Morgunblaðið - 17.09.1985, Síða 26

Morgunblaðið - 17.09.1985, Síða 26
26 MORGUNBLAÐID, ÞRIÐJUDAGUR17. SEPTEMBER1985 Sprengingamar í Kaupmannahöfn: Tólf manns meidd- ust smávægilega — en talsverðar skemmdir urðu á eignum Kaupmannftböríi, 18. september. AP. TVÆR sprengingar röskuðu friði á nýirshátíð gyðinga i sunnudags- kvöld, og ollu miklum skemmdum á matvöruverslun og ferðaskrifstofu í miðborg Kaupmannahafnar. A.m.k. tóir manns þurftu að láta gera að sárum sínum eftir tilræðin, en ekki var vitað um nein meiriháttar meiðsl á fólki. Fyrri sprengjan sprakk fyrir utan verslun í Vennersgade, sem hefur á boðstólum matvörur í samræmi við trúarsiði gyðinga. Örskömmu seinna sprakk hin síð- ari við ferðaskrifstofu í Fari- magsgade, er sérhæfir sig í ferð- um til ísraels. Lögreglan hafði enga hugmynd um, hverjir staðið hefðu á bak við sprengingarnar, en þær urðu með fáeinna minútna millibili og eru aðeins nokkur hundruð metrar á milli húsanna. A.m.k. tólf vegfarendur, sem leið áttu fram hjá húsunum, er sprengingarnar riðu yfir, fóru eða voru fluttir á spítala vegna áverka sem þeir hlutu af glerbrotum sem þeyttust í allar áttir. Að sögn lögreglunnar fengu allir að fara heim, þegar gert hafði verið að sárum þeirra. Mestar skemmdir urðu í mat- vöruversluninni, og myndaðist stórt gap í gangstéttinni fyrir utan, auk þess sem tveir kyrrstæð- ir bílar eyðilögðust. Ekki eru enn liðnir tveir mánuð- ir frá því að tvær sprengjur hermdarverkamanna sprungu í Kaupmannahöfn, önnur í sam- kunduhúsi gyðinga, en hin i bandarískri ferðaskrifstofu í hjarta borgarinnar. Samtök hryðjuverkamanna frá Beirút i Líbanon, sem kalla sig „Heilagt stríð“, lýstu þá yfir ábyrgð sinni á sprengingunum og kváðust vera að hefna fyrir árásir ísraela og Bandaríkjamanna. Einn maður lést og yfir 20 særð- ust. Smábam deyr úr ónæmistæringu Montpellier, Frakklandi, 16. sepL AP. 18 mánaöa gamall drengur, sem þjáöist af ónæmistæringu, dó í borg- inni Montpellier í Frakklandi í síö- ustu viku. Læknir hans, Dr. Michel Rodiere, sagöi að drengurinn, tvíburi sem fæddist fyrir tímann, heföi tekið sjúkdóminn eftir að hafa fengiö blóö- gjöf við fæðingu. Þar með hafa fjögur smábörn lát- ist úr ónæmistæringu í Frakklandi. Forsætisráðherra landsins, Laurent Fabius, hefur fyrirskipað að allir blóðgjafar skuli gangast undir sér- staka blóðprufu, sem sker úr um hvort þeir séu sýktir af ónæmistær- ingu og öðlaðist þessi regla gildi i ágúst síðastliðnum. AP/Slmamynd Svona var umhorfs eftir aöra sprenginguna en hún varö við verslun í eigu gyöinga. Frjálslyndi þjóðarflokkurinn sigurvegari sænsku kosninganna — en jafnaðarmenn sitja áfram við völd Eftir Pétur Pétursson SIGURVEGARINN í þessum kosn- ingum er Bengt Westerberg og flokkur hans, Frjálslyndi þjóöar- flokkurinn, sem fékk 14,3%c at- kvæöa — en í kosningunum 1982 fékk sami flokkur aðeins 5,9%«. Þá voru forsvarsmenn flokksins hræddir um að hann mundi jafnvel hverfa úr sögunni sem þingflokkur viö næstu kosningar. En nú er þaö Ijóst að flokkurinn hefur eignast frábæran leiðtoga þar sem Wester- berg er. Hann er líklegur til að gera stóra hluti fyrir flokk sinn í sænskum stjórnmálum í nánustu framtíð. Þessi úrslit komu jafnvel Westerberg sjálfum á óvart. Hann tók við formennsku árið 1983 og lengi vel sýndu skoðana- kannanir enga fylgisaukningu. Það var ekki fyrr en nokkuð var liðið á kosningabaráttuna, að talan fyrir Þjóðarflokkinn fór að hækka, hægt en öruggt. Þremur dögum fyrir kosningarnar sýndi SIFO-stofnunin að flokkurinn hafði 10,7%«. Westerberg sagði þá með sinu sérstaka raunsæi í svipnum, sem nú er orðið al- þekkt, að hann tryði varlega á þessar tölur. Hann sagðist með- vitaður um það að flokkurinn væri á uppleið, en taldi óraun- hæft að búast við að hann fengi yfir 10%o atkvæða. Vinstri meirihluti á þinginu Þótt sósíaldemókrataflokkur- inn hafi misst menn af þingi, fara þeir áfram með völd. Þeir fengu nú 44,9% atkvæða, en það er tæpu 1 prósenti minna en við næstu kosningar á undan. Stjórn Olofs Palme verður því enn háð- ari kommúnistum, sem fengu nokkurnveginn jafnmarga þing- menn nú og við kosningarnar 1982. Á síðasta kjörtímabili hafði sósíaldemókrataflokkurinn einn fleiri þingsæti en borgaraflokk- arnir þrír til samans og það var aðeins, ef kommúnistar hefðu gengið í lið með borgaraflokkun- um að þeir gátu fellt frumvörp stjórnarinnar, en það var ekki líklegt. Nú verður stjórnin hins vegar háð beinum stuðningi frá kommúnistum, ef borgaraflokk- arnir standa saman í stjórnar- andstöðu. Ekki er þó um það að ræða að kommúnistar vilji fá ráðherraembætti. Formaður þeirra Lars Werner lýsti því yfir þegar í kosningabaráttunni, að þeir hefðu ekki áhuga á að sitja í stjórn. Ot yfir það að fá aukið fylgi var aðalmál þeirra að koma í veg fyrir hægri stjórn og styrkja stöðu sína innan vinstri fylkingarinnar. Þetta hefur þeim tekist. Leitar Palme samstarfs við miðflokkana? Formaður sósíaldemókrata, Olof Palme, er hæst ánægður með kosningaúrslitin og er engu líkara en að hann hafi unnið stærsta sigurinn. „Það leit illa út fyrir hálfu ári,“ segir hann. „Þá hefðu fáir trúað því að þjóðin myndi gefa okkur tækifæri til þess að fara með völd áfram.“ Ánægðastur er Palme með það að hægri sveiflan virðist nú vera úr sér gengin. „Okkur hefur tek- ist að stöðva leiftursókn hægri aflanna," segir hann og leggur nýlíberalismann að jöfnu við eigingirni. „Þjóðin hefur hafnað henni,“ segir hann og bendir á að fylgisaukning Þjóðarflokksins byggist á því að Bengt Wester- berg snerist á síðustu vikum kosningabaráttunnar gegn hinni eindregnu hægristefnu Móder- ataflokksins og lagði aukna áherslu á sósiallíberalismann, þ.e.a.s. frjálst markaðskerfi ásamt félagslegri velferð og ör- yggi- Palme spáir því að tap Móder- ataflokksins, sem mjög kom á óvart, geri það að verkum að auðveldara verði að ná sam- komulagi við miðflokkana, sem á síðasta kjörtímabili hafa starfað undir ægishjálmi hægri flokks- ins, er allar skoðanakannanir sýndu að naut vaxandi fylgis meðal þjóðarinnar. Nú verða móderatar ekki jafn sjálfsagðir leiðtogar stjórnarandstöðunnar. Það kom greinilega fram í viðtali við Olof Palme eftir að úrslitin lágu nokkurnveginn ljós fyrir, að hann er tilbúinn til að ræða samstarf við miðflokkana. Þar með gætu sósíaldemókratar komið málum í gegnum þingið án þess að vera algerlega háðir stuðningi kommúnista. Mið- flokkarnir gætu þá einnig haft áhrif á gang mála og komið fram einhverju af sinum málum með samningum við stjórnina. Fyrir kosningar var þó ekki að heyra á Westerberg að hann hefði áhuga á nánu samstarfi við sós- íaldemókrata. En aldrei er að vita hvað gerist þegar kosninga- hitinn hefur hjaðnað og stríðs- mennirnir slíðrað sverðin og sleikt sár sín. Það er því ekki víst að stjórnin verði eins háð stuðningi kommúnista og virðist við fyrstu sýn. Höfundur er fréttarítarí Mbl. í Lundi Sríþjóó. Veður víða um heim Hæsl Akureyn 6 •kýjaö Ameterdam 1 18 akýjaö Aþena 16 27 Hatóakfrt Barcakma 24 Mttskýjaö Berlín 9 17 akýjað BrUeael 10 20 skýjaö Chicago 4 21 skýjaö Dublin 9 17 skýjaö Feneyjar 20 skúrir Frankfurt 6 15 skýjaú Gent 11 10 skýjaú HeteMii 10 14 •kýjaö Hong Kong 27 30 haióakírt Jenieatem 8 20 haiöakirt Kaupmannah. 10 11 •kýjaö La* Patmas 25 lúttskýjað Uaeabon 23 38 heiöskirt Lbndon 11 16 •kýjsö Los Angeles 17 28 •kýjsö Lúiemborg 13 •kýjaö Malaga 28 mistur Mallorca 25 •kýjaö Mlami 23 29 rigning Montreal 7 21 heióskirt Moskva 8 15 rigning New Vork 11 25 heiöskirt OsM 6 15 heiöekirt Peris 10 18 heiöskfrt Peking 13 20 skýjaö Reykjavík 7 rignfng Bi6 de Janeiro 15 30 heiöskfrt Rómaborg 15 30 heiöskfrt Stokkhöbnur 10 12 •kýjsö Sydney 12 23 heiöskfrt Tókýó 17 19 rigníng Vinarborg 8 23 hsiöskirt ÞOrshöfn 9 •kýjsö MIKILL SPARNAÐUR Raðveggir kosta ekki meira en efni í milliveggi þar sem hefðbundinni aðferð er beitt. Vegna þess að veggirnir koma samsettir frá verksmiðjunni og eru auðveldir í smbbpmJ uppsetningu eru dæmi um allt að 80% tímasparnað. Sölustaðir Reykjavík Innréttingamiðstóðin Ármúlo 17o yímar 91-84585, 84461 Akranes Guðlaugur Magnússon Skarðsbraut 19 Sími 93-2651 Siglufjörður Bútur hf Rónargótu 16 Sími 96-71333 Akureyri Bynor Glerórgótu 30 Sími 96-26449 Egilsstaðir Trésmiðja Fljótsdalshéraðs Fellabœ Sími 97-1700 Neskaupstaður Valmi hf. B-gótu 3 Sími 97-7605 Vestmannaeyjar Brimnes Strandvegi 54 Sími 98-1220 Selfoss G. Á Bóðvarsson Austurvegi 15 Sími 99-1335 Keflavík Byggingavai Iðavóllum 10 Sími 92-4500 FJALAR h/f Húsavík Sími 96-41346

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.