Morgunblaðið - 01.05.1985, Qupperneq 3
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR í. MAÍ 1985
3
Bændur bjartsýnir eftir einstakan vetur:
„Draumar segja mér að
sumarið verði gott —
þó ekki langt fram eftir"
— segir Erlendur Eysteinsson á Stóru-Giljá í Húnaþingi
„VETURINN hefur verió einstaklega gódur, betri en ég hef áður lifað.
iH'tta nær raunar lengra aftur í tímann því það hefur verið samfelld
blíða frá því í febrúar í fyrra og aldrei komið slæmur dagur. Elstu
menn hér um slóðir telja sig ekki muna eftir jafn stilltum vetri,“ sagði
Erlendur Eysteinsson, bóndi á Stóru-Giljá í Torfalækjarhreppi í
Austur-Húnavatnssýslu, í samtali við Mbl.
Gott hljóð var í bændum sem
Mbl. ræddi við í gær. Bar þeim
öllum saman um einstaklega
góðan vetur og vor og voru
bjartsýnir á gott sumar. Er-
lendur sagði að enn væri dálít-
ill klaki i jörðu og jörð blaut
eftir rigningar að undanförnu
þannig að ekkert væri enn farið
að vinna á túnum. Menn væru
þó farnir að hugsa til þess að
bera á. Hann sagði að aðeins
væri farið að sjá í grænan gróð-
ur á túnum.
Erlendur sagði að sauðburð-
urinn væri að hefjast, fyrsta
kindin væri borin og 10 daga af
mai yrði sauðburðurinn hafinn
fyrir alvöru. Aðspurður kvaðst
Erlendur vera bjartsýnn á
frjósemi ánna. „Ég er enn með
100% þrílembt," sagði Erlendur
en bætti við að ef slík frjósemi
héldist færi hann laglega yfir
búmarkið.
Hann sagði að yfirleitt spáðu
menn vel fyrir sumrinu og
sjálfur hefði hann lengi spáð
vel fyrir þessu vori. „Eg veit
varla hvort ég á að vera að
segja ykkur blaðamönnum
það,“ sagði Erlendur, þegar
hann var beðinn að segja frá
spá sinni fyrir sumarið, „en
draumar segja mér að sumarið
verði gott, þó ekki langt fram
eftir. Það er því ekki hyggilegt
fyrir bændur að geyma hey-
skapinn langt fram eftir sumri.
En ég þori enga ábyrgð að taka
á þessum spádómum," sagði
Erlendur.
„Besti vetur
síðan um 1930“
„Það fer eftir veðrinu hvort
menn eru svartsýnir eða bjart-
sýnir og ekki hægt annað en að
vera bjartsýnn í svona veðri, þar
sem er blíða dag hvern. Enn
grær þó ekki nógu ört en við bíð-
um bara eftir hlýindunum,"
sagði Hermann Sigurjónsson,
bóndi í Raftholti í Holtahreppi í
Rangárvallasýslu, þegar leitað
var tíðinda úr sveitinni hjá hon-
um.
Hann sagði að vel liti út með
gróður, jarðklaki lítill en menn
litið farnir að dreifa áburði,
nema þá húsdýraáburði. „Menn
standa í startholunum og bíða
eftir sauðburðinum," sagði Her-
mann. Hann sagði að veturinn
hefði verið alveg einstakur.
„Miðaldra menn muna ekki eftir
jafn góðum vetri og gömlu
mennirnir segja að ekki hafi
komið svona áfallalaus vetur síð-
an um 1930," sagði hann.
„Getur ekki versnað“
Kristján Oddsson, bóndi á
Neðra-Hálsi í Kjós, sagði að al-
mennt væri gott hljóð í bændum.
Það virtist vora snemma, líklega
um hálfum mánuði fyrr en í
meðalári. Hann sagði að gróður
væri að lifna í túnum sem vel
lægju við sól. Menn væru al-
mennt ekki farnir að bera á enda
hefði gengið i mestu brösum að
fá áburðinn. Kristján sagðist
ætla að bera á fyrstu stykkin
næstu daga.
Kristján kvaðst vera bjart-
sýnn á vorið og sumarið, „þetta
getur ekki versnað frá síðustu
sumrum,* sagði hann að lokum.
Morgunblaðid/ Július
Níels Marteinsson, sölustjóri f Söluféiagi garðyrkjumanna, með nýja is-
lenska tómata og gúrkur.
Tómatarnir farnir
að koma í
ÍSLENSKIR tómatar eru komnir í
verslanir á höfuðborgarsvæðinu.
Fyrsti kassinn kom raunar 2. april
frá Guðmundi Sigurðssyni, Áslandi í
Hrunamannahreppi og er það 2 til 3
vikum fyrr en venja er, að sögn
Níelsar Marteinssonar, sölustjóra í
Sölufélagi garðyrkjumanna.
Níels sagði að ennþá væri fram-
leiðslan það lítil að ekki næðist að
anna eftirspurninni, en það stæði
verslanir
til bóta innan ekki langs tíma.
Tómatamir kosta 175 kr. í heild-
sðlu og er það heldur hærra verð
en á innfluttu tómötunum.
Níels sagði að græn paprika
væri einnig komin á markaðinn og
fleiri tegundir grænmetis. Gúrk-
urnar sagði hann að væru þessa
dagana á einstaklega góðu verði,
60 kr. í heildsölu, en verðið á þeim
var fyrst 160 kr. í vor.
Sundstaðir opna
framvegis kl. 7
BORGARRÁÐ hefur samþykkt
tillögur um breyttan opnunartíma
sundstaða í Reykjavík.
Samkvæmt þeim verða Sund-
höllin, Sundlaug Vesturbæjar og
Laugardalslaugin opnaðar klukk-
an 7 á morgnana í stað 7.20 áður.
Þessi breyting gengur i gildi á
morgun, fimmtudag.
Um leið og við óskum
íslenzku verkafólki til
hamingju með daginn,
viljum við vekja at-
hygli á að öll þessi
glœsilegu föt eru
hönnuð og framleidd
af íslenzku iðnverka-
fólki.
KARNABÆR
Austurstræti 22 — Laugavegi 66 — Glæsibæ.
Simi frá skiptiborði 45800.
og umboðsmenn
um land allt.