Morgunblaðið - 30.08.1985, Page 6

Morgunblaðið - 30.08.1985, Page 6
6 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 30. ÁGÚST 1985 ÚTYARP / S JÓN VARP Notað og nýtt w Eg hef víst áður hreyft því áhugamáli mínu hér í dálki að einhverjar þeirra myndskreyttu barnasagna er sjá dagsins ljós i söguhorninu á miðvikuduögum verði gefnar út á bók eða í tíma- riti. Það þykir víst ekki til fyrir- myndar að tönglast stöðugt á þvf sama, en blaðamenn eru nú einu sinni undirorpnir hverfulleikanum og þannig finnst þeim er hér ritar að orðin á pappírnum lifni gjarnan og deyji í senn. En þá er bara að rifja upp gamlar hugmyndir sem hafa þotið hjá í straumfalli tímans og ljá þeim nýtt yfirbragð, þannig að þær lifi kannski fæðingarstund- ina. Finnst mér til dæmis ekki úr vegi að gefa út sögu Sigrúnar Guðjónsdóttur af: Rauða fiskinum er heyra mátti nú á miðvikudag- inn. Sjálf sagan var máski ekki ýkja frumleg en myndskreyting Sigrúnar tókst prýðilega og ekki spillti ágætur lestur Ragnheiðar Gestsdóttur, dóttur höfundar. Slíkt samstarf mæðgna er reyndar ekki einsdæmi i söguhorninu, þannig minnist ég ágætrar sögu Hjördísar Einarsdóttur skáld- konu, er dóttir hennar, Lísbet Guðjónsdóttir myndlistarkona myndskreytti. Þessar sögur og reyndar mun fleiri úr söguhorninu eiga vissulega erindi á bók eða snældu sem sjónvarpið gæti til dæmis gefið 'ut i því skyni að afla fjár til kaupa á barnaefni. Sá blákaldi En víkjum nú okkar kvæði i kross, frá heimi barnsins að hinum blákalda veruleika hins stóra heims, en i fréttatíma rikisfjöl- miðlanna er þeim skipt annars vegar i hinn svokallaða innlenda vettvang og svo þann erlenda. Af innlendum vettvangi frétta mið- vikudagsins vöktu tvö fréttaskot einkum athygli mína. í fyrsta lagi var sagt frá ráðningu varnarmála- fulltrúa við varnarmálaskrifstofu utanríkisráðuneytisins eða einsog sagði í fréttinni ... skrifstofan stefnir að því að hafa sérfræði- menntaða menn um herfræðileg málefni. Að minu mati er hér um stórfrétt að ræða þvi nú er ætlun okkar (slendinga að leggja nánast visindalegt mat á hernaðarstöðu okkar og hverfa þar með frá til- finningabundinni (subjective) af- stöðu til þessara mála. í hörðum hernaðarheimi kunna slik vinnu- brögð að vera lifsnauðsynleg smá- þjóð er vill taka sjálfstæða afstöðu til mála og skýra þá afstöðu fyrir öðrum þjóðum. Mætti að ósekju byggja opinberar umræður um þessi mál öll á faglegra og vísinda- legra grunni en lengi hefir tiðkast einkum í ríkisfjölmiðlunum. Væri vel hægt að koma sliku i kring án þess að hér risi einhverskonar hernaðarakademia eða liðsfor- ingjaskóli. Frétt 2 Önnur frétt af innlendum vett- vangi vakti og athygli mina á miðvikudaginn. Greindi hún frá skemmdarverkum þeim er hafa verið unnin á þyrlu Landhelgis- gæslunnar. Páll Magnússon, fréttamaður, sótti hart að for- stjóra gæslunnar á vettvangi skemmdarverkanna og neyddist blessaður maðurinn loks til að viðurkenna að sáralítil gæsla væri á flugvallarsvæði þvi, er hýsti þyrluflota Landhelgisgæslunnar. Þetta kalla ég snöfurlega frétta- mennsku er gæti jafnvel leitt til þess að hlutlæg mat yrði lagt á varnir Reykjavikurflugvallar. Sú rannsókn mætti svo gjarnan bein- ast að þvi að kanna varnir þeirra er búa i næsta nágrenni við völlinn. Varnarmál snerta hinn almenna borgara nefninlega ekki bara i mynd kjarnorkueldflauga heldur líka í mynd járnfugla er nánast skrapa hér húsþök dag hvern. ÓlafurM. Jóhannesson Reynt að handsama kauða. Úr „Maöurinn i þakinu“. Föstudagsmyndin: Maðurinn á þakinu ■■■■ Föstudags- OO 00 mynd sjón- £í£í— varpsins heitir Maðurinn á þakinu og er gerð eftir skáldsögu þeirra Sjöwall og Wahlöö. Þessi mynd var sýnd í kvikmyndahúsi hér í Reykjavík fyrir nokkrum árum og fékk þá mjög góða dóma. Myndin fjallar um Erikson sem útvegar sér byssu og kemur sér fyrir uppi á stóru húsi í hjarta Stokkhólmsborgar. Þaðan fer hann svo að skjóta lögregluþjóna. Honum tekst fljótlega að drepa tvo og slasa tvo til viðbótar. Þá hefst lög- reglan fyrir alvöru handa um að ná honum niður og gera óskaðlegan. En það verður ekki léttur leikur, því maðurinn á ekkert eft- ir í lífinu nema einn riffil og þrjár byssur. Honum er skítsama um allt, nema hann vill drepa eins marga lögreglumenn og hann getur áður en hann verður handsamaður. Hann heitir Erikson og hafði einu sinni verið lögga sjálfur. Um aðalinn á Spáni ■■■■ Heldri manna 01 05 líf er á dagskrá & A ““ sjónvarpsins í kvöld. Að þessu sinni er aðalsfólk á Spáni heim- sótt. Medinacelis-fjölskyldan er af gríðarlega tignum ættum. Hún er afsprengi Borgias-ættarinnar, en tveir páfar og þrír dýrl- ingar hafa verið af þeirri ætt. Þetta fólk lifir í minningunni um 19. öld- ina og hefur aðeins á yfir- borðinu tileinkað sér siði og hugsunarhátt nútíma- manna. Greifynja með fjölda titla er höfuð fjölskyld- unnar, á Spáni erfast titl- arnir nefnilega ekki að- eins í karllegg heldur í kvenlegg líka. Á síðustu öld átti Medinacelis-fjölskyldan um 750.000 ekrur lands á Spáni. í dag er landið að mestu horfið úr höndum hennar, en fjöldi halla og endalausir titlar er það sem eftir er. Heimili fjöl- skyldunnar í Sevilla minnir á Márana og er fullt af dýrgripum sem fjölskyldunni hafa ásk- otnast gegnum tíðina. Það er svo margt að minnast á ■■■■ Torfi Jónsson 1 A 45 sér um þáttinn 1U— Það er svo margt að minnast á, í út- varpinu í dag. Torfi sagö- ist, í samtali við Morgun- blaðið, ætla að fjalla um Guðmund Friðjónsson frá Sandi og eiginkonu hans. „Eg byggi þetta mest á grein sem Hlöðver Hlöð- versson skrifaði í Árbók Þingeyinga um Guðmund, það er að vísu alllöng grein, en ég stytti hana talsvert. Ennfremur verð- ur talað nokkuð um konu Guðmundar, en minn- ingargrein um hana birt- ist í tímaritinu Heima er best, nokkru eftir að hún dó. Loks les ég kvæði eftir Guðmund, sem hann orti til konu sinnar og heitir Litið um öxl.“ Simba fylgist með föður sínum smíða stólinn. Simba og faðir hans ■■■■ Sjónvarpið sýn- 1 Q 25 >r ' kvöld mynd — sem heitir „Simba og faðir hans“. Myndin fjallar um Simba, sem er fimm ára og næst- yngstur i fimm barna fjöl- skyldu. Fjölskyldan býr í austurhluta Zimbabwe. Faðir Simba er snikkari en það er ekki mikið upp úr því að hafa ef engin hefur ráð á að kaupa sér húsgögn né búa þau til. Efni myndarinnar er dagurinn þegar loksins kom einhver, sem hafði efni á að kaupa stól. „Simba og faðir hans“ er gerð í tengslum við sölu á þróunarlanda-almanaki barnanna. UTVARP FÖSTUDAGUR 30. ágúst 7.00 Veðurfregnir. Fréttir. Bæn. Morgunútvarp. 7.20 Leik- fimi. Tilkynningar. 7.55 Daglegt mál. Endurt. páttur Sigurðar G. Tómas- sonar frá kvöldinu áður. 8.00 Fréttir. Tilkynningar. 8.15 Veðurfregnir. Morgunorð: — Þórhildur Ólafs talar. 9.00 Fréttir. 9.05 Morgunstund barnanna: „Glatt er I Glaumbæ" ettir Guðjón Sveinsson. Jóna Þ. Vernharðsdóttir les (3). 9.20 Leikfimi. 9.30 Tilkynn- ingar. Tónleikar. 10.00 Fréttir. 10. Í0 Veður- fregnir. Forustugr. dagbl. (útdr ). Tónleikar. 10.45 „Það er svo margt að minnast á“. Torfi Jónsson sér um þáttinn. 11.15 Morguntónleikar. Tónlist eftir Tsjalkovskl, Liszt, Chop- in og Schumann. 12.00 Dagskrá. Tilkynningar. 12.20 Fréttir. 12.45 Veður- fregnir. Tilkynningar. Tón- leikar 14.00 „Nú brosir nóttin", æviminningar Guðmundar Einarssonar. Theódór Gunn- laugsson skráði. Baldur Pálmason les (3). 14.30 Miðdegistónleikar. a. Sellókonsert I einum þætti eftir Arthur Honegger. Milos Sadlo og Tékkneska fllharm- onlusveitin leika; Vaclav Neumann stjórnar. b. „Kijé liðþjálfi", svlta op. 60 eftir Sergej Prokofjeff. Sinfónluhljómsveitin I Dallas leikur; Eduardo Mata stjórn- ar. c. Atriði úr „Meyjaskemm- unni" eftir Schubert/Berté. Rudolf Schock, Renate Holm, Karin Schock og fleiri syngja með Sinfónluhljóm- sveit Berllnar; Fried Walter stjórnar. 15.15 Létt lög. 15.40 Tilkynningar. Tónleikar. 16.00 Fréttir. Dagskrá. 16.15 Veðurfregnir. 16.20 A sautjándu stundu. Um- sjón: Sigrlður Ó. Haralds- dóttir og Þorsteinn J. Vil- hjálmsson. 17.00 Fréttir á ensku. 17.05 Barnaútvarpið. Stjórn- andi: Ragnheiður Gyða Jónsdóttir. 17 J5 Frá A til B. Létt spjall um umteröarmál. Umsjón: Bjðrn | M. Björgvinsson. Tilkynningar 18.45 Veðurfregnir. Dagskrá kvöldsins. 19.00 Kvöldfréttir. 19.40 Til- kynningar. Daglegt mál. Guövaröur Már Gunnlaugsson flytur þáttinn. 19.55 Lög unga fólksins. Þóra Björg Thoroddsen kynnir. 20.35 Kvöldvaka. a. Þilskipaútgerð á Norður- landi (4). Jón frá Pálmholti tekur saman og les. b. Skotist inn á skáldaþing. Ragnar Agústsson fer með stökur um hesta. c. Kórsöngur. Kirkjukór Hveragerðis og Kotstranda- sókna syngur undir stjórn Jóns Hjörleifs Jónssonar. d. Sigmundur læknir. Agúst Vigfússon les frumsaminn frásöguþátt. Umsjón: Helga Agústsdóttir. 21.25 Frá tónskáldum. Atli Heimir Sveinsson kynnir „Kóplon" eftir Fjölni Stef- ánsson. 22.00 Hestar. Þáttur um hesta- mennsku I umsjá Ernu Arn- ardóttur. 22.15 Veðurfregnir. Fréttir. Dagskrá morgundagsins. Orð kvöldsins. 22.35 Ur blöndukútnum. — Sverrir Páll Erlendsson. RÚVAK. 23.15 Frá hátiöartónleikum I Bayreuth I mal sl. Flytjendur: Viktor Lukas, Angelika Luz, Cornelia Kallisch, Otto Wint- er og kammersveit Viktors Lukas. a. Concerto grosso I h-moll op. 6 nr. 12 eftir Georg Friedrich Hándel. SJÓNVARP 19.15 A döfinni Umsjónarmaður Karl Sig- tryggsson 19.25 Taktu nú eftir, Simba (Ser du efter, Simba?) Dönsk barnamynd um fimm ára dreng og pabba hans en þeir feðgar eiga heima I Afr- ikurlkinu Zimbabwe. Þýðandi Jóhanna Jóhanns- dóttir. (Nordvision — Danska sjón- varpið) 19.50 Fréttaágrip á táknmáli 20.00 Fréttir og veður 20.30 Auglýsingar og dagskrá 20.40 Skonrokk Umsjónarmenn Haraldur FÖSTUDAGUR 30. ágúst Þorsteinsson og Tómas Bjarnason. 21.05 Heldri manna llf (Aristocrats) Fimmti þáttur Breskur heimildamynaflokk- ur I sex þáttum um aðals- menn I Evrópu. I þessum þætti kynnumst við Medinaceli aðalsættinni á Spáni og litumst um á heimilí fjölskyldunnar í Sevilla. Þýöandi Ragna Ragnars. 22.00 Maðurinn á þakinu (Mannen pá taket) Sænsk blómynd frá 1976, gerð eftir samnefndri saka- málasögu eftir Maj Sjðwall og Per Wahlöö. Leikstjóri Bo Widerberg. Aðalhlutverk: Carl Gustaf Lindstedt, Sven Wollter, Thomas Hellberg, Hákan Serner, Birgitta Valberg og Eva Remaeus. Lögregluforingi er myrtur og Martin Beck tekur þátt I leit- inni að morðingjanum. Hann finnst á húsþaki þar sem hann reynist ekki auðsóttur. Myndin er ekki við hæfi barna. Þýðandi Jóhanna Þráins- dóttir. 23.50 Fréttir i dagskrárlok b. „Flýið burt, sorgaskugg- ar“, kantata nr. 202 eftir Jo- hann Sebastian Bach. c. Tokkata, adagio og fúga I C-dúr eftir Johann Sebastian Bach d. „Salve Regina" eftir Dom- enico Scarlatti. e. Þrjú stutt orgelverk eftir Domenico Scarlatti. f. Óbókonsert I g-moll eftir Johann Sebastian Bach. 00.50 Fréttir. Dagskrárlok. 10.00—12.00 Morgunþáttur Stjórnendur: Asgeir Tómas- son og Páll Þorsteinsson. 14.00—16.00 Pósthólfið Stjórnandi: Valdis Gunnars- dóttir. 16.00—18.00 Léttir sprettir Stjórnandi: Jón Ólafsson. Þriggja mlnútna fréttir sagð- ar klukkan: 11:00, 15:00, 16:00 og 17:00. 20.00—21.00 Lög og lausnir Spurningaþáttur um tónlist. Stjórnandi: Siguröur Blöndal 21.00—22.00 Bögur Stjórnandi: Andrea Jóns- dóttir 22.00—23.00 A svörtu nótun- um Stjórnandi: Pétur Steinn Guðmundsson. 23.15—03.00 Næturvaktin Stjórnendur: Vignir Svelns- son og Þorgeir Astvaldsson. (Rásirnar samtengdar að lr\l/irtr-ti Hanclrrá

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.