Morgunblaðið - 01.05.1985, Qupperneq 22

Morgunblaðið - 01.05.1985, Qupperneq 22
MORGUNgLAPIÐ, MIPVIKUDAGUE 1. MAÍ.19S5 , 23 Morgunblaöiö/Sigurður Bæjarstjórn æskunnar, talið frá vinstri: Arna Gunnarsdóttir og Þórunn Hauksdóttir, Halldóra Káradóttir, Grímur Hergeirsson, Ólöf Österby, Sigurður Steinsson, Magnús Gíslason og Friðrik Larsen. Bæjarstjórnarfundur æskunnar haldinn á Selfossi: Atvinna, menntun og tómstundir efst á baugi Selfossi í aprfl. FYRIR nokkru fór fram í Tryggvaskála á Selfossi bæjar- stjórnarfundur æskunnar. Fundurinn var haldinn aö tilhlutan tómstundaráös og tilefniö var yfirstandandi ár æskunnar. Ungt fólk stjórnaði fundinum og fluttar voru framsöguræður um atvinnumál, íþrótta- og æskuiýðsmál og skólamál. Bæjar- stjórnarmenn sátu fundinn ásamt bæjarstjóra og svöruöu fyrirspurnum sem til þeirra var beint. Fundurinn var mjög málefnalegur og unga fólkið setti málefnin fram á skýran og skilmerkilegan hátt og vildi fá greinargóð og ákveðin svör við áleitnum spurningum. Það var Elín Guðbrandsdóttir, formaður Nemendafélags fjölbrautaskólans, sem bauð fundarmenn velkomna í upphafí fundar fyrir hönd fundarboðenda og skipaði Jóhönnu Lárus- dóttur fundarstjóra. Fundarritarar voru Arna Gunnarsdóttir og Þórunn Hauksdóttir, nemendur 8. bekkjar gagnfræðaskól- ans. Aukin atvinna þarf að koma til Halldóra Káradóttir hafði framsögu um atvinnumál og var fyrst á mælendaskrá. Hún fjallaði í upphafi almennt um þennan málaflokk og sagði m.a.: „Atvinna er nokkuð sem allir eru háðir. Það lifir enginn af í þjóðskipulagi á borð við okkar nema að hafa at- vinnu, ef ekki hann sjálfur þá for- eldrar, forráðamenn eða makar. En það er öruggt að keðja lífsins gengur ekki upp nema atvinna komi til.“ Hún spurðist fyrir um stefnu bæjarstjórnar í atvinnumálum og hvort bæjarstjórn hygði á aðgerð- ir til að rétta hlut Selfoss sem lág- launasvæðis. Einnig spurði hún hvort samdráttur væri hugsanleg- ur hjá MBF og SS á Selfossi. Hún rakti þróun sumarvinnu unglinga á Selfossi og sagöi: „Fyrst stóð tvennt til boða, passa börn og fara í unglingavinnuna og þannig var það út gagnfræðaskól- ann. Eftir 16 ára aldur var lítið um aðra sumarvinnu að ræða en að fara í fisk sem er nánst ekki fyrir hendi á Selfossi og ef maður var heppinn komst maður í bygg- ingavinnu eða í kaupfélagið. Af þessu sést að Selfoss hefur upp á lítið að bjóða fyrir skólafólk." Síð- TICO S/PA Skrúfaö á vélarundirstööu og vélin rétt af. Límt viö gólf ef þarf meö sérstöku lími. Límt á vélarundirstööu. Límt á gólf eöa fest meö boltum ef þarf. VÉLAPÚÐAR Minni titringur Minni hávaöi Minna vélaslit Boltafestingar viö gólf oftast óþarfar 25 ára reynsla Leitið upplýsinga G. J. FOSSBERG VÉLAVERZLUN HF. Skúlagötu 63 - Reykjavík Slmi 18560 an spurði hún hvort bæjarstjórnin hefði áætlanir á prjónunum um að leysa sumarvinnuvandamál skóla- fólks á staðnum. „Að lokum þetta,“ sagði Hall- dóra. „Ef Selfosskaupstaður á að vaxa og verða stór þarf fólk að setjast hér að og það gerist ekki nema aukin atvinna komi til.“ ÞaÖ vilja allir félagsmiöstöð „íþróttir eru snar þáttur í tómstunda- og félagslífi unglinga hér á Selfossi. Hér eru iðkaðar flestar þær íþróttagreinar sem keppt er f hér á landi. Áhugi með- al unglinga hér er mikill og árang- urinn oftast góður. Það er ung- mennafélagið sem er aðaldriffjöð- ur íþróttanna hér á Selfossi. Að halda uppi blómlegu starfi ung- mennafélags kostar mikla peninga og þeir eru ekki auðfengnir," sagði Grímur Hergeirsson sem hafði framsögu um íþrótta- og tóm- stundamál. Hann spurði um framlög til ungmennafélagsins og hvað liði byggingu búningsaðstöðu á íþróttavellinum. „Að undanförnu hefur mikið verið rætt um að setja af stað starfrækslu félagsmiðstöðvar eða einhvers konar unglingaathvarfs hér í bæ,“ sagði Grímur og spurð- ist fyrir um hvað liði byggingu fé- lagsmiðstöðvar í kjallara gagn- fræðaskólans sem einu sinni var áformuð. Hann vitnaði til könnun- ar sem gerð var meðal skólafólks á „Ef ég er borin og barnfædd á Suðurlandi á ég þá að gjalda þess þegar ég ætla að mennta mig? Ég hef sama réttinn til að fá það besta, er það ekki?“ sagði ólöf. „Mér þætti gaman að sjá Selfoss í framtíðinni sem miðstöð menntamála á Suðurlandi. Það er hægt með góðum vilja og sam- stilltu átaki. Gamall frasi en allt- af jafngildur. í versta falli ætti að vera hægt að skapa viðunandi að- stöðu fyrir æskufólk svo ekki þurfi að leita langt út fyrir byggðarlag- ið til að svala fróðleiksfýsninni," sagði Ólöf Österby. Númer eitt að þið haldið okkar vöku Að loknum framsöguræðum svöruðu bæjarfulltrúar spurning- um sem til þeirra var beint. í ljós kom að unga fólkið hafði tekið til umræðu grundvallarspurningar sem kröfðust umfangsmikilla svara. Bæjarfulltrúar lýstu stefnu bæjarstjórnar í atvinnumálum og hjá öllum kom fram það grund- vallarsjónarmið að alltaf væru til nægjanlegar lóðir og önnur að- staða fyrir atvinnurekstur. í máli bæjarfulltrúa kom m.a. fram að raforka væri dýrari á Selfossi en í þeim byggðarlögum sem bærinn keppti við varðandi aðstöðu til atvinnurekstrar. Á sl. þremur árum hefði störfum fjölg- að um 250 á Selfossi, einkum á sviði þjónustu. Bæjarfulltrúar lýstu ótta sínum við að störf drægjust hugsanlega saman hjá Selfossi þar sem fram kom að allir töldu þörf fyrir félagsmiðstöð, 75% sögðust mundu nota hana og 65% voru reiðubúnir að leggja fram vinnu við byggingu hennar. „Það er ljóst að vilji er fyrir hendi hjá unglingum en hver er vilji bæjarstjórnar í þessum málum?" sagði Grímur Hergeirsson. Ég hef sama rétt til aö fá það besta „Ég ætla ekki að lofsyngja allt það sem vel hefur verið gert því það er ekki lengur hægt að bæta en það má alltaf reyna við hitt — þið vitið," sagði ólöf Österby, sem hafði framsögu um skólamál. „Haustið 1981 tók til starfa Fjölbrautaskóli Suðurlands, frá- bært. Stórkostlegt tækifæri og svakaleg þægindi fyrir alla þá sem hafa séð fram á að þurfa annað í skóla og jafnvel hætt við af þeim sökum. Vopn þeirra sem stofnuðu skólann var bjartsýnin og það veitti víst ekki af, því húsnæði var leigt um allan bæ til bráðabirgða.“ Hún benti einnig á að enn væri kennt á 8 stöðum og spurði í fram- haldi af því hvenær skólinn yrði tilbúinn og hvort reikna mætti með að fá færustu kennara í svona aðstöðu og hvort ekki þyrfti heimavist til að laða nemendur sem ættu kost á öðru. MBF og SS vegna uppbyggingar á höfuðborgarsvæðinu. Bent var á að varðandi íþrótta- aðstöðu ungmennafélagsins væri ekki um beinar peningagreiðslur til þess að ræða heldur fengi það frí afnot af íþróttamannvirkjum. Skólamál bar á góma hjá bæj- arfulltrúum og þótti sumum hin nýja bygging Fjölbrautaskólans of dýr en á hinn bóginn var bent á að byggingin væri sérhönnuð fyrir fjölbrautaskólakennslu og það sem drægi úr byggingarhraða væri fyrst og fremst það að fram- lag ríkisins væri óbreytt milli ára, en ef nægjanlegt fjármagn fengist væri hægt að ljúka byggingunni fyrir haustið 1986. Talið er að til þess þurfi 40 milljónir. Bæjar- fulltrúar lýstu sig meðmælta því að laun í unglingavinnu yrðu hækkuð og störfin þá um leið gerð markvissari, enda um nauðsynleg- an þátt að ræða. Fundur þessi fór vel fram og var ekki að sjá annað en aðilar væru sáttir í fundarlok. Bæjarfulltrúar lýstu allir ánægju sinni með mál- fíutning og frammistöðu unga fólksins. Einn þeirra sagði er hann beindi orðum sínum til frummælenda og gesta fundarins: „Það er númer eitt að þið haldið okkar vöku.“ Sig. Jóns. fllgqgitnlritoftifr 2 Góðcm daginn!
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.