Morgunblaðið - 17.09.1985, Blaðsíða 17
MORGUNBLADID, ÞRIÐJUDAGUR17. SEPTEMBER1985
17
Sonja krónprinsessa Norðmanna ásamt nokkrum forsvarsmðnnum menning-
armiðstöðvarinnar í Svíavirki fyrir utan aðalbygginguna.
mun hún hafa heppnast mjög vel
og verið öllum til sóma. Þar sem ég
var þá á eigin vegum og ekki full-
trúi íslenzkra listasamtaka, gleym-
dist að bjóða mér og vakti það mikla
furðu finnskra listamanna, er
hringdu út og suður til að reyna
að leiðrétta misskilninginn — en
mér var sama, enda að undirbúa
Parísarför, svo sem fyrr segir, og
hélt mig við sódavatnið og léttan
kost. Um kvöldið reikaði ég um
allar eyjarnar og átti friðsæla
stund með dýrlegu sólarlagi og
eintali við grómögn náttúrunnar
og ótal fallbyssur, með þá einstæðu
fortíð að vera aldrei notaðar í stríði
og verða þannig engum að fjörtjóni.
— Ég vil fara nokkrum orðum
um sýningarnar, er i gangi voru,
en af þeim er tveim lokið, Aurora
og Playwood. Sýningin Aurora
hófst 24. maí og lauk 25. ágúst.
Sýningin var með mjög alþjóðlegu
yfirbragði svo sem forskrift lista-
markaðsins býður og fátt sem skar
sig úr. íslendingarnir, þeir Halldór
Ásgeirsson og Ingólfur Árnason,
féilu vel inn í þennan hóp — einkum
vöktu myndir Halldórs athygli fyrir
ferskleika. Sýning listaskólanem-
anna, „Playwood", við Hamilton—
virkisveggina (Bastian Hamilton)
hvarf næstum inn í umhverfi sitt,
villtan gróður og svipmikla virkis-
veggi og líktist helst veikbyggðum
tilburðum Graffiti-listamanna i
umhverfi, er yfirgnæfir alla slíka
myndræna afthafnasemi. Hefði
þurft að vera sett upp í opnu og
hlutlausara svæði. Þessi- sýning var
opnuð 15. júlí og lauk 8. september.
Aðalsýningin, „1945—1980 - List
á Norðurlöndum", er að sjálfsögðu
veigamest og stendur hún til 29.
september. Hún er um margt
áhugaverð og vekur til umhugsunar
um norrænan myndlistarvettvang.
Söfnin völdu mismunandi leiðir um
val verka, t.d. um fjölda lista-
manna. Þó voru ýmsar ákveðnar
reglur um þátttöku. Þar sem rými
var mjög takmarkað, var algjörlega
útilokað að bregða upp trúverðugri
mynd af þróuninni á þessu tíma-
skeiði og einungis mögulegt að
kynna brotabrot af henni. Þess var
óskað af skipuleggjendum sýning-
arinnar, að hvert safn veldi úrval
myndverka 3—6 listamanna. Ekki
virtu öll söfnin þetta ákvæði, og
þannig er tala listamanna yfirleitt
I hámarki og þar yfir, nema hvað
íslandi viðvíkur, en þar hafa menn
valið skynsamlega leið með þrjá
listamenn frá Listasafni íslands,
en fjóra frá Nýlistasafninu. Þess
var einnig óskað, að innsend verk
væru ekki mjög stór og fyrirferðar-
mikil né viðkvæm fyrir skemmdum
eða raski. Þetta ákvæði héldu allar
þjóðirnar nema ísland, þ.e. Nýlista-
safnið, sem notar ekki einungis
rými sitt, heldur ryðst inn á vett-
vang Listasafns íslands með tvö
verk af viðkvæmara taginu. Annars
vegar var um að ræða moldarfer-
hyrning, sem var vægast sagt illa
staðsettur, enda hafði fólkið gengið
yfir hann þvers og kruss á fyrsta
degi, þannig að gólfið allt i kring
var eitt skítasvað. Hins vegar var
um að ræða myndaröð á aflöngum
stalli úr gifsi og hálmi, er var stað-
settur skáhalt þvert yfir gólfið og
rýrði það möguleika fólks til yfir-
sýnar yfir verkin frá Listasafninu,
en þau voru eftir þá Jóhann Briem,
Svavar Guðnason og Þorvald Skúla-
son. Var hlutur þeirra stórlega
rýrður með þessari uppákomu og
skil ég ekki, hví Nýlistasafninu
nægði ekki sitt eigið rými. Þá ber
og að geta, að Jón Gunnar Árnason
var mættur með alltof fyrirferðar-
mikið skúlptúrverk og náðu vírarm-
ar þess þvert yfir gólfrýmið og lá
vel við hugsanlegum skemmdum —
enda var búið að brjóta dálítið úr
því á fyrsta degi.
Mér voru ekki kunnar reglur sýn-
ingarinnar, er ég var þarna, en
þrátt fyrir það kom þetta mér mjög
spánskt fyrir sjónir með hliðsjón
af eigin reynslu við uppsetningu
alþjóðlegra sýninga. Alvarlegra
mál er, að fulltrúar frá Nýlistasafn-
inu voru mættir á staðinn og annar
þeirra a.m.k. á styrk frá Mennta-
málaráðuneytinu, en enginn frá
Listasafni íslands. Skildist mér, að
þeir hefðu verið með í ráðum um
uppsetningu sýningardeildarinnar,
og er það undarlegt þvi að þeir
höfðu ekkert umboð Listasafns ís-
lands til að ráðskast með rými þess
og hvað þá heldur rýra hlut safns-
ins. Hinn mikli hlutur Nýlista-
safnsins á sýningunum er og til
umhugsunar. Það, að Nýlistasafns-
menn kynna sérstaklega Diter Rot
og þá sjálfsagt sem íslenzkan lista-
mann og telja hann hinn eina, er
hafi haft heilbrigð áhrif á íslenzka
nútímalist verður að teljast þeirra
einkamál. Þetta er gert með góðri
aðstoð listasagnfræðinga þeirra, er
rita í sýningarskrárnar.
Útlendir mega þó vita, að íslenzk
myndlist er miklu breiðari vett-
vangur en svo, að hann einskorðist
við afurðir frá Nýlistasafninu
ásamt hollenzkum og þýzkum við-
horfum.
— Sýningin í heild var um margt
áhugaverð og ágætt dæmi um gott
og slæmt í norrænni myndlist svo
sem listgagnrýnandi Politiken,
Gunnar Jespersen, segir i fyrirsögn
listdóms um sýninguna (Nordisk
pá godt og ondt). Hann getur um
framlag allra þjóðanna nema Is-
lands (sem má e.t.v. vera skiljan-
legt), en fer þó uppörvandi orðum
um framlag Halldórs Ásgeirssonar
á sýningunni Aurora. Aðra list-
dóma hef ég ekki séð ennþá, er þetta
er ritað.
Vefjarlistarsýning finnsku lista-
kvennanna staðfesti styrk þeirra á
því sviði, og ljósmyndasýningin var
fróðleg.
Bókasafnið er mjög skemmtilega
hannað og býður upp á mikla
möguleika.
Það er með mikilli eftirvæntingu,
sem menn hljóta að fylgjast með
framvindunni á Sveaborg næstu
árin, og nú skiptir miklu máli, að
starfsemin einkennist af víðsýni og
fordómaleysi, þannig að fólk al-
mennt fái áhuga á því sem þar
gerist, en það skiptir sköpum.
En mikilvægast er þó, að menn-
ingarmiðstöð Norðurlanda hafi yfir
sér Norræn einkenni en verði ekki
alfarið bergmál þess sem lista-
markaðurinn fjármagnar af mikl-
um móð um víða veröld hverju
sinni. Um allan heim eru gagn-
rýnendur farnir að kvarta yfir
einlitri stefnu í myndlist, og horfir
það til framfara. Það hefur sem sé
ekki mikinn tilgang að ferðast
langa leið á milli landa til skoðunar
nútímalistasafna og sýninga og sjá
alls staðar það sama. Þrátt fyrir
að myndlistin hafi aldrei verið fjöl-
skrúðugri en einmitt hin síðari ár.
Vinsœlir jazzballett-
búningar fró Parfs,
mikið úival. Búðin er
opin frá kl. 14 - 23.
Póstsendum.
o
6*7701