Morgunblaðið - 01.05.1985, Side 51
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVHCUDAOUR l. MAÍ'1985
Eftir tíu stunda dans voru enn 10 keppendur á gólfinu og báru sig vel.
Dansað í sólarhring
á Egilsstöðum
51
Það er ótrúlegt
úrval
af pottaplöntum í gróður-
húsunum okkar og verðin.
Þú ferð ekki í fýlu.
Opið til kl. 9 öll
kvöld.
Græna
höndin
Gróðrarstöð við Hagkaup,
Skeifunni, sími 82895.
Aslaginu átta á laugardagsmorguninn
hófu 16 ungmenni þátttöku í mara-
þondanskeppni Tómstundaráðs Egilsstaða-
hrepps í íþróttahúsi Egilsstaða — og að
sólarhring liðnum voru enn 5 ungmenni á
gólfinu, galvösk að sjá eftir sleitulítinn
dans.
Þetta er í annað sinn sem Tómstunda-
ráð Egilsstaða gengst fyrir slíkri mara-
þondanskeppni og var framkvæmd öll
sem mest í höndum unglinganna sjálfra
með dyggri aðstoð tómstundafulltrúa og
kvenna í Kvenfélaginu Bláklukku.
Keppninni var þannig hagað að kepp-
endur fengu 5 mínútna hvíldarhlé að
loknum hverjum 55 mínútna dansi — og
þurfti þá að grípa til nudds og annarrar
aðhlynningar er líða tók á dansinn. En
keppnistími var fyrirfram ákveðinn sól-
arhringur. Keppendur voru frá Egils-
stöðum, Fellabæ, Hallormsstað og Eski-
firði.
Eftir 10 stunda dans voru enn 10 kepp-
endur á gólfinu og báru sig vel.
Sigurvegararnir fimm eru allir frá Eg-
ilsstöðum og heita: Álfheimur Ingólfs-
dóttir, Halldór Benediktsson, Hjalti
Þorkelsson, Linda Pehrson og ólafía
Marelsdóttir. Samkvæmt úrskurði dóm-
nefndar fékk ólafia einnig sérstaka við-
urkenningu fyrir góðan dans og lipurð er
hún sýndi allan danstímann.
Að sögn tómstundafulltrúa, Ingu Þóru
Vilhjálmsdóttur, fór keppnin mjög vel
fram og i góðu samráði við alla hlutað-
eigendur.
Fimm mínútna hvfldarhlé var gert á 55 mínútna fresti og þá
var gripið til nuddsins ...
ELTON JOHN BÆTIR
VIÐ EINNI MILLJÓN
Elton John er ekki einungis heimsfreg popp-
stjarna og milljónameringur, heldur einnig
eins og knattspyrnuáhugamenn vita, stjórnarfor-
maður hjá 1. deildarfélaginu Watford. MeA því að
ráAa hefan framkvemdastjóra og ausa seAlum í
fyrirtekió tókst að gera Watford að hinu framberi-
legasta 1. deildar félagi, en er Elton keypti félagið
lék það í 4. deild og virtist ekki til stórreðanna.
Fyrsti veturinn í 1. deild, veturinn 1983—84,
var eftirminnilegur, liðið hafnaði meðal efstu
liða í deildinni og lék auk þess til úrslita um hinn
eftirsótta FA-bikar, en tapaði 0—2 fyrir Everton.
Á því keppnistímabili sem nú er brátt á enda
hefur ekki gengið eins vel, slæm byrjun og eftir-
gjöf á síðustu vikum að auki hefur orðið til þess
að liðið hafnar trúlega í neðri helmingi deildar-
innar án þess að falldraugurinn knýi þó verulega
fast á dyrnar. Elton er ekki ánægður með árang-
urinn, en kennir ekki leikmönnum sinum um,
segir þetta eðlilega aðlögunarerfiðleika eftir
þrumugóða frammistöðu veturinn áður. „Ég ætla
að hjálpa þeim upp úr öldudalnum, gefa eina
milljón sterlingspunda án allra skuldbindinga,
framkvæmdastjórinn getur ráðstafað fénu eins
og hann vill, hækkað kaupið, keypt nýja og góða
leikmenn til að styrkja hópinn, hvað sem hann
gerir, munu peningarnir skila sér sem betra
gengi næsta vetur,“ segir Elton.
1^3
Sundbolir
Sundskýlur
Sundgleraugu
Sportvöruverzlun
Ingólfs Óskarssonar
Klapparstíg 40, sími 11783.