamnings. Þar kemur fram að munurinn minnkar í 47% þegar yfirvinna og aðrar greiðslur eru reiknaðar með. Munurinn eykst hins vegar á nýjan leik í 52%, þegar reiknað er út frá heildargreiðslum að viðbættum greiðslum vegna bif- reiða, síma og annars kostnaðar. í maímánuði í fyrra voru dagvinnulaun háskólamennt- aðra ríkisstarfsmanna 23.301 króna, og með yfirvinnu og öðr- um greiðslum 32.902 krónur og heildargreiðslur 33.071 króna. Á almennum markaði í maí í fyrra fengu háskólamenntaðir menn hins vegar 40.072 krónur í dag- vinnulaun, 47.145 krónur að meðtalinni yfirvinnu og öðrum greiðslum og heildarlaun þeirra voru 50.322 krónur. Jafnframt er gerð grein fyrir samanburði á launum háskóla- menntaðra manna á almennum markaði og í starfi hjá ríkinu 1977 og 1984. Sýna niðurstöður þess samanburðar að árið 1977 voru háskólamenn á almennum markaði með 20% hærri laun en háskólamenn í störfum hjá rík- inu, en eins og áður segir var munurinn kominn upp í 72% I maí í fyrra. í tilefni þessa segir í Kjarafréttum: „Af þessum sam- anburði er ljóst að laun háskóla- manna hjá ríkinu hafa dregist stórlega aftur úr Iaunum sam- bærilegra hópa á almennum markaði." I greinargerð BHMR um kröfugerð félagsins segir að byggt sé á þeim grunnlaunum og því kerfi, sem í dag gildir á al- mennum markaði fyrir háskóla- menn. Þar segir að meginatriðin í þeim séu að byrjunargrunnlaun á almennum markaði séu mun hærri en há ríkinu og hækkanir vegna starfsaldurshækkana séu einnig hærri. Ný sjúkrasamlagsskírteini: Skráð eftir fæðingarnúmer- um í stað nafnnúmera áður SJÚKRASAMLAG Reykjavíkur hefur sent samlagsmönnum sjúkrasamlagsskírteini í pósti. Með þeim fylgir orðsending, þar sem segir að sá háttur hafi verið tekinn upp að skrá samlagsmenn á sjúkrasamlagsskírteini með fæðingarnúmeri í stað nafnnúmers áður. Fólk er hvatt til að bera skírteinið á sér og sýna þegar það nýtur heilbrigðisþjónustu, svo þetta valdi sem minnstri röskun. Friðrik Stefánsson forstjóri Sjúkrasamlags Reykjavíkur sagði í samtali við Morgunblaðið að þetta væri fyrsti vísirinn að því sem koma skal, því allar líkur bentu til að fæðingarnúmerakerf- ið yrði tekið upp í stað nafnnúm- erakerfisins. Hann sagði aðal- ástæðuna fyrir því að þetta kerfi væri tekið upp núna þá að nú væri að fara í gang tölvuskráning á lyfseðlum og uppgjöri við apótekin og þar verða fæðingarnúmerin notuð. Friðrik sagði að þetta kerfi væri stærra og hentaði betur en nafnnúmerakerfið af ýmsum ástæðum, m.a. þeirri að fólk fær þetta númer við fæðingu, en nafnnúmer ekki fyrr en það hefur náð 12 ára aldri. Hallgrímur Snorrason hag- stofustjóri sagði að sums staðar í heilbrigðiskerfinu væri farið að skrá frekar eftir fæðingarnúmer- um en nafnnúmerum. Sjúklinga- bókhaldið á Rikisspítölunum er t.d. byggt á fæðingarnúmerum og er ástæðan fyrir því m.a. sú að börn hafa ekki nafnnúmer. „Líklega verður það ofan á að fæðingarnúmerin taka við af nafnnúmerunum. Nafnnúmera- kerfið hefur nú gengið sér til húð- ar og er á vissum númerabilum sprungið, svo nauðsynlegt er að hætta að nota það. Þá liggur bein- ast við að nota númer sem byggj- ast á fæðingardegi manna, en enn- þá hefur ekki verið ákveðið hvern- ig þetta kerfi verður byggt upp,“ sagði Hallgrímur Snorrason.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.