Morgunblaðið - 17.09.1985, Page 19
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR17. SEPTEMBER1985
19
minni húsmóðurinnar, úr Dagur ei
meir. Þar segir m.a.:
kona
sem ung var gefin njáli
og gengur með honum
úr einum eldi í annan,
þessum taðskegglingi,
býr hálfa öld
með einhverjum karlhrúti
sem var settur á
fyrir agalegan misskilning:
kona
sem er umfram allt
þvímiður
og guðisélof
kona.
Freyja Matthíasar leiddi hug-
ann að ljóði sem var dreift til
gesta ljóðlistarhátíðarinnar á
fjórða ljóðakvöldinu. Það er ort á
dönsku og er eftir Nínu Björk
Árnadóttur.
En kniv som skal ind
til mit hjerte
stikkes i min ryg.
En kniv kann ikke
blive i min ryg
men rækker den
ind i mit hjerte
sidder den der
for evigt
og det er det jeg vil
min elskede Poet Kollega.
(Et digt om dine Digte)
Að lokum las Vilborg Dag-
bjartsdóttir ljóð eftir Snorra
Hjartarson, heiðursgest hátíðar-
innar.
Þannig endaði Norræna ljóðlist-
arhátíðin í Norræna húsinu.
innblásið af skáldskap úr Gagni
og gaman stendur þetta: „Jörðin
sagði ekki neitt. Þá er ég bara,
sagði Óli, og það var hann.“
Eitthvað var Nietzsche líka á
dagskrá.
Björk Guðmundsdóttir, sem er
kunnugt sem einhver uppruna-
legasta söngkona sem lengi hefur
komið fram, las tvo rokktexta.
Fingurgómarnir snerta glitskýin,
sagði Björk okkur og flutti hnit-
miðaðan boðskap með orðunum:
„Hann er guð, ég er guð, allir eru
góðir.“
Frá Danmörku (eða hvað) barst
rödd súrrealistans Sjónar og gjöf
hans til Ljóðahátíðarinnar sem
var skór fullur af hnetum. Sjón
komdu undan borðinu, mælti seg-
ulbandið.
Framlag Sjónar var leikræns
eðlis.
Ljóðskáldasalat ungu skáldanna
var vel heppnað, ekki sem verst á
bragðið og þeir sem hlustuðu og
sáu voru ekki hinir sömu og á há-
tíðinni margnefndu, með fáeinum
undantekningum þó. Vonandi
fáum við meira salat í framtíð-
inni.
Eitt skáldanna sem boðað var
til salatáts, Linda Vilhjálmsdótt-
ir, kom ekki til veislunnar. Það
verður að telja skaða.
esid
reglulega af
ölmm
fjöldanum!
Rándýrið drepið
Myndbönd
Sæbjörn Valdimarsson
ZAPPA ★★★
Leikstjóri Billie August. Handrit
Billie August og Bjarne Reuter. Að-
alleikendur Adam Tönsberg, Peter
Reichardt, Martin Hoff, Jens
Okking, Arne Hansen, Solbjörg
Höjfeldt, Lone Lindorff. Dönsk,
gerð 1983 af Kærne film. Sýningar-
tími 103 mín.
Zappa segir frá félagsskap
þriggja, danskra unglingspilta,
hvernig þeir breytast úr hrekkja-
lómum í glæpaspírur fyrir atbeina
foringjans, (Adam Tönsberg).
Hann er kaldrifjaður forsprakki,
einkasonur velstæðra forelda,
skortir ekkert — utan athygli.
Sömu sögu er að segja af félögum
hans, hvorugir fá þeir umtals-
verða hvatningu heimafyrir,
hvorki hinn ístöðulausi (Peter
Reichardt) né sá feiti og utangátta
(Martin Hoff). Sá síðarnefndi ger-
ir allt til að komast í hinn „rétta“
félagsskap, en sér sig þó um hönd
áður en í óefni er komið.
ist ekki þykja vænt um neitt ann-
að en ránfiskinn sinn, Zappa. Til
að finna að hann sé einhver, ráðsk-
ast hann með félaga sína, leiðir þá
í hvern glæpinn á fætur öðrum
sem verða síalvarlegri.
Reichardt kemur frá millistétt-
arfjölskyldu sem sýnir honum
litla ræktarsemi. Það er þó þessi
veikgeðja piltur sem fyrstur gerir
sér grein fyrir að mál sé að linni
og gerir upp sakirnar við höfuð-
paurinn.
Ástæðuna fyrir kaldlyndi og
glæpahneigð Adams er fyrst og
fremst að finna í vöntun hans á
umhyggju og athygli foreldranna,
sem eru algjörlega upptekin af
sjálfum sér og sinna þessum
greinda pilti ekkert. Honum virð-
Adatn T«»nsberg Reíchhardt MoftmHoi
Zappa er athyglisverð mynd
sem fjallar um hið eilífa vandamál
— unglingana — en rætur þess má
jafnan rekja til þeirra sem eldri
eru. Hún er því sannkölluð fjöl-
skyldumynd. Vekur áhorfandann
til umhugsunar um að hættuna er
jafnan að finna i túnfætinu. Zappa
er dönsk en efni hennar alþjóð-
legt.
m* ' ■ i 8
ALDREIBETRI
ALDREI GLÆSILEGRI
FYRSTA SENDING UPPSELD
Næsta sending tilafgreidslu um mánadamótin
Tryggidykkurþennan margfalda verdlaunabílá frábæru verdi
Daihatsu Charade fremstur í sparneytni, gæöum, þjónustu og endursöiu.
DAIHATSUUMBOÐIÐ
ARMULA 23. S: 685870 - 81733.