Morgunblaðið - 17.09.1985, Síða 3
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR17. SEPTEMBER1985
3
Laxveiðin í sumar:
50 % betri
laxveiði
— Laxá á Ásum gaf 1482 á 2 stangir
LAXVEIÐI á Htöng var miklu betri í sumar heldur en síðasta sumar vg
raunar betri en vciðin síðustu fjögur sumrin ef á heildina er litið. Þó stóð
ýmislegt góðri veiði fyrir þrifum, lélegar stórlaxagöngur, kuldar fyrir norð-
an og langvarandi þurrkar fyrir sunnan og vestan. Smálax, fiskur sem hafði
dvalið eitt ár f sjó, skilaði sér hins vegar f rfkum mæli og var uppistaðan í
afla sumarsins að þessu sinni. „Endanlegar tölur liggja ekki fyrir, en það
kæmi mér ekki á óvart þótt hér væri um svona 50 prósent uppsveiflu að
ræða miðað við siðasta sumar,
uninni í samtali við Morgunblaðið f
Sú á sem flesta gaf laxana i
sumar var Laxá í Aðaldal. Veidd-
ust f henni um 1.930 laxar og er
það miklu meiri afli en siðasta
sumar, er áin rétt losaði 1.000
laxa. Besta áin er þó óumdeilan-
lega Laxá í Ásum, en þar veidd-
ust 1.482 laxar. Það sem gerir þá
veiði hvað athyglisverðasta er að
allur er aflinn tekinn á tvær
dagsstengur. Það gerir 741 lax á
stöng yfir 90 daga timabil. Það
eru milli 8 og 9 laxar á stöng á
dag. Sagan er ekki öll sögð, þvf
lítið veiddist i ánni allan júní-
mánuð og dálítið fram i júlf. Svo
i Einar Hannesson hjá Veiðimalastofn-
gær.
fylltist áin bókstaflega af fiski og
eftir það var mokveiði. Kvóti var
ekki í ánni í sumar frekar en i
fyrra og dæmi voru til þess að
menn fengju á fimmta tug laxa á
stöng á dag.
Þverá/Kjarrá gaf vel, merki-
lega vel miðað við vatnsleysið.
Þar veiddust 1.545 laxar eftir því
sem Morgunblaðið kemst næst,
þannig að hún er í öðru sæti ef
einungis er litið á tölurnar. Af
öðrum lokatölum má nefna 1.129
úr Norðurá, 1.150 úr Laxá í Kjós,
1.050 úr Miðfjarðará, 1.147 úr Ell-
iðaánum og um 1.200 úr Langá i
Lax þreyttur í Álftá á Mýrum nú í haust og glöggt má sjá að ekki er miklu vatnsmagni fýrir að fara.
Mýrum. I öllum tilvikum er um
stórfelldan bata að ræða frá sfð-
asta sumri, en samt minni afla en
efni stóðu til. Milli 5. og 10. sept-
ember mátti heyra þessar tölur:
Grímsá 1.295, Laxá í Dölum 1.230
og Hofsá f Vopnafirði 1.116. Veið-
in í Vopnafirði var sér kapítuli,
veiðibatinn var þar hvað mestur
því Selá gaf a.m.k. um 600 laxa en
hvorug náði 200 löxum í fyrra og
báðar hafa mátt heita laxlausar
síðustu sumur.
Netaveiði var misjöfn, afar góð
í Hvítá í Borgarfirði og þökkuðu
netamenn það hversu vatnslitil
og tær áin var, einnig vatnsleys-
inu f bergvatnsánum sem gerði
það að verkum að laxinn dvaldi
lengur í jökulvatninu en venja er
til. I Árnessýslu var netaveiði
hins vegar lélegri en um árabil,
einnig stangaveiði en þar var
Sogið þó undantekning. Veiði lýk-
ur þar 20. september og hafa
veiðst á fjórða hundrað laxar sem
er dágott þar um slóðir.
Nokkrar afar vatnslitlar ár
hafa einnig gefið vel f sumar
þrátt fyrir þurrkana og má þar
nefna Leirvogsá sem hefur gefið
á fimmta hundrað laxa, og Álftá
á Mýrum sem hefur gefið um 300
stykki. Veitt er f báðum til 20.
september.
Þá hafa heimtur verið stórgóð-
ar hjá hafbeitarstöðvum vfðast
hvar. Einar Hannesson hjá Veiði-
málastofnun sagðist búast við þvf
að milli 18.000 og 20.000 hefðu
skilað sér og væru það mestu
heimtur frá upphafi laxabúskap-
ar hér á landi. í fyrra voru heimt-
urnar aðeins 5.500 laxar en þegar
mest var til þessa gengu um
11.000 fiskar til stöðvanna.
Sjá veiöiþáu i bls. 22—23.
Sex innbrot
um helgina
SEX INNBROT voru framin í
Reykjavík um helgina og verðmæt-
um fyrir hundruð þúsunda stolið,
aðallega í formi skartgripa, mynd-
bands- og hljómflutningstækja og
áfengis.
í Fossvogshverfi var farið inn í
tvær fbúðir þar sem fólk var fjar-
verandi. Stolið var myndbands-
tæki, 4.500 krónum í peningum,
áfengi og skartgripum úr annarri
þeirra, og dýrmætum skartgripum
ogáfengi úr hinni.
Brotist var inn f hús í Selja-
hverfi og stolið þaðan geysiverð-
mætum skartgripum og áfengi. Úr
veitingahúsi í Höfðahverfi var
stolið sjónvarpsskermi, útvarpi,
segulbandstæki og síma, samtals
að verðmæti um 200 þúsund krón-
ur. Þá var farið inn f hús á Suður-
götu og stolið þaðan sambyggðu
útvarps- og segulbandstæki.
Loks lenti maður í því í Hóla-
hverfi að tveir menn sem hann
hafði nýlega kynnst og bauð heim,
launuðu honum gestrisnina með
þvi að hverfa á brott með tvö út-
varpsferðatæki, armbandsúr,
bækur og allt matarkyns úr fs-
skapnum.
Framfærslu-
vísitalan
hefur hækk-
að um 36,2%
á einu ári
VÍSITALA framfærslukostnaðar,
miðað við verðlag í byrjun þessa mán-
aðar, hækkaði um 2,6% frá ágústbyrj-
un og var þvf 148,68 stig, en grunn-
mánuður er febrúar 1984 — 100 stig.
Framfærsluvísitalan hefur hækkað
um 36,2% á sfðustu 12 mánuðum.
Hækkun vfsitölunnar um 2,6% á
einum mánuði svarar til 36,1%
árshækkunar. Undanfarna þrjá
mánuði hefur vfsitalan hækkað um
8,2% og jafngildir sú hækkun
37,3% verðbólgu á heilu ári.
1 frétt frá Hagstofu tslands segir
að hækkunin nú stafi af 0,9%
hækkun á verði mat- og drykkjar-
vöru (þar af 0,5% hækkun á verði
landbúnaðarvara 1. september sfð-
astliðinn), 0,2% eru hækkun hús-
næðisliðar, 0,2% stafa af hækkun á
verði tóbaks og áfengis 22. ágúst
sl., 0,5% af hækkun ýmissa þjón-
ustuliða og 0,8% af hækkun vöru-
liða, einkum innflutts varnings.
SUZUKI
FOX PICKUP
Bíll sem býður upp á marga möguleika
Aflmikill og lipur jeppi og umfram allt ótrúlega spameytinn.
ísparaksturskeppni BIKR og DV9. júní sl. eyddi Suzuki Fox 413 adeins 6.2 Itr. pr. 100 km.
Nú getum við boðið upp á vönduð trefjaplasthús á Suzuki Fox pickup.
Par sem Fox pickupinn er 57 cm lengri en Fox jeppinn, þá hentar hann mjög vel fyrir
alla þá sem þurfa á miklu farangursrými að halda.
Verð: Suzuki Fox 410 pickup 4 gíra kr. 349.000.-
Suzuki Fox 413 pickup 5 gíra kr. 398.000.-
Trefjaplasthús kr. 68.000.-
Því meira sem þú ekur SUZUKI - því meira sparar þú
SVEINN EGILSSON HF,____________________
Skeifunni 17. Sími 685100. iHi
PÁV Pwusrmdfa Ana VMemarssottar kf