Morgunblaðið - 30.08.1985, Page 7
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 30. ÁGÚST 1985
7
Aðalfundur Skóg-
ræktarfélags Is-
lands á Blönduósi
AÐALFUNDUR SkógrækUrfélags
íslands hefst í félagsheimilinu á
Blönduósi í dag og stendur fram að
hádegi á sunnudag. Alls er reiknað
meö aö fulltrúar á fundinum og
gestir verði um 100 talsins. Meðal
gesta er fyrrverandi formaður norska
skógræktarfélagsins, Toralf Austin,
Laugarásbíó frum-
sýnir Grímuna:
Frumsýning-
artekjur
renna til
Skálatúns
Á MORGUN hefjast sýningar í
Laugarásbíói á myndinni „Gríman“
eftir leikstjórann Peter Boganovitsj.
Hefur stjórn Laugarásbíós ákveðið
að ágóði af frumsýningunni kl. 5 í
dag renni óskiptur til vistheimilisins
í Skálatúni.
Myndin fjallar um táninginn
Rocky sem er eðlilegur á allan
hátt en vegna kalkmyndunar í
höfuðkúpu afmyndast höfuð hans
og andlitið verður eins og gríma.
Pilturinn fær óspart að finna fyrir
hversu miskunnarlaus heimurinn
getur verið við þá sem eru öðruvísi
en almennt gerist. Móðir hans er
drykkfelld og rótlaus en berst þó
ótrauð fyrir rétti sonar síns.
Með hlutverk móðurinnar fer
söngkonan Cher en Eric Stoltz
leikur soninn.
og sendiherra Noregs á íslandi,
Niels Lauritz Dahl.
í dag verður fundurinn settur
klukkan 10 og síðan taka venjulega
aðalfundarstörf við. Á morgun,
laugardag, hefst fundur klukkan 9
með erindi Jóns Gunnars Ottós-
sonar um rannsóknarstörf í ís-
lenzkri skógrækt og kynningu á
starfsemi rannsóknarstöðvarinnar
að Mógilsá. Síðan er skoðunarferð
um Blöndudalshóla í skógarreiti
að Gunnfríðarstöðum og Sauða-
nesi. Fundarstörfum verður fram
haldið á sunnudagsmorgun og lýk-
ur fundi síðan um hádegi.
Skógræktarmál hafa verið mjög
í brennidepli að undanförnu og
má í því sambandi nefna framtak
Kvenfélagasambands íslands, sem
minntist 70 ára afmælis kosninga-
réttar kvenna hérlendis með sér-
stöku gróðursetningarátaki, og
Ungmennafélags íslands. Enn-
fremur hafa mörg sveitarfélög
gert átak í þessum efnum.
Formaður Skógræktarfélags
íslands er Hulda Valtýsdóttir.
Veðrið:
Víða bjart
HÆG norðaustanátt mun ríkja á
landinu næstu þrjá daga sam-
kvæmt upplýsingum frá Veðurstof-
unni. Víða verður bjart um sunnan-
og vestanvert landið en skýjað með
súld og jafnvel rigningu á stöku
stað á landinu norðanverðu. Hitinn
verður á bilinu 5 til 10 stig, svalara
fyrir norðan en hlýrra syðra.
Þau voru að setja upp sýningu Septem-hópsins á Kjarvalsstöðum á dögunum. F.v. Hafsteinn Austmann,
Guðmundur Benediktsson, Jóhannes Jóhannesson, Valtýr Pétursson og Guðmunda Andrésdóttir. Á mvndina
vantar Kristján Davíðsson.
Fjölbreytt sýning en sver
sig þó í ættina við okkur
— segir Valtýr Pétursson um sýningu Septem-hússins.
Sýningar Septem-hópsins eru
löngu orðnar árviss viðburður í
menningarhTinu. Á morgun, laugar-
dag, kl. 14. verður sú þrettánda í
röðinni opnuð á Kjarvalsstöðum og
stendur til 15. september.
I Septem-hópnum eru þau Guð-
munda Andrésdóttir, Karl Kvar-
an, Steinþór Sigurðsson, Guð-
mundur Benediktsson, Jóhannes
Jóhannesson, Kristján Davíðsson
og Valtýr Pétursson. Þeir Karl og
Steinþór taka ekki þátt í sýningu
hópsins að þessu sinni, en gestir
sýningarinnar eru hins vegar
tveir, þeir Hafsteinn Austmann og
Jens Urup.
„Að þessari sýningu meðtaldri
erum við búin að sýna árlega í
þrettán ár en hún verður að duga
fyrir næsta ár líka, því að næsta
sýning verður ekki fyrr en eftir
tvö ár,“ sagði Valtýr Pétursson
þegar blaðamaður átti við hann
stutt spjall í haustsólinni fyrir
utan Kjarvalsstaði þar sem lista-
mennirnir voru að leggja síðustu
hönd á uppsetningu sýningarinn-
ar.
„Verkin á sýningunni verða
eitthvað um sextíu,“ sagði Valtýr.
„Guðmundur Benediktsson er með
skúlptúra, Jens Urup sýnir steinda
glugga sem hann hefur gert fyrir
Sauðárkrókskirkju, Hafsteinn
Austmann sýnir málverk og
vatnslitamyndir og við hinir ein-
göngu málverk. Ég er þarna með
fígúratív verk en hinir eru meira
abstrakt, en við leggjum ekki
áherslu á neinn sérstakann
„isma“. Einu sinni vorum við
skammaðir fyrir að vera fram-
úrstefnumenn, en núna finnst
kannski sumum við vera aftur-
haldssamir," sagði Valtýr.
„Það má kannski kalla okkur
síðustu móhíkanana," bætti Val-
týr við og kímdi. „Síðan verður
hver og einn að leggja sinn skiln-
ing í það hugtak.“
VERTU MEÐ!
Já, vertu með í hugmyndasamkeppninni um
ný vörumerki fyrir fatnað sem framleiddur er
í Fataverksmiðjunni Heklu á Akureyri.
Samkeppnin er öllum opin og eru allar hug-
myndir vel þegnar, hvort heldur þær eru
hugdettur eða betur útfærðar tillögur, í orðum
eða línum - eða kannski allt þetta.
Efniviðurinn er margþættur þvf verksmiðjan
framleiðir föt á konur, karla og börn, til úti-
eða inniveru, í starfi eða að leik.
Verðlaun verða veitt fyrir þrjár bestu
hugmyndirnar að mati sérstakrar
dómnefndar. Pau eru:
1. verðlaun kr. 40.000
2. verðlaun kr. 20.000
3. verðlaun kr. 10.000
Skilafrestur er til 15. september og skulu
tillögur sendar Fatadeild Sambandsins,
Holtagörðum, 104 Reykjavík, merktar
HUGMYNDASAMKEPPNI.
Réttur er áskilinn til að taka hvaða tillögu sem
er eða hafna öllum, eins og þar stendur, nota
þær sem hljóta viðurkenningu dómnefndar og
vinna frekar úr skissum.
Vinnum saman
vertu með!
FATADEILD SAMBANDSINS
HOLTAGÖRÐUM SÍMI 8 12 66
í
I
I
I