Morgunblaðið - 10.09.1985, Side 11
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 10. SEPTEMBER 1985
B 11
Einari tókst illa upp í Rómaborg:
„Ég varð ekki fyrir vonbrigðum“
Frá Ágústi Ásgeirssyni, blaöamanni Morgunblaösins, í Rómaborg.
Það heföi líklegast veriö skynsamlegast aö hætta eftir fyrsta kastið,
ég fann þá strax til mjög mikils sársauka og vissi að lítt mundi ganga.
Enda þótt úrslitin séu slæm í dag varö ég ekki fyrir vonbrigöum,"
sagöi Einar Vilhjálmsson eftir spjótkastskeppnina á Mobil Grand Prix—
mótinu í Rómaborg, lokamóti stigakeppni frjálsíþróttamanna. Einar
varö áttundi í Rómaborg og þar meö fjórði í stigakeppni spjótkastar-
anna. Bandaríkjamaöurinn Tom Petranoff, fyrrum heimsmethafi, setti
nýtt vallarmet á ólympíuleikvanginum er hann sigraöi á mótinu, eftir
tvísýna og skemmtilega keppni viö landa sinn Duncan Atwood. Kast-
aöi Petranoff 90,80 metra og Atwood 90,30. Það hefur aðeins einu sinni
áöur gerst í frjálsíþróttasögunni aó tveir menn kasti yfir 90 metra á
sama mótinu, þar voru að verki Tom Petranoff og Einar Vilhjálmsson
í Osló í júnílok. Góöur árangur náöist í flestum greinum á Rómarmót-
inu og skemmtu 60.000 áhorfendur sér oftast konunglega. Heppnaðist
mótiö vel í alla staói, enda þótt vantaöi stórstjörnur í sumar hlaupa-
greinarnar.
• Einar Vilhjálmsson hafnaöi í áttunda sæti 1 Rómaborg. Einar hefur átt við þrálát meiösl aö stríöa í
allt sumar og þaö háói honum mjög í Róm.
Þegar spjótkastarnir gengu inn á
leikvanginn var Einar meö forystu í
stigakeppninni og þriöja sætiö í
Róm heföi dugað honum til sigurs
í stigakeppni spjótkastsins. Var
Einar síöastur í kaströöinni og gat
því fylgst meö hvernig keppinaut-
unum vegnaöi. í fyrstu umferö köst-
uöu aöeins Tékkinn Adamec og
Einar yfir 80 metra, Einar 80,76
metra, og reyndist þaö hans
lengsta kast í keppninni.
Einar virtist ekki beita sér aö fullu
í fyrsta kastinu, frekar eins og reynt
væri aö hafa öryggi í fyrirrúmi. En
vart lauk hann útkastinu áöur en
hann greip um olnboga sinn, greini-
legt að mikill sársauki fylgdi
áreynslunni.
i annarri umferö fór spjótiö sex
sinnum yfir 80 metra, lengst hjá
Svíanum Dag Wennlund, 84,90
metra, hans bezta í keppninni, og
dugöi þaö til fjóröa sætis í lokin.
Einari tókst vel upp í ööru kasti,
spjótiö náöi góöu flugi, sveif í tign-
arlegum boga langt út yfir völlinn.
Ég taldi þaö mundu fara útyfir 85
metra, a.m.k. En þaö snerist ekki
nógu hratt um þyngdarpunkt sinn
er þaö tók að missa flugiö og var
lendingin dæmd flöt. Örlítið meiri
hraöi spjótsins, miðaö viö jörö, í
útkastinu heföi séö um aö oddurinn
heföi stungist niöur á undan. Mun-
aði aðeins brotum úr sekúndu-
metra, en þaö reyndust líka örlaga-
rík brot.
Eftir tvær umferðir var Einar í
sjöunda sæti og áttundi eftir þrjár.
Var ekki annað aö sjá en hann
reyndi hvaö hann gat aö bæta stöö-
una. En hann kvaldist greinilega í
olnboga kasthandleggjar og spjót-
iö neitaði lengra. Á hann viö þráláta
beinhimnubólgu aö striöa, sem
hann losnar ekki viö nema meö
langri hvíld. Þegar á keppnina leiö
vaföi Einar olnbogann meö bind-
um, en þaö reyndist gera illt verra
og aukaáverkinn.
Mikið einvígi
í fjóröu umferö spjótkastsins
upphófst mikiö einvígi Bandaríkja-
mannanna Petranoffs og Atwoods,
og Wennlund var reyndar skammt
undan. Attwood tók forystuna meö
86,82 metra kasti og Petranoff
svarar meö því aö kasta 85,18. I
þriöju umferö lengir Atwood sig í
87,42 metra, en Petranoff, sem var
næstsíöastur í kaströö, geröi sér
lítið fyrir og tók forystuna af Atwood
er spjótiö stakkst niöur þar sem
mældust 89,18 metrar.
Fjórða umferöin var fremur tíö-
indalítil. Aö vísu skaust silfurhafinn
frá Los Angeles, Bretinn David
Ottley, úr fimmta sæti í þriöja meö
84,92 metra kasti, sem var hans
bezta í keppninni. Atwood kastaöi
84,44, sem var styzta kast hans af
fimm gildum, en Petranoff undir-
strikaöi stööu stna meö 87,52 m
kasti.
I fimmtu umferö dregur hins
vegar til stórtíðinda. Atwood nær
þá mjög vel heppnuðu kasti, tók
forystuna aftur og setti nýtt vallar-
met, 90,30 metra. Ánægja hans var
mlkil og hann taldi sig nokkuð ör-
uggan um sigur á mótinu og í stiga-
keppninni einnig, þar sem þeir
Petranoff voru jafnir aö stigum fyrir
mótiö, báöir meö 37 stig, eöa 6
færri en Einar.
En Adam var ekki lengi í paradís
og risakast Atwoods nægði honum
aöeins til fimm mínútna forystu og
vallarmetiö var skammlíft, því Petr-
anoff bætti fljótt um betur, kastaði
90,80 metra. Sló Petranoff félaga
sinn útaf laginu meö þessu kasti. í
síöustu umferö kastaði Atwood
rúma 85 og Petranoff 87,30. Var
öryggi Petranoffs mest allra spjót-
kastaranna. Fjögur kastanna hjá
honum fóru yfir 87 metra.
Petranoff fær
uppreisn æru
Meö sigri sínum fékk Petranoff
uppreisn æru eftir lélega frammi-
stööu á heimavelli sínum í Los
Angeles, er ólympiuleikar voru þar
haldnir í fyrra. Þá bjóst bandaríska
þjóöin viö sigri Petranoffs, en hann
komst ekki í úrslitakeppnina, varö
10. meö 78,40. Eftir aö Petranoff
setti heimsmet í spjótkasti voriö
1973 þótti landsmönnum hans þaö
sjálfgefið aö hann sigraöi í Los
Angeles. Meö sigri sínum varö Petr-
anoff fimmti yfir heildina meö 55
stig. Heföi Einar gengiö heill til
skógar og sigrað heföi hann hlotiö
61 stig og annað sætiö í heildar-
keppninni. Heföi þaö þýtt 25.000
doliara íverölaun í staö 3.000.
Þrátt fyrir aö Einari vegnaöi illa í
Rómhefur hann náö stórkostlegum
árangri í sumar. Rómarmótiö vó
tvöfalt í stigagjöf miöaö viö hin 14
Grand Prix-mótin, og því féll Einar
niöur í fjóröa sæti stigakeppni
spjótkastaranna. Þetta var 22. stór-
mót Einars í sumar og á 20 þeirra
komst hann á verðlaunapall, lang-
oftast sem sigurvegari. Keppinaut-
ar hans í Rómaborg, sem ég talaöi
viö fyrir og eftir keppni, báru honum
gott vitni og sögöu hann hafa náö
glæsilegum árangri í sumar, ár-
angri, sem þeir kváöust sjálfir viljaö
hafa náö. En Einar er sá eini þeirra,
sem oröiö hefur fyrir meiöslum á
árinu, þaö var í júlíbyrjun, í lok
strangs keppnisferöalags um
Noröurlönd, þar sem hann keþpti á
10 mótum á mánuði. Var hann ekki
oröinn fyllilegar góöur af þeim í
keppni Noröurlandanna og Sovét-
ríkjanna og hefur ekki fengiö sig
góöan síðan.
Engin vonbrigi
„Þaö væri rangt aö segja aö ég
hafi orðið fyrir vonbrigöum meö
frammistööuna. Ég vissi aö hverju
stefndi, en átti ekki annarra kosta
völ en keppa,“ sagöi Einar eftir
keppnina í Róm. „Maöur veröur aö
líta framhjá þessu, ég er aö ööru
leyti mjög sáttur viö f rammistööuna
i sumar, náöi miklu lengra en ég
bjóst viö í vor. Aö vísu bætti ég ekki
fslandsmetiö, en kastaöi tvisvar yfir
90 metra og meöaltal 10 beztu
mótanna er rúmlega 89 metrar.
Tíunda bezta mótið hjá mérer rúmir
88 metrar. Ég hef bætt samsvar-
andi meöaltal frá fyrri árum um
marga metra, sýnt jafnari árangur
enáöur."
Keppnin i Róm var góö auglýsing
fyrir spjótkastiö. Forystan var aldrei
í höndum sama keppandans í fyrstu
fimm umferöunum. Slík tilþrif eru
skemmtileg og setja spennu í mót-
in. Spjótkastarar hafa verið í mikl-
um ham í sumar og árangurinn á
toppnum og á breiddina aldrei
betri. Keppni Einars og Petranoffs
i Osló í sumar er orölögð sem frá-
bær auglýsing fyrir f rjálsíþróttir.
Rétt við heimsmetið
Hiö sama má segja um sumar
keppnisgreinar í Róm, einkum 3000
metra hlaup kvenna, þar sem Mary
Decker-Slaney var aöeins þrjár
sekúndur frá heimsmeti meö vel
útfæröu hlaupi. Þrjár fyrstu í hlaup-
inu bættu landsmet ríkja sinna um
6-10 sekúndur. Haft var á oröi aö
nú hefði Mary sýnt í eitt skipti fyrir
öll hver væri bezt hlaupakvennanna
þriggja, sem komu svo eftirminni-
lega viö sögu i 3000 metra hlaupinu
í Los Angeles í fyrra. Heimsmet lá
lengi í loftinu, en hraöinn datt aö-
eins niður upp úr miöju hlaupi. Er
aöeins timaspursmál hvenær metið
fellur. Varö Mary Decker-Slaney
lang stigahæst yfir heildina í
kvennaflokki.
Mest var keppnin í 5000 metrun-
um, sem hlaupnir voru afar taktískt.
Bandaríkjamaðurinn Doug Padilla,
sem veriö hefur ósigrandi í sumar í
3 km og 5 km hlaupum (aö vísu
hefur hann ekki hitt Marokkómann-
inn Said Aouita fyrir), lét aöra um
aö ráöa hraðanum og hélt sig lengst
af aftarlega. En þegar 1 km var eftir
tók hann til sinna ráöa. Taldi ég
miklar líkur á aö landi hans, Sydney
Maree, mundi sigra á endaspretti.
Maree á annan bezta árangur í
heiminum í 5 km og þriöja bezta
frá upphafi og er miklu betri 1500
metra hlaupari en Padilla. En það
var eins og Padilla heföi þaö alveg
í höndum sér hvernig hann útfæröi
hlaupið, og átti gott svar er Maree
reyndi aö komast upp aö hliö hans
er um 100 metrar voru í mark. At-
hyglisveröur var árangur Thomas
Wessinghage, Vestur-Þýzkalandi,
en hann varö þriöji. Wessinghage
hefur veriö í fremstu röö í heiminum
íröskan áratug.
Fjör í stangarstökki
Stangarstökkskeppnin vakti
einnig veröskuldaöa athygli, enda
fjörugir keppendur og stórgóöir.
Frönsku verölaunahafarnir frá Los
Angeles, Thierry Vigneron og
Pierre Quinon, virtust til alls líklegir,
er jjeir fóru himinhátt yfir 5,70.
Töldu áhorfendur aö þeir myndu
veita Rússanum Sergei Bubka
haröa keppni og reyna jafnvel viö 6
metra. En ólympíumeistarinn,
Quinon, átti vonlitlar tilraunir viö
5,80. Vigneron fór þá hæö léttilega
og jók á spenninginn. Honum tókst
þó illa upp viö 5,85, en spennan
hélzt samt er Bubka felldi þá hæö
í fyrstu tilraun. En í annarri tilraun
fór Bubka himinhátt yfir. Er Vigner-
on var út fallinn lét Bubka hækka
rána í 6,01, nýja heimsmetshæð.
Eina von Bubka um sigur í heildar-
keppninni var aö hann setti heims-
met, þá heföi hann hlotiö næg bón-
usstig, sigur í stangarstökkinu
dugöi ekki nema í 3.-4. sætiö. En
þær vonir uröu fljótt aö engu, þvi
Bubka virtist aldrei eiga möguleika
áaösetjamet.
Keppnin var einnig tvísýn i 200
metrum karla, langstökki karla og
kvenna, þar sem oft var skipst á um
forystu, 1500 metrum karla og 800
kvenna. i síöastnefndu greininni
sigraöi heimsmethafinn Jarmila
Kratovchilova meö mjög vel út-
færöri taktík. Tók hún strax forystu
og þótt hraöinn væri lítill framan af
gaf hún aldrei neinum tækifæri til
aö komast fram úr sér. í 400 grind
kvenna setti ólympíumeistarinn,
Judy Brown-King, nýtt bandarískt
met meö vel útfæröu hlaupi. Tók
hún ekki forystu fyrr en á beinu
brautinni í lokin. Keppni var afar
hörö í 100 metrum kvenna, og ár-
angur fyrstu fjögurra mjög góður.
Florence Griffith, Bandaríkjunum,
sigraöi glæsilega, en hún er fræg
fyrir aö vera með a.m.k. 10 sm lang-
ar neglur á vinstri hendi. Kveöst hún
vonast til aö veröa viöurkennd sem
góöur 100 metrahlaupari, og sigur-
inn í Róm hjálpar til þess, en f rægari
er hún þó fyrir neglurnar. Loks náöi
Mike Franks, Bandaríkjunum, frá-
bærum árangri í 400 metrum, sem
hann hljóp á 44,87 sekúndum.
Tapaði Aouita?
Nokkur hringlandi var meö þaö
hvort hinn stórkostlegi afreksmaö-
ur Said Aouita frá Marokkó keppti.
Á endanum var hann ekki meö.
Missti hann því af nær öruggum
peningaverölaunum aö upphæö 35
þúsund dollarar. Mun Aouita hafa
krafizt aukagreiöslu fyrir aö keppa,
en veriö synjaö. Úr hans horni var
þaö látið heita aö hann heföi meitt
sig þremur dögum fyrir mótið í
Róm, en fæstir lögöu trúnaö á þá
fullyrðingu, t.d. ekki íþróttamenn-
irnir sjálfir. Vera kann aö Aouita
hafi ekki tapaö á því aö hætta viö,
því ef hann heföi beöiö ósigur i
keppninni heföi þaö lækkaö þá
upphæð, sem hann getur beöiö
mótshaldara aö greiöa sér á næsta
ári, og einnig tapaö bónus hjá skó-
fyrirtæki, sem leggur honum til
iþróttafatnaö. Fjarvera Aouita féll í
vondan jaröveg, einkum þar sem
hann hefur veriö iöinn viö aö keppa
á Grand Prix-mótunum. Og þótt
einnig vantaöi aöra fræga íþrótta-
menn (þess má m.a. geta aö Aust-
ur-Þjóöverjar hundsa þessa keppni
einir þjóöa) þá tókst mótiö í alla
staöi vel og aö sögn forseta Al-
þjóöafrjálsíþróttasambandsins
veröur mótahaldi af þessu tagi
haldið áfram.