Morgunblaðið - 26.07.1985, Page 2
2 B
MORGUNBLADIÐ, FÖSTUDAGUR 26. JÚLl 1985
„Vegir liggja til allra
átta“ — En hver ræöur
för?
Vegir listanna eru
óútreiknanlegir. Þó
lagöar hafi verið brautir
um menningu okkar, þá
eru þær fullar af ýmis-
konar hindrunum. Boö-
um, bönnum og leiö-
beiningum, sem falla
ekki alltaf aö þörfum
listamanna. Þeir vilja
stundum beina sínum
kröftum í farvegi, sem
ekki eru í umferðaræð-
um skipulagsins. Hversu
lífvænlegri og skemmti-
legri yröi menning
okkar, ef viö létum
drauma rætast, sem hér
eru tíndir til. Og eru þeir
aöeins handahófskennt
úrtak af öllum þeim
draumum sem bærast.
Eitt er víst, meðan viö
eigum skapandi lista-
menn þá getum viö
horft björtum augum
fram á veginn. — En
hvaö? Hvernig bregö-
umst viö viö rithöfundi
sem vill gera kvikmynd
eöa myndlistamanni
sem dreymir um óperu-
verk? Eru leiðbeiningar,
bann- og boöskiltin allt-
af á réttum stööum?
Eigum viö
kannski bara aö svín-
beygja einstefnuakst-
ursmerkiö og gefa þeim
grænt Ijós?
Helga
Bachmann
Hún kom ekki. Viö höföum mælt
okkur mót. „Þaö hefur eitthvaö
komiö fyrir," hugsaöi óg og labb-
aöi heim. Hún hringdi í mig og
sagði mér aö hún heföi tafist
vegna þess aö hún lenti í umferö-
aröngþveiti. „Þaö var hræöilegt,
ég gæti allt eins sagt þér frá mar-
tröö.“ Samt sagöi hún mér draum:
„Mig langar aö gera leiksyningu
úr fimm smásögum af tíu úr bók-
inni hennar Ástu Siguröardóttur
„Sunnudagskvöld til mánudags-
morguns”. Sýningin á ekki aö fjalla
um Ástu sjálfa, heldur skilning
hennar á manneskjunni. Þetta er
svo góöur skáldskapur. En þaö er
hættulegt aö láta drauma rætast.
Ef þú tekur jólatré úr garöinum og
ferö með þaö inn, þá veröuröu aö
muna aö gróöursetja eitthvaö í
staöinn. Um leiö og ég nýt þess aö
sjá fram á aö þessi draumur ræt-
ist, þá veit ég aö hann á kannski
eftir aö taka á sig aörar myndir
meöan ég vinn aö honum. Aöalat
riöiö er aö ég er aö gera þaö sem
mig langar til. Ég trúi á þessi verk
hennar Ástu. Þau eru þvottekta og
hafa ekki rykfalliö. Hún tileinkar
sögurnar Reykvíkingum og til
bráöabirgöa kalla ég leikritiö
„Reykjavíkursögur Ástu“.“
— Er draumurinn aö rætast?
„Hann er á þröskuldinum. Ég er
aö leggja síöustu hönd á leikritiö
og geri ráö fyrir aö byrja æfingar 1.
ágúst. Mig langar til að setja sýn-
inguna upp í kjallara eins hússins
sem konur voru aö kaupa, í Hlaö-
varpanum á Vesturgötu 3. Þaö er
aldargamall kjallari, hlaöinn úr
grágrýti einsog Alþingishúsiö. Sýn-
ingin á heima þar þegar búiö er aö
bæta inn í hann bárujárni."
— Hvenær veröur frumsýn-
ingin?
„Á Listahátíö kvenna, sem hald-
in veröur 21. september—8. októ-
ber. Og ef sýningin gengur vel þá
veröur hún í gangi eins iengi og
áhugi er fyrir hendi. Hún verður
ekki slegin af viljandi."
— Hvaö ætlaröu aö kalla leikhús-
iö?
Hún hlær og segir: „Mín vegna
mætti þaö heita „Kalla-leikhúsiö“.“
Helga er leikkona og leikstjóri.
Oddur
Björnsson
Hann kom auövitaö til dyranna
eins og hann var kiæddur og af því
fötin fóru honum vel, og veðrið var
ágætt, ákváöum viö aö mynda
hann eins og hann kom fyrir. Hann
hallaöi sér upp aö Stopp-skiiti,
horföi á þaö í forundran, ýtti viö
því og aö lokum hallaöi hann sér
uppaö þvi, enda oröinn skiltinu
vanur. Þaö er á næsta götuhorni
viö húsiö hans.
„Mig langar aö gera kvikmynd
úr verki Becketts, Beöiö eftir
Godot, en fyrst vil óg hafa 50 sýn-
ingar á stóra sviðinu í Þjóöleikhús-
inu. Þannig er minn draumur,“
segir Oddur, en bætir svo viö:
„Þetta á ekki aö þurfa aö vera
ómögulegt né fjarstæöukennt. Ég
setti þetta verk á sviö hjá Leikfé-
lagi Akureyrar fyrir fimm árum og
þaö er enn aö brjótast í mér.“ Þess
má geta aö Oddur fékk Menning-
arverölaun Dagblaösins í leiklist
fyrir leikstjórn sína þaö skiptiö.
„Mig langar aö láta reyna á þan-
þol hugmyndanna sem ég hef
vegna fyrri uppfærslu minnar og út
frá vangaveltum mínum síöan. Ég
lít enn á verkiö eins og tónverk,
ekki eingöngu hrynjanda textans
heldur ekki síöur hreyfingar per-
sónanna og staðsetningar þeirra í
þessu stóra eyöilega rými. Þjóð-
leikhúsiö hefur rýmiö og þetta ætti
ekki aö þurfa aö vera dýr sýning,
aöeins eitt sviö og fjórir leikarar."
— En helduröu aö nógur áhugi
sé til aö húsfyllir veröi á 50 sýn-
ingum?
„Já, hví ekki þaö. Okkur var
boöiö á sínum tíma meö Akureyr-
arsýninguna suöur á Listahátíö,
áttum aö hafa þrjár sýningar, en
vegna mikillar aösóknar uröu þær
fimm, og seldist alltaf upp á kort-
eri. Viö uröum aö hætta fyrir
sneisafullu húsi. Síöan var okkur