Morgunblaðið - 17.02.1985, Side 68

Morgunblaðið - 17.02.1985, Side 68
SnfiRSTlilKTMUST qjlið 9. OD-00.30 SUNNUDAGUR 17. FEBRÚAR 1985 VERÐ í LAUSASÖLU 25 KR. Hafnarfjörður: Tveir ungir bræður far- ast í eldsvoða TVEIR bræður, 4 ára og 8 ára, létust í eldsvoða í Hafnarrirði í gærmorgun. Drengirnir voru gest- komandi hjá frændfólki. Heimilisfaðirinn komst út úr Bolla, bolla BOLLUDAGUR, en svo er nefndur mánudagurinn í föstu- inngangi, er á morgun. Snemma morguns þjóta börnin upp úr rúminu og sveifla bolluvendin- um ótæpilega, svo þau fái góm- sætar rjómabollur að launum. Siður þessi mun hafa borist hingað frá frændum okkar Dönum og Norðmönnum á sið- ari hluta 19. aldar og hefur fyr- ir löngu áunnið sér fastan sess hjá þjóðinni. Morf{unbla»ið/ÓI.K.M. brennandi húsinu með eiginkonu og barn sitt og fór síðan inn til þess að freista þess að bjarga drengjunum. Slökkviliðið kom skömmu síðar á vettvang og leit- uðu slökkviliðsmenn inngöngu í brennandi húsið. Þeir fundu drengina og heimilisföðurinn meðvitundarlausa á efri hæð hússins. Þeir voru umsvifalaust fluttir í sjúkrahús. Bræðurnir voru þá látnir, en maðurinn komst til meðvitundar um há- degisbilið í gær og liggur nú á gjörgæzludeiíd Borgarspítalans. Slökkviliðið í Hafnarfirði var kvatt á vettvang klukkan 5.18 i gærmorgun. Mikill eldur var laus á neðri hæð hússins, sem er tveggja hæða steinhús. Bræð- urnir sváfu í herbergi á efri hæðinni. Slökkvistarf tók um eina klukkustund. Miklar skemmdir urðu af völdum elds á neðri hæðinni þar sem eldsupp- tök voru og talsverðar skemmdir af völdum sóts og reyks á efri hæðinni. Ekki er hægt að skýra frá nöfnum drengjanna að svo stöddu. fW ’ ~xr J /& Jf/ . ■ * " ■ J t', ■€’*' m MorgunblaAiA/RAX. FYRSTISNJOR ARSINSIREYKJA VIK SNJÓRINN verður viðloðandi í Reykjavík fram á mánudag, sam- kvæmt upplýsingum Veðurstofunn- ar. Síðla föstudagskvölds byrjaði að kyngja niður snjó í Reykjavik og mun það vera fyrsta snjókom- an á þessu ári á höfuðborgar- svæðinu, að sögn lögreglunnar. Veðurfræðingar segja, að á morgun muni aftur hlýna og næstu viku skiptist á skin og skúrir, eða öllu heldur snjókoma og hláka. Spáin fyrir landið allt er þokkaleg næstu daga, að sögn fræðinganna. Suðvestan- og vestanátt er ríkjandi á landinu öllu og búast má við éljum á vestanverðu landinu. Á Norður- og Austurlandi birtir og hitastig verður víðast hvar um frost- mark. Lögreglan var ánægð með frammistöðu borgarbúa í um- ferðinni í gær, þegar tillit er tek- ið til æfingarleysis þeirra við akstur í snjó. í gærmorgun urðu þrír árekstrar og taldi lögreglan það varla fréttnæmt miðað við aðstæður. Allt bendir til verk- falls sjómanna í dag „ÞAÐ á sér enga hliösUeðu í samn- ingamálum að hafna tilboðum án þess að slaka nokkuð á upphaflegum kröfum. Það merkir bara það, að ekki eigi að semja, það eigi að fara í verkfall. Við getum ekki ráðið við þann fasta ásetning sumra forystu- manna sjómanna. Verkfall á að skella á klukkan 18 á sunnudag. Miðað við þessi viðbrögð sjómanna Niðurstaða Kjaradóms í gær: Taka verður launakerfi BHM til endurskoðunar KJARADÓMUR kvað í gær upp dóm í máli Bandalags háskóla- manna hjá ríkinu og fjármálaráðherra fyrir hönd ríkissjóðs. Sam- kvæmt honum er búinn til nýr launastigi, sem meðlimir BHM raðast í eftir væntanlegum sérkjarasamningum. Ekki er kveðið á í dómi Kjaradóms um beinar kauphækkanir. Neðstu launaflokk- ar eru felldir niður og launaþrepum fjölgað og þeim breytt. Gert er ráð fyrir að ómæld yfirvinna, sem tíðkast hefur, verði tekin inn í kaup og hugsanlegar hækkanir síðar eftir könnun Þjóðhags- stofnunar. í dómi Kjaradóms segir meðal annars: „Eftir þeim upplýsing- um, sem liggja fyrir, verður samt að álykta, að gildar ástæð- ur séu til að taka launakerfi há- skólamenntaðra ríkisstarfs- manna manna til endurskoðun- ar.“ 1 dómsorði viðurkennir Kjaradómur, að meðallaun há- skólamanna við störf annars staðar en hjá ríkinu séu hærri. Þá segir: „Launastigi núgildandi samnings veítir svigrúm til að unnt sé við röðun starfsheita í launaflokka a ð taka tillit til sjónarmiða sóknaraðila (BHM) um viðmiðun við kjör háskóla menntaðra manna annars staðar en hjá ríkinu, sbr. það ákvæði aðalkjarasamning s, að auka megi við launastigann launa- fiokkum eftir þörfum. Rétt þykir samt að gera breytingar á launa- stiganum, fella niður neðstu fioícka hans sem litt eð a ekki eru notaðir og breyta og fjölga þrepum. Er þá um leið komið til móts við sjónarmið sóknaraðila í þá átt, að allar starfsaldurs- hækkanir og fiokkatilfærslur séu ákveðnar i aðalkjarasamn- ingi og ákvæði þess efnis felld úr sérkjarasamningum. Þetta veld- ur þvi, að óhjákvæmilegt verður að semja á ný um grunnröðun starfsheita í launaflokka. Til að undirstrika þetta er auðkennum launaflokka breytt. 1 breytingu launastigans felst hins vegar engin ákvörðun um launahækk- un, þó að röðun starfa í launa- flokka kunni síðar að leiða til leiðréttinga á kjörum eða beinna launahækkana." bendir allt til þess, að það komi til. Við komum með mjög hátt tilboð, en þeir koma ekkert i móti. Kannski er það vegna þess, að ekki miðar neitt hjá þeim i öðrum vígstöðvum,“ sagði Kristján Ragnarsson, fram- kvæmdastjóri LÍÚ, í samtali við Morgunblaðið. Eins og fram hefur komið í Morgunblaðinu höfnuðu sjómenn tilboði útvegsmanna i gær. Það hljóðaði upp á 20% hækkun tekju- tryggingar og 15% hækkun fastra launa á stórum skuttogurum á samningstímanum, 15% og 10% við undirskrift og tæp 5% á næstu þremur mánuðum, sem skyldi vera út næsta ár. Ennfremur skyldu kaupliðir taka sömu hækk- unum á samningstímanum og laun verkafólks í landi. Fundi hjá sáttasemjara var því slitið um miðnættið f gær og verður næsti sáttafundur í deilunni klukkan 10 árdegis í dag, sunnudag. Verkfall sjómanna hefst klukkan 18, hafi samningar ekki náðst fyrir þann tíma. „Sjómenn eru ennfremur í við- ræðum við tvo aðilja, ríkisstjórn- ina vegna kostnaðarhlutdeildar- innar og okkur vegna kaupliðanna og kauptryggingarinnar. Við vit- um því ekkert hvort samninga- málin stöðvast vegna kröfu þeirra á okkur eða ríkisstjórnina. Slík staða er augljóslega mjög erfið, við ráðum ekkert við kostnaðar- hlotdeildina, hún ér ^ett á með lögum,“ sagði Kristján Ragnars- son. Guðjón A. Kristjánsson, forseti Farmanna- og fiskimannasam- bands íslands, sagði i samtali við Morgunblaðið, að tilboð útvegs- manna hefði ekki falið í sér nægi- lega hækkun kauptryggingar. Sjó- menn myndu haida sig við kröf- una um tvöföldurn kauptryggingar og fastra launa á stóru togurun- Fiskveiðiflotinn stöðvast ef til verk- falls kemur og ef það dregst á lang- inn er hætt við að loðnuvertíðinni sé lokið þvf komið er að hrygningu. um, þegar sezt yrði að samninga- borðinu á sunnudag. Hann teldi talsverðar líkur á verkfalli, því auk þess að þessi mál væru óíeyst, væri enn ekki búið að ganga frá líftryggingamálum. Þá stæði kostnaðarhlutdeildin enn eftir, en mikil nauðsyn væri á þvf, að fá hana lækkaða, en viðræður um það við ríkisstjórnina stæðu nú yf- ir.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.