Morgunblaðið - 17.02.1985, Qupperneq 62

Morgunblaðið - 17.02.1985, Qupperneq 62
62 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 17. FEBRÚAR 1985 t Faöir okkar. VALDIMAR EINARSSON, Blikabraut 9, Kaflavfk, andaöist i Landakotsspítala föstudaginn 15. febrúar. Börn hins látna. t Faöir okkar, LÁRUS DANÍELSSON, Fremri-Brekku, Dalasýslu, lést á St. Jósepsspítala i Hafnarfiröi þann 16. febrúar. Guömundur Lárusson, Guörún Lárusdóttir, Valgeróur Lárusdóttir. t Eiginkona min, móöir, tengdamóöir og amma, LAUFEY ÓLAFSDÓTTIR, Meöalholti 14, veröur jarösungin frá Háteigskirkju kl. 13.30 þriöjudaginn 19. febrúar. Sveinbjörn Sigurósson, börn, tengdabörn og barnabörn. t Stjúpfaöir og bróöir okkar, ÓSKAR H. HALLDÓRSSON, Brautarholti 20, veröur jarösunginn frá Fossvogskirkju, mánudaginn 18. febr. kl. 10.30. Fyrir hönd stjúpbarna og systkina hins látna. Jóna G. Ásgeirsdóttir. t bökkum innilega auösýnda samúö viö andlát og útför fööur okkar, SIGURÐAR MAGNÚSSONAR, fyrrverandi fulltrúa hjá Rfkisútvarpinu, frá Syöri-Löngumýri, Leifsgötu 28, Reykjavfk. Fyrir hönd ættingja, Jón Sigurösson. Sendum okkar innilegustu þakkir fyrir auösýnda samúö og vinarhug viö andlát og jaröarför mannsins mins, fööur okkar, sonar og bróöur, JÓNS ST. RAFNSSONAR, tannlseknis Stekkjarseli 1. Marfa Gfsladóttir, Rafn Jónsson, Rafn Jónsson, Gfsli Jónsson, Hulda Olgeirsson, Hulda Björg Jónsdóttir, Sigrún Rafnsdóttir, Sveinbjörn Rafnsson, Vilhjálmur Rafnsson. t Okkar innilegustu þakkir til allra er sýndu samúö og hlýhug viö andlát og jaröarför eiginmanns mins, fööur, tengdafööur og afa, TEITS SVEINBJÖRNSSONAR, Óldugötu 6, Benedikta Bjarnadóttir, Guölaug Teitsdóttir, Ársæll Másson og barnabörn. t Þökkum auösýnda samúö viö andlát og útför móöur okkar, tengdamóöur og ömmu, GUÐRÚNAR ÞORSTEINSDÓTTUR, Brúnatööum, Reykjavfk, Svanhildur Ingimundardóttir, Axel Þórir Gestsson, Hilmar Ingimundarson, Erla Hatlemark, og barnabörn. Sigurður Björns son — Minning Fæddur 25. desember 1959 Dáinn 10. febrúar 1985 Það ríkti óvenju mikill fögnuður á heimili þeirra hjóna Sigríöar Jó- hannsdóttur og Björns L. Sifíurðs- sonar, húsasmíðameistara, á jóla- dag 1959. Þeim hafði fæðst sonur þann dag, sem í senn var vel gerður og heilbrigður. Betri jólagjöf var vart hægt að gefa ungum hjónum og ársgamalli dóttur þeirra Jóhönnu. Þau bjuggu þá á æskuheimili Björns við Etergstaðastræti. Hnokkinn var vatni ausinn og hlaut nafn afa síns, Sigurðar brú- arsmiðs Björnssonar. Alnafnarnir bjuggu í sama húsi um árabil báð- um til óblandinnar ánægju. Happ henti okkur Inger, er Björn bróðir og Sigríður buðust til þess í byrjun sjöunda áratugarins að byggja með okkur tvíbýlishús við Safamýri. Hér í friðsælum götuhluta ólust börn okkar upp við nám, leik og störf. Vinatengsl ómetanleg mynduðust milli hinna eldri og yngri íbúa götunnar og eru þau enn órofin. Siggi var okkur öllum einkar ástkær. Vinsæll í hópi leikfélaga var hann, úrræðagóður og hjálp- samur. Hann kveður nú fyrstur yngri kynslóðarinnar, en minning- in um góðan dreng mun lifa í hjörtum okkar allra, sem honum kynntust. Ógleymanlegar verða okkur öll- um fjölskyldunni árlegar heim- sóknir á heimili þeirra Sigríðar og Björns á jóladag. Tvölfaldri af- mælishátíð fagnað með ljúffeng- um mat og fögrum jólasöngvum. Systur Sigga, Jóhanna, María og hálfsystir hans Guðbjörg, voru allar söngelskar en þá er afmælis- barnið sjálft, Siggi, söng fyrir okkur jólasálminn „Bjart er yfir Betlehem" og úr augum hans skein einlæg gleði og ástúð þá vöknuðu hvarmar og jólahátíðin í hámarki. Bernskuárin liðu í góðra vina hóp. Hann fluttist með foreldrum sínum og systrum, upp í Ljárskóga eftir 15 ára dvöl í Safamýri. Þar undi hann þó ekki hag sínum eins vel og á gamla staðnum. Þá er hann hafði lokið námi við Mennta- skólann við Hamrahlíð og tekið stúdentspróf þaðan vorið 1980, sá hann sér leik á borði og flutti í litla íbúð föður síns í sama húsi og áður. Þótti okkur hjónum góður kost- ur að fá Sigga á ný sem húsfélaga. Héðan úr Safamýrinni var stutt til æfinga í íþróttum með gömlum félögum úr Fram. Blak var hans uppáhaldsíþrótt og var Sigurður þar í fremstu röð félaga sinna. Þá aflaði hann sér dómararéttinda i þessari grein og þótti í því starfi meðal þeirra færustu. Sigurður stundaði nám um skeið f sögu við Háskóla Islands. Hugur hans beindist að ferðalög- um innanlands og utan, kynnum af landi og þjóð sem og siðum og háttum framandi þjóða. Öflun fjár til uppfyllinga þess- ara óska sinna var nauðsyn. Hon- um voru í blóð borin frá báðum ættum vinnusemi og verklagni. Hann var eftirsóttur járnalagn- ingamaður, harðduglegur og vand- virkur. í handraðann safnaði Sigurður fé, svo að draumurinn mætti ræt- ast. Óskastundin rann upp. Nokkra mánaða ferð um Asíulönd þver og endilöng var ákveðin. Ferðafélagarnir voru systir hans Jóhanna og vinkona hennar, Anna Björg Sveinsdóttir, en báðar út- skrifuðust úr Kennaraháskólan- um sl. vor. Hófu þau hina örlaga- ríku ferð í lok sept. sl. Ung og hraust, tápmikil og traust hurfu þau á lítt kunnar slóðir. Rússland-Sibería-Japan-Hong Kong-Kína-Filippseyjar-Singa- pore. Fréttir frá þessum stöðum í máli og myndum bárust okkur fjölskyldum þeirra reglulega. Eft- irvænting, gleði þakklæti forsjón- inni fyrir ógleymanleg ævintýri og dygga handleiðslu voru þeirra orð í síma frá Singapore þrem dögum fyrir hinn ógnvekjandi atburð. Örlögin voru ráðin Skapanornirnar höfðu lokið spuna lífsvefs trausts ferðafélaga, ástkærs bróðurs og einlægs vinar, um miðnætti í langferðabíl í Malaysíu. Árekstur. Hörmulegt umferðarslys. Tvær ungar stúlkur með dauðvona bróður og ferðafé- laga í fanginu í órafjarlægð frá fjölskyldu og vinum. Drottinn er allstaöar nálægur. Hinn miskunnsami Malaysíubúi, Mr. Moud Zakaria, kom til hjálpar ótilkvaddur. Rétti fram líknandi hönd en sjúkrahúsvistin varð skammvinn, aðeins þrjár stundir. Mr. Zakaria veitti frábæra að- hlynningu syrgjandi örmagna ungmennum á eigin heimili. Leit- aði uppi ræðismann íslands, Mr. Graham G. Hayward, í Kuala Lumpur. Sýndi hann þeim einnig einlæga fórnfýsi og hjálpsemi. Öll þrjú voru þau komin heim til Islands tveim sólarhringum eftir atburð- inn. Fjölskylda hins látna biður báð- um áðurnefndum bjargvættum, guðs blessunar fyrir ómetanlega hjálp. Dugnaður og styrkur sá, sem gefinn var hinni ungu systur Sigga og vinkonu hennar er guðs gjöf, sem aldrei má gleymast. Elsku Sigga, Bjössi og systur. Dýrmæt gjöf var ykkur gefin á jólum. Þið varðveittuð hana af kostgæfni í aldarfjórðung. Nú geymir góður guð son ykkar og bróðir um eilífð alla. Ljúfar minn- ingar munu varðveitast í huga ykkar og okkar sem urðum honum samerða frá fyrstu tíð. Siggi heldur nú áfram för sinni um lönd eilífðarinnar, sem böðuð eru í birtu ljóssins föður. Við Inger og fjölskylda okkar óskum Sigga fararheilla og þökk- um honum samfylgdina. Vinur minn og frændi verður jarðsunginn frá Fossvogskirkju kl. 15, mánudaginn 18. febrúar. Blessuð sé minning hans. Benedikt B. Sigurðsson t Þökkum auösýnda samúö og hlýhug viö andlát og útför móöur okkar, tengdamóöur, ömmu og langömmu, UNNAR PJÉTURSDÓTTUR, Sólheimum 23, Raykjavfk, Sérastakar þakkir til Guöjóns Lárussonar læknis og starfsfólks gjörgæsludeildar Landakotsspitala. Þakkarkort veröa ekki send til þeirra fjölmörgu er hafa sent okkur samúöarkveöjur, þess i staö hefur Styrktarsjóöur St. Jósefsspitala Landakoti veriö færð minningargjöf. Pétur Einarsson, Kristfn Sveinsdóttir, Guörún Einardsóttir, Unnur Einarsdóttir, Sigurður K. Brynjólfsson, barnabörn og barnabarnabörn. „Margs er að minnast, margt er hér að þakka; guði sé lof fyrir liðna tíð. Margs er að minnast, margs er að sakna; guð þerri trega-tárin stríð." (Vald.Briem) Elsku Sigga kveð ég nú með miklum söknuði og sorg. í blóma lífs síns var hann skyndilega kall- aður á brott. Eftir stöndum við hin, sem unnum honum svo heitt, vanmegnug og felmtri slegin. Hann gaf okkur svo mikið og svo ómetanlegt. Viðmót hans var blandið hlýju í garð vina sinna og hann bar ávallt hag þeirra fyrir brjósti. Illkvittni og rógburð í garð náungans lét hann eins og vind um eyru þjóta. Hann var bjargið sem byggja mátti á. Skarð hans verður seint fyllt. Foreldrum, systkinum og öðrum aðstandendum votta ég mína inni- legustu samúð. „Far þú í friði, friður guðs þig blessi, hafðu þökk fyrir allt og allt. Gekkst þú með guði, guð þér nú fylgi, hans dýrðarhnoss þú hljóta skalt.“ (Vald.Briem) Bryndís Helga „í dagsins önnum dreymdi mig þinn djúpa frið, og svo varð nótt. Ég sagði í hljóði: Sofðu rótt, þeim svefni sem enginn rænir þig. En samt var nafn þitt nálægt mér og nóttin full af söngvaklið svo oft, og þetta auða svið bar ætíð svip af þér. Og þungur gnýr sem hrynji höf mitt hjarta lýstur enn eitt sinn: Mín hljóða sorg og hlátur þinn, sem hlutu sömu gröf.“ (Steinn Steinarr) Brátt rennur upp sú stund, er við kveðjum vin okkar Sigurð Björnsson. Hann var einn úr hópnum okkar. Við skildum við hann á góðri stund í september, er hann hélt til Austurlanda. Við bjuggumst við honum aftur um nýárið, en hann hugðist fresta heimkomunni fram á vor. Við fylgdumst með ferðum hans og ævintýrum í gegnum bréf hans. Það var eins og hann væri alltaf nálægur. En nú er hann horfinn. Það verður aldrei hægt að fylia upp í það tóm sem hann skilur nú eftir sig. Því Siggi hafði alveg ein- stakan persónuieika. Það var hægt að ræða við hann um allt milli himins og jarðar án þess að rekast á vegg fordómanna sem títt er hjá mörgu okkar. Hjá honum mætti maður alltaf fullum skilningi og trausti. Það var viss styrkur að hafa hann til staðar. Nú er eins og búið sé að kippa fótunum undan stólnum og maður situr eftir án festu. „Þá fyrst skiljum vér dauð- ann er hann leggur hönd sína á einhvern sem vér unnum." (De Staél). Við vottum fjölskyldu hans og vinum innilega samúð. Birna og Særún
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.