Morgunblaðið - 17.09.1985, Blaðsíða 25
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR17. SEPTEMBER1985
25
Tákn og Maurildi
IVIyncilist
Bragi Ásgeirsson
I)aði Guðbjörns8on hefur vakið at-
hygli margra á undanförnum ár-
um fyrir sérstæð vinnubrögð og
myndstíl, sem er harla nýstárleg-
ur hér á útskerinu.
Hann leitar einfaldleikans með
því að beita mjög fjölskrúðugum
og skreytikenndum vinnubrögð-
um, sem um sumt minna á ýmsa
cobraistana gömlu og þá aðallega
Danann Eiler Bille. Hér er ekki
leiðum að líkjast því að einlægari
listamann en nefndan Eiler Bille
getur vart auk þess sem sá er
margbrotin persóna er ferðast
mikið og segir vel frá — er mjög
heimspekilega sinnaður.
Daði sýnir um þessar mundir
olíumyndir, dúkskurð og stein-
þrykk ásamt vatnslitamyndum
(utan skrár) í Gallerfi Borg og eru
myndirnar í skrá 21 að tölu.
Það er í senn ferskur og ung-
gæðislegur svipur yfir þessari
sýningu og víst er, að hér er á
ferðinni listaspíra, sem liggur
eitthvað á hjarta og er I rífandi
gerjun.
Þótt maður þykist hafa séð
þessi vinnubrögð áður þá er
eitthvað sterkt og persónulegt í
myndum Daða, sem erfitt er að
útskýra í stuttu máli hvað eigin-
lega sé — liturinn — efnismeð-
höndlunin — pensilförin eða ein-
faldlega sjálfur framgansmátinn.
£ift pnú. oíiM 4 shpi 37 * '3
„Eftir þrjú“, ol(a á striga.
En ætli það eigi ekki eftir að skýr-
ast á næstu árum.
Það er engin tilgerð yfir mynd-
um Daða, hann kemur fram svo
sem hann er klæddur — einnig í
blaðaviðtölum, sem hann kemst
betur frá en flestir jafnaldrar
hans. Þannig virkar hann heil-
brigður í hugsunarhætti og ein-
lægur í viðleitni sinni með
listmiðlana hefur sem sagt ekki
látið fallerast af neinu heimatrú-
boði í myndlistinni né
allsherj arsannleik.
Sumar myndir Daða eru býsna
skreytikenndar án þess að vera
hið minnsta skrautlegar og það
eitt að geta tjáð sig þannig er
drjúg list, sem fáum er gefin. Sem
dæmi um þetta vil ég vísa til
myndarinnar „Eftir þrjú“ (4), sem
býr bæði yfir mikilli lit- sem
formrænni tilfinningu.
Það verður fróðlegt að fylgjast
með Daða Guðbjörnssyni í fram-
tíðinni en nú gildir að láta hvergi
deigan síga.
HÁÞRÝSTI-
VÖKVAKERFI
SérhæfÓ þjónusta.
Aóstoóum vió val
og uppsetningu
hvers konar
háþrýstibúnaóar.
r : i
REGGIANA
RIDUTTORI
Drifbúnaður
fyrir spil o.f I
= HÉÐINN =
VÉLAVERZLUN-SIMI: 24260
LAGER-SÉRFANTANIR-WÓNUSTA
Hafið samband og kynnist af eigin raun kostum
Barkar þak- og veggeininga
HJALLAHRAUNI 2 SÍMI 53755 PÓSTHÓLF 239 220 HAFNARFIRÐI
Núnaget
vetmmíiö
betra verö
segir Dagbjartur Guðjónsson að Lyngum í Meðallandi
Barkar þakeiningar á fjárhúsið sitt
„Við vorum aðeins tvo daga að smella þakeiningunum á og
unnum þó bara milli mjalta. Síðan er fjárhúsið allt miklu hlýrra
og fyrir vikið get ég vetrarrúið og fengið þannig greiða og fína
ull sem flokkast betur og gefur hærra verð. Ég er hæstánægður
með að hafa valið Barkar þakeiningar," segir Dagbjartur
Guðjónsson.
sem setti
Burðarþol Barkar þak- og veggeininga er mikið og
uppsetning auðveld og fljótleg.
Barkar þak- og veggeiningar henta mjög vel í flestum
byggingum, einkum atvinnu- og geymsluhúsnæði, ekki
síst þar sem mikils hreinlætis er krafist, s.s. í tengslum
við verslun, matvælaiðnað og landbúnað. Barkar hús-
einingar tryggja ótvíræðan sparnað í byggingu, viðhaldi
og rekstrarkostnaði.
Bjóðum nánast allar
stærðir rafmótora frá
EOF í Danmörku.
EOF rafmótorar eru í
háum gæðaflokki og á
hagkvæmu verði.
Ræðið við okkur um
rafmótora.
= HEÐINN =
SELJAVEGI 2. SIMI 24260