Morgunblaðið - 17.09.1985, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 17.09.1985, Blaðsíða 2
2 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR17. SEPTEMBER1985 Nýr háskólarektor DOKTOR Sigmundur Guðbjarnarson prófessor tók á sunnudag formlega við embætti rektors Háskóla íslands við hátíðlega athöfn í hátíðarsal skólans. Á myndinni, sem Ólafur K. Magnússon tók fyrir framan aðalbyggingu háskólans að athöfninni lokinni, eru fráfarandi rektor, dr. Guðmundur K. Magnússon, Ragnhildur Helgadóttir menntamálaráðherra og hinn nýi háskólarektor. Hnífsstungumálið: Pilturinn sem lést PILTURINN sem stunginn var til bana á föstudagskvöldið fyrir utan unglingaskcmmtistaðinn Villta tryllta Villa við Skúlagötu í Reykja- vík hét Þorvaldur Breiðfjörð Þor- valdsson til heimilis að Öldugranda 7 í Reykjavík. Hann var 15 ira gamall. Jafnaldri piltsins sem varð honum að bana hefur verið falinn forsjá barnaverndarnefndar og verður látinn sæta geðrannsókn. Hann hefur ekki komist í kast við lögregluna fyrr. Þorvaldur Breiðfjörð Þorvaldsson. Ungfrú Norðurlönd 1985, íslenska stúlkan Sif Sigfúsdóttir i milli þeirra Höllu Bryndísar Jónsdóttur sem varð í þriðja sæti og sænsku stúlkunnar Belette Christopersen sem varð í öðru sæti. Er alveg í skýjunum — segir Sif Sigfúsdóttir fegurðardrottning Norðurlanda 1985 ÍSLENSK STÚLKA, Sif Sigfúsdóttir, varð hlutskörpust í fegurðarsam- keppni um titilinn ungfrú Norðurlönd 1985, sem fram fór í Helsinki um helgina. í öðru sæti varð sænsk stúlka og þriðja sætið hreppti hinn ís- len.sk i keppandinn, Halla Bryndís Jónsdóttir. „Mér líður mjög vel, er alveg setja saman dagskrá fyrir mig í skýjunum," sagði Sif þegar hún var spurð um hvernig tilfinning það væri að vera orðin fegurðar- drottning Norðurlanda. „Hvað tekur við er ekki alveg ráðið ennþá en ég á fyrir höndum ferð til Parísar á næstunni og er ferðin einn hluti af fjölmörgum verðlaunum sem ég vann til með nýja titlinum. Nú er verið að fyrir ferðina og ég veit ekki alveg hverja ég kem til með að hitta í Parfs en sennilega verður það fólk sem tengist sýningarstörf- um.“ Þátttakendur í fegurðarsam- keppninni voru tíu, tvær frá hverju Norðurlandanna og sagði Sif að ferðin hefði gengið mjög vel. Móttökurnar C Finnlandi hefðu verið frábærar og var tekið á móti þeim með rósum og koss- um. Síðan þær komu hafa þær haft mikið að gera og meðal annars ferðast um landið í fylgd blaðamanna og ljósmyndara sem stöðugt skrifuðu um þær í blöð- unum þessa viku sem undir- búningurinn og keppnin stóð. „En nú erum við þreyttar og ætlum að fara að leggja okkur enda sváfum við ekki nema þrjá tíma í nótt,“ sagði Sif að lokum. Ekkert samkomulag stjómarflokkanna um fjölda forstjóra Byggðasjóðs: Líkur á atkvæðagreidslu um málið á stjórnarfundi Sjálfstæðismenn treysta á stuðning fulltrúa stjórnar- andstöðunnar í stjórn Byggðastofnunar ALLAR LÍKUR eru nú i því að igreiningur stjórnarflokkanna um það hvort einn eóa tveir forstjórar eigi að starfa við Byggðasjóð verði ekki leystur i neinum samningsgrundvelli i milli flokkanna, heldur komi til atkvæða- greiðslu í stjórn Byggðastofnunar i fundi í dag, þar sem skorið verði úr um hvort ráðinn verður einn forstjóri að stofnuninni eða tveir. Samkvæmt heimildum Morgun- armenn vilja tvo, þá telja menn blaðsins er megn óánægja með ekki fært að skera úr þessu með lætur undir í atkvæðagreiðslunni dag, og þá liggur enn ekkert fyri um það hver verður forstjór Byggðasjóðs. þessa tilhögun meðal beggja stjórnarflokka, en þar sem hvor- ugur vildi láta af sannfæringu sinni — sjálfstæðismenn vilja ein- ungis einn forstjóra, en framsókn- öðrum hætti en atkvæðagreiðslu. Því er talið líklegt að framsókn- armenn lúti i lægra haldi í þessu máli, þar sem sjálfstæðismenn í stjórn Byggðastofnunar, þeir ólafur G. Einarsson og Halldór Blöndal, telja nokkuð víst að Geir Gunnarsson frá Alþýðubandalagi og Sigfús Jónsson frá Alþýðu- flokki muni greiða atkvæði með því að aðeins einn forstjóri verði ráðinn. Framsóknarmennirnir í stjórn Byggðastofnunar, þeir Stef- án Guðmundsson og Olafur Þ. Þórðarson, verða því ef að líkum Iðja biður um bónusviðræður IÐJA, félag verksmiðjufólks í Reykjavík, sneri sér í gær til Félags íslenskra iðnrekenda og óskaði eftir viðræðum um nýjan bónus. Víglundur Þorsteinsson formað- ur FII tjáði blaðinu að stjórn fé- lagsins myndi ræða þessa ósk á næstunni og væntanlega yrðu við- ræður hafnar áður en langt um liður, enda samningar um bónus runnir út fyrir nokkru. Myndbandaleiga kvikmyndahúsanna: Þrjú bíó yfir- taka reksturinn Eigendaskipti hafa orðið á Myndbandaleigu kvikmyndahúsanna. í auglýs- ingu í Morgunblaðinu í dag er tilkynnt að Háskólabíó, Laugarásbíó og Regnboginn hafi yfirtekið rekstur Myndbandaleigu kvikmyndahúsanna, en Myndbandaleigan hefur verið skráð og rekin af Guðgeiri Leifssyni og með- eiganda hans Jósteini Kristjánssyni. í fyrrgreindri auglýsingu er ennfremur óskað eftir dreifingar- aðilum og húsnæði fyrir mynd- bandaleiguna á Stór-Reykjavík- ursvæðinu og á Akureyri. Forsvarsmenn kvikmyndahús- anna vörðust allra frétta um orsakir þessara breytinga og ekki náðist í Guðgeir Leifsson, en hann dvelur nú erlendis. Gróðurskemmdir vegna aksturs utan vegar: Full ástæða til að láta fólkið sjálft græða sárin — segir lögreglan á Hvolsyelli NOKKUR ungmenni á tveimur jeppabifreiðum ollu verulegum skemmdum á viðkvæmum gróðri og landi með akstri utan vega á Emstrum, afrétti Hvolhrepps í Rangárvallasýslu, ura helgina. Að sögn lögreglunnar á Hvols- velli skildi fólkið mjög Ijót sár eftir sig á viðkvæmum stöðum sem búast má við að erfitt verði að bæta. Einn úr hópnum týndist auk þess á sunnu- dagsmorguninn en hann kom fram í Þórsmörk eftir að leit var hafin að honum. Að sögn lögreglunnar á Hvols- velli var atburðarásin eftirfarandi: Afaranótt sunnudagsins lögðu 7 ungmenni leið sína inn á Emstrur, sem er afréttur Hvolhrepps, innan við Markarfljót og voru þau á tveimur jeppabifreiðum, Bronco og Willys. Þegar þau voru komin yfir Markarfljótsbrúna, fór önnur bifreiðin út af veginum, upp gróð- urbrekku sem þar er og skemmdi gróðurinn. Síðan var haldið áfram og farið ofan í Hattafellsgil og eftir því. Suð-vestan í Hattarfelli, sem er 909 metrum ofan sjávar- línu, héldu ungmennin áfram iðju sinni og skemmdu þar verulega gróður í brekkum, með báðum bifreiðunum. Gangnamenn, sem voru að halda til byggða á sunnudagsmorguninn, tilkynntu lögreglunni um atburð- inn. Þegar lögreglan kom á staðinn neitaði fólkið fyrst að gangast við verknaðinum en viðurkenndi það svo við yfirheyrslur. Framhald málsins hefur ekki verið ákveðið en lögreglumaður á Hvolsvelli sagði í gær að full ástæða væri til að fara með fólkið á vettvang og láta það græða upp eftir sig sárin. Þegar lögreglan kom á vettvang á sunnudagsmorguninn kom í ljós að einn úr hópnum hafði yfirgefið hópinn um klukkan 5 um morgun- inn, ölvaður. Leitað var að honum í nágrenninu og síðar um daginn úr flugvél. Síðan var farið að undirbúa skipulega leit en maður- inn kom þá fram í Húsadal í Þórs- mörk um klukkan 22 um kvöldið. Talið er að ein dagleið sé fyrir gangandi mann frá þeim stað sem maðurinn lagði upp og í Húsadal. Morgunblaðið/Árni Ólafsson Ummerki eftir utanvegaakstur jeppafólksins á einum stað á Emstrum.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.