Morgunblaðið - 17.09.1985, Síða 1
72SIÐUR B
STOFNAÐ1913
208. tbl. 72. árg.
ÞRIÐJUDAGUR 17. SEPTEMBER 1985
Prentsmiðja Morgunblaðsins
Bretland:
Sex Rússum að
auki vísað brott
AP/Símamynd.
Juan Carlos, Spánarkonungur, tók á móti Vigdísi Finnbogadóttur,
forseta ísiands, þegar hún kom til Barajas-flugvallar í Madrid í gær, á
fyrsta degi heimsóknarinnar, sem stendur í þrjá daga. Herhljómsveit
lék þjóðsöngva þjóóanna, 24 fallbyssuskotum var hleypt af til heióurs
forseta íslands og Madridborg er í hátíóarbúningi, prýdd íslenskum og
spænskum fánum.
London, 16. sepi. AP.
BRESK stjórnvöld vísuðu í dag úr
landi sex Sovétmönnum, sem sakað-
ir eru um njósnir, og hefur þá verið
vísaó brott frá Bretlandi 31 Sovét-
manni á fjórum dögum. Sl. fimmtu-
dag voru 25 menn reknir úr landi en
Sovétmenn brugðust við sl. laugar-
dag með því að reka jafn marga
Breta frá Moskvu. Er brottrekstur-
inn í dag svar Breta við þeim aðgerð-
um.
í tilkynningu breska utanríkis-
ráðuneytisins sagði, að brott-
rekstur Sovétmannanna sex væri
svar við „algerlega ástæðulausum
brottrekstri breskra manna frá
Sovétríkjunum". Sovétmennirnir
25, sem fyrst hefðu verið reknir,
hefðu orðið uppvísir að alvarleg-
um njósnum og sexmenningarnir,
sem hefðu verið reknir í dag,
hefðu einnig verið njósnarar þótt
þeir hefðu haft sig minna i
frammi. Sir Geoffrey Howe, utan-
ríkisráðherra, sagði, að Oleg
Gordievsky, sovéski KGB-maður-
inn, sem fékk hæli í Bretlandi
fyrir skömmu, hefði nefnt alla
þessa menn sem njósnara.
1 yfirlýsingu sovéska sendiráðs-
ins í London sagði, að brottrekstur
Sovétmannanna væri „ögrándi og
ástæðulaus og væri til marks um,
að bresk stjórnvöld bæru illan hug
til Sovétmanna". Var brott-
visuninni harðlega mótmælt og
sagt, að Bretar yrðu sjálfir að
súpa seyðið af þessu framferði.
Tveir sendimenn voru meðal Sov-
étmannanna sex, sem voru reknir
í dag, sendifulltrúi og flugmála-
fulltrúi, en hinir voru skrifstofu-
menn, verslunarfulltrúi og blaða-
maður fyrir Novosty.
Breska blaðið The Daily Tele-
graph sagði í dag, að brottrekstur
Bretanna frá Moskvu væri til
marks um, að Gorbachev, leiðtogi
Sovétmanna, vildi sýna, að hann
væri fær um að taka „ákvarðanir í
anda Stalíns". Þess vegna hefði
hann ákveðið að reka jafn marga
Breta þótt þeir væru miklu færri
en sovéskir sendimenn í London.
Bandariska blaðið The New York
Times flutti þá frétt í dag, að
Gordievsky hefði ákveðið að flýja
þegar hann var skyndilega kallað-
ur til Moskvu. Eftir að hafaatarf-
að fyrir vestrænar leyniþjónustur
í 15 ár óttaðist hann viðtökurnar,
yfirheyrslur, pyntingar og hugs-
anlegan dauðadóm.
Opinber heimsókn forseta íslands á Spáni:
Madrid fánum prýdd
vegna komu Vigdísar
Madrid, 16. aeptember. AP.
VIGDÍS Finnbogadóttir, forseti ís-
lands, kom t' opinbera heimsókn til
Spánar í dag og tók Juan Carlos,
konungur Spánar, á móti henni á
Barajas-flugvellinum f Madrid
ásamt ýmsum frammámönnum
spænsku þjóðarinnar. Var móttöku-
athöfnin mjög virðuleg og borgin
sjálf í hátíðarbúningi, hvarvetna fs-
lenskir og spænskir fánar við hún.
Að móttökunni lokinni buðu þau
Juan Carlos, konungur, og Sofia,
drottning, Vigdísi til veislu í
Zarzuela-höllinni en að því búnu
átti hún fund með Felipe Gonzal-
ez, forsætisráðherra, í Pardo-
höllinni, sem er dvalarstaður
Vigdísar meðan á heimsókninni
stendur. Stóð fundurinn í nærri
klukkustund og var ræðst við á
frönsku. í kvöld sat forseti íslands
veislu konungshjónanna i kon-
ungshöllinni í Madrid.
Með í för forseta er Geir Hall-
grímsson, utanríkisráðherra, og
mun hann eiga viðræður við
starfsbróður sinn spænskan,
Francisco Fernandez Ordonez.
Munu viðskipti landanna verða
þar ofarlega á baugi en í þeim efn-
um finnst Spánverjum nokkuð
halla á sig. Á síðasta ári seldu ís-
lendingar Spánverjum vörur fyrir
35,5 milljónir dollara en keyptu af
þeim fyrir aðeins 4,9 milljónir.
Heimsókn forseta Islands, Vig-
dísar Finnbogadóttur, á Spáni
stendur í þrjá daga en að henni
lokinni fer hún í opinbera heim-
sókn til Hollands.
Sjá ennfremur frásögn af heim-
sókn forseta íslands á miðopnu.
Sænsku kosningarnar á sunnudag:
Kína:
Stokkað upp í
valdakerfinu
Peking, 16. september. AP.
Á ANNAÐ hundraö aldraðra frammámanna í kínverska kommúnista-
flokknum sagði af sér embætti í dag, þ. á m. 64 menn, sem sæti áttu í
miðstjórn flokksins. Var sagt um afsagnirnar, að þær væru „stórt skref"
í þá átt að yngja upp forystu kommúnistaflokksins.
Með afsögnunum var í raun
afnuminn sá siður, að frammá-
menn í kinverska kommúnista-
flokknum héldu embættum sín-
um til æviloka og eru þessar
breytingar meðal þeirra mestu,
sem kommúnistar hafa gengist
fyrir frá því þeir komust til
valda í Kína fyrir 36 árum. Tíu
af 24 mönnum í stjórnmálaráð-
inu sögðu af sér, m.a. býlt-
ingarmarskálkurinn Ye Jianying
og Deng Yingchao, ekkja Chou
En-Lais heitins og sú kona, sem
háttsettust var.
Xinhua-fréttastofan kínverska
sagði, að þeir, sem hefðu sagt af
sér, hefðu gert það af hollustu
við flokkinn og til að gefa ungu
fólki tækifæri til að axla þá
ábyrgð, sem embættunum fylgdi.
Hafði fréttastofan einnig eftir
þeim, að nú væri í raun búið að
leggja niður þann sið, að menn
héldu embættum sínum til ævi-
loka, hér eftir yrði um stöðuga
endurnýjun að ræða. Erlendir
sendimenn í Peking segja, að
með þessum breytingum hafi
Deng Xiaoping leikið mjög djarf-
an leik, sem eigi að festa í sessi
þær umbætur, sem hann hefur
beitt sér fyrir í efnahagsmálum
og á öðrum sviðum þjóðlífsins.
Palme stjórnar áfram
en háður kommúnistum
Stokkhólmi, 16. september. AP.
JAFNAÐARMENN verða áfram við völd í Svíþjóð og Olof Palme forsætis-
ráðherra í fjórða sinn. Jafnaðarmannaflokkurinn tapaði hins vegar nokkru
fvlgi í þingkosningunum og verður því að reiða sig á stuðning kommúnista.
Oumdeilanlegur sigurvegari í kosningunum er Frjálslyndi þjóóarflokkurinn
og leiðtogi hans, Bengt Westerberg, en fylgi flokksins rúmlega tvöfaldaðist.
Allir aðrir flokkar töpuðu.
„Við höfum unnið sigur í þágu
velferðarríkisins," sagði Olof
Palme, forsætisráðherra og leið-
togi jafnaðarmanna, þegar úrslit-
in lágu fyrir snemma á mánu-
dagsmorgni en Ulf Adelsohn, leið-
togi Hægriflokksins og líklegur
forsætisráðherra ef borgaraflokk-
arnir hefðu sigrað, sagði að Svíar
skyldu búa sig undir erfiða tíma
undir stjórn Palmes. Þeir hefðu
hins vegar valið þennan kost sjálf-
ír.
Þegar talið hafði verið í öllum
362 kjördæmum I Svíþjóð voru úr-
slitin þau, að jafnaðarmenn og
kommúnistar fengu 178 menn
kjörna en borgaraflokkarnir 171.
Allir helstu flokkarnir töpuðu
fylgi í kosningunum nema Frjáls-
lyndi þjóðarflokkurinn, sem gerði
meira en að tvöfalda það og hefur
nú 51 þingmann I stað 21 áður.
Hægriflokkurinn, stærsti borg-
araflokkurinn, tapaði 10 þing-
mönnum og hefur nú 76 og Mið-
flokkurinn tapaði 12, hefur nú 44.
Jafnaðarmenn hafa nú 159 þing-
menn, töpuðu sjö, og kommúnistar
19, töpuðu einum.
Jafnaðarmenn gátu áður komið
sínum málum fram svo fremi
kommúnistar greiddu ekki at-
kvæði gegn þeim en nú munu þeir
þurfa á beinum stuðningi komm-
únista að halda. Er hætt við, að
jafnaðarmenn verði að falla frá
sumum stefnumála sinna, sem
kommúnistar eru andvígir, t.d. því
að greiða fyrir fjárfestingum með
skattalækkun, eða eiga ella á
hættu, að stjórnin falli.
Sjá „Frjálslyndi þjóðarflokk-
urinn ... “ á bls 26.