Morgunblaðið - 01.05.1985, Qupperneq 2
2 p
MORGUNBLAÐH), MIPVIKUDAGUR1. MAÍ «85 y
Manndrápið á Grettisgötu:
Ákærður fyrir að hafa
valdið dauða með
stórfelldri líkamsárás
OPINBER ákæra hefur verið
gefín út á hendur 37 ára
gömlum manni og 29 ára
konu fyrir að hafa valdið
Reglur um bifreiða-
notkun ráðherra:
Fjármálaráð-
herra og for-
sætisráðherra
segjast báðir
höfundar
RECLUGERÐ sú sem Albert
Guðmundsson fjármálaráðherra
kynnti ríkisstjórninni á fundi
hennar í gær um rekstur bif-
reida í eigu ríkisins gerir ráð
fyrir þvf að ráðherrar geti annað-
hvort átt bíla sína sjálfir, og að
þeir kaupi þá án nokkurrar
niðurfellingar á aðflutnings-
gjöldum, eða að ríkið eigi bflana
og sjái um allan rekstrarkostn-
að. f því tilviki sem ráðherrarnir
eiga bflana sjálfir, greiðir ríkið
allan rekstrarkostnað, viðhald
og afskriftir samkvæmt þeim
reglum sem eru í skattalögum.
Steingrímur Hermannsson
forsætisráðherra sagði um
þessa reglugerð í gær: „Þessi
reglugerð er næstum því orð-
rétt þær tillögur sem ég kynnti
í ríkisstjórninni fyrir tæpum
hálfum mánuði. Það eru ein-
ungis örfáar leiðréttingar og
orðalagsbreytingar."
Albert Guðmundsson fjár-
málaráðherra sagði hins vegar
er hann var spurður hvort
hann hefði byggt reglugerð
sína á tillögum forsætisráð-
herra: „Þessi reglugerð sem ég
kynnti í ríkisstjórninni i gær
var frágengin og tilbúin þegar
forsætisráðherra kynnti tillög-
ur sínar.“
dauða sextugs manns, Sig-
urðar Breiðfjörð Ólafssonar,
í íbúð við Grettisgötu í
Reykjavík í febrúar sl.
Karlmanninum er gefið að sök
að hafa valdiö dauða Sigurðar
með hrottalegri líkamsárás, sbr.
218. grein hegningarlaga, og að
hafa látið undir höfuð leggjast
að koma honum til hjálpar, sbr.
1. málsgrein 220. grein hgl., og
konunni gefið að sök að hafa
sömuleiðis látið undir höfuð
leggjast að koma manninum til
hjálpar.
Konan afplánar nú refsingu
fyrir önnur brot, en gæsluvarð-
haldsvist mannsins var í gær
framlengd allt til 28. júní næst-
komandi. Gert er ráð fyrir að
málið verði tekið til flutnings
31. maí næstkomandi, skv. upp-
lýsingum Sverris Einarssonar
sakadómara.
V
Davíð Oddsson í Jerúsalem
Davíð Oddsson, borgarstjóri í Reykjavfk, dvelst þessa daagna í Jerúsalem í boði borgarstjórans þar,
Teddy Kollek. Á þessari símamynd frá AP-fréttastofunni í gær sjást borgarstjórarnir heilsast. Teddy
Kollek bauð starfsbræðrum sínum frá nokkrum löndum til Jerúsalem í því skyni að kynnast borginni og
þjóðlífi í ísrael.
Frumvarp um greiðslujöfnun lagt fram í næstu viku:
„Á ekki við um bankana sem
hafa sveigjanleika í samningum
segir Jónas Haralz bankastjóri Landsbankans
U
„Þetta á ekki við um bankana, því samningar um lánalengd í viðskiptabönk-
unum eru sveigjanlegir,“ sagði Jónas Haralz bankastjóri Landsbankans í sam-
tali við blm. Mbl. í gær, er hann var spurður hvort Landsbankinn yrði reiðubú-
inn til þess að veita sínum viðskipUvinum samskonar greiðslujöfnun og Hús-
næðisstofnun mun gera eftir að frumvarp um greiðslujöfnun, sem greint var frá
í Morgunblaðinu í gær, er orðið að lögum.
Jónas sagði að bankarnir væru
alltaf reiðubúnir til þess að ræða við
viðskiptamenn, sem ættu í erfiðleik-
um með að standa i skilum, um
breytingar á lánskjörunum. Jónas
sagði að þetta væri stöðugt verið að
gera í bönkunum, og fullyrti hann
að sú leið væri miklu áhrifaríkari en
einhverjar almennar reglur sem
settar væru með lögum. Slíkt ætti
einfaldlega ekki við um starfsemi
viðskiptabankanna.
„Það hefur reynst svolítið erfitt
að fá stjórnmálamenn til að átta sig
á þessu, og að líkindum einnig al-
menning," sagði Jónas, „af þvf aö
menn hugsa svo vélrænt. Að vísu er
það þannig að bankarnir veita ekki
lán til lengri tíma en fjögurra til
fimm ára, þegar um það er samið í
fyrsta skipti. Það þýðir því ekki að
biðja um Iengri tima f upphafi.
Þetta felur þó ekki i sér að lánstím-
inn geti ekki orðið lengri. Um það er
í fjölmörgum tilvikum hægt að
semja. Kosturinn við það að hafa
þetta svona sveigjanlegt er sá að
þeir sem geta borgað fyrr borga þá
fyrr. Bankarnir laga þvf starfsemi
sína að þörfum hvers og eins eftir
því sem þeir geta. Þessvegna eiga
lagafyrirmæli af þessu tagi alls ekki
við um bankastarfsemi."
Markmið þess frumvarps sem
greint var frá í blaðinu í gær og
Alexander Stefánsson félagsmála-
ráðherra mun mæla fyrir í næstu
viku er að draga úr þeirri auknu
greiðslubyrði sem myndaðist hjá
lántakendum þegar vísitala launa
var afnumin, en ekki lánskjaravísi-
tala. Sem dæmi má nefna að á árun-
um 1980 til 1984, reiknað á föstu
verðlagi, jókst greiðslubyrði af lán-
um um 37% umfram taxtalauna-
hækkanir.
Gert er ráð fyrir því, samkvæmt
upplýsingum Steingríms Her-
mannssonar forsætisráðherra, að
misgengi þetta sé metið frá árinu
1982 til 1984 samkvæmt ákveðnum
reglum — misgengið á milli
greiðslubyrðar samkvæmt láns-
kjaravísitölu og vaxta annars vegar
og hins vegar þróun kauptaxta og
kaupgreiðslu, þannig að launaskrið
er að hálfu leyti tekið inn í dæmið.
Ritstjóri NT og fleiri
starfsmenn segja upp
Deilur við útgáfustjórn — 12 öðrum sagt upp
MAGNÚS Ólafsson, ritstjóri NT,
sagði í gær starfi sínu lau.su í fram-
haldi af langvarandi deilum við
stjórn Nútímans hf., sem er
útgáfufélag blaðsins. Sez öðrum
starfsmönnum ritstjórnar NT var
sagt upp störfum í gær og aðrir
fjórir sögðu upp sjálfir, þar af tveir
í beinu framhaldi af uppsögn rit-
stjórans. Þá var og sex starfs-
mönnum auglýsinga- og inn-
heimtudeilda sagt upp störfum í
gær, að því er Hákon Sigurgrfms-
son, formaður stjórnar Nútímans
hf., staðfesti í samtali við blaða-
mann Mbl. í gærkvöld. Ástæðu
uppsagnanna sagði Hákon vera
„áframhaldandi hagræðingu f
rekstri blaðsins, tilraun til að
draga úr kostnaði við útgáfuna,
sem hefur verið of mikill."
Magnús ólafsson ritstjóri
lagði fram uppsagnarbréf sitt á
stjórnarfundi f Nútímanum hf. i
gær. Hann sagði í samtali við
blaðamann Mbl. í gær að ástæð-
Magnús Ólafsson ritstjóri NT.
ur uppsagnarinnar sneru eink-
um að „peningamálum og rekstr-
arlegum þáttum en ekki nema að
takmörkuðu leyti um flokkslegu
hliðina. Það er margt sem kemur
þarna til, sem ég tel ekki upp að
riuw ikjarattírattW
Vaktirfelldarniður
umkvöldoaheiaar
Forsíða NT í gær, þriðjudag.
svo stöddu, en það sem gerði út-
slagið var ákvörðun stjómarinn-
ar á dögunum um að hætta út-
gáfu blaðsins á mánudögum. Því
var ég mjög ósammála enda er
samdráttur ekki rétta leiðin til
að leysa fjárhagsvanda blaðs-
ins.“
Magnús sagðist lengi hafa ver-
ið óánægður með rekstur blaðs-
ins og ítrekað lent f hörðum deil-
um við stjórn Nútímans vegna
þess. „Þeim deilum lýkur nú með
því að ég segi upp enda sá ég
ekki fram á að stjórn blaðsins
færi frá,“ sagði hann.
Tveir starfsmenn ritstjórnar
NT, þeir Gunnar Trausti Guð-
bjömsson tæknistjóri og Jónas
Guðmundsson blaðamaður,
sögðu upp störfum sínum fyrr í
apríl vegna þess að þeir höfðu
ekki fengið umsamin laun sin
greidd á réttum tima. Blaða-
mennirnir tveir, sem sögðu upp í
framhaldi af uppsögn ritstjór-
ans, eru þeir Sverrir Albertsson
fréttastjóri og Jón Danfelsson
blaðamaður. Aðrir tveir blaðam-
enn, þeir Árni Þórður Jónsson og
Guðlaugur Bergmundsson, sögðu
einnig upp f gær eins og þeir
höfðu ákveðið fyrir nokkru. Alls
hætta því að minnsta kosti ellefu
starfsmenn af 39 á ritstjórn
blaðsins á næstu vikum og mán-
uðum auk þeirra sex, sem sagt
hefur verið upp í öðmm deildum.
Þrettán mánuðir eru nú liðnir
síðan Nútíminn hf. tók við
rekstri Tímans af Framsóknar-
flokknum. Nafni blaðsins var
breytt í NT 24. apríl í fyrra —
uppsagnarbréf Magnúsar var
dagsett 24. april siðastliðinn.
Magnús ólafsson sagði í gær
óákveðið hvað hann tæki sér
fyrir hendur — hann hefði á sín-
um tíma verið Iangt kominn með
doktorsritgerð sfna f tölfræði og
hagfræði, kannski væri kominn
tími til að ljúka því verki.
Hákon Sigurgrímsson stjórn-
arformaður Nútímans hf. sagði f
gær að óráðið væri hver yrði rit-
stjóri NT þegar Magnús léti af
störfum. Hann kvaðst harma
uppsögn Magnúsar og sagði
bagalegt að hana bæri svo brátt
að. Um uppsagnir hinna blaða-
mannanna sagði Hákon að sér
þættu þær miður enda væri um
að ræða prýðilega starfsmenn
„en við þessu er ekkert að segja
og ekkert að gera,“ sagði hann.
„Þetta blað mun að sjálfsögðu
halda áfram að koma út og við
vonumst til að við getum náð
blaðinu út úr kreppunni sem
allra fyrst. Það er alls ekki ætl-
unin að slá undan á nokkurn
hátt, kostnaður við útgáfuna
hefur einfaldlega verið of mik-
ill.“