Morgunblaðið - 17.09.1985, Blaðsíða 6
6
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR17. SEPTEMBER1985
Heiðríkja
hugans
Hversu dásamlegt er ekki að
vakna á klárum sunnu-
dagsmorgni, hugsunin kristaltær
eftir hvíld laugardagsins og stál-
slegin lungun þenjast af tæru lofti
og hjartað fyllir sál og líkama yl
blóðsins. Já, hvers óska menn sér
frekar en njóta ómengaðs lofts,
hins tæra drykkjarvatns og bláma
fjallanna? Auðvitað er mönnum
frjálst að brengla skilningarvitin í
þökk ríkissjóðs og eriendra
bænda, en þá líða menn áfram í
gubbulegu hálfrökkri líkt og pest-
argemlingar. Hvar er þá ísland og
veröld björt? Máske finna menn
hana í tilhlökkun föstudagsins
þegar innri maðurinn á loksins að
fá að njóta sannmælis. Veslings
innri maðurinn, hvílíkur mórall
hefir ekki þjáð þann fanga um
aldir? Þessar einkennilegu hugs-
anir leituðu á huga undirritaðs
síðastliðinn sunnudagsmorgun, en
þá sat hann að venju fyrir framan
gamla góða ferðaspjallið hans
Friðriks Páls Jónssonar er að
þessu sinni seytlaði af öldum
ljósvakans úr munni Sigurðar A.
Magnússonar rithöfundar er lýsti
því er nokkrar skrifstofublækur
úr Reykjavík tóku sig til og fóru
með víkingaskip að sigla í þeirri
miklu siglingu er efnt var til í
Bandaríkjunum í tilefni af 200 ára
afmælinu. Lýsing Sigurðar á
þessu afreksverki, er hefir senni-
íega borið hróður íslands víðar en
margan grunar, var einnar ljós og
það var eins og myndin af litla
íslenska víkingaskipinu mitt í hafi
hvítra segla stórskipanna grópað-
ist í hugann og tengdist fyrr-
greindum hughrifum sunnudags-
morgunsins. Já það var svo
sannarlega lærdómsríkt að geta
fylgt eftir með klárum huga ferða-
lagi þessa litla víkingaskips er
spegiaðist á bláum öldunum um-
vafið drifhvítum seglum, því þá
var manni ljóst hvers virði það er
að vera íslendingur að sagan gerir
okkur stóra í hafi þjóðanna og
tærleiki loftsins og vatnsins gerir
okkur öfundsverð í sollnum heimi.
Vígt vatn
Er blessað vatnið er til fleiri
hluta gagnlegt en fleyta skipum
og slökkva þorsta, það má og helga
og veita með því blessun trúarinn-
ar inní líf hins innvígða. Litlu
börnin er voru skírð í Fríkirkjunni
í sunnudagsmessunni voru
kannski ekki meðvituð um bless-
unarmátt hins helga vatns er séra
Gunnar Björnsson lét drjúpa yfir
þau, svo hressilegar voru hrinurn-
ar. En þar horfum við fram hjá
kjarna málsins er sá að með helg-
un skírnarinnar er ákveðinn eið-
stafur knýttur milli foreldris og
barns og milli hins skírða barns
og þess kristna samfélags er það
elst upp í. Væri vafalaust fegurra
umhorfs í heimi hér ef þau
tryKKÚarbönd væru betur virt og
kærleikurinn réði hverri athöfn.
En því miður er heimurinn ekki
svo einfaldur. Hugsanir og tiifinn-
ingar djöfulsins leita þar framrás-
ar í hinum ólíklegustu myndum og
skemma blóma heilla kynslóða.
Menn gleypa við þessum myrku
kenningum sem oft eru sendar eft-
ir ósýnilegum leiðum frá hinum
bergmálsiausu ókleyfu múrum
hinna guðlausu og eftir sitja
rænulausir dópistar, veiklyndir
helgardrykkjumenntamenn og
margir góðir drengir. Auðvelt
stríðsfang hinna guðlausu á hin-
um efsta degi.
Ólafur M.
Jóhannesson
ÚTVARP / S JÓN VARP
Rod Steiger í hlutverki vísindamannsins og Anthony Perk
ins í hlutverki lífvarðarins sem ekkert vílar fyrir sér.
Dáðadrengirnir
hefjast í kvöld
■i Dáðadrengir
45 nefnist nýr
— breskur sjón-
varpsmyndaflokkur í
þremur þáttum sem hefur
þeim Anthony Perkins og
Rod Steiger á að skipa í
aðaihlutverkum.
Þættirnir fjalla um vís-
indamann, David Sokarev
að nafni, sem er ísraelsk-
ur. Honum er boðið til
London til að flytja fyrir-
lestur um sín fræði, sem
aðailega eru á sviði kjarn-
orkumála.
Á sama tíma eru hins
vegar hryðjuverksamtök-
in PLO að leggja á ráðin
um að taka hann af lífi í
London og sér til aðstoðar
hafa þau fengið önnur
hryðj u verkasamtök,
bresk, til að aðstoða við
ódæðið.
Vísindamaðurinn kemst
að því að honum verður
fárra lífdaga auðið ef
hann fer ekki varlega, og
ísraelska stjórnin sem
ekki er á þeim buxunum
að láta einhver hryðju-
verkasamtök koma í veg
fyrir það sem einu sinni
hefur verið ákveðið fær
Sokarev lífvörð. Fyrir-
mæli lífvarðarins eru ein-
föld: Sokarev skal halda
lífi hvað sem það kostar.
„Hvað nú“
— Þáttur á ári æskunnar
■i Þetta ár hefur
00 verið tileinkað
— ári æskunnar
eins og flestum ætti að
vera kunnugt. Á árinu
hefur verið reynt að gera
ýmislegt fyrir aldurshóp-
inn 10—16 ára, en hann
hefur að öllu jöfnu verið
fremur afskiptur á undan-
förnum árum.
f útvarpinu í dag verður
þáttur sem nefnist „Hvað
nú“ og í honum mun Helgi
Már Barðason fjalla um ár
æskunnar, en Helgi er
kunnur af þáttum sínum
á rás 2.
Helgi Már Barðason
Kvikmynd um ungan fíkni-
efnaneytenda í Reykjavík
■■■■I Fórnarlömbum
O A 40 Ukniefna fer
4yU — sífellt fjölgandi
auk þess sem fíkniefnin
banka uppá hjá sífellt
yngri krökkum.
I kvöld verður sýnd
stutt kvikmynd, sem sjón-
varpið hefur látið vera, um
stúlku sem orðið hefur
fíkniefnanautninni að
bráð. Eins og allir þeir
vita sem fylgst hafa með
þróun þessara mála í
Reykjavík á undanförnum
árum hefur farið að bera
á því að fólk talsvert undir
tvítugu er svo að segja
komið í strætið og á vart
í önnur hús að venda en
meðferðarstofnanir og
fangageymslur. Á sumrin
má sjá þessi ungmenni
halda sig niðri í bæ á
sólskinsdegi eða uppi á
Hlemmi. A vetrum sjást
þessir krakkar ekki jafn
mikið og eru þá í mörgum
tilfellum í afvötnun, eins
og það er kallað, eða inni
á meðferðarstofnun.
Eins og við er að búast
mun þessi kvikmynd ein-
ungis sýna brot af þeim
vanda sem við er að etja,
þar sem fíkniefnanotkun
ungmenna í Reykjavík er,
en á eftir kvikmyndinni
verða umræður um mynd-
ina sem Sigrún Stefáns-
dóttir stjórnar.
Rétt er að taka fram að
sagan af unglingsstúlk-
unni, Gullu, styðst við
raunverulega atburði. Með
hlutverk hennar fer Hel-
ena Jónsdóttir.
Hlemmur er vinsæll staður fíkniefnaneytenda og dry kkjusjúklinga.
ÚTVARP
N
ÞRIÐJUDAGUR
17. september
7.00 Veöurfregnir. Fréttir.
Bæn. Morgunútvarpið. 7.20
Leiktimi. Tilkynningar.
7.55 Daglegt mál.
Endurt. þáttur Guövaröar
Más Gunnlaugssonar frá
kvöldinu áöur.
8.00 Fréttir. Tilkynningar. 8.15
Veðurfregnir. Morgunorö: —
Guðmundur Hallgfimsson
talar.
9.00 Fréttir.
9.0S Morgunstund barnanna:
.Bleiki togarinn" eftir Ingi-
björgu Jónsdóttur. Guðrún
Birna Hannesdóttir byrjar
lesturinn.
9.20 Leikfimi. 9.30 Tilkynn-
ingar. Tónleikar.
10.00 Fréttir. 10.10 Veöur-
fregnir. Forustugr. dagbl.
(útdr.). Tónleikar.
10.45 „Man ég það sem löngu
leið“.
Ragnheiöur Viggósdóttir sér
um þáttinn.
11.15 I fórum minum.
Umsjón: Inga Eydal. ROV-
AK.
12.00 Dagskrá. Tilkynningar.
12.20 Fréttír. 12.45 Veöur-
fregnir. Tilkynningar. Tón-
leikar
13.30 Irin og út um gluggann.
Umsjón: Sverrir Guðjónsson.
14.00 „Nú brosir nóttin".
Æviminningar Guðmundar
Einarsson. Theódór Gunn-
laugsson skráöi. Baldur
Pálmason les (15).
14.30 Miödegistónleikar.
a. „Pétur og úlfurinn",
ævintýri I tali og tónum eftir
Sergei Prokoffiev. Phila-
delphia-hljómsveitin leikur;
Eugene Ormandy stjórnar.
b. „Young person's guide to
the orchestra" (Leiðarvlsir
fyrir ungt fólk að sinfónlu-
hljómsveit) eftir Benjamin
Britten. Sinfónluhljómsveit
Lundúna leikur; höfundur
stjórnar.
15.15 Út og suöur.
Endurtekinn þáttur Friðriks
Páls Jónssonar frá sunnu-
degi.
15.50 Tilkynningar. Tónleikar.
16.00 Fréttir. Dagskrá. 16.15
Veðurfregnir.
16.20 Upptaktur.
— Guðmundur Benedikts-
son.
17.05 „Hversvegna, Lamla?"
eftir Patriciu M.St. John.
I
1935 Ævintýri Olivers bangsa
Fjóröi þáttur. Franskur
brúöu- og teiknimyndaflokk-
ur I þrettán þáttum um vlö-
förlan bangsa og vini hans.
Þýöandi Guöni Kolbeinsson,
lesari meö honum Bergdls
Bjðrt Guðnadóttir.
19.50 Fréttaágrip á táknmáli
20.00 Fréttir og veður
20.30 Auglýsingar og dagskrá
20.40 Gulla — fórnarlamb
flkniefna
Stutt mynd sem Sjónvarpiö
Helgi Ellasson les þýðingu
Benedikts Arnkelssonar
(15).
17.40 Slðdegisútvarp.
— Sverrir Gauti Diego. Tón-
leikar. Tilkynningar
18.45 Veðurfregnir. Dagskrá
kvöldsins.
19.00 Kvöldfréttir. 19.45 Til-
kynningar. Daglegt mál. Sig-
uröur G. Tómasson flytur
þáttinn.
20.00 Hvað nú?
A ári æskunnar. Umsjón:
Helgi Már Barðason.
20.40 islenskur tónlistarmaöur I
Danmörku.
Glsli Helgason ræðir við
Kristinn Vilhelmsson.
21.10 Tónlist eftir Edward Elg-
ar.
SJÓNVARP
ÞRIÐJUDAGUR
17. september
hefur látið gera um flkniefna-
notkun unglinga I Reykjavlk.
I kjölfar myndarinnar stjórnar
Sigrún Stefánsdóttir umræð-
um um þetta efni. Þátttak-
endur eru Arnar Jensson,
deildarstjóri I Flkniefnadeild
lögreglunnar, Sigtryggur
Jónsson, sálfræöingur, Sig-
urður Pálsson, deildarstjóri
hjá Námsgagnastofnun og
Þórunn Benediktsdóttir hús-
móöir. Sagan af Gullu styöst
við raunverulega atburði.
Með hlutverk hennar fer Hel-
ena Jónsdóttir.
Hljómsveitin „Bournemouth
Sinfonietta" leikur; Normal
del Mar stjórnar.
21.30 Útvarpsagan:
„Sultur" eftir Knut Hamsun.
Jón Sigurðsson frá Kaldað-
arnesi þýddi. Hjalti Rögn-
valdsson les (14).
2200 Tónleikar.
2215 Veðurfregnir. Fréttir.
Dagskrá morgundagsins.
Orð kvöldsins.
2235 óperutónlist.
„La voix humaine", ópera
fyrir sópranrödd og hljóm-
sveit ettir Francis Poulenc.
Carole Farley syngur með
Sinfónluhljómsveit I Adela-
ide. José Serabrier stjórnar.
Kynnir: Gunnsteinn Ölafs-
son.
21.45 Dáðadrengir (The Glory
Boys)
Bresk sjónvarpsmynd I
þremur hlutum, gerð eftir
samnefndri skáldsögu eftir
Gerald Seymour. Aöalhlut-
verk: Rod Steiger og Anth-
ony Perklns. Tveir palest-
inskir hryöuverkamenn eru
sendir til Lundúna til að vega
Israelskan v/sindamann. Isra-
elsmenn fá veður af tilræö-
inu og leita aöstoöar bresku
leyniþjónustunnar. Þýðandi:
Kristmann Eiðsson.
2240 Fréttir I dagskrárlok.
23.30 Tómstundaiöja fólks á
Norðurlöndum.
Noregur. Fjórði þáttir af
fimm á ensku sem útvarps-
stöðvar Norðurlanda hafa
gert. Umsjónarmaöur: Arne
Bakke.
24.00 Fréttir. Dagskrárlok.
ÞRIÐJUDAGUR
17. september
10.00—1200 Morgunþáttur
Stjórnandi: Páll Þorsteins-
son.
14.00—15.00 Vagg og velta
Stjórnandi: Glsll Sveinn
Loftsson.
15.00—16.00 Með slnu lagi
Lög leikin af Islenskum
hljómplötum.
Stjórnandi: Svavar Gests.
1630—17.00 Þjóðlagaþáttur
Stjórnandi: Kristján Sigur-
jónsson.
17.00—18.00 Frlstund
Unglingaþáttur.
Stjórnandi: Eövarö Ingólfs-
son.
Þriggja mlnútna fréttir sagö-
ar klukkan: 11:00, 15:00,
16:00 og 17:00.