Tíminn - 15.09.1965, Síða 3
HHíVJKlfDAtnjR 15. september 1965
TÍMINN
8
ISPEGLITIMANS
Þessi lögulega tízkusýningar-
dama heítir Nicky Bradley og
er hér að sýna baðfatatízkuna
í London fyrir sumarið 1966.
Það er eins gott að vera búin
Þetta er hinn heimsþekkti
rússneski ballettdansari Rudolf
að gera það upp við sig í tæka
tíð, hvernig baðföt á að kaupa
fyrir næsta sumar. Maðurinn á
myndinni er ástralski söngvar-
inn Beau Brummell.
Nourejev á frönsku Rívíerunni,
en þar er hann við æfingar
þessa dagana með ástralska
ballettinum, sem mun sýna í
Nice eftir nokkra daga.
★
Velþekktur brezkur læknir
heldur því fram, að nokkrir
dropar af Whisky auki aksturs
hæfni manna. Skrifaði hann all
langa grein í læknatímarit, þar
sem hann segir, að jafnvel Þótt
það sé talið sannað, að einfald-
ur Whisky-sjúss geri ökumenn
óhæfa til þess að aka bíl, sýni
vísindalegar tilraunir það, að
lítið magn af Whisky bæti akst
urshæfni ökumanns.
★
í kokkteilboði nokkru spurði
ung leikkona Orson Welles,
hvort hann þekkti nýja unga
leikarann James Smith. — Ó,
já, svaraði Welles. — Ég vildi
svo gjarnan kynnast honum,
sagði leikkonan unga. Hvernig
á ég að þekkja hann frá öðr-
um. — Ja, ef þér sjáið tvo
menn saman og öðrum lítur út
fyrir að leiðast hörmulega, þá
er James Smith hinn maður-
Brezki kennslumálaráðherr-
ánn Geoffrey Lloyd opnaöi ný
lega skóla í London, það er að
segja, hann talaði í tuttugu
mínútur, en gleymdi að lýsa
því yfir, að skólinn væri opnað
ur. Formaður skólanefndarinn
ar sagði meðal annars í þakk-
arræðu sinni: — Ég vil leyfa
mér að þakka ráðherranum fyr
ir að hafa ætlað að lýsa því yf-
ir, að skólinn væri tekinn í
notkun-
☆
Rithöfundurinn Alister Mac
Lean (The Guns of Navarone)
hefur nýlega keypt sér enskan
„pub“. Er þetta annar „pubinn
sem hann kaupir. Fyrír einu
ári síðan keypti hann Jamaica
Inn, sjóræningjabæli frá 17.
öld við strönd Comwall og
hann borgaði hátt á 5. milljón
króna fyrir hana. Nú hefur
hann keypt The Bank House,
sem er vinsæl sveitakrá í Wor-
cesthire og er frá 19. öld. Það
er ekki að tala um neina róm-
antík. Ég legg mína peninga í
krár. Það er öruggara en að
hugsa um hlutabréf í íðnaðin-
um.
★
Kardínálinn í Boston, Ric-
hard Cushing, heimsótti nýlega
land forfeðra sinna, frland, og
kom þar mjög á óvart sökum
kímni sinnar. Um æsku sína
sagði hann: — Upphaflega ætl
aði ég að verða Jesúíti, en nótt
ina áður en ég var tekinn í
regluna, dró ég mig til baka.
Það hafa Jesúítarnír Þakkað
gúði fyrir síðan. Þegar hann
vígði kvennaskóla í írlandi,
kyssti hann 18 ára gamla
stúlku á kinnina í þak'klætis-
skyni fyrir ræðu, sem hún
flutti honum til heiðurs. Á eft-
ir sagði hann við hana: —
Þetta er í fyrsta og síðasta
sinn, sem kardínáli kyssir þig.
'‘Fruiri llitur mjög hugsandi út,
meðan hún les dagblaðið; og að
lokum snýr hún sér að manni
sínum og spyr: Segðu mér,
hver er munurinn á beinum
og óbeinum sköttum?
Jú, það skal ég segja þér,
svaraði eiginmaðurinn. Beínir
skattar er það, þegar þú kem
ur og biður mig um peninga,
en óbeinir skattar er það þeg
ar Þú nærð í þá í buxnavasa
minn á nætumar.
Hann heitir Jesus Torres
Garcia, og segist vera fyrrver-
andi strokuhermaður úr
frönsku útlendingahersveit-
inni. Garcia strauk frá herdeild
sinni í Vietnam fyrir 13 árum,
Hvað skyldu mennirnir vera
að gera þarna? Jú, þetta eru
brezkir slökkviliðsmenn að
klifra upp eftir stigum, sem
krækt hefur verið á svalarhand
rið húsins. Það er betra að
þeir séu ekki lofthræddir, þeg
ar þeir þurfa að klifra upp
eftir þessum krækjustigum og
má segja að mikið sé á þá lagt
að þarflausu, Því þessi mynd
er tekin á sýningu, sem þeír
héldu í London.
og hefur síðan búið í Norður-
Vietnam. Þessi mynd var tekin
af honum í 'London, en hann
er á heimlp'' ^oánar með
konu sína Vietnam
mm
Á VÍÐAVANGl
Erfiðir draumar
Dagur á Akureyri segir ný-
lega svo um lestur forystu-
greina dagblaðanna í útvarpiS:
„Ýmsir, sem hlusta á lestur
Reykjavíkurdagblaða í útvarp
ið á morgnana, hafa haft orð
á því við Dag, að ritstjórar
Morgunblaðsins og Vísis munl
vera búnir að fá Framsóknar-
flokkinn „á heilann", sem
kaliað er. Dag eftir dag eyði
þessi biöð forystuigreinum sín-
um í ævintýralegar og nokk-
uð mótsagnakenndar útlistanir
á Framsóknarflokknum, eðli
hans og starfsemi fyrr og síðar,
en aðrir flokkar séu varla
nefndir, jafnvel Sjálfstæðis-
flokkurinn gleymist, — vegna
hins brennandi áhuga á Fram
sókinarfiokknum.
, Samkvæmt því, sem þarna
kemur fram, sé Friamsóknar-
flokkurinn í senn illa inrættur
og síhrellandi saklausa ríkis-
stjórn, sem ekki megi vamm
sitt vita, tækifærissinnaður, í-
haldssamur, kommúnistískur,
sjálfum sér sundurþykkur á-
hrifalaus en komi þó jaflnframt
svo miklu illu til leiðar, að
ekki sé hægt að stjórna land
inu fyrir honum, en þó fylgis
laus að kalla nú orðið og senn
úr sögunni, hafi raunar aldrei
átt neinm 'tilverurétt í iandinu
og því varla umtalsverður.
Einn hlustandinn bætti við:
Það er auðheyrt, að stríðsmenn
Sjálfstæðisflokksins eru ofsa
hræddir við Framsóknarflokk-
inn. Þá dreymir um hami á
nóttunni, skrifa svo leiðarana
um hann á morgnana, nývakn
aðir og með draumaruglið í
koilinum.
En meðal annarra orða:
Hvers vegna eru aldrei lesnar
f útvarpið greinar úr blöðum,
sem gefin eru út utan höfuð-
borgarinnar?"
„Umsóknum rignir
yfir'
Eftirfarandi frásögn í Degi
á Akureyri segir sína sögu um
ástandið i skólamálum úti á
landi:
„Umsóknum rignir nú yfir
Gagnfræðaskólann á Akureyri
hvaðanæva af landinu. Héraðs
skólarnir og heimavistarskól-
arnir virðast allir vera orðn'r
yfirfullir, og geta þeir ekki
lengur tekið við nemendum úr
sínum eigin héruðum, hvað þá
frá öðrum stöðum".
Hér eru sagðar fréttir af á-
standinu í þessum málum.
Skólaskorturinn i landinu
veldur nú miklum erfiðleikum
og hindrar blátt áfram ungt
fólk < því að leita sér þeirrar
undirstöðumenntumar á þeim
aldri. sem það þarf að gerast.
Héraðsskólarnir verða að vísa
jafnmörgum frá dyrum sínum
á hverju hausti og þar komast
fyrir. Samt hefur enginn nýr
héraðsskóli verið byggður f
sex ára tíð „viðreisnar“-stjórn-
arinnar og harla litlar viðbæt
ur verið gerðai við hina eldri.
Stjórnim hcfur staðið eins og
veggur gegn öllum tillögum
Framsóknarmanna um nýja
héraðsskóla á þingi. Einstök
héruð hafa ráðizt í það af van
efnum að reka á eigin spýtur
með takmörkuðum ríkisstuðn-
ingi sjálf vísi að héraðsskól-
um t.d. í félagsheimilum. Skort
urinn segir úú harkálega til
shi, eins og fram kemur í frétt
Framhald á bls 7