Tíminn - 15.09.1965, Qupperneq 2
TÍMINN
MIÐVIKUDAGUR 15. september 196!
Úrslitin í Noregi hafa
áhrif í nágrannalöndun
Framhald af bls I
ar á skiptingu atkvæðamagns
ins væru yfirleitt í þá átt,
að styrkja Vinstri flokkinn og
Miðflokkinn, en síður íhalds-
flokkinn, og væri þetta mikill
kostur við það stjórnmálaá-
stand, sem nú hefði skapazt.
Mjög er nú rætt um, hver
verði forsætisráðherra hinnar
nýju stjómar.
Fyrir kosningarnar var Bent
Röiseland, Þingmaður Vinstri
flokksins, mjög umtalaður sem
hugsanlegur forsætisráðherra
hinnar nýju stjórnar, og eftir
sigur Vinstri flokksins í kosn-
ingunum, er staða hans mjög
styrkt. Blaðið Verdens Gmg í
Osló ræðir þetta nokkuð í dag,
og skrifar, að Röiseland sé lík
legastur. Fyrir kosningar var
helzta hindrunin á vegi hans til
þessa embættis, að þingílikkur
Vinstrimanna var minni en
þingflokkur Miðflokksins. En
nú er þetta breytt, og hafa
flokkarnir jafnmarga þing-
menn. Em því sterkar líkur á
að Röiseland verði næsti for-
sætisráðherra Noregs.
Blaðið Information í Dan-
mörku ræddi þetta nokkuð s. 1.
laugardag og taldi, að ef Röise-
land yrði forsætisráðherra, þá
myndi stefnarilhinnar nýju
stjómar ekki vera eins 'frá-
brugðin stefnu stjórnar Ger-
hardsens og ef að íhaldsmenn
hefðu fengið forsætisráðherr-
ann, því að í flestum málum sé
Vinstri flokkurinn nær Verka-
mannaflokknum en íhalds-
flokknum. Hefur blaðið það
eftir Gunnar Garbo, formanni
flokksins, að ástæðan fyrir því,
að Vinstri flokkurinn myndi
ekki stjóm með Verkamanna-
flokknum sé einfaldlega, að
það sé ekki „verkefni Vinstri
flokksins að koma á fót eins-
flokksríki".
Næstur Bent Röiseland sem
forsætisráðherraefni telur
Verdens Gang, að komi Per
Borten, formaður Miðflokksins.
Blaðið segir síðan: — „íhalds-
flokkurinn mun örugglega
stinga upp á John Lyng sem
forsætisráðherraefni einnig nú,
þótt hann sitji ekki á hinu
nýja þingi. En eftir að mið-
flokkarnir hafa styrkt stöðu
sína eins mikið og raun ber
Einar Gerhardsen, forsætisráSherra, og John Lyng, leiðtogi íhaldsflokksins. Myndin er tekin skömmu
áður en þeir komu fram, ásamt
vitni í þessum kosningum, þá
hlýtur það að vera eðlilegasta
lausnin, að þeir fái forsætisráð
herrann að þessu sinni“.
í síðustu rikisstjórn þessara
fjögurra flokka, sem sat við
völd í fjórar vikur haustið
1963, voru 15 ráðherrar. Þeir
skiptust þannig milli flokka, að
íhaldsmenn fengu 5 ráðherra,
Lyng meðtalinn, Miðflokkur-
inn fékk 5, Vinstriflokkurinn 3
og Kristilegi þjóðarflokkurinn
3. Er talið, að Vinstri flokkur-
inn muni fara fram á, að fá
fleiri ráðherra, þar sem flokk-
urinn hefur nú jafn marga þing-
menn og Miðflokkurinn, og þá
líklega á kostnað Kristilega
þjóðarflokksins.
John Lyng, leiðtogi íhaF
manna, sagði í útvarpsdagsk*-*
í kvöld, að skipan ríkis-
stjórnarinnar yrði ákveðin eins
fljótt og hægt væri, en endar.-
leg ákvörðun yrði ekki tekin
fyrr en hinir nýju þingflokkar
kæmu saman. Einnig þyrftu
öðrum flokksleiðtogum, í norska
V-Íi .’i * ' . SGCjÍU 'liíUfl iiUSl i
flokkarhir að ræða önnur niái,
t. d. hverjir eigi að verða þíng
forsetar, hvernig sambandinu
milli þingflokkanna fjögurra
verður komið fyrir og fleira.
1 Gerhardsen sagði, að ríkis-
stjórnin myndi, eins og venja
er, leggja fram lausnarbeiðni
sína þegar þingið kemur saman
að nýju.
Nils Langhelle, þingforseti,
sagði, að e. t. v. gæti konungur
sett hið nýja þing 7. október
n. k., en það er þó ekki víst.
En alla vegana tekur hin nýja
stjórn ekki við völdum fyrr en
í næsta mánuði. Haakon Lie,
framkvæmdastjóri Verkamanna
flokksins, sagði í útvarpinu, að
nú hefði það gerzt, sem hann
hefði aðallega óttazt, þ. e. að
nýr meirihluti myndaðist á
þingi, I-Iann taldi tvennt aðal-
lega hafa komið til greina í
sambandi við úrslit kosning-
anna, annars vegar sameining
samstarfsflokkanna fjögurra,
m. a. á sameiginlegum listum,
ÚRSLITIN
ÖLUKVI
Endanlegar tölur liggja ekki fyrir um úrslit kosninganna, þar sem eftir er að telja atkvæði, sem
greidd voru fyrir kosningadagana í Osló. Síðasta iandsyfirlit, sem iiggur fyrir var gert eftir aS
talið hafði verið í 553 kjörstöSum af 558, en þeir 5 kjörstaðir, sem ekki eru með í yfirlitinu, nrunu
ekki hafa nein áhrif á niðurstöðuna. Samkvæmt þessu yflrliti skiptast atkvæðin mílli flokkanna
á eftirfarandi hátt, og eru. tölumar innan sviga frá síðustti þingkosningum árið 1961:
Verkamannaflokkur 860.540 (844.476) 43.6% (47.0%)
íhaldsflokkur 386.336 (339.645) ' 19.6% (18.9%)
Vinstri flokkur 200.053 (131.337) 10.1% (7.3%)
Miðflokkur 189.847 (124.623) 9.6% (6.9%)
Kristilegi Þjóðarflokkurinn 154.360 (169.384) 7.8% (9.4%)
Sósíalistíski Þjóðarflokkurinn 118-340 (42.375) 6.0% (2.4%)
Samstarfslistar 34.874 (92.340) 1.8% (5.1%)
Kommúnistar 28.388 (52.092) 1.4% (2.9%)
Aðrir flokkar 429 (475) 0-0% (0.0%)
sjónvarpinu i fyrrlnótt. Símam.)
og skipting sósíalista í þrjá
flokka. Gunnar Garbo, leiðtogi
Vinstri flokksins, sagði, að sig-
ur flokks síns nú væri árangur
þeirrar sjálfsathugunar, sem
farið hefði fram innan flokks-
ins eftir kosningarnar 1961.
Mikið hefur verið sagt og
skrifað um norsku kosningarn-
ar, bæði í Noregi, nágranna-
löndunum og ýmsum Evrópu-
ríkjum öðrum. Virðist sú skoð-
un nokkuð útbreidd, að úrslit-
in í Noregi muni hafa áhrif á
stjórnmálaástandið í nágranna-
löndunum, og þá ef til vill sér-
staklega Danmörku, þar sem
norska stjómarandstaðan hafi
sýnt, að samstaða þýðir sigur.
Norsku blöðin skrifa í for-
ystugreinum um úrslit kosn-
inganna, og sýnist sitt hverj-
um að sjálfsögðu. Hér á eftir
koma álit nokkurra dagblaða
frá flestum flokkum, en Kristi-
legi þjóðarflokkurinn og Sósíal-
istíski þjóðarflokkurinn hafa
engin dagblöð:
Arbeiderbladet (Verkamenn)
segir, að kosningaþátttakan hafi
verið mikil, en að þessu sinni
hafi það komið stjórnarand-
stöðuflokkunum til góða. Hafi
moguleikar á nýrri stjórn vald
ið þvi, að þessir flokkar hafi
„smalað“ til hins ítrasta.
Kommúnistarnir hafi stórtapað,
en Sósíalistíski þjóðarflokkur-
inn unnið mjög á hvað atkvæða
magn snertir. Segir blaðið, að
listum þessa flokks og kommún
ista hafi tekizt að kljúfa at-
kvæði verkalýðsins það mikið,
að Verkamannaflokkurinn hafi
tapað þingmönnum sínum, þar
sem aðeins munaði fáum at-
kvæðum, og jafnframt eyðilagt
möguleikana á því að sigra
þingsæti á fjórum stöðum, þar
sem Verkamannaflokkurinn
hafði sigurmöguleika. Hafi
norsk verkalýðshreyfing enn
einu sinni reynt, að klofningur
innan hennar þjóni aðeins and-
stæðingunum.
Dagbiadet (Vinstrimenn)
segir: — Verkamannaflokkur-
inn hefur tapað kosningunum.
í ijós hefur komið, að kjósend-
ur hafa tekið heilbrigða af-
stöðu til þeirrar stjórnar, sem
flokkurinn hefur staðið að síð-
ustu árin, og þá mörgu undar-
legu atburði, sem átt hafa sér
stað innan Gerhardsen-stjórn-
arinnar. Við teljum, að þjóðfé-
lagið græði á því, að nýir og
ferskir kraftar fái að spreyta
sig. Nú er tími til raunveru-
legrar sjálfsrannsóknar innan
Verkamannaflokksins, en kosn
ingaúrslitin leggja einnig
mikla ábyrgð á herðar sigur-
vegaranna. Nú er óhjákvæmi-
legt að framkvæma kosningalof
orðin og sýna, að hægt er að
veita landinu betri og framtaks
samari stjórn en Verkamanna-
flokkurinn hefur gefið síðustu
áriti.
Nationen (Miðflokkurinn)
segir, að þegar flokkur hafi
setið eins lengi við völd og
Verkamannaflokkurinn hafi
gert, þá komi fram sú eðlilega
ósk meðal kjósenda, að skipta
um og fá nýja krafta til að
spreyta sig á stjóm landsins,
enda sé það undirstaða raun-
verulegs lýðræðis. Blaðið seg-
ir, að aðalástæðan fyrir tapi
Verkamannaflokksins, séu þau
mörgu mistök, sem átt hafa sér
stað innan stjórnar Gerhard-
sens síðustu árin.
Aftenposten (íhaldsmenn)
segir, að það hafi, meðal kjós-
enda, verið útbreidd skoðun,
að það yrði til góðs að fá nýja
stjórn eftir langa setu Verka-
mannaflokksins, og að eins virð
ist svo, sem Verkamannaflokk
urinn hafi ekki fengið mikið
fylgi meðal þeirra, sem nú
greiddu atkvæði í fyrsta sinn.
Friheten (kommúnistar) seg
ir, að niðurstaða kosninganna
sé alvarlegur ósigur fyrir verka
lýðshreyfinguna, og bendir á
að stjórnarandstöðuflokkarnir
fjórir hafi fengið hreinan meiri
hluta á þingi, þótt þeir hafi
ekki meirihluta kjósenda á bak
við sig. Þá sé um að ræða hrein
an ósigur fyrir Verkamanna-
flokkinn, en Sósíalistíski þjóð-
arflokkurinn hafi aukið mjög
fylgi sitt. Þó séu úrslitin ósig-
ur fyrir alla verkalýðsflokkana
í heild, einnig þann flokk, sem
jók atkvæðamagn sitt, segir
blaðið. I
Verdens Gang (óháðir) seg-
ir, að Verkamannaflokkurinn
sé þreyttur og útslitinn, og hafi
ekki lengur tök á hlutunum.
Ríkisstjórnin hafi gert mörg
mistök, en hafi samt sem áður
talið sig óskeikula. Það sé ekki
aðeins um að ræða mistök í iðn
aðinum, heldur einnig hæfi-
leikaleysi í baráttunni við verð
bólguna, stöðnun í skattamál-
um, mistökum í íbúðabygginga-
málum og í menntamálum og
umferðamálum, segir blaðið,
og fullyrðir, að kjósendur vilji
ákveðnari stjórn, nýjar hug-
myndir og nýtt frumkvæði.
Norges Handels- og Söfarts-
tidende (íhaldsblað) segir, að
samstarfsflokkarnir fjórir hafi
ekki fengið meirihluta atkvæða
og sé rétt að minna á, að það
gefi flokkunum fjórum siðferð-\
islega séð veikari aðstöðu í þýð
ingarmiklum málum, en einnig
sé það áskorun á flokkana um
að vinna algeran meirihluta at-
kvæða i næstu kosningum. Þá
segir blaðið það gleðileg úrslit
Framhald a nls l?
i