Morgunblaðið - 30.08.1985, Side 10
10
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 30. ÁGUST 1985
Margir muna eftir gömlu Montparnasse-járnbrautarstöðinni er varð 1966
að víkja fyrir nýtískulegum 210 metra háum turni eða viðskiptamiðstöð.
I>essi mynd sýnir gömlu stöðina, þegar þar varð mikið járnbrautarslys
árið 1895.
Svipur Montparnasse
Áform eru um að reyna á er enn verið að reyna að bæta
næsta áratug að „lagfæra"
eitthvað Montparnasse-hverfið,
sem átti sitt blómaskeið sem
listamannahverfi borgarinnar á
millistíðsárunum. Upphafið má
rekja til 7. áratugarins, þegar
gamla Montparnasse-járnbraut-
arstöðin var látin víkja fyrir 300
metra háum turni „Tour de
Montparnasse" með stórverslun-
um, skrifstofum, búðum, útsýn-
isveitingahúsi, og geysistóru
neðanjarðarbílastæði. A eftir
fylgdi ný járnbrautarstöð um-
kringd ósamstæðum risastórum
sambýlishúsum. Vonast var til
þess að þessi kjarni mundi laða
til fjárfestinga í nærliggjandi
gömlum hverfum, eins og varð í
Marais-hverfinu og Hallahverf-
inu eftir að Beaubourg-safnið
reis. En það fór á annan veg. Nú
þarna úr. Mjög umdeild er húsa-
samstæða katalónska arki-
tektsins Bofills, sem átti að
rúma 200 smáíbúðir í hringlaga
stórbyggingu með heilmiklu af
súlum, þykir ekki falla að því
sem fyrir er. Sagt að enginn hafi
leyft sér að umbylta svo götu-
myndinni í París síðan Hauss-
mann leið. Og nú er enn einn
aðilinn kominn inn í til að bæta
um betur við Rue de l’Ouest við
hliðina á Bofill, og á að laga
jaðarbyggðina að hans verki.
Þar á að byggja 65 íbúða blokkir
á tveimur hæðum og bíla-
geymslukjallara. Rue de Ouest
verður þá göngugata og gert ráð
fyrir búðum á neðstu hæðum. En
fyrirhugað hringtorg Bofills er
fyrir bí, verður í hæsta lagi hálf-
hringur.
París er mikil hundaborg enda þarf daglega að hreinsa þar upp 20 tonn af
hundaskit og höfð til þess sérstök tæki, sem alltaf eru á ferðinni.
Götuhreinsunin tæknivæðist
Mikið átak hefur verið gert á
undanförnum áratugum til gera
Parísarborg að hreinni borg og
með góðum árangri. Nú vinna
6000 starfsmenn á vegum heil-
brigðismálaráðsins alla daga að
því að halda götum borgarinnar
hreinum. Alls konar ný tækni
hefur verið tekin í notkun og í
maímánuði sl. efndi borgarstjór-
inn Jacques Chirac til blaða-
mannafundar til að kynna þess-
ar tækniframfarir og þau 1200
hreinsunarfarartæki sem eru á
ferðinni á vinstri bakka Signu
sem hinum hægri. Forvitni-
legasta nýjungin sem kom í
gagnið á árinu 1985 voru nýjar
og endurbættar „caninettur".
þ.e. græn og hvít mótorhjól sem
hafa það hlutverk að hreinsa
daglega upp 20 þúsund tonn af
hundaskít. Einnig hið svokallaða
„désafficheuse" eða afauglýs-
ingatæki, sem getur ekið á grasi
og klifið stiga til að fjarlægja
óleyfilegar auglýsingar.
Var efnt til sýningar undir
heitinu „Ljós og skuggar eignar
okkar" og fer hún um borgina í
haust, verður í 17. hverfi frá
1.—18. október og í 20. hverfi
18.—30. nóvember, svo eitthvað
sé nefnt.
En menn hreinsa líka sjálfir
með gamla laginu götur Parísar,
svo sem sjá má á meðfylgjandi
mynd.
Frásagnir
frá
Glæsileg menningarmiðstöð
að rísa í La Villette
í maímánuði var á þessari síðu
rætt um menningarstefnu
stjórnvalda í Frakklandi og
nefnd stórátak sem í gangi er í
19. hverfi borgarinnar, þar sem
er verið að umbreyta Villette
garðinum í glæsilega bygg-
ingarsamsteypu með mikilli
áherstu á nýjungar í arkitektúr.
Þetta er mikið metnaðarmál
Mitterands Frakklandsforseta,
sem beitir sér af alefli. Sagt er
að þetta eigi að verða minnis-
varðinn um 7 ára forsetatíð hans
og því lagt svo mikið kapp á að
koma honum upp. Þykir mörgum
nóg um í erfiðu efnahagsástandi.
En glæsilegt er þetta átak.
Þegar hin gömlu sláturhús
borgarinnar höfðu vikið gafst
þarna færi á 50 hektara landi í
gömlu borginni. Það tækifæri
greip forsetinn og var ákveðið að
á þessum stað skyldi verða
glæsileg miðstöð tileinkuð
menningarskeiði því sem við tók
eftir iðnbyltingunarárin á síðari
hluta 20. áldar. Aðalbyggingin í
þessari húsasamsteypu er „Vís-
inda- tækni- og iðnaðarsafnið",
sem áformað er að opna í
marsmánuði 1986. Kostnaðar-
áætlanir bjartsýnna skipuleggj-
enda hljóðuðu upp á jafnvirði 4,2
milljarða ísl. króna. Til saman-
burðar má geta þess að fram-
kvæmdirnar við Louvre-safnið
(sem sagt var frá á síðunni 22.
maí) eiga að kosta 1,4 milljarða.
Ekki er þetta eina byggingin
þarna, enda hafa 600 teiknarar
og 500 verkamenn verið önnum
kafnir í fjögur ár við að koma
skipulagi á þetta verkefni, sem á
að „laga franska menningu að
nútímanum". Tvær af fyrirhug-
uðum fimm byggingum í La Vill-
ette hafa þegar verið opnaðar al-
menningi. Zénith tónleikahöllin
hefur verið í stöðugri notkun síð-
an um síðustu áramót og virðast
bæði flytjendur og áheyrendur
sammála um að hljómburður sé
afbragð og tæknilegar aðstæður
fyrir listafólkið frábærar. Er
nautamarkaðurinn frá 19. öld
orðinn að sýningarhöll með
flóknu formi. Þar komast fyrir
um 4000 áhorfendur. Fyrsti
áfangi byggingar sem nefnist
„Tónlistarborgin" hefur fengið
grænt ljós. Arkitektinn Christ-
ian de Portzamparcur teiknar
hana, enda vann hann sam-
keppni um verkefnið. Þegar hún
er fullgerð á þessi borg að hýsa
nýjan franskan tónlistarháskóla
í útfærðri mynd, m.a. með
hljóðfærasafni, tilraunasal sem
tekur eitt til tvö þúsund manns
og öðrum sal fyrir sinfóníutón-
leika er rúmar 2000 manns í
sæti. En þegar Pompidou-safnið
var byggt voru þar aðeins gerð
skil tónsmiðju fyrir nútímatón-
list, ekki klassíska.
Hvolfbyggingin vígð í maí
Vísinda-, tækni- og iðnaðar-
safnið er komið að lokaáfangan-
í stálkúlunni sem byggð er ofan á gamla sláturhúsinu, verður veitt fræösla um himingeiminn á þúsund fermetra
hvelfdu tjaldi. Þessi hluti byggingarinnar var vígður í maímánuði sl.
um. (Jtálma úr byggingunni er
að formi til geysistór stálkúla, 36
m í þvermál, og verður notuð til
að sýna vísindalegar fræðslu-
myndir um himingeiminn á þús-
und fermetra kvikmyndatjaldi,
er tekur yfir 180 gráðu boga og
fer því fram úr sjónsviði manns-
ins, sem ekki nær nema 120
gráðum. Þessi fyrsta bygging í
samstæðunni var vígð snemma í
maí í vor. Ber hún nafnið „Géo-
de“. Þetta nútímalega risa hvolf-
þak, sem byggt er ofan á leifun-
um af söluskála sláturhússins,
býður áhorfendum upp á margs
kyns furðufyrirbrigði. Laser-
myndir birtast og hverfa með
hraða ljóssins meðan fyrsta sýn-
ingin „Maðurinn og vatnið" um-
lykur áhorfandann sviðsmynd-
um allt frá Grænlandi og suður
að Ganges á Indlandi.
Safnið kemur til með að hafa
sýningarrými, sem er þrisvar
sinnum meira en Beaubourg-
menningarmiðstöðin. Arkitekt-
inn Adrien Fainsilberg hefur í
huga 30 þús ferm sal fyrir fasta-
safnið og 10 þús ferm sal fyrir
skammtímasýningar, sýningar-
herbergi fyrir börn, sýningar-
herbergi fyrir nýjasta nýtt þar
sem gerð verður grein fyrir nýj-
ungum í vísindum, fjölmiðlastöð
og loks miðstöð fyrir þúsund
manna ráðstefnur. Það þykja
mikil tíðindi í Frakklandi, þótt
ekki veki það kannski athygli á
Islandi, að öll byggingin verður
hituð með hitaveitu frá nyrri
jarðvarmaveitu.
Mestu nýjungarnar felast þó í
hugmyndafræði upphafsmanns-
ins Mauricar Lévs sem kallar
verk sitt „stórt samgöngutæki á
tæknisviðinu". Um 60 vísinda-
menn og rannsóknaaðilar hafa í
þrjú ár verið að leggja niður
fyrir sér hvernig eigi að túlka
heim nútímavísinda og um leið
almennings í fastasafninu og út-'
skýra nýjustu tæknilegar fram-
farir á þessu sviði með frumleg-
um og alveg nýjum tæknibrell-
um. „Margar af þessum 800 vél-
um, sem komnar eru á teikni-
blöðin, hafa þegar verið smíðað-
ar, en þær tengjast mikið inn-
byrðis og stýra allt frá jarð-
skjálftaklefum niður í módel af
meltingarveginum. Margar upp-
runalegu hugmyndirnar hafa þó
farið forgörðum á byggingartím-
anum. Búið að varpa flestum
þeirra fyrir róða, af því að ekki
hefði unnist tími til að vinna úr
þeim og gera þær raunhæfar.
Þegar Maurice Lévy tók við
safninu í októbermánuði 1984
voru vísindamennirnir neyddir
til að vinna upp tapaðan tíma
með þvi að taka til við að ganga
frá þeim sem eftir voru af þess-
um 650 „brellitækjum", sem eiga
að stýra föstu sýningunni.
Nýi framkvæmdastjórinn hef-
ur gert góða grein fyrir loka-
takmarkinu með þessu safni, en
það næstum hafði týnst í allri
umfjölluninni og segir: Þarna er
um það að ræða að taka mann-
inn fram yfir þegar vísindi og
tækni eru skoðuð á gagnrýninn
hátt. Forsetinn sjálfur hefur sett
þar.n dag sem draumurinn á að
verða að veruleika. í marsmán-
uði 1986, segir hann.
(Byggt i grein eftir Frank
Gérin.)