Morgunblaðið - 26.07.1985, Page 6

Morgunblaðið - 26.07.1985, Page 6
6 B MQRGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 26. fClA 1985 Teikning/Pétur Stefánsson Hver kannast ekki viö þessa andstyggilegu konu — stjúpmóöur- ina sem kvelur börn maka síns frá fyrra hjónabandi, en er svo óskaplega yndisleg viö sín eigin. Minni sem hefur gengiö um aldir sem rauður þráöur í menningu hvers tíma og bókmenntum. ðll könnumst viö stjúpmóöurina, tök- um kannski ekki of mikið mark á bókmenntaheföinni — og þó. Eitt þeirra vandamála sem stjúpfor- eldrar eiga oft viö aö glíma er nákvæmlega þetta, barátta viö ör- lög og heföir sem liggja í loftinu, umhverfinu, jafnvel þeim sjálfum. Og stundum leggja stjúpforeldrar svo mikiö á sig til aö þaö fari ekki á milli mála aö svona séu þeir ekki, en þaö gerir illt verra. Jafnvel þó ekkert illt sé fyrir hendi. Framtíöarsýn flestra í fjölskyldu- málum felur oftast í sér vanga- veltur um hamingjusamt — pabbi, mamma, börn og bíll — ævintýri. Stundum falla hlutirnir aö þessum vangaveltum, en vestræn þjóöfé- lagsform hafa mjög svo hnikað því. Upphafiö er kannski eftir fyrir- myndinni en endirinn oft því mun fjarlægari. i dag er áætlaö aö 50% bandarískra hjónabanda Ijúki meö skilnaöi og aö af fráskildum tengist 57% aftur meö giftingu ekki ein- asta maka, heldur stjúpbörnum þar á ofan. Aöstæður stjúpforeldra vilja oft falla í skuggann af þeim sem skapast hjá eiginlegum for- eldrum barna viö samvistarslit og uppbrot á fjölskyldumynstri. Þó skildi engan gruna aö aöstæöur stjúpforeldra séu meö öllu vand- ræöalausar. En úr því má oft ráöa, eins og gerst hefur hjá bandarísku hjónunum John S. og Emely B. Vishner, geölækni og klínískum sálfræöing, en þau hafa unnið mik- iö starf, bæöi hvaö varöar fræöi- lega umfjöllun og meöferöarstarf meö stjúpfjölskyldum, ritaö bækur og haldiö fyrirlestra um efnið, auk þess aö vera stofnendur og stjórn- armeölimir í Samtökum stjúpfor- eldra í Kaliforníu og í stjórn Sam- taka bandarískra stjúpfjölskyldna. Stjúpfjölskyldumynstrinu kynnt- ust þau bæöi af eigin raun 1959 jjegar hvort um sig kom meö börn úr fyrra hjónabandi í nýja fjöl- skyldu. Vishner-hjónunum varö þá Ijóst aö ýmsu varö aö breyta áöur en aö þessi nýja fjölskylda kæmist á jafnvægisstig sem allir gætu sætt sig viö. „En þaö er ekki nokk- uö sem gerist í sömu andrá og brúöarmarsinum sleppir," segir Emely Vishner. Viö tókum þau hjón tali aö loknum fyrirlestri um meöferöarstarf meö stjúpfjölskyld- um, sem haldiö var á vegum fræöslunefnda Stéttarfélags ís- lenskra félagsráögjafa og Sálfræö- ingafélags Islands í vor. Hingaö komu þau aö lokinni Evrópuferö, þar sem þau héldu m.a. fyrirlestra og námskeiö fyrir þá sem sinna málum stjúpforeldra. „Stjúpfjölskyldan veröur aldrei eins og upprunalega fjölskyldan — ekki fyrir neinn aöila. Þaö er kannski sá hlutur sem fólk þarf fyrst og fremst aö gera sér grein fyrir.Þaö veröur aö yfirvinna svo marga óraunverulega drauma, sem fólk vill ganga meö, t.d. aö stjúpfjölskyldan veröi eins og upp- runaleg fjölskylda, eöa þá aö hún veröi nákvæmlega eins og sú sem þaö kemur úr og ekki gekk upp — nema hvaö í þetta skiptið skal þaö takast. En stjúpfjölskyldan er ööruvísi og veröur þaö,“ segir John S. Vishner. „Nú, draumar um aö stjúpfor- eldriö samræmist nýju fjölskyld- unni eins og ekkert sé rætast held- ur ekki í einni andrá. Eitt af ein- kennum stjúpfjölskyldunnar er aö meðlimir hennar hafa gengiö í gegnum missi.löng sambönd hafa slitnaö, draumar um hvernig fyrra hjónaband heföi átt aö vera rætt- ust ekki.svo ekki sé talaö um ef missirinn felur i sér andlát. Eins, sé stjúpforeldri aö giftast í fyrsta sinn, gengur þaö inn í aöstæöur sem þaö hefur aldrei gert ráö fyrir, áöur giftur maki og börn frá fyrra hjóna- bandi makans. Þar á ofan þýöir stjúpfjölskylda miklar breytingar, gagnvart vinum, atvinnu jafnvel eða búsetu og fyrir börnin vina- missir og annar skóli. Stjúpfjölskyldan getur átt aö baki fjölmörg fjölskyldumynstur, ekki einungis koma báöir makar úr ööruvísi fjölskyldu heldur börnin líka. Þá eru ættingjar, afar og ömmur og tengdaforeldrar og allir þessir aöilar „vita“ hvernig fjöl- skylda á aö vera. Því byggist stjúpfjölskyldan á aö finna ein- hvern milliveg sem allir geta sætt sig viö. Siöan eru mikilvægir hlutir eins og þaö, aö lagaleg tengsl stjúpforeldris og barna eru engin, sem auövitaö hefur sitt aö segja í tengslum þessara aðila,“ segir John S. Vishner. f fjölskyldumeöferöinni fyrir stjúpfjölskyldur leggja Vishner- hjónin áherslu á aö ná til basöi stjúpforeldranna og líffræöilegu foreldranna, fremur en barnanna, „í einu tilviki þar sem báöir foreldr- ar deildu forræöi barns fékk ég þau til aö koma ásamt núverandi mökum sínum,“ segir Emely. „Ég sá ekki ástæöu til aö fá þangaö sex ára gamalt barnið, enda þurftu þarna fullorönir aö finna lausn á sínum málum og barniö átti ekki aö gera upp á milli hvort hefði betri lausn. i raun var mjög hentugt aö hafa stjúpforeldrana þarna líka, þegar líffræöilegu foreldrarnir æstu sig hvort viö annaö þá róuöu hin þau niöur. Ef hægt er aö fá alla þessa aöila saman er þaö oftast best. Stjúpforeldrin sjá þá oft hvort hjá ööru löngunina til aö hafa Námskeiö fyrir stjúpfjölskyldur, byggt á sama grunni og námskeiö Vishner-hjónanna, var i fyrsta sinn haldiö hér á sl. vetri og er ráögert aö endurtaka þaö í haust, af félagsráögjöf- unum Sigrúnu Júlíusdóttur og Nönnu K. Siguröard- óttur. Var þaö byggt á fyrirlestrum, umræöum í smáhópum og einföldum verkefnum, þar sem kom- iö var inn á hluti s.s. samskipti hjóna, aga og tengsl viö foreldri úti i bæ. Aö sögn þeirra Nönnu og Sigríöar var mikiö hringt og spurst fyrir um námskeiöiö, þó ekki mættu allir sem leituöu upplýsinga um þaö. Kváöu þær líklega ástæöu vera aö hér rikti ekki almennt sú hefö aö fólk leitaöi aöstoðar meö persónuleg vandamál sín, „og eins þaö, að margir vilja helst gleyma því aö stjúpfjölskylda sé stjúpfjölskylda“, sagöi Sigrún. „Hins vegar er fólki, sérstaklega yngri pörum, mikill styrkur í aö hitta aöra stjúpforeldra, þá oft fólk sem er eldra og hefur þegar yfirstigið vandamál sem eru aö koma upp á yflrboröiö hjá yngri pðrum.“ Aö þeirra sögn er sýnileg þörf á aö halda nám- skeiö hér fyrir stjúpforeldra, enda hefö fyrir því aö íslendingar eígnist börn utan hjónabands og giftist síðan öörum barnsföður eöa -móöur. Samkvæmt upplýsingum Hagstofunnar voru áriö ’83 1.396 hjónavígslur á landinu, þar af voru 197 karlmenn og 195 konur að giftast í annaö sinn, 9 karlmenn og 9 konur í þriöja sinn og 2 karlmenn og 2 konur f fjóröa sinn. „Þannig má geta sór til um aö mjög margar stjúpfjölskyldur hafl mótast. Fyrir utan svo alla þær stjúpfjölskyldur, sem eru ekki tengdar meö giftingu,“ sagöi Nanna. Aöspuröar um einkennandi vandamál stjúpfjöl- skytdna hér kváöu þær Slgrföur og Nanna þaö mik- iö vera sömu glímurnar aftur og aftur, sér f lagi ef um væri aö ræöa breytingar á forræöi barna og lagalegri hliö málanna. En sú hliö lýtur þannig aö stjúpforeldrum, aö þeir eru framfærsluskyldír gagn- vart sfnum stjúpbörnum, en komi tll samvistarslita viö eiginlegt foreldri, á stjúpforeldriö engan laga- legan rétt á aö umgangast barniö. „Þetta tel ég reyndar elnn alvarlegasta brest f réttarstööu barna,“ sagöi Sigrún, „en þó aöeins eitt þeirra fjöl- mörgu vandamála og híndrana sem gera vart viö slg í stjúpfjölskyldum. En á mörgum þeirra má vinna bót og því teijum viö æskilegt aö þelr stjup- foreldrar sem þess óska geti leitaö sér aöstoöar og stuönings.“

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.