Morgunblaðið - 30.08.1985, Blaðsíða 13
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 30. ÁGÚST 1985
13
A laugardegi
Myndlist
Valtýr Pétursson
Hér verður i stuttu máli minnst á
þrjár sýningar sem urðu á vegi
mínum síðastliðinn laugardag.
Fyrst skal minnast á Opið hús hjá
heiðarbúa íslenskrar myndlistar.
Þar á ég við Jón Baldvinsson, sem
byggt hefur upp við heiði og þannig
tekið heiðarnar í notkun fyrir list-
ina. Hann nefnir vinnustofu og
heimili sitt Gallerí Heiðarás, nafn-
gift sem er dregin af götuheitinu.
Jón sýnir á veggjum hjá sér nokkr-
ar stórar og myndarlegar kompósit-
ionir, landslag og fígúrur. Það er
nokkur breyting frá fyrri myndum
frá Jóni og ef til vill er hann að
byrja endurnýjun á málverki sinu.
Salurinn er nú nafnið á sýningar-
staðnum að Vesturgötu 3, en áður
var mjög líflegt og skemmtilegt
nafn á staðnum, sem ljómaði af
æskufjöri og sómdi sér betur en hið
hversdaglega heiti Salurinn. Hvað
um það, þar er á ferð ungur maður,
sem stundað hefur nám að undan-
förnu erlendis og er nú með sina
fyrstu einkasýningu hér á landi.
Hann heitir Gunnar Karlsson og
er auðsjáanlega ekki enn tilbúinn
að gera sig gildandi á hinni vand-
rötuðu leið listarinnar. Ætli væri
ekki sanngjarnt að segja að þessi
sýning sé hvergi timabær og við-
fangsefnin ofviða þessum unga
listamanni. Það er óþarfi að vera
með hrakspár eða ausa úr skálum
reiði sinnar, koma timar og koma
ráð.
Nokkrir Hjalteyringar heitir
samsýning sem er i Nýlistasafninu
þessa dagana. Þar er á ferð hópur
af útlendingum og ein íslensk kona.
Þarna er um konsept sýningu að
ræða, en konsept var i eitt sinn
framúrstefna en er nú engin nýjung
lengur. Þarna eru málverk, skúlpt-
úrar og ljósmyndir og sýndar lit-
skyííKnur. Margt fleira er þarna á
veggjum svo sem málaðir steinar
sem gefa hugmynd um snæviþakin
fjöll. Þarna er einn galli, sýningar-
skrá er af skornum skammti og
erfitt að átta sig á hver er hvað.
Það er sjálfsagt ýmislegt athyglis-
vert á þessari samsýningu en ef til
vill er þaö merkilegasta við þessa
sýningu að allur hópurinn hefur
dvalið norður á Hjalteyri og notið
kyrrðar og yndisþokka Eyjafjarðar
og þar hafa þessi verk orðið til. Þvi
má bæta hér við í lokin, að nútíminr
er á fleygiferð og stefnur og ismar
í listum koma og fara fljótar en
margur gerir sér grein fyrir. Þetta
kemur ósjálfrátt i hugann, þegar
sýning sem þessi er skoðuð.
H
öföar til
fóllöíöllum
starfsgreinum!
ESAB
Rafsuóutæki
vír og
fylgihlutir
Nánast allt til
rafsuðu.
Forysta ESAB
ertrygging
fyrirgæðum
og góðri þjónustu.
Allartækni-
upplýsingar
eru fyrirliggjandi
ísöludeild.
= HÉÐINN =
VÉLAVERSLUN, SELJAVEGI 2,
SIMI 24260
ESAB
Flísar
flísaefni
verkfæri
Komið í sýningarsal okkar
og skoðið möguleikana á
notkun Höganás flísa í húsið.
Veljið síðan
Höganás
fyrirmynd
annarraflísa
= HÉÐINN =
SEUAVEQ 2, REVKJAVIK
ÞEGAR ÞÚ KAUPIR NÝJAN BÍL?
Þegar þú kaupir nýjan bíl, þá er eíns gott að hafa það í huga að einhvern tíma kann
að koma að því, að þú þurfir á varahlutum að halda. Þú gætír lent í óhappi, bíllínn
skemmst í árekstri, eða smábílanír átt sér stað, þannig að varahluta sé þörf. Þess
vegna er áríðandi, þegar nýr bíll er valínn að bera ekki bara saman bíla, heldur
einnig varahlutaþjónustu og verð varahluta hjá umboðinu.
Ófáir eigendur nýrra bíla hafa vegna árekstra eða annarra óhappa þurft að kaupa
varahlutí á óheyrílegu verðí.
Við hjá Bílaborg h/f höfum jafnan kappkostað að halda niðri verði, ekki bara á
nýjum bílum, heldur líka á varahlutum. Hér að neðan nefnum við dæmí um verð
varahluta í nokkrar gerðir MAZDA bíla:
Frambretti
á MAZDA 323 ’81—'85
kostar 5.240 krónur.
Hvað kostar frambretti á
bílinn þinn?
Bremsubordar
í MAZDA 323 kosta
'708 krónur.
Hvað kosta bremsuborðar
í bílínn þinn?
Gríll
á MAZDA 323 ’81-’82
kostar 1.463 krónur.
Hvað kostar grill á
bílinn þinn?
Fústkerfí
í MAZDA 323 77—80
•i kostar 3.695 krónur.
Hvað kostar pústkerfi í
bílinn þinn?
Kúplingsdiskur
í MAZDA 323 kostar
972 krónur.
Hvað kostar kúplingsdiskur
í bilinn þinn?
á MAZDA 626 '83-85
kostar 2.148 krónur.
Hvað kostar framljós á
bílinn þinn?