Morgunblaðið - 30.08.1985, Blaðsíða 22

Morgunblaðið - 30.08.1985, Blaðsíða 22
22 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 30. ÁGÚST 1985 í stuttu máli Liechtenstein: Opnar sendi- ráð í Róm Vaduz, Liechtenstein, 29. igú«t. AP. YFIRVÖLD í Vatíkaninu og smáríkinu Liechtenstein, til- kynntu í gær að fyrirhugað væri að taka upp stjórnmálasam- band milli ríkjanna. Stjórnvöld í Sviss hafa yfir- leitt séð um allt er lýtur að stjórnmálasamböndum við önnur lönd, fyrir hönd Liechtenstein, en Sviss hefur þó ekki tekið upp slíkt sam- band við Vatíkanið. Páfi er vaentanlegur í opinbera heimsókn til Liecht- enstein eftir 11 daga, en ekki hefur verið tilkynnt hvenær ríkin skiptast á stjórnarer- indrekum. Fundu múm- íur í Chile London, 29. ágúst. AP. BRESKIR leiðangursmenn og vísindamenn frí Chile hafa fundið 25 vel varðveittar múmí- ur í Atacama-eyðimörkinni ( Chile. Múmíurnar fundust í forn- um grafreiti indíána í eyði- mörkinni og töldu vísinda- mennirnir að þær hefðu varð- veist í um 1.500 ár. Líkin höfðu verið sveipuð húðum af lama-dýrum og látin snúa í átt að eldfjalli, sem indíánar sem þar bjuggu töldu heilagt. Talið er múmíurnar hafi varðveist svona vel vegna hins þurra loftlags í eyði- mörkinni. Múmínurnar verða geymdar á safni í Chile. Fjársvik í Kína Peking, 29. ífúsL AP. UPPVIST hefur verið um stór- felldan fjárdrátt, skattsvik og umframeyðslu hjá starfs- mönnum á opinberu endur- skoðendaskrifstofunni í Kína, en stofnunin var sett á fót fyrir tveimur árum. Fjársvikin nema sem svar- ar um 1,6 milljörðum Banda- ríkjadollara og hefur verið hafin nákvæm rannsókn á 24.000 reikningum sem endur- skoðendunum var ætlað að fjalla um. Hagnaður stofnun- arinnar á þessu ári var áæt- laður sem svarar 120.000 doll- urum, en þess í stað nam halli á rekstri stofnunarinnar um 324,000 dollurum. Banki sektaður San Francúco, 29. ágúst. AP. CROCKER-bankanum í San Francisco, hefur nú verið gert að greiða um 2,25 milljónir dala í sekt fyrir að tilkynna ekki um mikil gjaldeyrisviðskipti, aðal- lega við sex banka í Hong Kong. Á undanförnum fjórum ár- um hefur bankinn ekki til- kynnt um 7.800 færslur sem námu samtals um fjórum milljörðum dala. Talsmaður bankans sagði að einungis hefði verið um mistök að ræða og forráðamenn bank- ans hefðu enga ástæðu til að ætla annað en að gjaldeyris- viðskiptin hefðu verið með eðlilegu móti. Norður-írland: IRA-menn gerast verðir laga og reglu Vilja útrýma smáglæpamönnum London, 29. áfníst. ÍRSKU hryðjuverkasamtökin IRA eru um þessar mundir að tygja sig til að gerast verðir laga og reglu í Ulster-héraði. Smáglæpamönnum f Belfast hefur verið gert skiljanlegt, að þeim sé hollast að yfirgefa borgina ásamt þýi sínu, vilji þeir lífi halda. Allmörgum „athafnamönnum" í gróskumiklum undirheimum Norður-írlands hefur verið leitt fyrir sjónir, að þeir eigi á hættu að týna engu fyrr en lífinu, hypji þeir sig ekki úr borginni, að því fram kemur í breska blaðinu The Guard- ian. Fréttaritari blaðsins í Belfast bætir við, að hryðjuverkasamtökin hafi birt lista yfir innbrot, rán og yfirhylmingar, sem þau eigna nafngreindum „andfélagslegum að- ilum". „Þessir aðilar," segir í at- hugasemd IRA, „eru fjendur okkar ekki síður en Bretarnir og lögregl- an, og þeir verða meðhöndlaðir samkvæmt því.“ Þá hafa samtökin skipað svo fyrir, að veitingahúsi einu í Belfast verði lokað. Hefur viðskiptavinum þess verið tilkynnt, að ekki verði unnt að ábyrgjast öryggi þeirra, haldi þeir áfram að venja komur sínar á þennan stað. Hótanirnar teknar alvarlega „Það kann að virðast mótsagna- kennt,“ segir fréttaritari The Guardian, „að IRA skuli skuli taka sér fyrir hendur að þjarma að þeim, sem samtökin álíta glæpa- menn, en það er ekki minnsti vafi á, að hótanirnar verða teknar al- varlega.“ Samkvæmt því sem The Times segir, eru margir smáglæpa- menn þegar farnir frá Belfast. Hryðjuverkamenn IKA-samtakanna, sem staðið hafa að morðum, limlesting- um og misþyrmingum á þúsundum manna, ætla nú að gerast verðir laga og reglu. Fallhlífarstökkvari kvik- myndaði banastökk sitt Osló, 28. ágúst Frá fréttaritara Morgunbladsins. FINNSKUR fallhlífarstökkvari, Jari Myttinen, beið bana er hann reyndi að stökkva fram af Tröllavegg í Romsdal í gærkvöldi og svífa til jarðar í fall- hlíf. Segja má að Myttinen hafi kvikmyndað eigið andlát, því tökuvél fyrir myndband var fest við hjálm, sem hann bar á höfði, og tók hún hrapið upp á band. Myttinen náði aldrei tökum á fallhlífinni, því strengirnir flækt- ust er hún opnaðist. Slóst hann utan í þverhníptan klettavegginn, sem er 1.000 metrar á hæð, og hrapaði síðan nokkur hundruð metra niður í grjóturð. Sænskur fallhlífarstökkvari beið bana með sama hætti við Tröllavegg í síðustu viku, og kunnur bandarískur stökkvari í fyrra. Myttinen var í hópi 9 Finna, sem ætluðu að taka mynd, sem nota átti í áróðursskyni fyrir fallhlífarstökki fram af bjargbrún. í hópnum var Jorma Öster, Finninn sem fyrstur stökk fram af Tröllavegg fyrir nokkrum árum og hleypti af stað stökkæði, sem kennt er við bjargið þverhnípta. Tveir stökkvarar stukku á undan Myttinen og gekk þeim vel. Myttinen var 32 ára gamall og reyndi stökk fram af Tröllaveggn- um fyrsta sinni. Á bjargbrúninni fylgdist unnusta hans með bana- stökkinu. Norska fallhlífarsam- bandið hefur bannað félögum sín- um að stökkva fram af Tröllavegg. Stökk fram af veggnum hefur í för með sér útskúfun úr sambandinu. Nokkrir Norðmenn munu hafa laumast til að stökkva fram af bjarginu. Norsk yfirvöid hafa ekki lagt bann við tiltækinu, en uppi eru raddir um að hið opinbera ætti að skerast í leikinn. Harðnandi kosninga barátta í Svíþjóð eftir Pétur Pétursson ÞAÐ ER athyglisvert við kosninga- baráttuna hér í Svíþjóð, sem nú er í fullum gangi, að þau raál sem fyrir nokkrum mánuðum virtust ætla að verða aðalmálin hafa í raun og veru ekki orðið nein sérstök hitamál. Hér er ura að ræða launþegasjóðina og stefnuna í utanríkismálum. Hvað varðar fyrra málið eru menn nú orðnir þreyttir á hinum stóru orðum sem fallið hafa enda hafa þeir ekki reynst sú ógn gegn markaðsöflunum og ýmsir óttuðust og ekki hefur Sví- þjóð færst til muna í átt til kommún- isma fyrir tilkomu þeirra. Hin stóru orð og ásakanir á víxl milli sósíal- demókrata og móderata varðandi utanríkismál, sem undanfarin ár hafa einkennt stjórnmálaumræðuna hafa hjaðnað að mun. Ástæðan er ábyggilega sú að í raun og veru eru allir flokkarnir sammála um grund- vallaratriði hlutleysisstefnunnar. Umhverfisverndarmál og skattamál eru engu að síður aðalmál þessara kosninga en hin tvö áðurnefndu. Miðflokkarnir falla í skuggann Miðflokkarnir hafa nokkuð fall- ið í skuggann í þessari kosninga- baráttu a.m.k. það sem af er. Höf- uðandstæðingarnir eru móderat- ar, yst til hægri af borgaraflokk- unum, og svo jafnaðarmenn, sem sitja einir ( stjórn, en hafa notið stuðnings kommúnista í vissum málum. Móderataflokkurinn er langstærstur af borgaraflokkun- um, fékk tæp 24% atkvæða í sein- ustu kosningum og skoðanakann- anir sýna að flokknum hefur stöð- ugt verið að aukast fylgi — í júní hafði hann um 30% fylgi, enda er formaður flokksins, Ulf Adelsohn, glaðbeittur og fer geist í þessari kosningabaráttu. Hann talar um nauðsyn þess að kollvarpa öllu hinu sósíalíska kerfi sem jafnað- armenn hafi byggt upp og sé nú að leggja efnahag landsins í rúst og eyðileggja vinnugleði og sjálfs- bjargarviðleitni einstaklinganna. Vígorð hans er „Kerfisbreyting" (systemskifte). Hann undirstrikar stefnu sína með sláandi dæmum og smá uppákomum sem fjölmiðl- ar taka fegins hendi og gefur þetta honum óneitanlega forskot um- fram hina borgaraflokkana, sem vilja „halda í“ ýmislegt af því sem sósíaldemókratar hafa byggt upp á sínum langa ferli í stjórn undan- farna hálfa öld. Móderatar vilja lækka skattana, minnka sam- neyslu, hætta niðurgreiðslum og skera niður styrkjakerfið. Þessi pólarisering hefur í raun og veru einnig komið sér vel fyrir sósíal- demókrata sem fá nú tækifæri til að bera stefnu sína saman við uppáhaldsmótstöðuaðila sinn. Þeir vilja slá vörð um velferðar- ríkið og það öryggi sem félagsleg þjónusta og samneysla veitir. Sósíaldemókratar vilja sem sagt „halda í það sem fyrir er“ en Mód- erataflokkurinn vill róttækar breytingar. Hin hefðbundnu for- merki stjórnmálaflokka í íhald og byltingarstefnu hafa hér snúist við. Borgaraflokkarnir sundraðir innbyrðis Eitt af aðaltrompum Olofs Palme leiðtoga jafnaðarmanna í þessari kosningabaráttu er að borgaraflokkarnir séu svo sundr- aðir innbyrðis að þeir geti ekki myndað starfhæfa ríkisstjóm fái þeir meirihluta að loknum kosn- ingum. Hann tekur upp mörg dæmi um þetta í ræðum sínum og vitnar í þá samstarfserfiðleika sem flokkarnir áttu í borgaralegu samstjórnum á seinni hluta átt- unda áratugarins. Möguleikarnir á að þeir komi sér saman eru enn minni nú segir Palme, þegar líkur eru á þvi að Kristilegir demókrat- ar komi mönnum á þing vegna kosningabandalags þess er þeir hafa gert við Miðflokkinn. Þá verði það fjórir flokksleiðtogar sem þurfi að koma sér saman, en áður voru það bara þrír, segir Þeir Olof Palme (til vinstri) og Ulf Adelsohn setja hvað mestan svip á sænsku kosningabaráttuna nú. Sá sfðarnefndi hefur verið mjög glaðbeittur í ræðum sínum að undanförnu, enda sýna skoðanakannanir, að flokki hans, Móderata- flokknum, hefur stöðugt verið að aukast fylgi. Hann fékk 24% í síðustu kosningum, en skoðanakannanir í júní sl. sýndu, að nú nýtur hann stuðnings um 30% kjósenda.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.