Morgunblaðið - 17.02.1985, Qupperneq 54
Stjórn Imbrudaga: Birgir Bárðarson, Ragnheiður Thorsteinsson og Unnur Leikhópur Fjölbrautaskólans í Garðab«. Flestir leikarar og leikstjóri.
Magnúsdóttir.
Imbrudagar í Fjölbrauta-
skólanum í Garðabæ
Þegar skammdegið víkur fyrir
hækkandi sól og skap manna tek-
ur að léttast blómstrar að sjálf-
sögðu öll félagsstarfsemi. Félags-
líf í skólum er þar engin undan-
tekning og hafa margir fram-
haldsskólar tekið upp á því að til-
einka félagslífi nokkra daga af
þessari síðari önn vetrar. Hefð-
bundin kennsla leggst þá niður og
nemendafélögum er gert að semja
einhvers konar dagsskrá með
jafnt skemmti-og fræðsluefni.
f Fjölbrautaskólanum í Garða-
bæ hefur tíðkast að halda svokall-
aða menningarviku, sem hlaut
nafnið Imbrudagar í fyrra. Eru
þeir haldnir í þeirri viku er ösku-
dag ber upp á samkvæmt fornri
hefð, auk þess sem árshátíð skól-
ans er haldin daginn áður.
Imbrudagar voru í fyrnsku fjög-
ur föstutímabil, en hefjast í FG
mánudaginn 18. febrúar næstkom-
andi og lýkur laugardagskvöld 23.
febrúar með hápunkti dagskrár-
innar, leikritinu „Nakinn maður
og annar í kjólfötum" eftir Dario
F’o. Imbrudagar hétu upphaflega á
latínu ieiunia quattuor temporum en
í timanna rás drógust seinni orðin
tvö saman og mynduðu quatember.
Orðið barst svo til Englands en
Englendingar gerðu sér lítið fyrir
og felldu framan af orðinu svo eft-
ir stóð ember. Þegar ferð þessa
orðs lauk svo á fslandsi hafði það
tekið sér myndina imbra.
í elstu lögbók fslendinga, Grá-
gás, má sjá ákvæði í kristinna
laga þætti hinum forna, um að
hver bóndi gefi fátækum í sínum
hreppi tvær máltíðir hjóna sinna,
sem skyldug voru að fasta á
Imbrudögum. Þessar gjafir áttu
að vera gefandanum til sáluhjálp-
ar, enda kölluðust Imbrudagar oft
sálu- eða sæludagar, en það er ein-
mitt nafn, sem skólar hafa gefið
hliðstæðum vikum eða dögum sín-
um.
En fasta þá nemendur FG í
þessari viku? Unnur Magnúsdótt-
ir, formaður stjórnarinnar, sem
skipuleggur Imbrudaga, sagði að
svo væri nú ekki. „Við höldum
þessa hátíð einu sinni á ári og ekki
með því að fasta heldur lífga upp
tilveru nemenda og kennara skól-
ans, svo og alira bæjarbúa því að
allir eru velkomnir.
Auk Unnar skipa Birgir Bárð-
arson og Ragnheiður Thorsteins-
son skipulagsstjórn. Þau sögðu að
vinnan við undirbúning hefði auð-
vitað verið mikil, en af henni hefði
einnig hlotist mikil ánægja. „Það
er fyrst núna, þegar nær dregur
vikunni, sem taugarnar eru farnar
að titra," sagði Ragnheiður. Birgir
bætti því við, að ekki væri álagið
minnst á sér, eina karlmanninum í
nefndinni og því mætti segja að
hann væri „alltaf milli tveggja
elda".
Á Imbrudögum má vonandi
finna efni við allra hæfi, því þrátt
fyrir að kennsla leggist niður er
mætingarskylda á daginn," sagði
Unnur og lýsti þvi næst dag-
skránni.
Dagurinn hefst með svokölluð-
um þemaverkefnum. Eru þá
skipulagðir starfshópar sem vinna
sjálfstætt eða með leiðsögn að
vissu þema. Hægt er að velja úr
ýmsum mismunand hópum og
skulu hér fáeinir nefndir, svo sem
sendiráðshópur, sem kynnir sér
starfsemi sendiráða hér á landi,
hannyrðahópur, spilahópur,
heimsmetahópur, sem ætlar sér að
slá met, tölvuhópur, myndbanda-
hópur og síðast en ekki síst hópur,
sem hefur það göfuga markmið að
leiðarljósi að hætta að reykja.
Eftir hádegi hefst svo skemmti-
og fræðsludagskráin sem er öllum
bæjarbúum opin.
Á mánudaginn verða Imbrudag-
ar settir af forseta Nemendafélags
Fjölbrautaskólans i Garðabæ,
Skarphéðni Gunnarssyni og svo
ávarpar formaður Imbrudaga-
stjórnar samkomuna. Að því
loknu verður boðið upp á kaffi og
veitingar, áður en tískusýning á
vegum nemenda fer fram. Klukk-
an 15:00 flytur svo Jón Torfi fyrir-
lestur um tölvur.
í gagnfræðaskólanum í Garða-
bæ er stór og íburðarmikil félags-
aðstaða. Hún kallast Garðalundur
og fá Imbrudagar lundinn lánaðan
til tónleikahalds mánudagskvöld-
ið.
„Aðgangseyri er stillt mjög í
hóf, aðeins 100 krónur og hljóm-
sveitin Grafík spilar. Það er annað
tveggja atriða, sem við verðum að
krefja áheyrendurm um aðgangs-
eyri, en miðinn mun aðeins kosta
50 krónur á miðvikudaginn þegar
Egill Ólafsson heimsækir okkur í
Fjölbrautaskólann," sagði Ragn-
heiður. Víst er að af nógu er að
taka vilji menn notfæra sér þau
einstöku tilboð sem Fjölbrauta-
nemendur gera. Árshátíð skólans
er á þriðjudeginum. Hún fer fram
með hefðbundnum hætti, þema-
hóparnir starfa að morgni og
kennarar hefja svo dagskrána eft-
ir hádegi með skemmtiatriði. Því
næst er hæfileikakeppni og lofar
Imbrudagastjórn að í ár verði
vegleg verðlaun veitt þeim sem
sigrar, að mati óbrigðullar
dómefndar. Til að ljúka skemmti-
dagskránni er ræðukeppni sem
málfundafélagið Rökréttur stend-
ur fyrir. Rökræða þar tvö lið úr
skólanum um réttmæti heiman-
munds, en þess ber að geta í leið-
inni að Fjölbrautaskólinn i Garða-
bæ hefur einmitt aflað sér frægð-
ar fyrir mælskusnilli, þó ekki hafi
honum tekist sem best í mælsku-
og rökræðueinvígi framhaldsskól-
anna í ár.
Um kvöldið verður borðhald í
skólanum og klukkan 22:00 hefst
dansleikur i veitingahúsinu óðali
við Austurvöll. Hann stendur
fram á rauða nótt, en þjakaðar
sálir fá að sofa (út næsta dag) því
það er öskudagur. En ekki er sömu
raðauglýsingar — raðauglýsingar — raðauglýsingar
Sjálfstæðiskvennafélagið
Sókn í Keflavík
Stjórnmálaskóli
Sjálfstæðisflokksins
veröur starfræktur dagana 7.—23.
mars nk. sem kvöld og helgarskóli
Skólinn skiptist i tvo hluta. Allir nemendurnir taka þátt i fyrri hlutanum
og veröur þar fariö yfir vitt sviö stjórnmála- og félagsmála, t.d.
fyririestrar um efnahagsmál, sveitarstjórnarmál, utanrikis- og öryggis-
mál og ennfremur veröur kennt ræöumennska og greinarskrif. Siðari
hluti skiptist i fjögur sviö. Verkalýös- og atvinnumál, efnahagsmál,
utanrikismál og mennta- og menningarmál. Nánari uppl. fást á skrif-
stofu fulltrúaráös Sjálfstæöisfélaganna i Reykjavik i Sjálfstæöishúsinu
Valhöll, Háaleitisbraut 1 eöa i sima 82900.
Grindavík
Aöalfundur sjálfstæðisfélags Grindavíkur
verður haldinn sunnudaginn 17. febrúar í Festi
litla sal kl. 15.00.
Dagskrá:
1. Venjulega aðalfundastörf
2. Kosning fulltrúa á landsfund
3. Bæjarmálefni.
4. Önnur mál.
Stjórnin.
heldur opinn fund um skólamál. Opinn
tundur um skótamál veröur haldinn i
Kirkjulundi mánudagin 25. febrúar nk. kl.
20.30. Menntamálaráöherra frú Ragnhildur
Helgadóttir veröur sérstakur gestur
fundarins og mun hún svara fyrirspurnum:
Dagskrá:
1. Ávarp formanns: Kristrúnu Helgadóttur.
2. Framsöguerindi: Ragnhildur Helgadóttir.
Jónina Guömundsdóttir og Ingólfur
Halldórsson.
Kaffihlé.
3. Fyrirspurnir og umræöur.
Fundarstjóri veröur: Ellert Eiríksson.
Allir sem áhuga hafa á skólamálum eru velkomnir. Fólagskonur
fjölmenniö og takiö með ykkur gesti.
Stjórnin.
Kópavogur - Kópavogur
Spilakvöld sjálfstæöisfélaganna í Kópavogi veröur þriöjudaginn 19.
febrúar kl. 21.00 í S;álfstæöishúsinu, Hamraborg 1.
Mosfellssveit
Aöalfundur Sjálfstæöisfélags Mosfellinga veröur haldinn fimmtudag-
inn 21. febrúar nk. kl. 20.30 í Hlégaröi.
Fundarefni:
1. Venjuleg aöalfundarstörf.
2. Friörik Sophusson alþingismaöur mætir á fundinn, ræöir stjórn-
málaviöhorfin og svarar fyrirspurnum ásamt Salome Þorkelsdóttur
alþingismanni.
Allt sjálfstæöisfólk velkomiö á fundinn.
Stjórnin
Borgarnes - Mýrasýsla
Sjálfstasöisfélag Mýrasýslu boöar til fundar aö Hótel Borgarnesl (efri
sal) mánudaginn 18. febrúar kl. 20.30.
Dagskrá:
Avörp þingmanna Sjáffstæöisflokksins í Vesturlandskjördæmi. Frlöjóns
Þóröarsonar og Valdimars Indriöasonar.
Orkumál: Birgir Isleifur Gunnarsson. formaöur stórlöjunefndar, hefur
framsögu.
Á eftir verða almennar umræöur. Allir velkomnír.
Stjórnin.
Austur-Skaftfellingar
Sunnudaginn 17. þ.m. kl. 20.30 heldur Sjálf-
stæðisfélag A-Skaftfellinga félagsvist í Sjálf-
stæðishúsinu.
Allir velkomnir.
Stjórnin.
Nefndin.