Morgunblaðið - 30.08.1985, Qupperneq 43
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 30. ÁGÚST 1985
43
Bréfritari telur íslendinga geta yfirtekið störf þessara manna og verið jafnmiklir friðarsinnar eftir sem áður.
íslenskt varnarlið?
Húsbóndi í Vesturbænum skrifar:
Ágaeti Velvakandi!
Deilur um varnarliðið og stirð
samskipti við þau eru ekki til
annars fallin en veikja öryggi
landsins. Þótt flestir kysu að hér
þyrfti ekki að vera erlent herlið
hefur mikill meirihluti þjóðarinn-
ar skilning á nauðsyn þess, og það
þarf mikið óraunsæi til að trúa
því að herinn megi fara einhvern-
tíma í næstu framtíð. En tilvist
erlends herliðs er og verður þyrnir
í augum landans.
Er ekki lausnin sú að við íslend-
ingar yfirtökum smátt og smátt
flestöll störf varnarliðsins? Tæki
og búnaður yrðu að sjálfsögðu
áfram í eigu bandaríska hersins
og yfirstjórnin bandarísk. Laun
íslensku atvinnuhermannanna
sem og annar beinn kostnaður yrði
greiddur af Bandarikjaher. Varla
yrðum við íslendingar minni frið-
arsinnar í augum heimsins þótt
við hefðum sjálfir með höndum
þessa öryggis- og varnargæslu
fyrir landið sem varnarliðið sinnir
nú.
SÍS er óþörf stofnun
Heiðraði Velvakandi.
„Hvað átti Þorleifur við?“ spyr
H.Kr. vegna greinar eftir mig sem
nýverið var birt í þínum dálkum.
Það er von hann spyrji, ef hann
kemur ekki auga á annmarkana á
samvinnurekstrinum. ( eina tíð
var mikið gert úr þeirri hugsjóna-
mennsku sem lægi að baki verslun-
arrekstri og flokksstarfi Fram-
sóknarflokksins. Að mínu mati
þarf ekki að eyða mörgum orðum
á það sem liggur í augum uppi:
Hugsjónin er harla léttvæg.
Hversvegna þurfti Framsóknar-
flokkurinn að stofna SÍS? Ég sé
ekki betur en að það hafi verið í
þeim eina tilgangi að koma flokks-
mönnum sínum í stöður. Og hvern-
ig stóð á því að Sambandið stofnaði
heildsölufyrirtæki? Þar er heldur
ekki hreint mjöl í pokanum því
vitað er að heildsalar hafa alla tíð
verið framsóknarmönnum þyrnir
í auga. Þær forsendur sem heild-
sala byggir á er líka illsamræman-
leg þessari svokölluðu samvinnu-
hugsjón. SÍS er óþörf stofnun og
til þess eins að rýra tekjur bænda.
Upphaflega voru það fáeinir
bændur sem tóku sig til og stofn-
uðu pöntunarfélag. Það var gott
og blessað meðan bændur sjálfir
gegndu stöðum kaupfélagsstjóra,
og þeirra hagur. H.Kr. heldur því
fram að þetta geti ekki talist
sameignarfélag. Ég tel, að svo
hljóti að hafa verið því bændur
keyptu jú allt í sameiningu og
höfðu sameiginlegar birgðastöðv-
ar. Þessi blessuð samvinnuhugsjón
kom ekki til fyrr en Framsóknar-
flokkurinn náði tökum á þessari
starfsemi.
Samvinnuhugsjónin er í raun og
veru aðeins venjuleg kaup-
mennska. Kaupfélögin lifa á bænd-
um sem styrkja þau vitandi eða
óafvitandi. Aðeins örfá kaupfélög
hafa staðið undir sér, enda eru þau
staðsett þar sem mikill búskapur
er. Þar má til dæmis nefna KEA
á Akureyri og Kaupfélag Fljóts-
dalshéraðs.
Þar sem hugsjónin er orðin tóm
hefur 'afkoma bænda lítið batnað
undir stjórn samvinnumanna að
öðru leyti en því að framþróun
hefur verið mikil og búskapar-
hættir færst til nútímans.
Hugtakið arður er tálbeita sem
er lítils virði þegar hugsað er til
þess að hluti af innleggi bænda er
tekinn eignarnámi um lengri eða
skemmri tíma, oft á tíðum hátt á
annað ár. Það eru því miður aðrir
en bændur sem hagnast á öllu
saman. Ég tel að það sé algengt
að fólkið sem vinnur hjá SIS og
kaupfélögunum fái verulegan af-
slátt í vörukaupum sínum, bændur
fá engan. Alltaf er farið bakvið
bændur og engin sanngirni sýnd í
viðskiptum við þá.
SÍS er óþörf stofnun og afæta.
Miklu hagkvæmara væri að þessu
bákni væri skipt upp í fyrirtæki
sem hefðu afmarkaðra starfssvið
og ættu þvi auðveldar með að sinna
viðskiptavinum sínum. KEA gæti
til dæmis verið innflutningsmið-
stöð fyrir Norðurland. Kaupfélag
Fljótsdalshéraðs fyrir Austurland,
Kaupfélag Árnesinga fyrir Suður-
land, Kaupfélag Isfirðinga fyrir
Vesturland, Kaupfélag Borgfirð-
inga fyrir Vesturland og KRON
fyrir Suðvesturland. Auðvitað
myndu þessir aðilar hafa með sér
samvinnu, en vera sjálfstæðar
einingar. SÍS veldur hækkuðu
vöruverði með því að vera svo
mikið bákn sem raun ber vitni.
Þetta væri þvi besta leiðin til að
gera starfsemi þess hagkvæma.
Þorleifur Kr. Guðlaugsson
V ísa vikunnar
rtJSTUPAGU^
Skollaleikur forstjora
búvörudeildarinnar
_ eftir Gtinnar P61
Inoótfoon
t dilkakjðta íra» aA»M •
hvortnokkrar Ulwaa'r r
Ein er stétt á eyrum teymd
yfirmanna sinna.
Sætt þvi hefir Sambands eymd
en senn fer því að linna.
Hákur
FRAMTÍÐIN
Olíu og akríl þekjubæs
á veggi, glugga, hurðir,
vindskeiðar, palla
og grindverk.
Mest selda viðarvörn í
Noregi -16 ára reynsla.
• 17 fallegir litir.
• Þykkfljótandi.
íurínn
• Lekurekki.
• Frábærending.
SÍÐUMÚLA 15-SÍMI33070
Bladburóarfólk óskast!
1 A. 6Í & %f10>
Austurbær Laugavegur 34—80 Miðbær II Hverfisgata 4—62 Laugarnesvegur 84—111 Úthverfi Viðjugerði Kópavogur ^ Hófgerði
LESBOK
Meöal efnis í
Lesbók
Með músík í farangrinum
Gísli Sigurösson segir frá ferð
með Sinfóníuhljómsveitinni til
Frakklands
— O —
Viðtal við Jónu Sparey, íslenzka
konu, sem kennir Englendingum
gamlar íslenzkar hannyrðir og
kynnir ísland í Englandi
— O —
Hjartaáföll og kólestrol
— O —
Grein um stöðu konunnar í isl-
ömskum sið
Vönduð og menningarleg helgarlesning
AUGl^StNGASTOFA KRISTÍNAR HF