Morgunblaðið - 01.05.1985, Blaðsíða 30

Morgunblaðið - 01.05.1985, Blaðsíða 30
30 MORGUNBLADIÐ, MIDVIKUDAGUR 1. MAÍ 1985 STJO Mátturoq vukiu auglýsinga almenningstengslum. Námskeiðio nefnist á frummá „Kreativixet og effektivitet - kan det forenes rekiamen?“ og verður það flutt á ensku. Flestir kaupendur auglýsinga eru oft á báðum áttum þegar tillögur um auglýsingar eru lagðar fyrir þa. - Eru tillögurnar nógu markvissar? - Er sköpunargleðin nægileg? - Er val fjölmiðla rétt? - Hefur rett stefna verið valin? að kasta sér út að gera það fyrír 'augun. Það eru til vinnureglur, sem draga úr óvissunni og fækka mistökum, séu þær rétt notaðar. Á þessu námskeiði verður m.a. fjallað um eftirfar- andi: - Skapandi vinna og mat á henni. - Hópvinna þar sem raunveruleg verkefni úr dönskum fyrirtækjum eru yfirfarin. - Af hverju verða auglýsingar svona dýrar? - Hvernig er best fyrir komið samsfarfinu við auglýsingastofurnar? - Hvaða verkefni á að fela augiýsingastofum? Markmið námskeiðsins er m.a. að koma markaðs- og auglýsingafræðinni niður á jörðina oa gera þatttakendur færa um að meta auglýsingafíllOQ á sem bestan hátt. >gur W d Leiðbeinendur á námskeiðinu eru: Morten Peetz-Schou, listfræðingur og dálkahöf- undur. Hann er mjög þekktur á sínu sviði í Danmörku og hefur 25 ára reynslu við auglýsingagerð og almenn- ingstengsl. Hann nefur m.a. starfað sem „kreativ chef“ hja Thomas Bergsoe og Jersild en rekur nú eigið raðgjafarfyrirtæki. Asger Vilstrup, hagfræðingur frá Insead og IMEDE. Hann hefur langa starfsreynslu bæði sem raðgjafi og auglýsingastjóri hjá m.a. Gutenberghus oa Tnomas Bergsoe og markaðsstjóri hjá Nordisk Textiítryk. Hann stanar nú sem ráðgjafi með almenningstengsl og fjölmiðlun sem sérsvío. Tími og staður: 22.-23. maí 1985 kl. 9-17 báða dagana í Kristalssal Hótels Loftleiða. TILKYNNIÐ ÞÁTTTÖKU í SÍMA 82930 STJÓRNUNARFÉLAG ÍSLANDS HSTSS,23 Afganistan: Fregnir berast af æ óhugn- anlegri hryðjuverkum Rússa Islamabad, PaknUui 30. aprfl. AP. /E FLEIRI fregnir berast um ógnvekjandi hryðjuverk sovéskra hermanna og afganskra stjórnarhermanna úti á landsbyggð Afganistan þar sem þeir eiga í höggi við andspyrnusveitir og fara oft halloka. Hryðjuverkin eru gjarnan framin í hefndarskyni fyrir árásir andspyrnumannanna á Rússa og herinn. Þetta segja vestrænir stjórnarerindrekar í Pakistan og Ind- landi, sem ekki vilja láta nafna getið, en fullyrða að þeir hafí öruggar heimildir fyrir þessu. Á síðustu vikum hafa borist fregnir um þó nokkur þorp, sem hafa orðið fyrir slíkum hefndar- árásum Sovétmanna og stjórn- arhersins, hús eru sprengd í loft upp eða brennd til grunna og þorpsbúum smalað saman og þeir pyntaðir og drepnir, oft á hinn hroðalegasta hátt. Læknir einn í Kabúl, sem krafðist nafn- leyndar, sagði frá miðaldra konu sem hann hafði til meðferðar fyrir skömmu. Var hún með 2. og 3. stigs bruna víða um líkamann. mest þó á höfði og herðum. Hún bar að sovéskir hermenn hefðu brennt heimaþorp sitt til grunna og neytt sig og fleiri inn í bökun- arofna og lokað á eftir. Sagði hún það kraftaverk að hún væri á lífi. Börn hennar tvö höfðu Sovét- menn pyntað hroðalega, blindað þau með glóandi kolamolum og lamið og lemstrað. Fleiri slíkar sagnir hafa borist, Rússar eru sagðir hafa brennt fólk til bana eða stórskaðað, tætt sundur með byssustingjum og fleira og fleira, jafnan i hefndarskyni eftir að andspyrnumenn höfðu fellt Sov- étmenn í einhverjum mæli. Það eru einmitt vaxandi að- gerðir andspyrnumanna, sem hafa virkað eins og bensín á dauðahreyfil Sovétmanna, and- spyrnumönnum hefur gengið vel í átökunum upp á síðkastið, t.d. sátu þeir fyrir gífurlegri skrið- dreka- og flutningabílalest í þröngu fjallaskarði nýlega og eyðilögðu um 150 farartæki með eldflauga- og vélbyssuskothríð. Fjöldi Sovétmanna féll eða særð- ist. Er þyrlur freistuðu þess að koma lestinni til hjálpar voru nokkrar þeirra skotnar niður, en manntjón andspyrnumanna var sagt hverfandi í þessum við- skiptum. Van Gogh í háu verði John Marion, nppboóshaldari hjá Sotheby’s í New York, bendir á málverk eftir Vincent van Gogh, sem á dögunum var selt fyrir 9,9 milljónir bandaríkjadala (jafnvirði 410 milljóna ísl. króna). Málverkið er af útsýni listmálarans frá glugga geðveikrahælis, sem hann dvaldi á síðustu æviárin. Ekki hefur áður fengist hærra verð fyrir málverk eftir van Gogh, og raunar engan málara af skóla impressionista. I Hátfðisdagur verkalýðsins: „1. maí- hátíðahöldin hefjast á handtökuin” - sagði Lech Walesa Varajá og Peking, 30. aprfl. AP. PÓLSK yfirvöld hafa kyrrsett þrjá aðstoðarmenn Lech Walesa og sett á tveggja daga bann á sölu áfengis í landinu. Fyrirhug- aðar mótmælaaðgerðir stuðn- ingsmanna frjálsu verkalýðs- samtakanna Samstöðu 1. maí hafa verið bannaðar. „Hátíðarhöldin 1. maí hefj- ast á handtökum," sagði Wal- esa í símaviðtali. í dag sendi hann pólska þinginu skeyti, þar sem hann sakaði stjórn- vöid um fjöldahandtökur og fyrir að hafa komið „þúsundum lögreglumanna fyrir á götum úti“ og væri þeim greinilega ætlað að „berjast gegn almenn- ingi“. Walesa hefur ekki tekið und- ir kröfur um andófsaðgerðir gegn stjórninni, en gefið til kynna, að hann muni e.t.v. taka þátt í hinni opinberu 1. maí- göngu í heimaborg sinni Gdansk, eins og hann gerði í fyrra, lögreglunni og embætt- ismönnum kommúnistaflokks- ins til mikillar furðu. í Varsjá unnu verkamenn í dag við að skreyta götur með fánum og veifum fyrir hátíð- arhöldin 1. maí, en þar verða pólskir embættismenn fremst- ir í flokki. Frjálsu verkalýðsfélögin, Samstaða, höfðu hvatt til and- ófsaðgerða 1. maí til að mót- mæla matvæla- og orkuverðs- hækkunum. Walesa hefur ekki stutt opinberlega, að efnt yrði til þessara aðgerða, en í 1. maí- ávarpi, sem gefið var út um helgina, sakaði hann stjórn- völd um aukna kúgun og kvað verkamenn hafa rétt til að berjast fyrir „réttlæti, brauði og frelsi“. Mikill undirbúningur fór í dag fram í Peking á vegum stjórnar kínverska kommún- istaflokksins fyrir hátíðarhöld- in 1. maí. Höfuðborgin var skreytt rauðum fánum og verkamenn fengu að fara snemma heim frá vinnu. „Við erum sósíalísk þjóð, við erum verkalýðurinn,“ sagði að- stoðarforsætisráðherrann, Wan Li, á samkomu með 6000 manns í Alþýðuhöllinni í Pek- ing. Wan hvatti til „aukinnar einingar" við verkamenn í Hong Kong, Taiwan og Macao.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.